Þjóðviljinn - 05.03.1983, Page 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. mars 1983
Steinunn Jóhannesdóttir:
Hótelið brennur
Harmsaga konu í svikulum heimi
Sá sem ekki kemst oft til út-
landa, þarf svo sem ekki að kvarta
undan fréttaleysi þaðan, einkum
getur hann búist við að vera bæri-
lega upplýstur um stríð og slys á
heimsbyggðinni, þó hann sé að
öðru leyti með öllu ófróður um
staðinn, þar sem bálið kviknar
hverju sinni. Næst besti kostur við
þann að ferðast sjálfur er sá, að
eiga vini og kunningja, sem geta
brugðið sér bæjarleið og komið
aftur með fréttir, ilm og bragð af
heimsmenningunni.
Vinkona mín fór á ráðstefnu sl.
haust eins og ungar menntakonur
gera stundum. Þegar hún kom
aftur hafði hún með sér bók að lána
mér og það var einmitt bókin, sem
mig hafði langað svo mikið til að
lesa frá því ég sá hennar fyrst að
góðu getið í Newsweek eða Time
fyrir u.þ.b. einu ári.
Hvíta hótelið eftir D.M Thomas
er þriðja skáldsaga höfundar, sem
er breskur og fæddur 1935. Bókin
kom út í heimalandi hans 1981 og
hlaut strax slíka frægð að útkoma
hennar mun í undirbúningi í 16
löndum, ef ekki er þegar orðið af
henni víðar. Hún hefur reyndar
fengist í vasabrotsútgáfu hjá Máli
og menningu á ensku, en vonandi
hefur fyrirtækið þegar tryggt sér
þýðingar- og útgáfurétt á henni,
því þetta er bók, sem á erindi við
fleiri en þá, sem lesa erlendar tung-
ur.
Freud og
sjúklingur hans
Hvíta hótelið er listavel skrifuð
saga, sem lýsir andrúmsloftinu í
Mið- og Austur-Evrópu á fyrri
helmingi þessarar aldar um leið og
hún er djúpkönnun á mannssálinni
við þær kringumstæður og þó sér í
lagi kvensálinni. í þeim tilgangi að
lýsa konunni, sem er höfuðpersóna
bókarinnar, notar D.M. Thomas
býsna frumlega og skemmtilega
aðferð og samt liggur hún svo í
augum uppi að ég er hissa, ef eng-
inn hefur gert það sama á undan
honum. Hann gerir sem sagt Sig-
mund Freud að mikilvægri persónu
í sögu sinni og söguhetjuna að sjúk-
lingi hans um tíma. Þar með er hin
fræga aðferð læknisins í Vín, sál-
könnunin eða analísan orðin
augljós og sjálfstæður þáttur í
byggingu sögunnar, en ekki meira
og minna falin eins og hjá flestum
höfundum, sem skrifa undir áh-
rifum frá Freud eða eru honum
andlega skyldir. Og þetta bragð á
sinn stóra þátt í því, hvað sagan
verður spennandi og uppgröftur-
inn úr fortíð konunnar sjálfsagður.
Fyrst gerir hún sjálf grein fyrir sér
með sínum hætti, síðan kemur
greining Freuds á henni og loks er
það hinn, hefðbundni sögumaður,
höfundurinn alsjáandi, sem lýkur
frásögninni.
En frumleg aðferð við að segja
sögu dugar skammt, ef efnið er
ekki áríðandi eða minnisvert. Það
skortir ekki hér. Og því sannast
enn, að fátt er betur fallið til að
glæða skilning manns á mannlífinu,
en góður skáldskapur.
Líkami
og sál
Elísabeth Erdman er af rúss-
neskum gyðingaættum. Hún elst
upp í Odessu við upphaf þessarar
aldar. Ung að árum missir hún
móður sína, sem ferst í hótelbruna í
Moskvu ásamt elskhuga sínum.
Sautján ára er hún í Pétursborg við
dansnám og kynnist þar fyrstu
stóru ástinni. Hún elskar ungan
D.M.Thomas
eldheitan byltingarmann, sem
tekur þó baráttuna fram yfir hana.
