Þjóðviljinn - 30.10.1982, Page 11
Helgin 30.-31. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐÁ 11
Birting er eina blaðið sem gefið er út á Grundarfirði og fer viða um sveitir
nágrannabyggðarlaga. „Sumir vilja ekki kaupa blaðið, en allir lesa það á
Grundarfirði.“
Útboð
Sjóefnavinnslan h.f. Reykjanesi auglýsir út-
boð á smíði þrýstigeyma fyrir gufuveitu 1.
áfanga.
Útboðsgagna má vitja á verkfræðistofu Guð-
mundar og Kristjáns h.f., Laufásvegi 12 frá
og með 1. nóv. n.k. eftir hádegi.
Skilafrestur tilboða er til 15. nóv. n.k.
SYNING
á hreinlætistækjum, vegg- og gólfflísum frá
CZECHOSLOVAK CERAMICS
opin frá kl. 2 - 6 laugardaginn 30.10. í sýning-
arsal arkitekta Hallveigarstíg 1 (gengið inn
um norðurdyr).
MÍMIR hf.
Meðferðarheimili
einhverfra barna
Trönuhólum 1,
Reykjavík
óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða fóstru 1.
nóvember n.k. Einnig verða lausar þrjár
stöður um áramót.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
79760.
Félagsmálaráðuneytið,
22. október 1982.
F ramk væmdagleðin
situr í fyrirrúmi í stað
persónupotsins áður
Viðtal
við strák-
ana í Stöð
„Nú er framkvæmdagleðin í
fyrirrúmi í stað persónupotsins
áður“. Það eru starfsmenn
fiskverkunarstöðvarinnar Stöð
á Grundarfirði sem hafa orðið.
Þeir eru Ágúst Elbergsson,
Rósant Elíasson og Frank
Ólafsson. Það kemur í ljós að afi
Franks var Sigurður Guð-
mundsson fyrsti ljósmyndari
Þjóðviljans.
- Jú það er kaupfélag á staðn-
um, en reksturinn gengur hálf
brösótt. Hraðfrystihúsið er líka
sameign, en á sínum tíma var
skuldayfirtekt, þannig að heima-
menn misstu ítök í fyrirtækinu.
— Aðalfréttirnar hér í bænum
eru þær, að íhaldið missti meiri-
hluta sinn í vor. Það voru góðar
fréttir og endast lengi. Það þýðir að
nú er framkvæmdagleðin í fyrir-
rúrni í stað persónupotsins áður.
Og þeir félagar sögðu mikla upp-
skeruhátíð verða um næstu helgi til
að halda uppá kosningasigurinn í
vor.
— Hafnaraðstaðan hér er að
verða nokkuð góð, íþróttahús er í
byggingu og ýmislegt fleira er á
dagskrá. Þú ættir að hafa samband
við þá í sveitarstjórninni til að fá
nánari upplýsingar um þau mál.
— Heilsugæsluntálin eru í ágætu
standi. Hér hefur tannlæknir fast
aðsetur og læknir kemur annan
hvern dag frá Stykkishólmi. Það er
ekki undan neinu að kvarta í þeim
efnum.
— Félagslífið. Hérna starfar
hjónaklúbbur sem heldur uppi al-
mennu félagsstarfi á veturna. Al-
þýðubandalagsfélagið er eina
stjórnmálafélagið sem er virkt og
lætur til sín taka í félagslífi bæjar-
ins. Svo eru hérna hefðbundin fé-
lög: Björgunarsveitin Klakkur sem
Frank Ólafsson. Afi hans var fyrsti Rósant Elíasson. Birting inn á hvert
Ijósmyndari Þjóðviljans, Sigurður heimili á Nesinu.
Guðmundsson.
Ágúst Elbergsson. Sjómenn og Alþýðubandalagsmenn áttu nú ekki upp á
dekk hjá Lyonsklúbbnum.
vinnur mikið og þarft starf. Kven-
félagið starfar einnig líflega en það
varð fimmtugt á dögunum. Þá má
geta unt fótboltadeild Ungmenna-
félagsins og síðast en ekki síst
Lyonsfélagið á staðnum. Það var
nú stofnað meira og minna af pólit-
ískum ástæðum og til að byrja með
var sjómönnum og Alþýðubanda-
lagsmönnum meinaður aðgangur
að klúbbnurn.
— í lokin eitthvað andlegt? Við
erum prestlausir hérna Grund-
firðingar og enginn tekur eftir því.
Eitt blað eða tímarit er gefið út
hér á staðnum, Birtingur sem Al-
þýðubandalagið gefur út. Það er
mikið þjóðþrifafyrirtæki. Blaðið er
selt í nánast öll hús hér á staðnum
og útá Ólafsvík og Hellissand. Þeir
eru þó til sem neita að kaupa blaðið
hérna, en þeir lesa það nú samt.
BLAÐ ALDÝÐL)BANDALAGSFELAG S GRUNDARFJARÐAR
SEPT. 3.tbl. 2. árg.
*...... ............. ...... ................J