Þjóðviljinn - 04.09.1982, Qupperneq 3
Helgin 4.-5. september 1982
notað og nýtt
Skaði
Notað Q
og nýtt^
Er táfýla
af yður?
skrifar
ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 3
Bráöum kemur betri tíð
Jón Þeófílusson nemi:
Getið þið ekki spurt einhvern
annan?
Hávarður Nefjólfsson tæknifræ-
ðingur:
Eg finn cnga lykt!
Helena F. Hilmarsdóttir fcgrunar-
sérfræðingur:
Nei, cn af þér?
Þorlákur Þ. Thomsen fram-
kvæmdastjóri:
Ég hætti að auglýsa í blaðinu hjá
ykkur.
Lubbi Tíkarson:
Voff!
Það er margt orðið svo skrýtið
og ég skil ekki atmennilega
Morgunblaðið mitt um þessar
mundir. Stjórnin, sem er auðvitað
bölvuð og menguð af kommún-
istavitleysu, hefur sýnt aðhald,
ábyrgð, stillingu og niðurskurð og
svo lætur blaðið eins og heimur-
inn sé að farast.
Þetta kann ekki góðri lukku að
stýra. A að vera að mæla upp i
lýðnum frekjuna og kjarastreðið
sem setur landið á höfuðið? nú
eða siöar meir. Ég bara spyr. En
ég skil vel að hann Gunnar minn
kaupmaður og Kristján hjá út-
geröarmönnum eru ekki hressir,
þvi auðvitað á ekki að spilla fýrir
þeim mönnum sem hafa ein-
hverja drift. Það verður að leyfa
þeim aö leggja á vöruna alminni-
lega svo ekki fari allt i sukk og
óráðsiu hjá almenningi og það I
miöri viku kannski. Það þarf lika
að borga útgerðarmönnum
áhættuþóknun fyrir að veiða fisk
sem getur horfið þegar minnst
varir eins og Tjallinn hafi gleypt
hann, sællar minningar. Það er
lika hættulegt að salta fisk, sem
Portúgalar fjasa yfir og hefðu
þeir kónar aldrei áít að fá frelsi til
að steypa alminnilegúm
mönnum frá völdum sem alltaf
var hægt að ná samkomulagi við.
Nei, það er satt hjá þessum
mönnum, að miklu meira mætti
stjórnin gera fyrir þá sem standa
undir atvinnuvegunum eins og
Atlas undir himninum og mega
hvergi frá vikja og helst aldrei
um frjálst höfuö strjúka fyrir
ábyrgð og áhyggjum. En það er
mikill misskilningur hjá mál-
gagni minu Morgunblaðinu, að
vera að daðra við hina, þetta fólk
sem er ábyrgðarlaust eins og
geta farið heim að éta og sofa
þegar vinnan er búin og heimtað
allt af öðrum. Svoleiöis fólk þyrfti
að taka betur til bæna og ekkert
múöur með það, það á aö þekkja
sinn staö i þvi dugnararkerfi sem
mun nú aftur risa og mun skola
öllum kratakommum úr i hafs-
auga um leið og heilbrigð eftir-
spurn eftir atvinnu (sem þessir
félagsmálaskúmar eru farnir aö
kalla atvinnuleysi) kemur aga á
mannskapinn eins og gert er i
Hong Kong þar sem eingin pólitik
er og ekkert menningarpip heldur
vinnugleðin sönn og hrein.
Gerdnr. 2167, ángira, kr. 2.018-.
Gerdnr. 2171, 3gira, kr. 2.279.-.
Gerd nr. 5602, án gíra, kr. 1.952.-
58 cm stell. Dekk: 26x1 1/2 nema
á gerð nr. 5605:26x1.75 (Mjög breid)
Litir: Silfur, blátt.
Gerð nr. 6305 5gira kr. 2.445.-.
Gerðnr. 6309 Wgírakr. 2.680.-
48 cm stell fyrir aldur frá 9 ára.
Dekk: 24x1 3/8(24x1 3/8)
Litir: Silfur, rauð, blá.
Gerð nr. 6408 10 gira, 58 cm stell. Dekk: 27x1 1/4
Litur: Silfur
Verðkr. 2.535.-
Til vidmidunar um val á stærri reiðhjólum
innanfótarmál 70-73, 74-78, 79 og hærri
stellhæð í cm 48 cm, 53 cm, 5 8cm
Sendum í póstkröfu um allt land
Þekking - Þjónusta - Reynsla
Allir fylgihlutir sem sjást á myndunum fylgja meö, svo sem, Ijósabúnaður, lás, standari, pumpa, teinaglit o.fl. o.fl.
Gerið verðsamanburð
Sérverslun i meira
enhálfaöld
. « Reiðhjólaverslunin _
ORNINNP'
Spítalasííg 8 og við Óóinstorg símar: 1466126888
MEST SELDU HJÓLIN
Það er ekki að ástæðulausu að Kalkhoff-hjólin eru lang mest seldu
reiðhjólin á íslandi ár eftir ár. Hjá Kalkhoff fara saman þýsk nák-
væmni og vandvirkni og veitir verksmiðjan því 10 ára ábyrgð á stelli
og gaffli. Vegna mjög hagstæðra samninga við Kalkhoff-Werke
GmbH, stærstu og virtustu reiðhjólaverksmiðju Vestur-Þýskalands,
bjóðum við nú í haust Kalkhoff-reiðhjólin á ótrúlega lágu verði. Hér
eru örfá sýnishorn af úrvalinu.
Gerð nr. 6453 5 gira, 53 cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Silfur
Verðkr. 3.040,-
Gerð nr. 2622 10 gira, 53 cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Burgundy-rautt.
Verðkr. 3.515,-
Gerð nr. 6411 10 gíra lúxus útgáfa, 58cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Metal-blátt
Verðkr. 3.712.-