Þjóðviljinn - 19.02.1983, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
ILHÚSIÐ, RAFDEILD,
AUGLÝSIR
Eigum gott úrval «/■!
liti, einnig kapla og íj
16q.
Eigum ýmiss
innfellt og utai
ójardbundið, sf
ingar, fjölteni
dimmera, ter
einnig veggdól
margt fleira, rriTt
rofa.
impasnúrum, marga
ráttarvír frá 0,75q til
til raflagna,
\jarðbundið og
hulsur, fatn-
rofa, örgggi,
\illur, spenna,
lekaliða og
)rða tengla með
renjulegar perur, kertaperur, kúluperut
opalperur, r^K^mm^^^speqilperi
línestraperur, flúrperur, m.a. gróðurperið
Starf
veitustjóra
Starf veitustjóra Selfossbæjar er laust til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 7. mars n.k.
í starfinu felst framkvæmdastjórn rafveitu,
hitaveitu og vatnsveitu Selfossbæjar.
Æskilegt er aö umsækjendur hafi tækni- eða
verkfræðikunnáttu.
Umsóknum sé skilað til undirritaðs, sem jafn-
framt veitir nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn á Selfossi
14. febrúar 1983.
Norrænir starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og
Svíþjóðar veita á námsárinu 1983 - 84 nokkra styrki handa
íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum.
Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðn-
skólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í
iðnskólanum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og
ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á
Islandi. - Fjárhæð styrks er í Danmörku 13.750 d.kr., í
Noregi 14.250 n.kr., í Finnlandi 13.500 mörk og í Svíþjóð
9.200 s.kr. miðað við styrk til heils skólaárs. - Umsóknir
skulu berast menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 17. mars n.k. Nánari upplýsingar og um-
sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
16. febrúar 1983.
Skjásýn sf.
Myndbanda- og tækjaleiga, Hólm-
garði 34, sími 34666.
Opið virka daga kl. 17-23.30
Um helgar 14-23.30
Einungis VHS í þokkalegu úrvali.
/gj] y | Ifl/nn á Wi " W / T_J| ; A-t fanHI
Akurey við bryggju á Hornafirði.
Akurey SF-52 strandaði í innsigling-
unni til Hafnar í Hornaflrði:
Bátinn rak
upp í fjöru
Sambandsstjórnar-
fundur Verkamanna-
sambandsins:
Sjálfvirkni
i fiskiðnaði
til umræðu
„Við ætlum að ræða kjaramálin,
atvinnumálin og sérstaklega áhrif
hugsanlegrar sjálfvirkni I
fiskiðnaði, en eins og allir vita er
alls kyns tölvutækni mjög að ryðja
sér til rúms í fiskiðnaðinum", sagði
Þórir Daníelsson framkvæmda-
stjóri Verkamannasambands ís-
lands í samtali við Þjóðviljann.
Á mánudaginn hefst sambands-
stjórnarfundur Verkamannasam-
bandsins á Hótel Esju kl. 14.00, en
sambandsstjórnarfundir eru haldn-
ir annað hvert ár, á milli þinga
Verkamannasambandsins. Lýkur
fundinum nú á þriðjudag.
„Gestir utan Verkamannasam-
bandsins verða þeir Gísli Erlends-
son frá Kekstrartækni og Rögn-
valdur Ólafsson frá Raunvísi dag-
stofnun Háskólans, en þeir hafa
mjög kynnt sér sjálfvirkni í
fiskiðnaðinum, einkum tölvuvogir
og þess háttar", sagði Þórir Daní-
elsson hjá Verkamannasamband-
inu að lokum. -v.
Sýningu Gránu-
f jelagsins frestað
Vegna meiðsla eins af leikurum
félagsins, verður að fresta frum-
sýningu á sjónleiknum „Fröken
Júlía" um viku, til mánudagsins 28.
febrúar kl. 20.30. Forsýningar
verða í Hafnarbíói laugardaginn
26.2. og sunnudaginn 27.2. kl.
14.30
Vonumst við Gránufélagar til að
boðsgestir og aðrir áhorfendur sjái
sér fært að fresta komu sinni um
viku.
„Til allrar guðsmildi var ekki
mikið brim, báturinn fór strax hátt
upp og það fjaraði fljótt undan
honum, svo áhöfnin gat nánast
gegnið á þurru í land“, sagði Þor-
steinn Sigurbergsson í Björgunar-
sveit Hornafjarðar í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Akurey SF-52, 100 lesta eikar-
bátur frá Höfn í Hornafirði varð
vélarvana í innsiglingunni til Hafn-
ar í hádeginu í gær, og rak stjórn-
laust upp í fjöruna á svokölluðum
Austurfjörutanga. 11 mannaáhöfn
var um borð og komust skipverjar
klakklaust frá borði.
