Þjóðviljinn - 19.02.1983, Blaðsíða 3
Helgin 19.-20. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA J
„Leggjum mikið
upp úr spuna”
Guðjón og Ragnheiður í hlutverkum sínum í Fröken Júlíu.
manni allt frá barnæsku, gott ef
það kemur t.d. ekki fyrir í Nonna-
bókunum. Margir kannast við það
og það er hluti af íslandi.
- Og hver er þá framtíð ykkar
sem leikhúss?
- Það er okkar stóri höfuðverk-
ur eins og allra slíkra hópa. Við
erum svo heppin að komast inn í
Hafnarbíó núna en ef það verður
rifið virðist ekki í annað hús að
venda. Það er merkilegt að ekkert
félagsheimil skuli vera til í Reykja-
vík. Við leigjum bíóið ásamt Reví-
uleikhúsinu og það var styrkur frá
leiklistarráði sem gerði okkur fjár-
hagslega kleift að gera þetta, en við
vinnum kauplaust og það er ekki
hægt að gera endalaust.
Leikendur í Fröken Júlíu eru
Ragnheiður Elfa Arnardóttir,
Guðjón Pedersen, Kristín Krist-
jánsdóttir, Þröstur Guðbjartsson
og Gunnar Rafn Guðmundsson.
Lýsing er í höndum Ingvars
Björnssonar, leikstjóri er Kári
Halldór og leikmyndahönnuður
Jenný Erla Guðmundsdóttir.
- GFr
okkur í spuna, leiktækni o.fl. Við
leggjum á það mikla áherslu að
halda sambandi hvort við annað
með því. Það var t.d. ákveðið mjög
seint hverjir ættu að leika hvað í
Fröken Júlíu, það var ekki fyrr en í
janúar og nú eru tæpar tvær vikur
síðan við fórum að einbeita okkur
að því að setja þetta saman sem
sýningu. Við leitumst við að finna
sameiginlegan persónuleika í sýn-
ingunni og höfum hugsað okkur að
þróa hana í sýningu með áfram-
haldandi spuna. Við mótum okkar
vinnuaðferð á leiðinni - ekki með
fyrirframskoðunum. Við lítum á
okkur sem leiksmiðju.
- En þið haldið ykkur væntan-
lega við texta Strindbergs?
- Já, en við spinnum eða „im-
proviserum“ á móti honum. Við
leitum að aðstæðum sem liggja á
bak við orðin og förum þá inn á
okkar eigin persónuleika. Við
teystum textanum fyrir þeim upp-
lýsingum sem hann gefur en
reynum að finna hvað er sammann-
legt í persónunum, hvað höfðar til
nútímans. Annars gætum við
sleppt því að sýna verkið.
- Er þett þá nýstárleg upp-
færsla?
- Við reynum að búa til okkar
eigin aðferð, sameiginlega aðferð,
og hugsum okkur að vinna áfram á
þeirri braut. Það beinist að því að
hver einstakur í hópnum verður
skapandi listamaður, ekki bara
túlkandi.
- Af hverju kallið þið félagið
Gránufélagið?
- Þetta er nafn sem lifir með
Nýtt leikhús er tekið til starfa í
Reykjavík. Hópurinn sem að því
stendur nefnir sig Gránufélagið og
fyrsta sýning hans verður á mánu-
dagskvöld í Hafnarbíói. Þá verður
sýnt leikritið Fröken Júlía eftir
Strindberg. Blaðamaður Þjóðvilj-
ans fór niður í Hafnarbíó fyrir helgi
og þar var allt í fullum gangi í
undirbúningi. Teknir voru tali þeir
Kári Halldór leikstjóri og Guðjón
Pedersen leikari.
- Hverjir standa að Gránufé-
laginu?
- Við erum 13 í hópnum, þar af
eru 8 leikarar, 2 leikstjórar,
leikmyndahönnuður, leiktækni-
þjálfari og framkvæmdastjóri. Hug-
myndin kviknaði norður á Akur-
eyri þegar Leikfélag Akureyrar
sýndi Þrjár systur en 5 af leikurun-
um tóku þátt í þeirri sýningu. Um-
ræður byrjuðu haustið 1981. Við
fundum að við áttum samleið og
langaði til að vinna saman. Síðan
Viðtal við Kára
Halldór og
Guðjón Pedersen
um Gránufélagið,
nýtt leikhús
eða leiksmiðju
í borginni
hefur þetta þróast smám saman þar
til nú að komið er að Fröken Júlíu.
- Hefur það leikrit þá verið
grunnurinn að samstarfinu til
þessa?
- Nei, stór hluti af þessu leikhúsi
er fólginn í að við þjálfum okkur
saman. Við vorum t.d. viku í Vest-
mannaeyjum í fyrra til að þjálfa
ábeinnilínu
Olís hefur opnað glæsilega bensínstöð við
Hafnarfjarðarveg í Garðabæ. Stöðin er í
beinni aksturslínu milli Hafnarfjarðar,
Garðabæjarog Reykjavíkur.
Á Olís stöðinni í Garðabæ færðu bensín
og díesel olíu úr hraðvirkum dælum.
1. flokks smurolíur frá B.P. og Mobil.
Auk þess allskyns bílavörur og aðrar vörur.
Verið velkomin I nýju
Olís stöðina I Garðabæ, —
bensínstöð í beinni aksturslínu.