Þjóðviljinn - 19.05.1982, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. maí 1982
Ræður frambjóðertda G-listans á fundi Kvenréttindafélags íslands
Guðrún Ágústsdóttir, 3. maður á G-lista í Reykjavík:
Skylda mín sem
kona og móðir
Þaðverðurbara ekki þverfótað
fyrir konum, þær eru alls staðar,
allir flokkarnir meðfullt af konum
á listunum sinum. Þetta eru al-
gengar setningar nú upp á síð-
kastið. Allir eru himinlifandi
nema e.t.v. einstaka karlar sem
ýtt var til hliðar og allir tala um
að kvennaframboðinu sé fyrir að
þakka.
2 konur f 10 efstu sætum á lista
Sjálfstæðisflokksins, 2 af 4 hjá
Alþýðuflokki, 2 af 4 hjá
Framsóknarflokki, kvennafram-
boðið með konur eingöngu auðvit-
að og 3 af 6 hjá Alþýðubandalag-
inu.
Þvflikur munur frá þvi síðast
eða hvað. Jú, hjá öllum flokkun-
um nema Alþýðubandalaginu.
Við finnum engan mun.
Viðerum þarna sömukonurnar
og siðast og okkur er ekkert ný-
næmi í að vinna saman. Alþýðu-
bandalagið hefur haft sérstöðu
hvað varðar skilning á jafnréttis-
baráttu kvenna, enda er það
skylda sósíalista og engin ástæða
til að þakka það neitt sérstaklega.
Enda kemur í ljós að nú sitja
jafnmargar konur frá Alþýöu-
bandalaginu i bæjarstjórnum og
frá hinum flokkunum þremur
samanlagt, eða 8 konur kosnar af
G-lista og 8 konur kosnar af A, B,
ogD-listum.
Hægri eða vinstri
Adda Bára nefndi i útvarpinu á
fimmtudagskvöldið i beinni línu
að hún væri ekki hissa á framboði
kvenna og sæi nauðsyn þess fyrir
konur áhægri væng.
En hvað er hægri vængur? Er
einhver munur á hægri og vinstri
öflum — þvf hefur verið haldið
fram að þau hugtök séu nokkuö
óljós.
En ef við leyfum okkur að taka
borgarmálefnin fyrir og kalla
Sjálfstæðisflokkinn hægri og
samstarfsflokkana, Alþýöuflokk,
Framsóknarflokk og Alþýðu-
bandalag vinstri, hvernig hefur
þetta skipst, eftir málaflokkum,
sem unnið hefur verið að, eða hef-
ur i raun enginn munur verið?
Er þétting byggðar vinstri —
hægri
Er endurnýjun og vemdun
gamalla húsa, vinstri —■ hægri
Verndun og nýtt skipulag i
Grjótaþorpinu vinstri — hægri
um þaðmádeila.
Hverfalýðræðið — valddreif-
Guðrún Agústsdóttir: Baráttuna
fyrir sjálfstæði og friöi get ég ekki
lagt á hilluna og einblint á
kvennama'l.
ingin til fbúanna — og atvinnulýð-
ræði fólgið m.a. í þátttöku starfs-
manna i stjómum fyrirtækja, em
svo sannarlega á vinstri vængn-
um.
Bygging leiguibúða — raun-
vemlegtval fólks á þvi hvortþað
vill byggja eða leigja tryggt hús-
næði.
Umferðarmálin — takmörkur
einkabilaumferðar — forgangur
aimenningsvagna, raunverulegl
val á milli þess að eiga og reka
einkabil eða eiga kost á góðum
strætisvagnaferðum.
Dagheimili fyrir öll börn — ekki
bara forgangshópa — uppbygging
atvinnufyrirtækja i eigu borgar-
ínnar. I minurn huga eru linurnar
milli hægri og vinstri skarpar í
siðastnefndumálunum.
Og ef við flytjum okkur aðeins
útfyrirborgarmálin.
Hvaö með sjálfstæðismál þjóð-
arinnar — baráttuna fyrir brott-
för hersins og úrsögn úr Nato,
baráttuna gegn yfirráðum og ihlut-
un erlendrar stóriðju á islenskt
atvinnulif, baráttuna gegn hvers
kynskúgun allra minnihlutahópa,
baráttuna fyrir þvi að atvinnu-
tækin séu i eigu fólksins, barátt-
una gegn þvi að fáir hagnist á
vinnu margra, baráttuna gegn
stéttskiptu þjóðfélagi, (þar sem
konurlenda neðst); nú er ég ekki i
nokkrum vafa um að þama er á
ferðinni vinstri pólitik, mér finnst
það siðuren svo neitt ógreinilegt.
