Þjóðviljinn - 04.09.1982, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 04.09.1982, Blaðsíða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. september 1982 Hádegi á Hótel Holti. Líttu inn, þaö er auðvelt að gera hádegið þægilegt og afslappað, alla daga vikunnar og mun ódýrara en þú heldur. Hótel Holt býður Jjúffengan mat á góðu verði. Sem dæmi: Hádegisverður frá kr. 95.- Einnig þykir okkur rétt að minna á nýja forréttamatseðilinn. HAFÐU ÞAÐ FYRSTA FLOKKS — ÞAÐ KOSTAR EKKERT MEIRA Verið velkomin. Bergstaðastræti 37 PS Borðapantanlr i síma 25700 Lögtaksúrskurður Aö beiðni bæjarsjóðs Kópavogs, úrskurðast hér með lögtak fyrir útsvörum og aðstöðu- gjaldi tii Kópavogskaupstaðar, álögðum 1982 sem falla í gjalddaga skv. 29. gr. laga nr. 73/1980. Fari lögtak l'ram að liðnum 8 dögum frá bir- tingu úrskuröar þessa, til tryggingar ofan- greindum gjöldum, á kostnað gjaldanda, en á ábyrgð bæjarsjóðs Kópavogs, nema full skil hali verið gerð. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 17. ágúst 1982 Borgarspítalinn H j úkrunarf r æðingar A skurðlækninga- og lyflækningadeildum spitalans. A Grensásdeild er um að ræða 1/2 starf. Vinnutimi frá 7.30—12 virka daga. Upplýsingar á skrifstofu hjúkrunarfor- stjóra simi 81200. Ileykjavik, 3. september 1982 Borgarspitalinn Hríseyingar — Hríseyingar Hriseyingamót verður haldið i Átthagasal HótelSögulaugardaginn2. okt. 1982. Vinsamlegast hafið samband sem fyrst við Sigurð Brynjólfsson i sima 86481, Val- gerði Magnúsdóttur i sima 66610 eða önnu Fjalarsdóttur i sima 85370. Þýska bókasafnið verður lokað frá og með 30.9. 1982 um óákveðinn tima. Þeir sem hafa bækur að láni, eru vinsam- lega beðnir um að skila þeim fyrir þann 21.9.1982. kvikmyndir Pósturirm hringir alltaf tvisvar Pósturinn hringir alltaf tvisvar (The Postman Always Kings Twice) Kandarikin, 1981 Handrit: David Mamet, eftir sögu James M. Cain Stjórn: Bob Rafaelson Kvikmyndun: Sven Nykvist Aðalhlulverk: Jack Nicholson, Jessica Lange. Arið 1934 kom út i Bandarikj- unum reyfari sem hét Pósturinn hringir alltaf tvisvarog var eftir James M. Cain. Þetta var þrihyrningsdrama og sagði frá blindum ástriöum og moröi. Þennan reyfara notaði italski kvikmyndastjórinn Luchino Visconti sem uppistöðu i fyrstu mynd sina, Ossessione (1942), en sú mynd markaöi upphaf nýraun- sæisskólans i italskri kvikmynda- gerö. Visconti lenti i vandræðum vegna þess að hann hafði i raun stoliö sögunni —kvikmyndafyrir- tækið Metro Goldwyn Meyer hafði nefnilega keypt kvikmynda- réttinn af James M. Cain, og lengi vel fékkst Ossessione ekki sýnd i Bandarikjunum vegna þessa máls. Fjórum árum siðar lét MGM Tay nokkurn Garnett gera mynd eftir sögunni og fóru þá John Garfield og Lana Turner með aðalhlutverk. Og nú er komin þriðja útgáfan, sú sem Tónabió sýnir um þessar mundir. Henni stjórnar Bob Rafaelson. Söguþráðurinn Tveir menn koma á bensinstöð á nokkuð alskekktum stað. Þar rekur Grikkinn Nick Papadakis (John Colicos) litinn og fremur óásjálegan veitingastað meö hjálp ungrar konu sinnar, Coru (Jessica Lange). Annar gestanna hveríur fljótlega, en hinn, Frank Chambers (Jack Nicholson) veröureltir. Hann er peningalaus og segist vera i alvinnuleit. Allt útlit hans bendir til aö hann sé einn þeirra ljölmörgu sem urðu undir i kreppunni, þetta er „sjúskaður gaur’’ og Nicholson er ekki i neinum vandræöum með að gefa það til kynna. Þessi fjölhæfi leikari á einkar auövell meö aö túlka slikar persónur, hann hefur gert það áöur og i þessari mynd fer hann á koslum. Veitingamaöurinn ræður hann i vinnu á bensinstööinni, og er nú ekki að orölegja þaö aö miklar ástir takast með Frank og Coru, sem hefur átt lremur leiöa vist i hjónabandinu á þessum af- skekkta staö. Þaö er engin rómantik yfir sambandi þeirra og engar málalengingar, þau elskast meö miklum hamagangi uppi á boröi, innan um nýbökuö brauö, hveitihrúgur og brauðhnifa. Brátt kemur að þvi aö Nick verður þeim Þrándur i Götu og þau ákveða að ryðja honum úr vegi. Morðiö mistekst i fyrstu til- raun, en þau geíast ekki upp og loks tekst þeim aö setja á sviö bil- slys þar sem Nick lætur lifiö. En allt kemst upp og réttur er settur. Með aðstoð klóks lögíræðings tekst þeim að blekkja réttvisina, og hyggjast þá byrja nýtt lif saman, laus við allt þras. En þar sem armur réttvisinnar nær ekki til koma örlögin inn i spiliö. Nafn myndarinnar gefur lil kynna þessi óhjákvæmilegu örlög Maður kemst kannski upp með hitt og þetta — einu sinni, en ekki oftar. 