Um sama leyti gefst hún upp við að
verða ballerína, m.a. vegna þess,
að hún er orðin of mikil um
mjaðmir og brjóst. í staðinn hefur
hún tónlistarnám í Vín og býr þar
undir verndarvæng móðursystur
sinnar. Hún reynist mjög efnileg
tónlistarkona, en velur engu að síð-
ur á milli framavonar og þess að
giftast ungum aðalsmanni af
löngun til að eignast heimili og
barn. En skuggi stríðsins grúfir yfir
og maður hennar er kvaddur í her-
inn. Þá tekur hún aftur til við cel-
lóið og verður vel ágengt. Þegar
von er á manninum, sem hún elsk-
ar, heim í leyfi, þá fer hún að kenna
sjúkleika, sem hún fyrst varð vör
við eftir að hún horfði upp á sjó -
liðauppreisninaí Odessusembam.
Hún fær andþrengsli og við bætist
sár verkur í brjósti og eggjastokk.
Veikindin ágerast og verða síðar til
þess að hún ákveður að skilja við
mann sinn, sem hún telur sig aldrei
muni geta gert hamingjusaman, og
leitar til Freuds. Þá er hún orðin 29
ára. Hún gefur honum síðar leyfi til
að gefa út sjúkdómssögu sína og
greiningu, þar sem henni er lýst
undir dulnefninu Frú Anna G.
Meðferð Freuds fólst í því, að fá
þessa konu, sem taldi sig fyrst og
fremst líkamlega veika, en ekki
með mein í sálinni, til að rifja upp
brot úr sögu sinni, einkum
bernskuminningar og segja honum
drauma sína. Þegar fram liðu
stundir lét hún hann svo fá nótna-
hefti með Don Juan eftir Mozart,
þá farin að stunda söngnám, og í
þetta nótnahefti hafði hún skrifað
inn eigið líbretto, sem mest gekk út
á kynferðislega draumóra hennar
sjálfrar. Skömmu síðar afhendir
hún honum eigin skilgreiningu á
því, sem hún hefur skrifað á nótna-
blöðin, eins konar dagbók, sem er
enn frekari útmálun á draumum
hennar og ímyndunarafli, þar sem
allt snýst um unga elskendur á
hvítu hóteli í nær órofa samförum,
en alsælan fær alltaf endi í hroða-
legu slysi, þar sem hundruð manna
farast með válegum hætti ýmist í
hótelbruna, jarðskjálftum, skriðu-
föllum eða drukkna.
Lísa blygðast sín ákaflega fyrir
það, sem hún hefur skrifað, en Fre-
ud hælir henni aftur á móti fyrir
hugrekkið að sýna sér það og finn-
ur að hann er að komast að kvik-
unni í konunni. Þau ræða síðan
þýðingu drauma hennar, eins og
þeir lýsa sér í skrifunum og setja þá
í samband við ýmis æviatvik, sem
nú fara að rifjast æ betur upp fyrir
Lísu. Stundum eru þau sammála
um túlkun, stundum ósammála, en
smátt og smátt hverfa sjúkdóms-
einkennin og þau ákveða að slíta
meðferðinni.
Síðar á ævinni á Lísa eftir að
stunda nokkurs konar sjálfs-
greiningu til að halda sjúkdómnum
niðri, þegar einkennin fara aftur að
koma í ljós, og endurskoðar þá ým-
islegt sem henni og Freud fór á
milli, en virðing hennarfyrir mann-
inum, sem hjálpaði henni til sjálfs-
hjálpar þverr aldrei. En þá er höf-
undur sjálfur farinn að segja sögu
hennar.
Til Babí Jar
Mikil straumhvörf verða í lífi
Lísu Erdman, þegar henni er boðið
að taka við óperuhlutverki af rúss-
neskri stórsöngkonu á La Scala í
Mílanó. Það er hátindurinn á söng-
ferli hennar, þá fertugrar, en það
sem meira er um vert, með henni
1 og söngkonunni Veru Serbrjako-
vu, sem á von á barni, tekst mikil
vinátta. Vera deyr síðan af barns-
förum og það verða örlög Lísu, að
ganga syni hennar í móðurstað og
giftast ekklinum Viktor Beren-
stein, sem einnig var frægur söngv-
ari. Þau lifa um hríð í velsæld og
virðingu og nokkrum forréttindum
! sem listamenn í Kiev, en síðan er
Viktor sendur í fangabúðir Stalíns
og honum gefið að sök að hafa sett
á svið óperu, sem reyndist ekki
standast hugmyndafræðilega rann-
sókn Flokksins.