E.t.v. eru þeir til sem með
djúphugsaðri heimspeki geta
sannfært sjálfa sig um að hægri
og vinstri sé það sama. En égskil
það ekki.
Hægri stefnan — sem til allrar
hamingju hefur ekki veriö stund-
uð hér i sinni verstu mynd, hún er
lika nokkuð skýr.
Konur í pólitíkinni
Og þá er komið að málum
kvenna. Hvaö á sá hópur sameig-
inlegt? Jú, allar konur erukúgaðar
vegna kynferðis sins, þeirra störf
heima og heiman eru vanmetin
o.s.frv. o.s.frv.
Hefur t.d. flokkur eins og
Alþýðubandalagið sem segist
berjast fyrir jafnrétti karla og
kvenna sýnt það i verki þegar
hann hefur komist i valdaað-
stöðu? Hafa konur og karlar i
Alþýðubandalaginu staðið sig
eitthvað betur en aörar konur og
karlar annarra flokka i að knýja
fram réttlætiskröfur kvenna i
gegnum árin — hvort sem var i
meiri eða minnihluta? Nei, segja
kvennafrainboðskonur; en þar
hafa þær ekki rétt fyrir sér.
Konur i' Sósialistaflokknum
sem siðar varð Alþýðubandalagið
hófu baráttuna fyrir dagheimil-
um og mörgum öðrum málum áð-
ur en ég fæddist, og hafa haldið
henni áfram. Og karlarnir reynd-
arlika.
Á yfirstandandi þingi hefur
Alþýðubandalagið beitt sér fyrir
og náð fram fæðingarorlofi fyrir
allar konur — loksins, Guðrún
Helgadóttir bar fram tiliögu um
fjölskylduráðgjöf fyrir fólk á öUu
landinu — sútillaga varþvi miður
ekki samþykkt, en tillaga hennar
um gerð námsskrár á dagvistar-
heimilum — einskonar uppeldis-
áætlunarplan og tillaga hennar og
Svavars Gestssonar um réttindi
kvenna til atvinnuleysisbóta
burtséð frá tekjum eiginmanns-
ins — talsvert réttlætismál, náðu
fram að ganga.
Hvað var Svava
að gera
Og hvaö var hún Svava Jakobs-
dóttir að gera á þingi? Magnús
Kjartansson? Við megum ekki
vera of fljót að gleyma.
Hefur eitthvað breystá s.l. 4 ár-
um i borgarstjórn, eru ný
áhersluatriöi? Já svo sannarlega.
Það er ekki nóg að skoða reikn-
inga Reykjavikurborgar og fjár-
hagsáætlun.
En erum við þessir kvenkyns
fulltrdar stjórnmálaflokkanna,
sem sjáum og skiljum kúgun
Alfheiður Ingadóttir, 5. maður á G-listanum í Reykjavík:
Mikill munur á hægri
og vinstri stefnu
Tökura pólitíska
afstöðu í
kosningunum á
laugardaginn og
kjósum
Alþýðubandalagið
Ég vil byrja á því að þakka
KRFt fyrir að hafa forgöngu um
þennan fund og reyndar fleiri
fundi sem félagið hefur staðið
fyrir á undanförnum árum með
konum sem taka þátt i stjórn-
málum. Þessir fundir, sem ég hef
setið a.m.k. hafa hvatt konur til
átaka á vettvangi stjórnmála-
baráttunnar og orðið árangurs-
rikir, þannig að nú er sá timi upp
runninn að það er ekki aðeins
Alþýöubandalagiö sem býður
fram starfskrafta fjölmargra
kvenna i borgarstjórn Reykja-
vikur, — konur skipa nú baráttu-
sæti á öllum öðrum listum.
Borgarstjórnarkosningarnar
eftir viku snúast þvi ekki sist um
það hvaða konur Reykvikingar
velja til setu i borgarstjórn og við
val er brýnt að glöggva sig á
þeirri stefnu sem konurnar og
flokkar þeirra hafa fram að færa.
