Þjóðviljinn - 05.03.1983, Blaðsíða 13
Helgin 5.-6. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Ráðstefna Æskulýðssambandsins um helgina
Atvinnumál ungs
fólks til umræðu
Ráðstefna ÆSÍ um atvinnumál unga fólksins verður í Ölfusborgum um
helgina.
„Atvinnumál ungs fólks“ er yfir-
skrift ráðstefnu sem Æskulýðssam-
band Islands gegngst fyrir um helg-
ina í Ölfusborgum. Fjallað verður
um þróun atvinnumála og þá
möguleika sem blasa við ungu fólki
í atvinnulífinu. Ræddar verða
leiðir til að forðast að hið stórfellda
atvinnuleysi sem herjað hefur á ná-
grannalönd okkar, taki sér bólfestu
hér á landi.
Á ráðstefnunni verða þessar
framsögur:
Ágúst Einarsson: Atvinnuhorfur í
sjávarútvegi.
Guðrún Hallgrímsdóttir: Störf í
iðnaði.
Sigríður Skarphéðinsdóttir:
Hvernig er tekið á móti ungu fólki,
sem er að koma út í atvinnulífið.
Ásmundur Stefánsson: Atvinnu-
þróun.
Sigurjón Bláfeld: Nýjar búgreinar.
Sigfinnur Sigurðsson: Atvinnumál
ungs fólks og tölvubyltingin.
Vilhjálmur Egilsson: Þjóðhagslegt
hlutverk atvinnugreina.
Ingi Tryggvason: Atvinnumögu-
leikar ungs fólks í landbúnaði.
Kristján Jóhannsson: Atvinnu-
möguleikar ungs fólks í iðnaði.
A eftir verður unnið í umræðu-
hópum en gert er ráð fyrir að
ráðstefnunni ljúki kl. 16.oo. á
sunnudag.
Aðildarfélög Æ.S.Í. eru: ís-
lenskir ungtemplarar, Ungmenna-
félag íslands, Bandalag íslenskra
skáta, Stúdentaráð Háskóla ís-
lands, Samband íslenskra náms-
manna erlendis, Bandalag ís-
lenskra sérskólanema, Landssam-
band mennta- og fjölbrautaskóla-
nema, Iðnnemasamband Islands,
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalags-
ins, Samband ungra jafnaðar-
manna, Samband ungra sjálfstæð-
ismanna og Samband ungra fram-
sóknarmanna.
|i Stjórn verkamannabústaða í
Kópavogi auglýsir eftir umsókn-
um um 24 íbúðir í fjölbýiishúsi
við Álfatún 27 - 35 í Kópavogi.
í húsinu eru:
A
4 tveggja herbergja íbúðir
10 þriggja herbergja íbúðir
10 fjögurra herbergja íbúðir.
Réttur til íbúðakaupa er bundinn við þá sem
uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Eiga lögheimili í Kópavogi.
b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi
eign í öðru formi.
c) Fara eigi yfir það tekjumark sem hér fer
á eftir: Meðaltekjur (nettótekjur miðað
við árin 1980,1981 og 1982) mega ekki
fara fram úr kr. 141.000,- að viðbættum
kr. 12.500,-fyrirhvert barn innan 16ára
aldurs á framfæri.
Heimilt er að víkja frá þessum reglum í sér-
stökum tilvikum. Þeir sem búa við erfiðasta
húsnæðisaðstöðu hafa forgang að íbúðum í
verkamannabústöðum
Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingabæk-
lingi liggja frammi á bæjarskrifstofu Kópa-
vogs.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir 25.
mars n.k. í lokuðu umslagi merkt stjórn
Verkamannabústaða í Kópavogi.
Stjórn VBK.
LAUS STAÐA
+rl3® Laus er til umsóknar staða námsstjóra í starfsfræðslu og námsráð-
gjöf. Námstjórinn skal m.a. vinna að skipulagi starfsfræðslu f
skólum, gerð kennsluefnis, safna og dreifa upplýsingum til skól-
anna um atvinnulíf landsmanna og námsleiðir og veita kennurum
leiðbeiningar um starfsfræðslu.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní n.k..
Umsóknir skal senda til menntamálaráðuneytisins fyrir 1. apríl n.k.,
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Menntamálaráðuneytfð
1. mars 1983._
= ánægjulegur árangur
Lítið við, verið velkomin.
ApGFÓDAímiKK*
Hverfisgötu 34 - Reykjavík
____Sími 14484 - 13150
Vegg- og gólfdúkur
DLW vegg- og gólfdúkarnir. Heimsfræg gæðavara.
Urval allra nauðsynlegra verkfæra og áhalda til
dúklagninga.
Thomson hreinsilögur - hreinsar upp gamla dúka.
Sofix bón gerir gamla dúkinn sem nýjan - nýja dúkinn
enn betri.
Úrval af málningu og málningarvörum.
50 ára þjónusta í sölu vegg-og gólfefna.
Valin gæðavara
vönduð vinnubrögð
+ leiðbeiningar og góð ráð