Þjóðviljinn - 05.03.1983, Blaðsíða 19
Helgin 5. - 6. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Vopnaframleiðsla bætir
seint úr atvinnuleysinu
Stundum er sagt sem svo, að eitt
af því sem torveldar framkvæmd
áforma um afvopnun sé það, að
vopnaframleiðslan veiti mörgum
vinnu, og sé enginn hægðarleikur
að fá þeim verkefni sem misstu
atvinnuna vegna niðurskurðar víg-
búnaðar. Og það hefur verið bent
á, að í flestum vopnaframleiðslu-
löndum hafi verkalýðsfélög haft sig
lítið í frammi í afvopnunarkröfum
einmitt af þessum sökum - þótt
undantekningar megi vissulega
finna.
Finnska alþýðusambandið hefur
látið gera fróðlega skýrslu um áhrif
vígbúnaðarkapphlaupsins á
atvinnuástand, og kemur þar upp
margt fróðlegt. Bestar upplýsingar
hafa menn um Bandaríkin. En þar
kemur í ljós að bæði er vopnafram-
leiðsla verðbólguhvetjandi og svo,
að fjárfestingar í vopnaframleiðslu
skapi í raun og veru miklu færri
atvinnutækifæri en sömu peningar
gætu skapað í öðrum greinum.
Vegna þess hve háþróuð og þar
með dýr tækni er notuð við vopna-
ffamleiðslu.
í bandarískri skýrslu frá 1978,
sem hin finnska samantekt vitnar
til segir, að ef miljarður dollara sé
fjárfestur í vopnaframleiðslu, þá
skapi sú fjárfesting 76 þúsund at-
vinnutækifæri. Sama fjárfesting
hefur eftirfarandi áhrif í öðrum
greinum:
- Vélsmíðar 86.000 atvinnutæki-
færi
- Opinber þjónusta 87.000
- Samgöngur 92.000
- Byggingariðnaður 100.000
- Heilsugæsla 139.000
- Menntun 187.000
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
nJfGCFODRfiRIKN’
W Hverfisgötu 34 - Reykjavík
Sími 14484 - 13150
TVEIR
FRÁBÆRIR
SOFIX bónið
gefur varanlegan
gljáa, gerir gamla
dúkinn sem nýjan —
nýjadúkinnennbetri.
Frá THOMPSON
Thompson
hreinsilögurinn
leysir auðveldlega
upp gamalt bón og
önnur óhreinindi.