Og til þess erum við væntanlega
saman komin hér i dag.
Kvennaframboðið
„hvorki né”
Nú síðustu dagana, eftir að
kosningabaráttan fór virkilega i
gang, hafa hinar pólitisku linur
skerpst mjög, en þaö furöulega
hefur gerst á sama tima að æ
meir hefur borið á fullyrðingum
um að enginn munur sé á þessum
stjórnmálaflokkum, — allir séu
þeir eins og það sé enginn munur
á hægri og vinstri stefnu. Og
kvennaframboðið, segist vera
„hvoi’ki-né”.
Fyrir mér hljóma þessar full-
yrðingar álika og aðrar eldri um
að jörðin sé flöt. Og þar sem dag-
vistarmál eru ein brýnustu úr-
lausnarefni næstu borgarstjórnar
og snerta alla sem hér eru inni,
langar mig til að fara um þau
nokkrum orðum og athuga hvaða
stefnur þar eru uppi. Athuga
hvort munur sé á hægri og vinstri.
Allir flokkar sem nú bjóða fram
hafa dagvistarmál á sinni stefnu-
skrá. Misjafnlega ofarlega að
visu og með mismunandi
áherslum, — þannig villl Sjálf-
stæðisflokkurinn leggja áherslu á
leikskólarými en Alþýðubanda-
lagið á dagheimili og skóladag-
heimili, en allir vilja flokkarnir
byggja meira af dagvistarheim-
ilum. í ljósi þessa er kannski ekki
nema von að einhverir haldi að
enginn munur sé þar á. En ein-
mitt þegar yfirborðiö er slétt og
fellt eigum við að skyggnast
lengra, athuga verkin jafnt og
orðin, rýna i þann grundvallar-
mun sem er á stefnu okkar sósial-
ista og annarra flokka. Að þvi
búnu eigum við að taka pólitiska
afstöðu.
Sósíalistar að verki
En hver eru svo verkin? Á
undanförnum dögum höfum við
heyrt og séð margar fullyrðingar
um uppbyggingu dagvistarrýma i
Reykjavik. Mogginn segir að
ihaldið sitt hafi gert ivið betur en
vinstri menn, Þjóöviljinn segir að
vinstri menn hafi gert mun betur
og kvennaframboðið segir að þar
Alfheiður Ingadóttir: t kosn-
ingunum verður tekist á um tvær
meginstefnur, hægri stefnu undir
stjórn Sjálfstæðisflokksins og
vinstri stefnu undir stjórn
Alþýöubandalagsins.
sé enginn munur á. Hvað skyidi
nú vera hæft i þessum fullyrð-
ingum? Ég ætla hér ekki að fara
að leika tölvufræðing, enda vitum
við öll að með þeirri fræði er hægt
að sanna ailt og ekkert. Stað-
reyndirnar tala hins vegar sinu
máli, — á kjörtimabili vinstri
manna i Reykjavik hefur mikil
rækt verið lögð við úrbætur i dag-
vistarmálum. Ekki aðeins með
byggingu 12 nýrra dagvistar-
heimila með 662 plássum, heldur
einnig á skipulagi þessarar þjón-
ustu og áætlanagerð um frekari
framkvæmdir.
Ég lit á það sem mikla ein-
földun þegar menn einblina
aðeins á tölur um fjölda plássa,
eins og ýmsir gera nú, og ræða þá
minna um sögu þessara mála og
rekstur dagvistarstofnananna.
Við sem viljum næg og góð dag-
vistarrými fyrir öll börn, skulum
ekki gleyma þvi að það var fyrri
vinstri stjórnin sem setti lög um
þátttöku rikisins i byggingu og
rekstri dagvistarstofnana. Lög
sem urðu til vegna kröfu Alþýðu-
bandalagsins og baráttu verka-
lýðshreyfingarinnar. Lög sem
urðu sveitarfélögum um allt land
mikil lyftistöng og urðu til þess að
fjölmörg dagheimili risu á næstu
árum þar á eftir. Meira að segja i
Reykjavik undir ihaldsstjórn
varð fjörkippur i byggingu dag-
heimila, enda veitti rikið fé á
fjárlögum til byggingar þeirra og
rekstrar. Þarna er sem sé komin
skýringin á þeim stökkbreyt-
ingum sem i þessum málaflokki
urðu á siðasta kjörtimabili Sjálf-
stæðisflokksins i Reykjavík, —
þar voru sósialistar að verki!
