Þjóðviljinn - 05.03.1983, Síða 21
Helgin 5. - 6. mars 1983 ÞJÓÐVJLJINN - SÍÐA 21
Elsta bílaverkstæði landsins:
Þar er nú
Stúdíó Fjóla
Á baklóðum milli Framnes-
vegar, Holtsgötu og Sólvalla-
götu í Vesturbænum í Reykja-
vík var fyrr á árum aðsetur og
athafnasvæði Steindórs bfla-
kóngs. Þar er enn uppistandandi
húsið sem var fyrsta bifreiðaverk-
stæði landsins, reist fyrir eða um
1930. Nú hefur hópur ungra
manna og kvenna keypt þetta hús
og er að innrétta það sem stúdíó
fyrir margs konar starfsemi.
Þetta er Stúdíó Fjóla að Framnes-
vegi 31b. Blaðamaður Þjóðvilj-
ans leit þangað inn um daginn og
tók nokkra af eigendum þess tali
til að forvitnast um fyrirtækið.
Þeir sem voru við þá stundina
voru Garðar Hansen hljóðupp-
tökumaður, Þór Elís Pálsson
myndlistarmaður, Kristján Ingi
Einarsson ljósmyndari og Bragi
Sigurðsson smiður. Auk þeirra
standa að stúdíóinu Steinunn
Þórarinsdóttir myndlistarmaður,
Fríða Júlíusdóttir ljósmyndari og
Sævar Guðbjörnsson blaðamað-
ur. Einnig taka makar ofan-
greindra þátt í starfseminni,
þannig að alls er um að ræða 13
manns.
Og við spyrjum fyrst hvers
konar starfsemi á að rúmast í
Stúdíó Fjólu.
- Við höfum þegar innréttað
sal, um 90 fermetra stóran, og
hann er í fyrsta lagi ætlaður sem
myndver til útleigu fyrir hvers
konar myndatöku, í öðru lagi
fyrir lifandi hljóðupptöku t.d. á
kórsöng eða kammertónlist svo
að dæmi sé tekið og í þriðja lagi
fyrir hvers konar önnur not. Þar
má nefna að hann er nú þegar
notaður tvisvar í viku sem
leikfimisalur og e>nn'g er hér
ágæt aðstaða fyrir leikstarfsemi.
- Þið segið að hér verði
aðstaða fyrir hljóðupptökur.
- Já, við erum að innrétta her-
bergi til stjórnunar á hljóð- og
vídeóupptökum í tengslum við
salinn. í honum er frábær hljóm-
burður en þetta verður ekki venj-
ulegt stúdíó heldur fyrst og
fremst fyrir „life“-upptökur.
Húsið er byggt með ákaflega sver-
Alfrún Gunnlaugs-
dóttir flytur
fyrirlestur:
Parcevals
saga
Álfrún Gunnlaugsdóttir, dósent í
almennri bókmenntafræði, heldur
fyrirlestur laugardaginn 5. mars í
stofu 201 í Árnagarði. Nefnist fyrir-
lesturinn Parcevals saga og hefst kl.
14.00
Heimspekideild Háskóla íslands
gengst fyrir sjö opinberum fyrir-
lestrum nú á vormisseri til að
kynna almenningi rannsóknir, sem
deildarfólk er að vinna að. Fyrir-
lestrarnir verða fluttir nú í mars og í
apríl og verða ávallt á laugardögum
í Árnagarði, stofu 201. Fyrirlestur
Álfrúnar Gunnlaugsdóttur er hinn
fyrsti í röðinni.
ast
Tveir af Fjólumönnum í stúdíóinu: Garðar Hansen hljóðupptökumaður
t.v. og Þór Pálsson myndlistarmaður t.h.
Ljósm.:eik.
um steinveggjum svo að lítið
heyrist út og truflar þar af
leiðandi ekki nágrannana og við
höfum hljóðeinangrað loftið.
- Var húsið illa farið þegar þið
keyptuð það?
- Já, það var orðið mjög hrör-
legt og mikið verk að koma því í
gott horf.
- Og þið bjóðið upp á frekari
aðstöðu fyrir þá sem vilja notfæra
sér salinn?
- Já, í honum er fastur bak-
grunnur fyrir myndatökur, 6
metrar á breidd og fjórir á hæð,
lýsing og einnig fylgja salnum
snyrting, förðunar-, búnings- og
kaffiaðstaða. Einnig höfum við
hugsað okkur að koma upp
leikherbergi fyrir börn.
- Og hér í viðbyggingum verða
svo einnig vinnustofur?
- Já, við erum einnig að koma
okkur upp eigin vinnustofum t.d.
fyrir ljósmyndun, myndlist,
smíðar o.fl.
- En hvernig stendur á þessu
samstarfi ykkar?
- Þetta er gamall draumur.
Kjarninn í hópnum hefur þekkst
allt frá barnaskólaaldri. Við
erum Vesturbæingar og æskufé-
lagar. Við vorum búnir að sjá-
þetta hús lengi, lítt notað og hrör-
legt, og drifum því í að kaupa
það.
- Að lokum. Hvernig stendur
á þessu nafni, Stúdíó Fjóla?
- Það er nú eiginlega svolítið
leyndarmál. Við kölluðum þetta
Fjólu til að byrja með og svo þeg-
ar við stóðum frammi fyrir því að
gefa stúdíóinu formlegt nafn
fundum við ekkert betra.
Við óskum þessu unga og
hressa fólki til hamingju með fram-
takið og vonum að vel gangi.
- GFr
Böka
mark
aðurinn
Góöar
bækur
Gamalt
verö
vO-'T'
,r4& i'f*'
Bókamarkaóurinn
HÚSGAGNAHÖLLINNI,
ÁRTÚNSHÖFÐA
TÖLVUINNSKRIFT
Setjari óskast til vinnu við innskriftarborð.
Unnið er á tvískiptum vöktum. Góð vélritun-
ar- og íslenskukunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 81333.
SÁÁ
Velkomin
í Mennmgarmíbstöðína
vib Geröuberg....
Reykvíkingar hafa eignast nýja félags-
og menningarmiðstöð í Fella- og Hólahverfi
sem nú hefur tekið til starfa.
f þessu glæsilega húsi er hentug aðstaða
fyrirfélagslíf Breiðholtsbúa, menningarstarf
og margskonar listviðburði í þágu allra borgarbúa.
Áhersla verður lögð á fjölþætt starf, er höfði
til allra aldurshópa.
Reykjavíkurborg þakkar Framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar gott samstarf um byggingu
hússins.
Menningarmiðstöðin við Gerðuberg verður almenningi
til sýnis um þessa helgi og þá næstu frá kl. 14 —19.
Verið velkomin
borgarstjóri
Veitingabúð
Fundur