Þjóðviljinn - 04.09.1982, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.09.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. september 1982 Skrítið Og skondið í slæmu veöri kom kerling til' kirkju sinnar, og er hún kemur á staðinn, fer hún inn i bæjardyrnar og hittir þar prest og heilsar hon- um. Prestur tekjur kveðju kerl- ingar, og undrar hann, að hún skyldi koma i svo slæmu veðri og segir: ,,Þú átt vist eitthvert brýnt erindi, að þú skyldir koma ■ núna?” „Já”, segir kerling: ,,ég frétti, að hérna væri nýborin kýr, og hefði átt skrltilega litan kálf, og langaði mig til að sjá hann, áð- ur en hann væri skorinn”. „Attir þú ekki annað erindi?” mælti prestur. ,,Ó nei! Ekki sem ég get talið”. ,,Þú hefur máske ætlað að ganga til altaris?” sagði prestur. ,,Ó já! það var nú áformið”, kvað kerling. Ólafur hét maður, ungur og ó- kvæntur. Hann þótti þungur til vinnu og svifaseinn. Eitt sinn var hann við kirkju við embættisgjörð og leiddist honum, hversu oft hann þurfti að standa upp og setjast nið- ur. En er leið að því, að prestur blessaði yfir söfnuðinn, mælti hann: “Aldrei er friður! Nú á að fara að blessa!" Bóndi sat í smiðju sinni að smíð- um og kynti steinkolum. Hann sér út um dyrnar ferðamann detta ofan um ís á á, sem rann fyrir neðan túnið. Hann hleypur til og fær bjargað manninum, en með litlu sem engu lífsmarki, ber hann heim í smiðju og fer að reyna að láta hann vitkast: leggur hann í því skyni ofan á aflinn á grúfu og vissi höfuðið fram, en glóðin fyrir aflin- um beint undir vitum hans. Eftir nokkra stund tekur maðurinn að kippast við og vitkast, lýkur upp augunum, sér eldinn og finnur kol- areykinn; verður honum þá þetta að orði: „Það grunaöi mig lengi, að hérna mundi ég lenda". Um síðustu helgi var ilmandi sumarveður. Það var áður en haustið skall á með útsynningi og rign- ingu. Reykvíkingar streymdu á bílunum sínum út úr bænum á laugardegi og í bæinn aftur á sunnu- degi. Út um gluggann heima hjá mér í Hraunbæ gat að líta sleitulausa bíla- lestá Bæjarhálsi og Suður- landsvegi. Margir hafa örugglega verið að fara í berjamó, sumir í Heið- mörk, en aðrir austur í sveitir eða jafnvel enn lengra. Viö tslendingar álitum að allt sé best sem kostar mikla peninga eða er nógu langt i burtu. Okkur vill gleymast að mörg úthverfi Reykjavikur eru reist á fallegu og góðu berjalandi. Sjálfur ákvað ég aö kanna holtin og móana á sprungusvæðinu hræðilega við Rauðavatn og þar i grennd og láta það ferðalag nægja mér um þessa ágætu helgi. É)g komst aldrei svo langt. Ég gekk út úr húsi minu og stefndi áleiðis að brennivinsbrugghúsinu og kóka kóla-verksmiðjunni sem Staðurinn minn reist eru á besta útsýnisstaðnum i Árbæjarhverfinu handan Suður- landsvegar. í Borgarmýrinni bak við þau eru að risa enn fleiri verksmiðjur með útsýn yfir Akrafjall, Skarðsheiði, Esju og Sundin. Búið er að ryðja upp mik- illi mold á þessum slóðum og ekki fagurt um aö litast. En þó er þarna ósnertur mói á dálitilli skák milii brennivinsins og Þýsk-islenska verslunar- félagsins. Hafði ég ekki fyrr stigið fæti minum i hann en hvarvetna fór aö glytta i blátt og svart. Þarna var morandi i berjum að- eins 5 minútna gang frá heimili minu. Ég hafði verið svo fyrirhyggju- samur að hafa með mér plast- poka og áður en ég vissi lá ég skoröaður milli þúfna og var byrjaður að tina bláber af kappi. Þarna i útjaðri mörg þúsund manna byggðar hafði engum dottið i hug að tina ber nema e.t.v. nokkrum hröfnum. Mann- fólkið kýs fremur að fara i ör- tröðina austur i Grafning eða Grimsnes. Eg undi mér drjúglanga stund inn á milli verksmiðjukumbald- anna og gleymdi mér gjörsam- lega. Veðrið var dæilegt þó að hitastigið væri ekki mjög hátt. Sólin glennti sig látlaust og hitaði mér i andliti i hvert sinn sem ég leit upp en svalur andvari strauk kinn. t fjarska glampaði á sjóinn og skuggarnir i bláum fjöllunum tóku sifelldum breytingum. Fyrst i stað fauk plastpokinn til og frá i golunni en eftir þvi sem meir kom i hann varð hann stöð- ugri og ekki leið á löngu þar til ég var búinn að tina vænan slatta i hann. Þá lét ég staðar numið og i stað þess að halda áfram könn- unarleiðangri minum upp á sprungusvæðin hættulegu hljóp ég i spretti þennan stutta spöl heim — sigri hrósandi eins og lit- ill krakki og ákafur að sýna feng minn. Um kvöldið var hátið i bænum. Bláberin fylltu heila skái og voru étin með rjóma og sykri. Ég ætla engum að segja hvar ég fann þau. Það er staðurinn minn. Guðjón r i tstjjórnar grei n Árni m j Bergmann Kenning og framkvæmd iy? skrifar: Þegar