Það hljómar þvi ekki sannfær-
andi fyrir mér, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn visar nú til þessara
ára og segir: Sjáiði bara hvað við
gerðum, — auövitað munum við
halda áfram á sömu braut. Ég
hlusta ekki á orðin, — ég lit á
verkin. Þvi það kom rikisstjórn á
eftir vinstri stjórninni, rikisstjórn
Geirs Hallgrimssonar sem lét það
verða eitt sitt fyrsta verk aö fella
niður þátttöku rikisins I rekstirar-
kostnaði dagvistarheimila. Þær
aðgerðir sem voru liður i band-
orminum fræga, urðu tú þess að
afturkippur komst í byggingar
dagvistarheimila um allt land,
enda eiga smærri sveitarfélögin i
miklum erfiðleikum við að láta
enda ná saman. Þessa afturkipps
hefur þó ekki orðið vart i Reykja-
vik né á öðrum stööum, þar sem
sósialistar ráöa ferö. Þvert á móti
hefur þar verið gert átak i dag-
vistarmálum við mun erfiðari að-
stæður en á timum ihaldsins i
Reykjavik.
Sósíalistar þurfa
meira afl
Ástæðan fyrir þessu er sú að
Alþýðubandalagið telur upp-
byggingu dagvistarheimila for-
gangsverkefni og hikar ekki við
að fullnýta tekjustofna sveitar-
félaganna i þvi skyni. Við höfum
enn ekki fengið afl á alþingi til að
hnekkja þessum Geirs- og ölafs-
lögum, en þar til það verður gert
höfnum við öllum yfirboðum um
skattalækkanir, sem aðeins munu
bitna á félagslegri þjónustu eins
og dagvistarþjónustunni. Þvi við
Alþýðubandalagsmenn litum á
dagvistarheimilin sem félagslega
þjónustu sem greiða á úr sam-
eiginlegum sjóðum landsmanna,
rétt eins og fræðslukerfið og heil-
brigðisþjónustuna. Þetta er okkar
stefna og eftir henni störfum við.
En hvernig vilja svo Sjálf-
stæðismenn reka þessa þjónustu?
Fyrst velta þeir rekstrarkostn-
aðinum frá riki yfir á vanmáttug
sveitarfélög og nú i þessum kosn-
ingum er það baráttumál Sjálf-
stæðisflokksins að velta rekstrar-
kostnaðinum af Reykjavikurborg
yfir á þá einstaklinga sem þjón-
ustunnar njóta. Láta þá eina
njóta hennar sem hafa efni á þvi
að lækka skattana um leið. Og
svo segja menn að enginn munur
sé á hægri og vinstri stefnu.
Hvert dagvistarrými kostar nú
3800 krónur á mánuði i rekstri. Af
þvi greiða foreldrar riflega 900
krónur og finnst vist flestum nóg
um, eða um 25%. A örfáum árum
hefur hlutur borgarinnar vaxið úr
60% i 75% og undan þvi kvarta
Sjálfstæðismenn nú sáran og
kenna um verðhaftastefnu stjórn-
valda. Við höfum meira að segja
fengið að heyra það frá fulltrúum
þessa flokks á undanförnum
dögum að foreldrar séu undrandi
á þvi að þeir eigi ekki að borga
meira fyrir þessa þjónustu!
Vissulega er gjaldskrám haldið
niðri i Reykjavik vegna visitöl-
unnar, en engu að siður hefur
hlutur foreldra i rekstri dag-
vistarstofnana vaxið i nokkru
samræmi við almenna verðlags-
þróun i landinu. Þaö er ekki
þeirra hlutur sem hefur minnkaö,
hlutur borgarinnar hefur vaxið
vegna þess að rekstrarkostnaður
dagvistarheimilanna hefur vaxið
langt umfram alla verðlagsþróun
i landinu, umfram þróun kaup-
gjalds og umfram hækkun á visi-
tölu vöru og þjónustu.
En hvernig skyldi nú standa á
þvi? Skýringin er sú að þjónustan
hefur verið aukin gifurlega og
laun þeirra kvennastétta sem við
dagvistarheimilin starfa hafa
hækkað verulega.
Vinstri aðgerðir
Allir þekkja þá löngu timabæru
breytingu sem varð á kjörum