Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 4
i -u SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. mars 1983 hdaarsyrpa Langdvalir í fangelsi fyrir skoðanir Nazim Hikmet, ég nefndi hann í síðustu Helgarsyrpu minni. Þar var vantalið þegar ég sagði hann hafa verið heilan áratug í fangelsi. Þegar ég hugsaði málið betur mundi ég að Pablo Neruda skáldmæringur Suðurameríku víkur að þessu í þeirri töfr- andi æviminningabók, hugrenningum um lífshlaup sitt: Confieso che he vivido, Ég játa að hafa lifað. Hann er að tala um bras-; ílskan stjómmálamann, kommúnista- leiðtogannLuisCarlos Prestes sem hafi ver- ið sleppt eftir meira en tíu ár f fangelsi. Reyndar hafi brasílska einveldisstjórnin af- hent Gestapó eiginkonu Prestes sem hafi verið þýzk. í höndum böðlanna ól hún bam. Ömmunni tókst með harðfylgi að heimta barnið til Brasilíu; nasistar drápu móðurina. í framhaldi af því sem Neruda segir um langa fangavist Prestes og þær raunir sem hann mátti þola skrifar hann: Svona langvinnar fangelsisdvalir em ekki óvenjulegar í „hinum frjálsa heimi.“ Og segir enn: „Félagi minn, skáldið Nazim Hikmet, var þrettán eða fjórtán ár í fangelsi í Tyrklandi.“ Onnur heimild mín telur árin samtals sautján sem Hikmet sat í fangelsi. Sjálfur segir hann frá því að hann hafi verið sam- fleytt þrettán ár í fangelsi. Hefnt Tyrkjaráns í Tyrkjasvæfu segir Magnús prestur: Víti og kvöl þeim veki vafadjöfullinn seki ragi rugli og reki; rýmda og límda hreki; sökkvi dökkvum sigluhún sólginn bólginn dreki, . sjávars jöfurs ybbin brún, svo undan skundi fleki... Ekki mun hafa reynt á töframátt þessarr- ar seiðþulu. Nema það sé nú að koma fram á Tyrkjum hve heitt og kunnustusamlega þeim var formælt á íslandi, þegar íslending- ar voru allslausir og áttu ekki vopn önnur en íþrótt skáldskaparins. Enn dugir þetta vel; ekki bara til að bjarga sálu sinni í nauð; og kannski einni og einni auk. Heldur til þjóðþrifa eins og reyndist um árið þegar Jakobína skáldkona í Garði í Mývatnssveit sundraði herskipaflota Nató sem ætlaði að fara að æfa sig við íslandsstrendur í her- skap; en hún orti á þá storm með kvæði. Nú er okkur Ijóst að við þurfum ekki að hatast við Tyrki, nema stjórnvöldin þar, fyrir að vera fasistar. Eitt sinn fyrir mörgum árum var ég stadd- ur í París með nokkrum löndum, og vorum að koma úr höfðinglegri veizlu hjá Hendrik Sv. Björnssyni sem nú er sendiherra og Gígju konu hans. Við komum við á krá nær Signubökkum, og leið að morgni. Þá varð fyrir okkur alsírskur belghnetusali með lit- skrúðuga kollhúfu á hvirfli og bauð vöru sína króknefjaður munnsmár með vara- slapa og gull í tönn undir stubbbursta- skeggi, sambrýndur yfir fuglsaugum djúp- lægum en grunnum, hrjúfur að sjá um kjamma af skeggrót sprottinni: Kekkevit, Kekkevit, kvað sá. Sigurður Sigurðsson listmálari er sögu- fróður vel og flóðmælskur maður; ört geð hans þjóðhollustu þrungið. Honum svall nú , móður og neytti málsnilli til að skamma Alsírmanninn fyrir Tyrkjaránið. Hinn vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið í bókstaflegri merkingu, muldraði: Oui Monsieur; og maldaði eitthvað í móinn á frönsku, án þess að vita hvað væri til sín talað á svo máttugri tungu sem hann vissi ekki hver væri, - kannski tyrkneska. Og gekk lítt saman með þeim né sundur, sökum tungumálaófæru. Ekki