Þjóðviljinn - 04.09.1982, Qupperneq 25
Helgin 4.-5. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25
Risarokk!
Baraflokkurinn frá Akureyri er eina landsbyggöarhljómsveitin i
Risarokkinu. A myndinni t.v. er hinn nýji trommari þeirra en á
hinni sjáum viö Asgeir söngvara á milli þeirra bræöra Freyssona.
Mynd: Sig. Sverrisson
A föstudaginn kemur þann 10.
september, veröur rokk-hátiö i
Laugardalshöli og munu þar
koma fram fimm af okkar bestu
hljómsveitum. Þeir sem standa
aö þessari hátið eru sömu aðilar
og framleiddu Rokk i Reykja-
vík.
Allar hljómsveitirnar og ailir
þeir sem leggja hönd á plóginn
viö framkvæmd þessa hátiöar
munu vinna endurgjaldslaust og
allur hagnaöur hátiöarinnar
fara óskiptur til greiöslu á
skuldum sem hvila á Rokk i
Rcykjavik.En þær eru ekki svo
litlar.
Hátiðin ber nafn með rentu,
þvi að þær hljomsveitir sem
fram koma eru: Þursar, Þeyr,
Grýlur, Baraflokkur og Egó.
Auk þessara hljómsveita má
búast viö gestum sem munu
þá koma fram inn á milli at-
riða. Ekki hefur endanlega ver-
ið gengið frá þvi hverjir þaö
verða en ef allt fer að óskum
veröur meðal gesta hljómsveit
sem á eftir aö koma mörgum ef
ekki öllum á óvart.
Hljóðmenn á þessari hátið
verða Július Agnarsson og
Gunnar Smári en auk þeirra
munu Þursar gefa góö ráð.
Nú má enginn sitja heima. Nú
reynir á samstöðuna. öll verö-
um viö að leggja okkar af mörk-
um til að bjarga Rokki í Reykja-
vík fyrir horn og sjá um leið
okkar bestu hljómsveitir. Get-
um við verið þekkt fyrir annaö?
Hátiðin mun hefjast kl. 20 og
vara eitthvað fram yfir mið-
nætti. Góða skemmtun.
(Forsala miöa verður i Fálk-
anum, Karnabæ og Stuö, verð
kr. 150.-)
Guömundur Ingólfsson og Bergþóra Arnadóttir kveöjast eftir vel
heppnaö samstarf viö upptöku á plötu Bergþóru, Bergmál. þar sem
Guömundur spilar á pianó, orgel og harmónikku. Djassplata frá
Guömundi er væntanleg á markaöinn innan tiöar. Mynd: A.
Stúdíó Nemi
Biaðamönnum var fyrir
skömmu boöiö aö sjá Gióru i
Hraungerðishreppi (rétt fyrir
austan Selfoss) Voru ástæöur
tvær — og góöar og gildar
báöar: aö berja augum hiö nýja
stúdió þar á bæ Nema og fagna
útkomu fyrstu breiðskifunnar
sem þar er tekin upp i Bergmáli
Bergþóru Arnadóttur.
Guðmundur Ingólfsson pianó-
leikar haföi sama dag lokið við
aö hljóðblanda sólóplötu sina,
en meö honum leika Björn
Thorarensen á gitar, Pálmi
Gunnarsson á bassa og Asgeir
Óskarsson Þurs á trommur. A
plötunni veröur efni eftir
Guðmund, nokkrir „djassstand-
ardar” og eitt islenskt þjóölag.
Guömundur kvaðst mjög
ánægöur meö aðstæöur allar i
stúdióinu i Glóru og sagöist
aldrei hafa unniö i betra
andrúmsiofti við stúdióvinnu,
og átti þá ekki eingöngu viö
ómengaö sveitaloftiö.
Tveir fyrrverandi rokkarar úr
Mánum eiga stúdió Nema, þeir
Ólafur Þórarinsson og Smári
Kristjánsson, ásamt Ara Páli
Tómassyni, og óhætt er aö óska
þeim „Nemum” til hamingju
með fyrstu breiðskifu, þar sem
er Bergmáliö hennar Bergþóru,
en um hana verður fjallaö i
þessum þætti i næsta Sunnu-
dagsblaöi.
A
bridae______________
Sigtryggur vann ekki!
Jón Þorvarðarson varö öruggur
sigurvegari i Sumarbridge sl.
fimmtudag, en stigakeppni lauk
þá. Hann varö efstur I sinum riöli
ásamt félaga sinum, en helsti
keppinautur hans, Sigtryggur
Sigurösson, hafnaöi I 2. sæti i riöl-
inum og þar með i 3. sæti á mótinu
I heild.
Spilamennsku lýkur svo i
Sumarbridge á fimmtudaginn
kemur, með formlegri verðlauna-
afhendingu ásamt hefðbundinni
spilamennsku. Spilarar eru
hvattir til að mæta.
