Þjóðviljinn - 25.09.1982, Page 27
Helgin 25.-26. september ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27
um helgina
Bragi við eina mynda sinna, „Litla stúlkan og heimurinn“, en hann byrjaði á henni á barnaárinu og lauk við
hana nýlega. Ljósm. - eik -.
Bjartsýni er gott eldsneyti
segir Bragi Ásgeirsson, sem opnar sýningu á Kjarvalsstöðum í dag
„Ég hef gengið fyrir bjartsýni í sumar. Það er gott eldsneyti“, sagði
Bragi Asgeirsson listmálari, sem opnar í dag, laugardag, sýningu á
Kjarvalsstöðum. Það er ekki út í hött að Bragi segist vera bjartsýnn,
enda fékk hann í vor sem leið bjartsýnisverðlaunin í Kaupmannahöfn
og er í ár á launum hjá Reykjavíkurborg við list sína.
„í vetur get ég því tekið mér frí
frá kennslu. Ég er afslappaður og
vel undir það búinn að helga mig
eingöngu málverkinu. Ég hef
málað í gríð og erg í sumar og er
að koma frá mér ýmsum hug-
myndum. Maður þarf að stokka
spilin af og til, hreinsa til og byrja
upp á nýtt. Eiginlega þyrfti mað-
ur að lifa í 300 ár til að ná ein-
hverjum þroska. Nóbelshafinn
Elias Canetti sagði að mannsævin
væri allt of stutt. Ef menn lifðu
lengur væru þeir ekki svona grim-
mir og færu betur með líf sitt.“
„Þegar ég er upplagður! Hve-
nær sem er, - helst þegar birtan er
góð. Ég er duglegri yfir veturinn,
en það er betra að mála á sumrin.
„Og hvað ferðu að gera núna?“
„Ég held áfram að mála af
kappi. Síðan fer ég til Danmerk-
ur að vinna við grafik. Það er orð-
ið langt síðan ég hef fengist við
grafik öðru vísi en að kenna
hana. Það er hætt við því að mað-
ur gleymi sjálfum sér, þegar mað-
ur kennir stöðugt það sem maður
vill fást við. Ég hlakka til að glíma
við grafíkina aftur“, sagði Bragi
að lokum.
Sýning hans, sem nefnist 88
myndverk, verður opin til 10.
október.
þs
Sýning Errós
framlengd
Sýning Errós í Norraena húsinu
hefur nú verið framlengd og gefst
mönnum kostur á að skoða verk
hans til sunnudagskvölds. Rúm-
lega 3000 manns hafa komið og
skoðað sýninguna sem lýkur sem
fyrr segir sunnudagskvöldið 26.
september kl. 22.
Grafík í
Norræna
í gær var í anddyri Norræna
hússins opnuð sýning á verkum
sænsku listakonunnar Helmtrud
Nyström. Sýningin verður opin
daglcga kl. 9-19 nema á sunnu-
dögum kl. 12-19. Henni lýkur 3.
október.
Helmtrud Nyström er fædd í
Þýskalandi en hefur lengi verið
búsett í Svíþjóð og hlotið mennt-
un sína þar. Hún hefur haldið
fjölda einkasýninga víðs vegar
um heim og tekið þátt í santsýn-
ingum m.a. í Þýskalandi, Lond-
on, Venezuela, París og víðar. Þá
hefur hún hlotið alþjóðleg verð-
laun og styrki og verk hennar
prýða listasöfn á Norðurlöndum,
Þýskalandi og í Póllandi.
Helmtrud Nyström er nú stödd
hér á landi á leið til Bandaríkj-
anna til þess að sýna ásamt Jó-
hönnu Bogadóttur í boði World
Print Council í San Francisco.
Fallegar ullarvoðir frá Gefjun, hannaðar hjá hinu þekkta Kvadrat-
fyrirtæki í Danmörku.
Kjarvalsstaðir um helgina
Auk sýningar á verkum Braga Ásgeirssonar er í austursal Kjarvals-
staða sýning á verkum Bertels Thorvaldsen og eru verkin á sýningunni
sem eru 75 talsins fengin frá Thorvaldsen safninu í Kaupmannahöfn.
Aðgangur er ókeypis.
Þá er í vesturforsal sýning á gluggatjöldum, áklæðum og værðarvoð-
um frá Gefj uni. Er sýningin sett upp í samvinnu við Epal sem kynnir og
selur þann hluta framleiðslunnar sem hannaður er af Kvadrat a/s í
Danmörku.
„Annarskonar ánægja”
Um þessar mundir heldur Fred Bólter sína fyrstu einkasýningu að
Hamragörðum við Hávallagötu 24. Á sýningunni sem nefnist „Annars
konar ánægja" eru um 35 verk unnin í olíu og vatnsliti. Sýningin verður
opin frá kl. 14-22 um helgina og er aðgangur ókeypis. Henni lýkur á
sunnudagskvöld.
Ný
sýning á
Lækjartorgi
Laugardaginn 25. september
verður opnuð sýning á verkum
Eriku Stumpf í Gallerí Lækjar-
torgi. Á sýningunni eru verk
unnin með fjölbreyttri tækni.
Erika Stumpf er Þjóðverji sem
hóf listnám sitt í textílhönnun en
Ljósmyndasýningin í Listmunahúsinu:
Síðasta sýningarhelgi
Nú um helgina lýkur í Listmunahúsinu ljósmyndasýningunni „Ann-
að sjónarhorn“. Sýningin verður opin kl. 14-18 á laugardag og sunnu-
dag. Þar sýnir svissneski ljósmyndarinn Schmid, en hann hefur haldið
sýningar víða um heim og myndir hans hafa birst í víðlesnum tíma-
ritum.
Þrennir tónleikar UNM
Nú um helgina lýkur Ung nordisk musik festival og jafnframt cr þá
hápunktur hátíðahaldanna. Haldnir verða þrennir hljómleikar m.a.
hljómsveitarhljómleikar UNM en þeim stjórnar frægur bandarískur
stjórnandi, Arthur Weisberg. Hljómsveitina mynda um 85 þátttakend-
ur á tónlistardögunum.
Textílsýningunni að ljúka
Textflsýningunni í ASI salnum lýkur nú um helgina, svo það eru
síðustu forvöð að sjá þessa fallegu sýningu. Það eru 6 konur sem eiga
verkin á sýningunni. Þær heita Eva Vilhelmsdóttir, ína Salóme, Ingi-
björg Styrgerður Haraldsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Salóme Fannberg
°g Sigurlaug Jóhannsdóttir. Þær sjást hér að setja sýninguna upp, en
Evu vantar á myndina. Sýningin er opin frá 14 - 22 um helgina, en
síðasti sýningardagur er sunnudagurinn.