rann Sigurði að heldur þjóðhefndar- móðurinn, heldur tók í stað að beita þeirri íþrótt sinni sem nú hlyti bezt að duga, og brá á að skamma manninn með teikningum fyrir Tyrkjaránið 1627. íslendingar gleyma aldrei, sögðu Danir. Hróðurinn heitir Svæfa, því mun hún vondum hœfa og svo yfirgnœfa áform þeirra að kæfa; orðagnóttar rætist rót réttan mátt að æfa, þar sé ekkert hót né meðal í mót nema miskunn og friðar gœfa. (Tyrkjasvtefa) Fjalakötturinn og Skandinaivitetur Mikil þjóðþrifastofnun er sögð í þann mund að leggja upp laupana, vegna skulda. Það er Fjalakötturinn, kvikmyndaklúbbur á vegum framhaldsskólanna. Éignir eru þó Félagarnir og skáldin Pablo Neruda frá Chile og Nazim Hikmet frá Tyrklandi. taldar duga á móti skuldum, þar á meðal ; dýr og vönduð sýningartæki. Unnendur kvikmyndalistar hafa í hugan- : um margblessað það unga hugsjónafólk sem hefur rekið þennan klúbb, oft af stór- hug með glæsibrag, og löngum veitt góða næringu og holla. Og hefur átt stóran þátt ef ekki meginþáttinn í að ala upp fólk sem skynjar og metur list kvikmynda og gerir kröfur en unir ekki vesöldinni sem ríkir í ] kvikmyndahúsunum hér. Það er ekki nóg að hafa kvikmyndahátíð í tíu tólf daga einu sinni á ári; þó það sé guðsblessun. Væri ekki vitið meira að bjarga þessarri menningarstarfsemi frá dauða en að ausa ómældum fúlgum í marklaust tildur, em- bættismannatilhald og veizluflangs eins og mun verið hafa undir forsögninni Scandina- via Today, þar sem listamenn eru mjög ' sniðgengnir, þótt stundum væri einkafram- tak þeirra með eðlilegum takmörkunum þolað til að yrkja í eyður og bæta fyrir trassaskap tómlæti og fákænsku hinna á- byrgu embættismanna; sem hafa vonandi haft því meiri gleði af glysinu fyrir sig og sína. Hin þýðingarlausa sveit embættisfjöl- skyldna rakst víst víða um Bandaríkin og bar sín ósögulegu andlit milli hanastélanna frá borg til borgar og hefur vonandi hitt frasafestufólk við hæfi sem kann sig vel í slíkum færum að skiptast á almæltum tíðindum. Svo allt megi verða við að sama og var, nema miður væri fremur en meira yrði. Á slíkum fundum telst kannski ekki kurt- eisin bezt að tala til að reyna að segja eitthvað né spyrja til að fá að vita eitthvað; eins og enn þykir sóma vel með Þingeying- um, og helzt vonandi þrátt fyrir svonefnt video. Mér hafa sagt ferðamenn sem var mál skylt að stritsamt hafi reynzt að finna ýmsar sýningamar sem gumað var af heima merkt- ar þessu skandínavabardúsi,- og jafnvel starfsmenn í sýningarhöllunum sjálfum komið af fjöllum þegar spurt var til vegar út í þá útkima safna sem hýstu þetta framlag okkar. Hefur kannski ekki verið búizt við öðrum en skyldugestum með límúsínum sendiráða og stofnana og öðrum vanda- bundnum sem réðu yfir starfsliði til að leita uppi útskotið, ef ekki væri runnið á þyt í opnunarlúðri; minnsta kosti bílstjóra með kaskeiti. Ásamt flutningi nýrra tónverka skilst mér af umsögnum og frásögnum gesta að bezt hafi tekizt sýningin á verkum eftir myndlist- armennina landa okkar sem búa nú og starfa í Amsterdam og voru valdir af sænska alþjóðamanninum Pontius Hultén sem var of pontifíkal eða státinn til að gera sér rellu af að koma til íslands og litast um. Sá sagði reyndar við blaðamenn að Skandínavar væru svo mjög afturúr að ekki tæki því að sýna þá. Aulalegt var að reyna ekki