Björgunarsveit Hornafjarðar
kom á staðinn stuttu eftir strandið
og strengdi línu um borð í Akurey
til að auðvelda skipverjum land-
gönguna. Báturinn er talinn alger-
lega óskemmdur á strandstað.
Varðskipið Týr er fyrir utan
Hornafjörð og björgunarskipið
Goðinn er væntanlegur á strand-
staðinn fyrir hádegið í dag, en þá
ætlar hann að freista þess að ná
Akurey út á flóðinu. Vír var
strengdur úr jarðýtu í bátinn til að
halda honum stöðugum á flóðinu
sem var í nótt. -lg.
shráaraatid
Kristín:
A ekki
langt að
sækja fímina
Vilmundur:
Laðast að
kommunum
Salóme:
Talin
vonlaus
Alþýðubandalagið
er nýbúið að selja húseign sína á
Grettisgötu 3 og kaupa aðra við
Hverfisgötu. Hins vegar er
Bandalag jafnaðarmanna með
Vilmund Gylfason í broddi
fylkingar búið að taka fyrrv.
húsnæði Alþýðubandalagsins á
Grettisgötunni til leigu fyrir
kosningabaráttuna og er ekki
að efa að þar muni góðir
straumar leika um liðið. Vil-
mundi finnst eins og fleirum að
kommar séu hið skemmtileg-
asta fólk og vill helst hvergi vera
nema í námunda við þá. Þannig
drekkur hann alltaf kaffi á kaffi-
stofu Alþingis við kommaborð
sem svo er nefnt og aldrei ann-
ars staðar.
Menn
gera góðlátlegt grín að skoðana-
könnun vísindamannanna Þor-
steins VL Sæmundssonar og
þeirra kumpána um kjördæma-
málið. Sérstaklega þykir það
einstaklega vísindalegt að til-
kynna af og til hversu margir
séu búnir að skila miðum með
niðurstöðum og hver afstaða
þeirra sé - svona til þess að
koma til skila til hinna sem eftir
eiga að skila hvernig þeir skuli
haga afstöðu sinni.
Frammistaða
Kristínar Gísladóttur á ung-
lingameistaramótinu í fim-
leikum um daginn vakti athygli
en hún sigraði í öllum greinum
sem hún tók þátt í og varð
fimm-faldur meistari. Hún á
ekki langt að sækja fimina því
að stóra systir hennar er engin
önnur en María Gísladóttir
ballerína sem starfar í Þýska-
landi og hefur náð langt í list-
grein sinni.
Réttarhöld
Lífs og lands fóru fram um síð-
ustu helgi um vægi atkvæða.
Eitt vitnið sem leitt var fram var
Halldór Blöndal alþingismað-
ur. Var ýmist að hann skildi
ekki spurningarnar sem beint
var að honum eða hann spurði
lögmennina á móti með öðrum
spurningum. Hló öll samkoman
er Jón E. Ragnarsson lögmaður
lýsti því yfir að vitni þetta væri
einskis nýtt og var það úr sög-
unni.
Hin
árlega þingveisla var haldin
með pomp og pragt á fimmtu-
dagskvöld og var mikið um
dýrðir. Að þessu sinni var hún
haldin í húsakynnum ríkisins
sem það hefur látið innrétta til
veisluhalda og funda í gömlu
Rúgbrauðsgerðinni en hug-
myndin með því húsnæði var
einmitt sú að minnka kostnað
við leigu á húsnæði úti í bæ.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
voru þó ekkert yfir sig ánægðir í
þingveislunni og telja spón
dreginn úr aski einkaframtaks-
ins með því að hætta að halda
þessa veislu á Hótel Sögu eða
einhverjum slíkum stað.
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi er haldið
um þessa helgi og eru þau
Ólafur G. Einarsson og Salóme
Þorkelsdóttir mjög hrædd um
sæti sín á lista flokksins en
Matthías Á. Mathiesen þykist
nokkuð öruggur. Það er Gunn-
ar G. Schram sem ógnar veldi
þeirra Ólafs og Salóme og hefur
Matthías lagt megináherslu á að
hvetja fólk til að kjósa Úlaf en
talið er að Salóme verði úti í
þessum átökum. Hún er búsett í
Mosfellssveit en þar hefur ein-
mitt Gunnar mikið fylgi. Þar
má nefna Jón á Reykjum og
Blikastaðafólkið sem er ein-
dregið Gunnarsfólk.
Vestfirðir
eru afar erfitt kjördæmi vegna
samgönguerfiðleika. Þar hefur
talning í prófkjörum Fram-
sóknarmanna og Alþýðu-
bandalagsins tafist dögum og
vikum saman vegna þess að
ekki hefur verið hægt að ná at-
kvæðunum saman á einn stað til
þess að telja þau. Það er eink-
um Patreksfjörður sem setur
strik í reikninginn en ekki hefur
verið hægt að fljúga þangað og
akvegir eru ófærir til ísafjarðar
um þetta leyti árs.