Úrsiit uröu annars þessi sl.
fimmtudag:
a) Jón Ámundason
Sigurður Ámundason 256
Erla Sigurjónsdóttir—
Esther Jakobsdóttir 253
Sigriöur Ottósdóttir—
Ingólfur Böövarsson 245
Siguröur Lárusson—
Óskar Karlsson 239
b) Guöb. Sigurbergsson—
Páll Valdimarsson 189
Sigurður Sverrisson—
Valur Sigurðsson 186
Omar Jónsson—
Guöni Sigurbjarnarson 173
Helgi Jóhannsson—
Hjálmtýr Baldursson 172
c) Jón Þorvarðarson—
Asgeir P. Asbjörnsson 258
Sigtryggur Sigurösson—
Svavar Björnsson 254
Högni Torfason—
Steingrimur Jónasson 244
Georg Sverrisson—
Kristján Blöndal 231
Meöalskor i A og C riðli var 210
en 156 i B-riöli. Sl. fimmtudag
mættu 46 pör til leiks, sem verið
hefur meðalþátttakan á kvöldi i
sumár.
Alls hafa 128 manns hlotiö stig i
Sumarbridge, og lokastaöa efstu
manna varð þessi:
Jón Þorvarðarson 19 stig
Asgeir P. Asbjörnsson 17 stig
SigtryggurSigurðsson 16stig
Svavar Björnsson llstig
Sigfús Þórðarson 10,5 stig
Einar Sigurðsson lOstig
ÓmarJónsson lOstig
SiguröurB.Þorsteinsson 9,5stig
Jón Þorvaröarson, sigurvegari i
Sumarbridge Bridgedeildar
Reykjavikur 1982.
Umsjón
Ólafur
Lárusson
Einsog áöur sagöi, verður
siöasta spilakvöld i Sumarbridge
n.k. fimmtudag og hefst spila-
mennska aö venju um hálf-sjö-
leytiö (?) í A-riöli, en hinir sem
fara á fætur á eölilegum tima,
geta mætt milli sjö og hálf átta.
Allir velkomnir meöan húsrúm
leyfir.
Frá Bridgefélagi
Reykjavikur
Eins og undanfarin ár mun
félagiö spila i vetur i Domus
Medica viö Egilsgötu. Keppnis-1
stjóri veröur eins og undanfarin
ár Agnar Jörgensen. Spila-
mennska hefst jafnan kl. 19.30
stundvislega.
Starfsemin hefst aö þessu sinni
miövikudaginn 15. sept. á eins
kvölds tvimenningi. Viku seinna
22. sept. verður aftur spilaður
eins kvölds tvimenningur, en
næstu fjögur kvöld veröur fjög-
urra kvölda hausttvímenningur á
dagskrá. Að honum loknum hefst
aöalsveitakeppni félagsins, sem
gert er ráö fyrir aö standi til ára-
móta. Ekki hefur endanlega verib
gengiö frá dagskrá eftir áramót,
en þá verða væntanlega aöal-
tvimenningskeppni, board a
match keppni o.fl. á dagskrá. Þá
er fyrirhugað stórmót með þátt-
töku erlendra spilara, en undir-
búningur aö þvi er enn á byrj-
unarstigi.
Stjórn félagsins hvetur félags-
menn unga sem gamla til virkrar
þátttöku i starfi félagsins i vetur
og einnig eru nýir félagar vel-
komnir.
Bikarkeppnin
Þriöju umferð Bikarkeppni
Bridgesambands tslands er
nýlokið. Úrslit uröu sem hér
segir: Sveit Bernharðs
Guðmundssonar vann sveit
Þórarins Sigþórssonar.
Sveit Esterar Jakobsdóttur
vann sveit Karls Sigurbjartar-
sonar.
Sveit Jóns Hjaltasonar vann
sveit Leifs österby.
j Sveit Runólfs Fálssonar vann
' sveit Sævars Þorbjörnssonar.
Drcgið hefur veriö f 4 umferö
uudanúrslit, og spila þá saman:
Sveit Runólfs Pálssonar við
sveit Jóns Hjaltasonar Sveit
Esterar Jakobsdóttur við sveit
Bernharðs Guömundssonar.
Sveitin, sem nefnd er á undan á
heimaleik. Undanúrslitum á að
ljúka i siðasta lagi 24. september.
Úrslitin munu fara fram snemma
i október, en spiladagur er enn
ekki ákveöinn.
í sýningardeild nr. 70 í Laugar-
dalshöll fást plöturnar „Berg-
mál“ og „Hvaö tefur þig bróðir“
ásamt söngbók MFA á kynning-
arverði.
Verðið á plötunum er kr. 180.- í
sýningarbásnum, en kosta í
verslunum kr. 279.-.
Auk þess seljum við fjöldann
allan af öörum plötum, nýjum
og gömlum, ásamt myndlist af
ýmsu tagi á góðu verði.