Þjóðviljinn - 05.03.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 05.03.1983, Blaðsíða 3
Helgin 5. - 6. mars 1983 iÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Staðið fast á íslenskum rétti Fréttatilkynning iönaðarráöuneytisins vegna samninganna við Alusuisse áriö 1975 Á árinu 1974-1975 fór fram á vegum þáverandi ríkisstjórnar endurskoðun á aðalsamningi og raforkusamningi, sem gerður var upphaflega árið 1966 milli íslands og Alusuisse um álbræðslu í Straumsvík. Vegna þeirrar umræðu sem farið hefur fram um samningaumleitanir við Alusuisse að undanförnu greindi iðnaðarráðherra 16. og 17. febrúar sl. frá nokkrum meginat- riðum er varða niðurstöður af endurskoðun samninganna 1975, einkum að því er varðar skatt- greiðslur og raforkuverð. Aðalsamningamenn íslenska ríkisins frá 1975, þeir Ingólfur Jónsson fyrrverandi ráðherra, Steingrímur Hermannsson ráð- herra og Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sendu í gær frá sér greinargerð til fjölmiðla með at- hugasemdum varðandi málið. Af þessu tilefni telur ráðuneytið rétt að rifja hér upp nokkrar staðreyndir þessa máls og koma á framfæri athugasemdum við þá greinargerð. 1. Allar tölur varðandi orkuverð og skattgreiðslur, sem iðnaðar- ráðherra greindi frá og fengnar voru frá Landsvirkjun og Ríkis- endurskoðun eru ágreinings- lausar, eins og fram kemur í yfirlýsingu samningamann- anna. Af þessum tölum er ljóst, að lækkun á skattgreiðslum vegna samninganna 1975 nemur alls 26,7 milljónum dollara á tíma- bilinu 1975-1982, en hækkun á raforkuverði á þessu tímabili nemur hins vegar 26,2 milljón- um dollara. Af þessu er ljóst, að töluleg niðurstaða af þeirri endurskoðun álsamninganna, sem fram fór árið 1975 varðandi skatta og raforkuverð er sú, að ríkissjóður hefur tapað að heita má sömu upphæð í lækkuðum skattgreiðslum, eins og Lands- virkjun hefur fengið greitt með hærra raforkuverði á tímabilinu 1975 til ársloka 1982. Niðurstöður Ríkisendur- skoðunar varðandi skatt- greiðslur ísal eru miðaðar við endurskoðun Coopers & Lyb- rand, hvað varðar afkomu ísal á þessu tímabiíi, þó að frátöldu árinu 1982, en varðandi það ár er byggt á upplýsingum ísal, því að reikningar fýrirtækisins hafa ekki enn verið endurskoðaðir. 2. í greinargerð samningamann- anna er hins vegar í engu tekið tillit til þeirrar leiðréttingar, sem framkvæmd hefur verið á ársreikningum ísal, og endurá- lagningar framleiðslugjalds á fyrirtækið. Með því komast þeir að þeirri niðurstöðu, að heildar- ávinningur íslendinga af endur- skoðuninni hafa numið um 6,5 milljónum dollara eða sem svar- ar til hækkunar á raforkuverði um 0,7 mill á kílóvattstund að meðaltali á umræddu tímabili. Samanburður sem ekki tekur mið af endurálagningu fjár- málaráðuneytisins á grundvelli niðurstaðna Coopers & Lyb- rand er villandi, því samkvæmt aímennum reglum íslensks skattaréttar er endurálagning skatts bindandi fyrir skattþegn- inn, nema álagningunni sé breytt með kæru til úrskurðar- aðila. 3. í greinargerðinni er það talinn galli á eldra skattkerfi, að veru- leg skattinneign ísal myndaðist hjá ríkissjóði. Þetta er á misskilningi byggt, því skattinnstæðan sem mynd- aðist hjá ríkissjóði samkvæmt upphaflegum samningi var eng- an veginn okkur íslendingum í óhag, en hins vegar mjög íþyngjandi fyrir Alusuisse, og það í vaxandi mæli. Með samn- ingunum 1975 féllst íslenska samninganefndin ekki aðeins á þá kröfu Alusuisse að lækka stórlega skattstiga ísal, heldur var einnig Iátið undan þeirri kröfu að afnema þetta greiðslu- 4. form og viðurkenna skattinnist- æðuna eins og hún stóð þann 1. október 1975 að upphæð 4,4 milljónir dollara sem eign Alu- suisse. Þetta var gert, þrátt fyrir að samninganefndin hefði undir höndum álitsgerðir innlendra og erlendra lögfræðiráðunauta, þeirrar Hjartar Torfasonar hrl. og bandaríkjamannsins Charles D. Kyle, þar sem tekin voru af öll tvímæli um rétt íslendinga til þessararskattinnistæðu. ísal gat einungis notað innistæðuna til greiðslu framleiðslugjalds en að öðrum kosti varð hún eign ríkis- sjóðs í lok tímabilsins. í greinargerð samningamanna er það talinn einn mikilvægasti ávinningur samninganna 1975, að með þeim hafi verið staðfest- ur endurskoðunarréttur samn- ingaaðila. Meginatriðið er hinsvegar það, að Alusuisse neitaði að setja inn í aðalsamninginn ákvæði um endurskoðun hans og frá þeirri kröfugerð var fallið af íslands hálfu. í skjóli þessa hefur Alu- suisse skákað í tvö ár og segist hafa samning við íslendinga, sem sé bindandi, og íslendingar eigi ekki rétt til breytinga á. 5. í greinargerð samningamann- anna kemur ekki fram að ís- lenska samninganefndin hafði árið 1975 undir höndum endur- skoðun Coopers & Lybrand á ársreikningum ísal fyrir árið 1974, sem sýndi verulegt yfir- verð á súráli og vantaldar tekjur það ár, sem námu um 3,1 mill- jón dollara. Coopers & Lybrand var falið að reikna úr viðbótarskatta á grundvelli endurskoðunarinnar og var það gert. Skattkrafa ís- lenska ríkisins að fjárhæð 550 þúsund bandaríkjadalir var gef- in eftir. Hvorki Alþingi né al- menningur vissi um þessar samningsaðstæður. 6. Sérstaka athygli vekur umfjöll- um samningamannanna þriggja varðandi verðlagningu á raf- orku til þeirrar 20 MW stækkunar á ísal, sem samið var um 1975 og komst í gagnið 1980. í greinargerðinni er sagt, að samið hafi verið um sérstakt forgangsorkuverð uppá 12 mill. Þessa niðurstöðu fá samninga- mennimir með því að telja 60% af umsaminni orku sem afgang- sorku og verðleggja þann hluta á 3 mill/kWh. Framhald a20. slöu. Um sum baráttumál geta allir staðið saman. Eitt þeirra er baráttan gegn of- neyslu áfengis og annarra fíkniefna. Þjóðin hefur fyrr sýnt hvers hún er megnug þegar sameinast er um átak á sviði heilbrigðismála. Við væntum þess að enn birtist sá samtakamáttur í verki og ný sjúkrastöð SÁÁ rísi sem tákn þess. Þar með væri mikilvægum áfanga náð í baráttu íslendinga við eitt alvarlegasta vandamálið í heilbrigðis- og félagsmálum þjóðarinnar. Við þökkum ötult og árangursríkt starf SÁÁ á undanförnum árum og almennan stuðning félagssamtaka og einstaklinga við það. Við hvetjum sem flesta til þátttöku í því átaki sem samtökin beita sér nú fyrir. Reisum saman sjúkvastöð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.