Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 11
Helgin 5. - 6. mars 1983, ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
menning í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Háttáfjórðu milljónmanna
gengur nú atvinnulaus í Bretlandi
og í mörgum stórborgum er atvinn-
uleysið orðið milli 20-30%. Víða
fær rúmlega helmingur ungs fólks,
sem kemur á vinnumarkaðinn,
enga atvinnu. Þúsundir fyrirtækja
hafa farið á hausinn á hverju ári og
verksmiðjur, sem áður voru
burðarásinn í framleiðslunni,
verða nú ryðinu að bráð. Hliðin
eru lokuð. Starfsmennirnir komnir
á skrá hinna atvinnulausu.
Velferðarþjónustan hefur verið
skorin niður. Bilið milli hinna ríku
og hinna fátæku verður sífellt
stærra. Sérfræðingar telja, að
gróðinn af olíulindunum í Norður-
sjó sé það eina, sem hafi forðað
Bretlandi frá efnahagslegu hruni á
undanförnum misserum. Þegar
olían fer lækkandi óttast margir, að
hagkerfið riði til falls. Því íhugar
Thatcher nú að flýta kosningum,
áður en endalokin verða öllum
ljós.
I Bandaríkjunum eru rúmlega 10
milljónir manna formlega skráðar
atvinnulausar. Sérfræðingar telja
þó, að nokkrar milljónir til viðbót-
ar, skuli teljast til þessa hóps, því
að hin opinbera tala um atvinnu-
leysi, nær aðeins til þeirra, sem
formlega skrá sig í viku hverri.
Milljónir manna hafa hins vegar
gefist upp á að tilkynna sig til
skráningar. Vonleysi þeirra er svo
algert, að þeir hirða ekki lengur um
að tilkynna stjórnvöldum hin öm-
urlegu örlög sín.
Neyðin, sem fylgir í kjölfar
atvinnuleysisins, er nú orðin dag-
legt umræðuefni fjölmiðla í Banda-
ríkjunum. Jafnvel sjónvarpið er
farið að birta myndir af hinum
heimilislausu og biðröðum þús-
undanna, sem lifa á gjafamat frá
kirkjudeildum og verkalýðsfé-
lögum. Talið er, að rösklega tvær
milljónir manna í Bandaríkjunum
séu nú algerlega heimilislausar.
Þær lifi á flækingi, sofi i skúma-
skotum, leiti skjóls með börn sín í
yfirgefnum hreysum. í sérhverri
stórborg hefur verið komið upp
eldhúsum og birgðastöðvum, sem
gefa á degi hverjum hinum fátæku
fjölskyldum atvinnuleysingjanna,
súpu, brauð og ost.
Það er sérkennilegt að lesa frá-
sagnir frá „fyrirmyndarlandi"
Eimreiðar-hópsins og atvinnurek-
endaklíkunnar á Islandi, sem
minna á ömurlegustu kaflana í
skáldverkum kreppuáranna. Á
hverjum degi koma hundruð þús-
unda manna í eldhús kirkjudeilda
og verkalýðsfélaga og í birgða-
stöðvar fátækraþjónustunnar og fá
þar gefins mat vegna þess, að þeir
eiga ekki dollara til að kaupa sér
fæðu sjálfir. Feður og mæður bíða
ásamt börnum sínum í löngum
biðröðum eftir því að fá súpudisk
eða brauðhleif.
í Bandaríkjunum hafa þúsundir
fyrirtækja orðið gjaldþroti að bráð.
Sjálft fjármálakerfið riðar til falls.
Jafnvel forstjórarnir eru farnir að
efast um ágæti Reagans. Hagvöxt-
urinn hefur minnkað. Nánast í
hverri viku koma sérfræðingar og
ráðamenn saman til fundar til að
ræða skyndiviðbrögð við nýjum
vitnisburðum um sívaxandi öng-
þveiti í hagstjórninni.
Efnahagshrunid
í Chile
Fyrir nokkrum árum voru birtar
í höfuðritum nýkapitalistanna
margar lofgreinar um hina nýju
efnahagsstefnu herforingj astj órn-
arinnar í Chile. í kjölfar valdaráns-
ins ákváðu Pinochet og félagar að
leita ráða hjá Chicago-drengjunum
hans Friedmans og gerðu þá alls-
ráðandi í hagstjórninni.
Það stóð ekki á lofsöngnum í
hægri pressunni á Vesturlöndum.
Fyrir tveimur árum birti tímaritið
Fortune hástemmdar yfirlýsingar
um að „Chileværi sömun þess, að
efnahagsstefna Reagansstjörnar-
innar væri traust". Everett Briggs,
sem gegnir ráðherraembætti í Re-
aganstjórninni, lýsti því hátíðlega
yfir, að „í Chile gæfist mönnum að
líta fyrirmyndarland hins frjálsa
hagkerfis“. Og einnig í Morgun-
blaðinu hérlendis birtust hliðstæð-
ar lýsingar, endurprentanir úr
þeirri lofgjörð, sem flutt var af
hægri öflum um heim allan.
Að vísu var það nokkurt feimnis-
mál, að herforingjarnir höfðu fang-
elsað þúsundir manna, bannað
verkalýðsfélög og stjórnmála-
flokka, lokað þinginu og fótum
troðið mannréttindi. Hinir heiðar-
legu í röðum hægri afla töldu þetta
að vísu slæmt, en boðuðu að innan
tíðar myndi hið pólitíska frelsi
koma í kjölfar hins efnahagslega
undurs. Hver þekkir ekki þuluna
um „að hinn frjálsi markaður sé
forsenda hins frjálsa stjórnkerfis."