þó væri ekki annað að nýta betur tækifærin sem fengust við að forseti okkar sló í gegn þar vestra, og kynna listmenningu okkar nú. Andrei Tarkovskí: Einn af mestu filmurum samtímans. Svo aftur sé horfið að helför Fjalakattar- ins sem verður að hindra, - mætti ekki taka af söluskattinum sem greiddur er af kvik- myndasýningum til að bjarga þessu uppeld- isstarfi og mannrækt? Ennþá ögn um Tarkovskí Sú var tíðin að ekki þótti annað fremur sæta tíðindum í kvikmyndalist en það sem var að gerast í Sovétríkjunum á blóma- j skeiðinu sem varð skömmu eftir byltinguna á tíma þöglu kvikmyndanna( og stóð með einstökum höfundum áfram eftir að talið kom til sögunnar, þá á ég einkum við Eisen- stein sem lengst naut snilli sinnar, þrátt fyrir pólitískt misvindi og moldþoku. Hinir sem gnæfðu uppúr voru Púdofkín, sem gerði , Móðurina eftir sögu Gorky, og Arftaka Genghis Khan sem líka hefur verið kölluð Stormur yfir Asíu; Dziga Vertov sem fræg- ur varð fyrir kvikmyndaaugað sem allt átti að geta séð og sýnt sem skipti máli, Kínó- augað: og Dovsénko sem gerði hið ódauð- lega filmljóð: Jörð. Þessir menn þróuðu nýtt mál kvikmyndalistar, það sem var kall- að montage: myndbygging. Það var mest þakkað þessum mönnum, þótt þeir hafi notið hollra áhrifa frá Griffith sem ég hef fyrr vikið að, hinum ameríska snillingi sem virkastur var á árunum fyrir og framyfir Heimsstyrjöldina fyrri; unz honum var kastað út á hjarnið eins og fleiri snilldar- mönnum þeirrar listgreinar sem er svo grimmilega háð félagslegu valdi hvort sem er auðvaldið eða skriffinnskuveldi í miðstýrðum samfélögum. En sú saga verð- ur ekki rakin hér. Eisenstein einn mesti snillingur sem þessi listgrein hefur átt varð fyrir barðinu á báðum þessum listfjandsam- legu öflum, sem frægt er. Skömmu fyrir andlát hans bönnuðu stjórnvöld annan hlutann af kvikmynd hans um fvan grimma,- sem átti að verða þríleikur; fyrsti hlutinn hafði fengið Stalínverðlaunin. Síðan hefur oltið á ýmsu í sovézkri kvik- myndagerð, og stundum hefur hún gengið gegnum mikla niðurlægingu og mátt á köfl- um sæta aðhlátri eða vorkunn þegar for- skriftarfólska pólitískra skriffinna hefur gert , sem mestan usla þar undir merkjum sósíal- realisma og djöflast gegn svonefndum formalisma. Nú eru hinir miklu frumherjar Sovét- kvikmynda sem ég nefndi allir látnir; sem eitt sinn voru meðal mestu frömuða heimsins í þessari listgrein. Enn starfar í Sovétríkjunum einn af mestu filmurum samtímans Tarkovskí, og sætir ekki síður tortryggni hinna listblindu valdþjóna kerfisins en hinir miklu fyrir- rennarar hans. Með höppum og glöppum fást myndir eftir hann frá Sovétríkjunum, og þarf stundum að bíða lengi og prútta til að fá að sjá þær á Vesturlöndum þar sem hann er talinn eitt mestu filmskálda sem nú lifa. Og þegar þær fást á kvikmyndahátíð- irnar stóru er þeim sjaldnast teflt fram til verðlaunakeppni af hálfu Sovétmanna, Meira frá Tyrkjum, Tarkovskíogfleira Thor_______" y Vilhjálmsson skrifar Æfi hversu mikla hrifningu sem þær eiga vísa meðal listdómara og listnjótenda. Kennari Tarkovskí á kvikmyndaskólan- um var Mikhail Romm, vandaður og heiðarlegur kvikmyndahöfundur sem aldrei lagðist í lágkúru; og var sagður hafa átt meginþátt í því að Tarkovskí fékk inn- göngu í kvikmyndaskólann sem var engan veginn auðvelt þar sem hann vakti