Endalok Lísu Erdman og stjúp-
sonar hennar Kolja eru síðan um
það bil þau hrottalegustu, sem
boðið hefur verið upp á á þessari
jörð. Þau eru smánuð og leidd til
nlðntæknistofnun
íslands
Frá og með 15. mars hættir tæknibókasafnið almenn-
um útlánum bóka og tímarita frá Skipholti 37. Eftir 1.
apríl verður hægt að fá aðgang að tæknibókum og
tímaritum á Iðntæknistofnun íslands Keldnaholti, sími
85400.
PÓST- OG
SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
LOFTSKE YT AM ANN/ SÍMRITARA til starfa í
VESTMANNAEYJUM.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild
Reykjavík og stöðvarstjóra Vestmannaeyjum.
slátrunar ásamt þúsundum rúss-
neskra gyðinga, kvenna, karla,
barna, gamalmenna, skotin og
hrint limlestum ofan í fjöldagröfina
í Babí Jar til að kafna þar í kösinni.
Þá gröf gisti að lokum fjórðung-
ur milljónar manna.
Þegar Lísu er ljóst, hvaða örlög
bíða hennar, þó hún neyti allra
bragða til að koma sér og syni sín-
um undan, þegar þau horfa saman
á vini sína og samferðafólk leitt
nakið fram fyrir byssur nasista „þá
veit hún, hvers vegna hún átti
aldrei að eignast barn. Og þó var
tilhugsunin um að Kolja sonur
hennar hefði getað hreppt þau ör-
lög að vera hér einn á meðal ó-
kunnugra, kannski í barnamergð-
inni frá barnaheimilinu hundrað
sinnum hryllilegri en óttinn við
dauðann.“ Hún tekur hönd barns-
ins og þau leiðast á meðan þau eru
skotin.
Kona og barn
Hvíta hótelið er harmsaga konu í
svikulum, stríðshrjáðum heimi.
Hún er jafnframt sálgreining á
konu, sem getur ekki átt barn, af
því hún vill ekki eignast barn af
ótta við, að hótelið brenni. Hvíta
hótelið er ótryggur samastaður í til- (
verunni. Hvíta hótelið er Hótel
Jörð. Lísa Erdman dregur þann
lærdóm af dæmi móður sinnar lítil
stúlka, að „laun ástarinnar sé
dauðinn". Óeirðir, bylting og stríð
eiga Síðan stærstan þátt í að kæfa
hverja hamingjuvon, sem hún
eygir, þess vegna er það eins og
vörn gegn enn meiri óhamingju, að
verða sér úti um sjúkdóm, sem
gagnast henni eins og ómeðvituð
en sársaukafull getnaðarvörn, svo
hún þurfi aldrei að bera ábyrgð á
barni í svo grimmum heimi. Samt
kemst hún ekki undan móðurhlut
verkinu og að lokum er eins og
hún hafi helst lifað til þess að deyja
með lófa lítils drengs í sínum.
Hvíta hótelið er engin kvenna-
bók í nýjasta og þrengsta skilningi
þess orðs, auk þess skrifuð af karl-
manni, en samt má vera að hún sé
flestum bókum betur fallin til að
auka skilning á ýmsum sálarkimum
konunnar, sem oft er tilhneiging til
að þegja um. Hún er saga konu,
sem efast líkamlega um réttmæti
þess að framlengja lífið með nýju
lífi, af því hún treystir ekki á ham-
ingjuna, er þess fullviss, að á
augnabliki sælunnar muni eldurinn
brjótast út.
Hvíta hótelið er eitt þeirra fj öl-
mörgu listaverka,sem virðasthafa
þann tilgang m.a. að lýsa hinni
þögulu þjáningu þolendanna í
stríði, þeirri þjáningu, sem ekki
skilar sér í erlendum fréttum, þó
tölur um fjölda fallinna séu þuldar,
eða staðsetningu eldflauga lýst, í
þeirri von að þjáningarbræður og
systur taki að lokum höndum
saman og komi í veg fyrir að okkar
Hvíta Hótel Jörð verði eldinum
endanlega að bráð.
Rvík. 15. febr.
Steinunn Jóhannesdóttir
|j| Tilboð óskast
Staðgreiðslutilboð óskast í notað byggingar-
efni: Timbur, spónaplötur, bárujárn og ein-
angrun er selja skal í einu lagi. Vörur þessar
verðatil sýnis mánudaginn 7. mars kl. 13-16
að Korpúlfsstöðum við Vesturlandsveg.
Tilboðum sé skilað inn til Söludeildar Reykja-
víkurborgar Borgartúni 1 fyrir kl. 15 þriðju-
daginn 8. mars þar sem þau verða opnuð.
Söludeild Reykjavíkurborgar