í Chile bauðst Chicago-
drengjunum, lærimeisturum
Eimreiðar-hópsins í Sjálfstæðis-
flokknum, hin ákjósanlegustu skil-
yrði til að prófa kenningar sínar.
Þar voru engin verkalýðsfélög eða
óæskileg hagsmunaöfl til að hindra
framkvæmd hinnar hreinu stefnu.
Ekkert land var þvf betri próf-
steinn á raungildi kenninganna.
En nú blasir veruleikinn við.
Fyrir nokkrum dögum birtist í virt-
asta blaði Bandaríkjanna, Was-
hington Post, frásögn af ástandinu í
Chile. „Undrið" hafði breyst í
efnahagslegt hrun. Chile riðar nú á
barmi gjaldþrots, líkt og Mexico og
Brasilía. Atvinnuleysið er orðið
yfir 30%. Gjaldþrot fyrirtækja
hafa áttfaldast á undanförnum
árum. Þjóðarframleiðslan hrapaði
í fyrra um 14%. Ríkisvaldið hefur
orðið að bjarga hundruðum banka
og fjármálastofnana frá gjaldþroti
vegna þess, að slíkt gjaldþrot hefði
jafngilt opinberri yfirlýsingu lands-
ins um efnahagslegt hrun.
Tilraun Friedmans og félaga
með hagkerfið í Chile hefur breyst í
ömurlega spilaborg, sem á hverj-
um degi getur hrunið fullkomlega.
Risavaxnar erlendar skuldir, hrun í
hagvexti, atvinnuleysi tæplega
þriðjungs þjóðarinnar, gjaldþrot
þúsunda fyrirtækja, - þetta er ver-
uleikinn sem við blasir. Fram-
kvæmd kenninganna hefur skapað
í landinu verstu efnahagskreppu í
áratugi.
ísland í vor?
Það kann að virðast undarlegt í
ljósi fyrrgreindra lýsinga á ástand-
inu í Bretlandi, Bandaríkjunum og
Chile, að í kosningunum á íslandi í
vor, skuli stærsti stjórnmálaflokk-
ur landsins ganga til leiks undir
merkjum samskonar stefnu. Slíkt
er engu að síður staðreynd. ítök
Eimreiðar-hópsins, Verslunar-
ráðsins og VSÍ eru orðin slík í for-
ystu Sjálfstæðisflokksins, að stefna
nýkapitalistanna, mótuð í smiðju
Friedmans og Chicago-
drengjanna, er orðin leiðarljós
flokksins. Boðskapur Verslunar-
ráðsins „Frá orðum til athafna“,
sem fól í sér fyrirmæli um aðgerðir
nýrrar ríkisstjórnar undir forystu
Sjálfstæðisflokksins talar skýru
máli. Áhrifamáttur Davíðs Odds-
sonar, Þorsteins Pálssonar,
Friðriks Sófussonar og annarra í
hinni ungu forystusveit er orðinn
slíkur, að fátt virðist nú geta
stöðvað formlega valdatöku
Eimreiðar-hópsins í flokknum.
Deilurnar milli Gunnras og
Geirs eru senn liðin tíð. Nýir
menn, dyggilega studdir af Versl-
unarráðinu og VSÍ munu taka
völdin. Þeir hafa í áratug tamið sér
fræðikenningar Friedmans og fylg-
ifiska hans á Vesturlöndum. Þeir
bíða óþreyjufullir eftir að fá að
framkvæma á íslandi sams konar
stefnu og birst hefur í Bretlandi,
Bandaríkjunum og Chile.
Hin stóra spurning í kosningun-
um í vor er, hvort íslenskur al-
menningur vill veita þessari nýju
forystusveit í Sjálfstæðisflokknum
afl til að Ieika sér þannig að örlög-
um þjóðarinnar. Er reynslan í
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Chile ekki nægilegur vitnisburður?
Ætlar íslensk alþýða að greiða því
atkvæði að tilraun nýkapitalist-
anna verði einnig endurtekin á ís-
landi?
Flokkur borgarastéttarinnar á íslandi er nú orðinn formlegur
liðsmaður f hinu alþjóðlega bandalagi hægri aflanna.
ÁGÆTAR FERÐIR - ÁGÆTT VERÐ
Tilva/inn staður til orlofs, hvort heldur er fyrir börn eða fullorðna.
Sólskin öruggt, loftslag milt — Þjónusta og hótel ágæt —
Matarmiðar sem hægt erað nota á öllum veitingastöðum
til að kaupa mat og vín — Alþjóðlegir og búlgarskir róttir.
Langar og breiðar baðstrendur með hvitum sandi.
Sjórinn tæroghreinn. Skemmtanalíf fjölbreytt.
Skoðunarferðir um landið og sigling tíl Istanbul.
80% uppbótó ferðamannagjaldeyri.
Hótel og sumarhús á Gullnu ströndinni.
Lúxushótelið Varna á Vinóttuströndinni.
Barnaafslóttur 2—12 óra.
endum bæklinna nn uor/HÍSta
„HRESSINGARDVÖL"
A Grand hótel Varna er
hægt að tvinna saman
orlof og „hressingardvöl”.
Þar eru heitar laugar frá
náttúrunnar hendi en auk
þess fyrsta flokks heilbrigðis-
þjónusta með nýtísku tækjum
og ágætis læknum.
Alls konar nudd — nálastungu-
meðferð — Gerauital meðferð — o.fl.
Nánari upplýsingar í skrifstofu okkar.
Ferðaskrifstofa
Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogur 44, Reykjavík. Sími86255.
Opið fró kl. 8—5 alla virka daga og 8—12 alla laugardaga.
Símsvari alla aðra tínra.
Thatcher
Reagan
Hayek
SVARTAHAFSSTRONDIN - BÚLGARÍA