tor- tryggni vegna uppruna síns, kominn út af menningarvitum en ekki öreigastétt eða skriffinnskuaðli. Faðir hans var ljóðskáld, eins og víða kemur fram í kvikmyndum hans, þar sem faðirinn flytur stundum ljóð sín, svo sem bæði í Speglinum og Stalker. Móðir hans er líka vel menntuð kona sem lifði og hrærðist í bókum og list: þau skildu þegar Tarkovskí var barn. Hann ólst upp meðal listamanna og menningarfólks; sem löngum hefur verið tortryggt þar í landi, og raunar víðar af stjórnmálamönnum og varðsveinum þeirra. Tarkovskí vakti at- hygli Romms með gáfum sínum. Romm þurfti að beita sér mjög til að telja aðra ráðamenn á kvikmyndskólanum á að sam- þykkja að taka við Tarkovskí-, þeir töldu hann of tómlátan um viðteknar þjóðfélags- skoðanir.Það var á miðjum 6. áratugnum.' Spegillinn mun vera mjög sjálfsævisögu- leg. Ég sá hana í París; og linnti ekki látum fyrr en ég fékk samþykkt að reyna að fá hana á kvikmyndahátíð; en fékkst ekki frá Sovétríkjunum. Hún var svo sýnd í Fjala- kettinum um sama leyti og næsta kvikmyndahátíð var hér, og fékkst þá frá Englandi. Launamál listamanna í umkvörtunarbréfi Njarðar Njarðvík undan Þorgeiri Þorgeirssyni í síðasta Helg- arblaði Þjóðviljans segir formaður Rit- höfundasambands íslands, í framhaldi af því sem hann lætur getið að einu sinni hafi Launasjóður rithöfunda ekki verið til: „Ekki virðist neinum detta í hug að þakka fyrir að nú skuli úthlutað tæpum 400 mán- aðarlaunum til rithöfunda," segir hirð- stjórinn. Þetta þykja mér fréttir ef satt er. Mér er reyndar málið skylt. Ég hef ástæðu til að trúa að það hafi á sínum tíma riðið baggamuninn að við tókum höndum saman á bak við tjöldin að koma málinu gegnum þingið þrír, Einar Bragi, Matthías Johann- essen og ég, og fórum hamförum í góðri trú að það mætti verða lyftistöng fyrir bók- menntasköpun á íslandi. Þá voru á Alþingi samþykkt fyrirmæli til ríkisstjórnarinnar að endurgreiða til rithöfunda sem næmi sölu- skatti af bókum. Að vísu mun langur vegur frá því að þetta standist á. Samkvæmt tölum Njarðar formanns ætti að fara að verða lífvænt fyrir rithöfunda á íslandi að því tilskildu að launagreiðslur þessar séu miðaðar við þeirra hag sem raun- verulega helga sig þessu starfi. Samkvæmt minni reynslu hefur skort alla festu í þessum launagreiðslum. Vitanlega ættu þeir sem hafa tekið þá áhættu að hafa bókmenntasköpun að atvinnu og hafa sannað erindi sitt að sitja fyrir um launin. Tekjur slíkra manna eru mjög ótryggar svo ekki sé meira sagt. Sé þetta rétt hjá formanninum ætti loks- ins að vera í sjónmáli það sem atvinnuhöf- unda hefur dreymt að eiga tryggt kaup fyrir vinnu sína, eins og allt annað vinnandi fólk í landinu. Mætti hugsa sér ýmsar leiðir til að tryggja að þetta fé þjóni bókmenntasköpun. Til dæmis mætti veita 20 höfundum föst árs- laun, og skipta svo hinu. Nú gilda þær regl- ur að ekki megi veita neinum meira árlega en meðgöngutímalaun, það er að segja níu mánuði. Væri því fylgt mætti veita 20 mönnum 9 mánuði hverjum, öðrum 20 mönnum 6 mánuði, og 25 mönnum laun í 4 mánuði. Fengju þá 65 menn skáldalaun og ætti að vera feyki nóg. Varla skipta fleiri hverju sinni máli á þessu sviði. Og fáir þeirra meginmáli. O.s.frv. Nú veit enginn hvar hann stendur,frá ári til árs. Hvernig sem hann vinnur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.