einhver Sjálfstæðismað- urinn er að þvi spurður hvað hann vilji helst til bragðs taka I efna- hagsmálum þá er hann alla jafna ekki lengi að hugsa sig um. Þaö verður að hætta þessum rikisaf- skiptum, þessu opinbera kukli sem mest, segir hann. Það verður að láta lögmál markaðarins njóta sin. Það verður að hætta fyrir- greiðslupólitik og setja Frjálsa samkeppni viðstýrið á skútunni. Þetta er kenning sem hefur verið itrekuð með mismunandi þungum áherslum um langar aldur — en nú á siðari misserum, á valda- dögum Thatchers og Reagans, er henni haldið fram af alveg sér- stöku kappi. Varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, Friðrik Sófusson, hafði boðskapinn lika á lofti i við- tali i Dagblaðsvisinum um dag- inn, þegar hann var spurður að þvi hvað gera skyldi i efnahags- vandamálunum. Bjóst enginn við öðru. Dæmi frá Akureyri Nú vikur sögunni norður til Ak- ureyrar. Þar situr annar Sjálf- stæðismaður, Jón G. Sólnes, sem að visu er ekki lengur á þingi — reyndar veldur þar mestu um óvenjulega djörf framganga i einkaframtaki, en það er annað mál. Sólnes er að velta fyrir sér efnahagsvanda Akureyrar i Sjálf- stæðisblaðinu tslendingi. Þar er svo mál með vexti, aö Útgerðar- félag Akureyrar hefur tekið tog- ara úr umferð og vill annan i staðinn. Á sama tima er Slippstöð Akureyrar i vandræðum vegna verkefnaskorts. Útgeröarfélagiö vill hinsvegar helst ekki leggja i nýsmiði vegna mikils kostnaðar. Sólnes segir i leiðara um málið: ,,Sú skoðun virðist þvi vera ráö- andi hjá stjórnendum Ú.A. að réttara sé að leita eftir einhverju notuðu skipi, sem fengist á lægra veröi til að leysa endurnýjunar- þörf flota félagsins. Hér skal þvi haldið fram, aö þessi afstaða stjórnenda Ú.A. sé mjög vafa- söm, að ekki sé meira sagt. Litum nánar á staðreyndir. Útgerðarfélag Akureyringa h.f. þarf viðbót við togaraflota sinn. Slippstöðina hf. vantar nauð- synlega nýsmiðaverkefni og i þvi sambandi má benda á að atvinnu horfur á næstunni eru ekki alltof góðar. Miðað við þátt bæjarbúa al- mennt i uppbyggingu umræddra fyrirtækja, og þá alveg sérstak- lega að þvi er snertir ú.A. en það voru umstalsverðar upphæðir sem lagðar voru á bæjarbúa til þess i fyrsta lagi að koma þvi fyr- irtæki af stað i upphafi og i öðru lagi til þess að hjálpa félaginu i sambandi við erfiðleikaár i rekstri þess, þá er það mikil rétt- lætiskrafa sem áreiðanlega er studd af yfirgnæfandi meirihluta ibúa bæjarins að nú þegar verði gerður samningur við Slippstöð- ina um smiði nýs togara fyrir Ú.A. Með þvi að slikur nýsmiða- samningur verði gerður er mörk- uð sú stefna að bæjarbúar al- mennt sameiginlega takist á við mikinn vanda sem viö er að etja i sambandi við atvinnumálin i bænum. Það mun áreiðanlega ekki standa á bæjaryfirvöldum, nú sem fyrr aö koma til aðstoðar við Ú.A. ef um timabundna erfiðleika kynni að verða að ræða i sam- bandi við lausafjárstöðu félagsins vegna umræddrar nýsmiði.” Misræmi 1 sem stystu máli sagt: Útgerð- arfélagið á að panta skip hjá Slippstöðinni þótt markaðslög- málin gefi það upp, að það sé óhagkvæmt og hægt væri að fá notað skip á miklu lægra verði. Óhagræöiö munu bæjarbúar borga úr sameiginlegum sjóði. Röksemdirnar fyrir sliku hátta- lagi eru þær i leiðara Sjálfstæðis- blaðsins, að hægt sé að reikna dæmið öðruvisi en i rekstrar- reikningum eins fyrirtækis. Það sé hægt að reikna það i atvinnuör- yggi i bænum, i þvi að bæjarbúar eigi sér „samtvinnaða hags- muni” eins og Jón G. Sólnes kemst að orði fyrr i grein sinni. Og er margt til i þvi. En það sem einn höfuðpaur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er að ráðleggja grönnum slnum i raunverulegum vanda er einmitt eitt af þvi sem markaðshyggjan bannar þeim að mæla með I al- mennri umræðu um lausnir og leiðir. Vegna þess að kenningin um agagildi markaðslögmála og um skaðsemi opinberrar fyrir- greiðslu við rekstur — sú kenning segir, að ráð eins og þau sem Jón G. Sólnes gefur Akureyringum sé einskonar sósialismus eða þaðan af verra Sumir likja slikum úr- ræðum við hægfara krabbamein. Það getur verið ansi langt milli orðs og borðs. Hitt er svo annað mál hvað sósialistar vilja segja um mál eins og þetta. Hér er, eins og i mörgum dæmum öðrum, um aö ræða það undarlega afkvæmi svo- kallaðs blandaðs hagkerfis, að það sem arövænlegt er skal áfram i einkarekstri, en töpin skulu þjóðnýtt — i nafni almanna- heilla. Þaö sem lærisveinar Friedmans kalla hægfara sósialisma getum viö meöfullum rétti kallað pilsfaldakapitalisma. AB

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.