1 sögunni er endirinn á þann veg, að Frank hefur verið Jessica Lange i hiutverki Coru. Ingibjörg HaraídsdóttirWv skrifar dæmdur til dauða fyrir að ráða Coru bana, og biður aftöku. í myndinni er hinsvegar numið staðar þar sem Frank krýpur yfir liki Coru, sem hann hefur óvilj- andi drepið með óvarlegum akstri. Þar með er lögð áhersla á þátt örlaganna og þeirrar refs- ingar sem þau beita, án þess að mannleg réttvisi komi við sögu. Örlagavefur Pósturinn hringir alltaf tvisvar er mynd um hin myrku öfl i manninum. Hvað eftir annað gefst persónunum kostur á að velja milli tveggja lausna á sinum málum, en alltaí láta þær stjórnast af ástriðum sinum, fremur en skynseminni. Þegar Nick býður Frank vinnu i upphafi myndarinnar tekur hann þvi fálega i fyrstu, hann ætlar til Los Angeles að freista gæfunnar. En svo sér hann Coru og fær áhuga. Nick segir honum að Cora sé konan sin og áhugi Franks virðist dvina við þær upplýsingar, en svo ætur hann undan hvötunum. Cora dregur hann að sér einsog segull og hann ræður ekki við neitt. í fyrstu ákveða þau skötuhjúin að strjúka, og kaupa sér farseðla til Chicago. En á umferðarmið- stöðinni kemur önnur ástriöa Frank um koll: spilafiknin. Hann skilar farseðlinum og leggur and- virði þeirra undir. Coru list ekkert á þetta og fer heim. Frank vinnur og stendur upp með fullar hendur fjár — hann getur farið hvert á land sem hann vill. En hann fer aftur til Coru, og þau fara hvergi. Hægt en örugglega spinna ör- lögin vef sinn utanum þessar manneskjur, sem eru fangar eigin ástriðna. Ekkert getur bjargað þeim. Magnað andrúmsloft Frásagnarmátinn er i íullu samræmi við innihaldið. Mynda- vélinni stjórnar Sven Nykvist, sem frægastur er fyrir Bergman- myndir á borð viö Meyjarlindina, Þögnina og Persónu. Hann á áreiðanlega stóran þátt i að skapa það magnaða andrúmsloft sem rikir I myndinni, það eru engu lik- ara en við séum aö skyggnast inn I myrkviði mannssálarinnar, þar sem allt er nakiö og dimmt og óviðráðanlegt. Jessica Lange varð fyrst fræg fyrir að leika i myndinni King Kong. Hér er hún svo sannarlega rétt kona á réttum stað — undar- legt sambland af engli og seið- skratta, búin góðum leikhæfi- leikum og kyntöfrum i rikum mæli. Pósturinn hringir alltaf tvisvar er gott dæmi um það sem góðir listamenn geta gert úr fremur klénu hráefni — i þessu tilfelli gömlum reyfara. Visconti gerði þetta lika á sinum tima, en hann notaði aðrar aðferðir, flutti sögu- sviðið til italiu og fór frjálslega með söguna sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi hvort eð var. Ossessione var á sinum tima merkari mynd en þessi, enda hafa mörg vötnrunnið til sjávar á fjörutiu árum. Mynd Bob Rafa- elson markar ekki timamót á sama hátt og Ossessione, en hún er engu að siður vel þess virði að sjá hana, og stendur alveg fyrir sinu sem glæpamynd af góðu sortinni. Jarðarför Sigrúnar P. Jónsdóttir, sem lést á Elliheimili Akureyrar 25. ágúst fer fram mánudaginn 6. september frá Akureyrarkirkju kl. 13.30. Þór Ingólfsson og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför Björns St. Olsen málarameistara Ásbraut 19 Kópavogi Guðlaug Björnsdóttir Vigdís Daníelsdóttir Bryndis Olsen Bárður Olsen Johanna Olsen Klara Olsen Bjarni Bentsson Sveinborg Olsen Unnar Geir Holman Daníel Olsen Kimberly Ann Grocker Jónína Olsen Guðmundur Kristjánsson Guðlaug Olsen Árni Jónsson barnabörn og systkini hins látna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.