Þjóðviljinn - 25.09.1982, Síða 13
Helgin 25.-26. september ’ ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Ásmundarsalur:
Sýning frá
N-Kóreu
Á laugardag kl. 17 verður opnuð
í Ásmundarsal við Freyjugötu sýn-
ing á bókum, ljósmyndum, útsaumi
og öðrum listmunum frá N-Kóreu.
Sýningin verður opin kl. 9-22
fram til 30. september.
Á sýningunni gefur m.a. að líta
rit þjóðarleiðtoga Kóreumanna,
Kim II Sungs og fleiri bækur, hand-
iðnað, póstkort ogljósmyndir. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Bókband
10 vikna námskeið í bókbandi hefst 2. októ-
ber n.k. Kennt er á laugardögum í Fannborg
2.
Þátttökugjald er kr. 620.-
Innritun og upplýsingará Félagsmálastofnun
Kópavogs, Digranesvegi 12 - sími 41570.
Tómstundaráð
Gylfi í stað
Hannibals
I gær sögðum við frá áhugaverð-
um umræðuþætti í sjónvarpi n.k.
þriðjudagskvöld, þar sem fjórar
landskunnar stórnmálakempur
munu leiða saman hesta sína og
ræða um stjórnmál á íslandi fyrr og
nú.
Til stóð að Hannibal Valdimars-
son yrði einn þessara fjórmenn-
inga, en af því gat ekki orðið. í
hans stað tekur Gylfi Þ. Gíslason
þátt í umræðunum.
-Ig
Námskeið RKÍ um
öldrunarmál:
Hvað hefur
áunnist?
í gær hófst í Reykjavík tveggja
daga námstcfna Rauða kross Is-
lands og er verkefni hennar að meta
hvað áunnist hefur síðan ákveðið
var haustið 1980 að beina starfi
RKI til baráttu fyrir bættum kjör-
um aldraðra á Islandi. Stofnaðar
voru sérstakar öldrunarnefndir í
öllum félagsdeildum og haldin
námstefna 1981 þar sem fyrirliðar
öldrunarnefndanna komu saman
til skipulagningar á verkefnum á
ári aldraðra 1982.
Námstefnunni nú er einnig ætlað
að treysta grundvöll framtíðar-
starfa Rauðakrossdeilda að öld-
runarmálum. Hana sækja rúmlega
60 fulltúar frá nær öllum félags-
deildum, og verða fluttir á henni 14
fyrirlestrar, m.a. um hagi aldraðra,
dagvistun, heimilishjálp, félög
aldraðra, orlofsdvalir, húsnæðis-
mál o.fl. Námstefnunni lýkur kl. 18
í dag, laugardag.
Menningar-
og minningarsjóður
kvenna:
Merkjasala
í dag
í dag, laugardaginn 25. septemb-
er, er árlegur merkjasöludagur
Menningar- og minningarsjóðs
kvenna. Tilgangur sjóðsins er að
vinna að menningarmálum kvenna
ma. með því að styðja konur til
framhaldsnáms og hafa 516 konur
hlotið styrk úr sjóðnum.
Það eru kvenfélög sem sjá um
merkjasöluna hvert á sínum stað
um allt land. Merkin kosta 10 krón-
ur og verða sölulaun greidd.
Merkjasalan er helsta fjáröflunar-
leið sjóðsins og eru menn hvattir til
að styðja starfsemi hans með því að
kaupa merki.
VEXTIR
Vextir eru nú 3,5% á ári og jafnir allan
lánstímann.
BINDITÍMI
Skírteini í 2. flokki 1982 verða
innleysanleg að þrernur árum liðnum, þ.e.
frá 1. október 1985. Á binditíma hefur
jafnan verið hægt að selja spariskírteini
með skömmumfyrirvara á hinum
almenna markaði.
LÍTIL FYRIRHÖFN
Fjárfesting í spariskírteinum er mun
fyrirhafnar- og áhyggjuminni en fjárfesting
ífasteign og skilar auk þess
öruggum arði.
SKA TTFRELSI
Skv. gildandi lögum um tekjuskatt og
eignarskatt kemur ekki í neinu tilviki til
skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjuraf
spariskírteinum hjá mönnum utan
atvinnurekstrar.
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
SKYNSAMLEG FJÁRFESTING
- TIL SÖLU NÚNA -
SEÐLABANKI ÍSLANDS