Þjóðviljinn - 19.05.1982, Síða 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. mai 1982
Sjúkrahús
Skagfirðinga
Sauðárkróki, óskar að ráða röntgentækni
til starfa frá 15. ágúst, og sjúkraliða frá 1.
september.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra eða á
skrifstofunni, i sima 95-5270.
Frá Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla
Skólaslit og brautskráning stúdenta og
nemenda af tveggja ára brautum fer fram
i Laugarásbiói fimmtudaginn 20. mai kl.
13.00.
Skólameistari.
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um i ef tiríarandi:
RARIK-82009. Reising á 66 KV linu frá
Ljósafossi að Hveragerði.
Aðalatriði verksins eru: Flutningur á efni
frá birgðastöðvum og dreifing á linusvæði.
Jarðvinna og reising staura ásamt niður-
rekstri staura.
Uppsetning á þverslám með einangrun og
krossum.
Alls eru þetta 103 staurastæður á 15 km
linusvæði.
Verki skal ljúka 15. ágúst 1982
Opnunardagur: Miðvikudagur 2. júni 1982
kl.14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik íyrir opnunartima, og verða
þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðend-
um er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik, frá og með miðvikudeginum
19. mai 1982 og kosta kr. 200.- hvert eintak.
Reykjavik, 17. mai 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Aldarafmæli
Flensb orgarsk óla
Flensborgarskóla verður slitið i íþrótta-
húsinu i Hafnarfirði fimmtudaginn 20. mai
kl. 13.30.
Að skólaslitum loknum verður afmælis-
kaffi og afmælissýning i skólahúsinu.
Sunnudaginn 23. mai kl. 14 verður hátiðar-
messa i Garðakirkju þar sem heiðruð
verður minnig stofnenda skólans prófasts-
hjónanna séra Þórarins Böðvarssonar og
Þórunnar Jónsdóttur.
Allir velunnarar skólans eru hjartanlega
velkomnir.
Skólameistari
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
í frystiskápa.
Góð þjónusta.
'D&MVMFÆ* —
REYKJAVIKURVEGI 25 Hafnarfiröi simi 50473
Tónlefkahátíð Hauks
Morthens er í kvöld
Tónleikar verða haldnir i Aust-
urbæjarbiói i kvöld, 19. mai kl.
11.30. Aö þessum hljómleikum
stendur Haukur Morthens sem
fær til liðs viö sig fjöldann allan af
landsþekktum listamönnum.
Sex söngkonur munu koma
fram á hljómleikunum þær Soffia
Guömundsdóttir, Kristbjörg
Löve, Mjöll Hólm, Hjördis Geirs,
Edda Siguröardóttir, Helga
Möller, og auk þeirra hin 12 ára
gamla Nini de Jesus.
Kynnir veröur hinn þjóðkunni
útvarpsmaöur Jónas Jónasson.
Undirleik mun annast sextett
skipaður Eyþór borlákssyni á
gitar, sem einnig sér um
útsetningar, Carl Möller, pianó,
Ómar Axelssyni, balssa, Sæbirni
Jónssyni, trompett, Reyni Jónas-
syni, saxafón, sem einnig leikur
létt harmónikkusóló og Guð-
mundi Steingrimssyni, trommur.
Til aðstoðar við undirleikinn
verður Big Band Svansins skipað
17 ungum efnilegum hljóðfæra-
leikurum. Einnig leikur Guðni.Þ.
Guðmundsson á pianó.
Þá verður Árni Elfar með ein-
leik á pianó og jassgitarleikarinn
Björn Thorarensen nýkominn frá
Ameriku. Siðast veröur tisku-
sýning frá versluninni Capellu.
Menningarsj óður:
Kortasagan endurprentuð
og Gaimard ljósprentaður
Fyrra bindi af Kortasögu Is-
lands eftir Harald Sigurðsson
hefur veriö uppselt i nokkur ár en
Menningarsjóöur hefur nú látið
endurprenta þaö svo aö ritiö er nú
á boðstólum i heild sinni. Þá
hefur Bókaútgáfan Menningar-
sjóðs einnig gefið út ljósprentaðar
myndirnar úr hinu fræga riti Páls
Gaimards, Voyage en Islande et
au Groenland. Sú bók er i stóru
broti og myndirnar um 150.
Fyrra bindiö af Kortasögunni
kom út 1971 og fjallar um sögu
kortagerðar af Islandi og ná-
lægum slóðum frá öndverðu til
loka 16. aldar. Siðara bindið, sem
kom út 1978, hefst hins vegar með
Islandskorti Guöbrands biskups
Þorlákssonar og lýkur með kort-
um Björns Gunnlaugssonar á sið-
ustu öld.
Myndirnar i riti Páls Gaimards
en hann stjórnaði tveimur ís-
landsleiðangrum 1835—36, eru
flestar eftir Agúst Mayer en
nokkrar eftir Eugéne Robert og
Emil Lassale. Haraldur Sigurðs-
son sá um útgáfu bókarinnar og
ritar eftirmála.
— GFr
Aöalfundur
Hlífar
A aðalfundi verkamanna-
félagsins Hlifar sem haldinn var
fimmtudaginn 29. april var kosin
ný stjórn félagsins. Hana skipa:
Formaður: Hallgrimur
Pétursson. Varaformaður: Sig-
urður T. Sigurðsson. Ritari:
Hörður Sigursteinsson. Gjald-
keri: Eðvald Marelsson. Vara-
ritari: Stefán Björgvinsson. Fjár-
málaritari: Guöbergur Þor-
steinsson. Meðstjórnandi: Ólafur
Jóhannsson.
A aðalfundinum kom fram að
sjóðir félagsins jukust verulega á
siðasta ári.
Leiðrétting
f viðtali við öddu Báru Sigfús-
dóttur á miðvikudaginn var farið
rangt með i myndatexta undir
mynd af vistheimilinu við Dal-
braut. Myndin var frá þvi er
borgarfulltrúar og aðrir litu á
ástand svæöisins i ágút 1978, en
heimilið var opnað I nóvember
1979, en ekki 1975 eins og sagði i
myndatextanum.
MUNIÐ
kosninga-
sjódinn
Kortasagan, bæöi bindin, og tslandsmyndir úr feröum Gaimards eru
nú fáanleg á nýjan leik. (Ljósm. eik)
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Skólaslit verða i Kópavogskirkju
fimmtudaginn 20. mai kl. 14.
Skólastjóri
ÚTBOÐ |||
Tilboð óskast i múrviðgerð og málun á
Laugardalshöll að utan.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
að Frikirkjuvegi 3 Reykjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 1. júni n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fnkirkjuvegi 3 — Símí 25800
Vestmannaeyjar
Félagsmála-
fulltrúi
Staða félagsmálafulltrúa hjá Vestmanna-
eyjabæ er laus til umsóknar frá 1. júli n.k.
Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg
menntun æskileg.
Umsóknarfrestur til 10. júni n.k.
Upplýsingar veitir bæjarstjóri eða félags-
málafulltrúi Sigrún Karlsdóttir i sima 98 -
1088.