Þjóðviljinn - 05.03.1983, Qupperneq 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. mars 1983
Áskorendaeinvígið 6. grein
Zoltan Ribli
til alls vís
- Zoltan Ribli, annar ung-
verski þátttakandinn í Áskor-
endakeppninni, er öllu minna
þekktur en Lajos Portisch landi
hans þó engan veginn sé sýnt
að Portisch sé sterkari skák-
maður. Ribli hefur um hartnær
áratugs skeið verið skákmaður
númer tvö í Ungverjalandi en
með frammistöðu sinni á milli-
svæðamótinu í Las Palmas í
sumar þar sem hann varð einn í
efsta sætið, án þess að tapa
skák skipar hann sér án tví-
mæla á bekk með 10 bestu
skákmönnum heims.
Ribli tefldi á svæðamótinu í
Reykjavík árið 1975, varð örugg-
lega í efsta sæti án þess að tapa
skák, og mikla athygli vakti hversu
fljótur hann var að átta sig á vand-
amálum hverrar stöðu, iðulega var
hann með um eða yfir klst. betri
tíma en andstæðingurinn. Svæða-
mótið á Hótel Esju var fyrsta próf -
^raun Riblis í heimsmeistarakeppn-
inni og þó hann sé nú í fyrsta sinn
kominn í keppnina, þá hefur hann
verið mjög nálægt því að komast
áfram á þeim tveim millisvæða-
mótum sem hann tók þátt í áður en
hann tefldi í Las Palmas.
Á millisvæðamótinu í Manila
1976 munaði sáralitlu að hann
kæmist áfram og á millisvæðamót-
inu í Riga 1979 þurfti hreinlega
kraftaverk til þess að halda Ribli
frá áskorendakeppninni. Hann yar
jafn Polugajevskí með 1 'h vinning
fyrir ofan fjórða mann, þegar tvær
^umferðir voru eftir af mótinu. Þeg-
ar ein umferð var eftir var hann
einum vinningi á undan landa sín-
um Andras Adorjan, en í síðustu
umferðinni brustu taugar hans.
Hann tapaði í aðeins 26 leikjum
fyrir Sovétmanninum Oleg Rom-
anishin á meðan Adorjan vann
Englendinginn Miles með svörtu.
Einvígi þurfti á milli Ungverj-
anna um það hvor tefldi í áskor-
endakeppninni 1980 og eftir þrjár
skákir af sex var staðan l'h’.'h, Ri-
bli í vil. Adorjan tókst hið ótrúlega;
hann vann tvær skákir í röð, gerði
síðan jafntefli í sjöttu skákinni og
komst áfram á betri stigum frá mót-
inu í Riga.
I Las Palmas í sumar gerði Ribli
engin mistök. Hann tefldi af frá-
bæru öryggi, halaði inn vinning hér
og þar og í bland með jafnteflum,
sem góð eru meðal vinninganna
tryggði hann sér efsta sætið. Vasily
Smyslov var lengstum efstur, en í
næstsíðustu umferð þegar allir áttu
von á stuttu jafntefli þeirra í milli
tefldi Ribli af grimmd til vinnings
og með sigrinum komst hann loks
fram úr aldursforseta mótsins.
Hann er einn alöruggasti skák-
maður sem sögur fara af sem sást
vel á skákmótinu í Wijk aan Zee á
dögunum þegar hann sigldi í gegn
taplaus eina ferðina enn.
Þegar nafn Riblis kemur upp í
huganum tengir maður hann ó-
sjálfrátt frábærlega vel fáguðu
byrjanakerfi. Eftir því sem Bent
Larsen segir þá mun Ribli ekki lesa
aðrar bækur en þær sem tengjast
skák, þrotlaus vinna samfara mikl-
um hæfileikum hafa skilað honum
á toppinn. Hann er skráður járn-
brautarstarfsmaður í Ungverja-
landi en sem slíkur starfar hann
ekki neitt, nema hvað stundum sést
hann að tafli í skákkeppnum verka-
lýðsfélaga og teflir þá fyrir járn-
brautarmenn.
Það sem helst virðist standa hon-
um fyrir þrifum sem skákmanni er
hversu óvenjulega næmur hann er
á taugum og er mér þá minnisstæð
síðasta umferðin á Olympíuskák-
mótinu á Möltu þegar hann nötraði
allur í gjörunninni stöðu gegn Jóni
L. Árnasyni. Ungverjar áttu þá
heiður að verja, Olympíutitilinn og
því mikið í húfi, en minna má nú
vera. Það kann að vera að þarna
komi til heldur viðburðasnauður
æviferill utan skákborsins. A.m.k.
hefur hann ekki soltið heilu hungri
eins og frægir skákmenn fyrri ára
s.s. Schlecter, verið lautinant í liði
hvítliða eins og Aljékín. Því síður
stundað störf götusópara eins og
Petrosjan gerði á sínum duggara-
bandsárum ellegar fundið stærð-
fræðiformúlur eins og Lasker
gamli. Slíkt veganesti hefur Ribli
ekki út í hina grimmu baráttu á-
skorendanna og það kann að hafa
áhrif.
Á skákmótinu í Wijk aan Zee á
dögunum tefldi Ribli af frábæru ör-
yggi og komst naumast í taphættu í
einni einustu skák. Hér kemur sýn-
Ribli að tafli á svæðisótinu sem haldið var á Hótel Esju 1975. Hann gæti
gert stóra hluti í Áskorendakeppninni, einkum þegar haft er í huga að
andstæðingur hans er greinilega slakasti skákmaðurinn í hópnum, Filipps-
eyingurinn Torre.
ishorn af taflmennsku hans. And-
stæðingurinn er góðkunningi okk-
ar íslendinga, tékkneski stór-
meistárinn Vlastimil Hort:
Wijk aan Zee
2. umferð:
Hvítt: Vlastimil Hort
Svart: Zoltan Ribli
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 4. Rxd4 Rf6
2. Rf3d6 5. Rc3a6
3. d4 cxd4
(Najdorf-afbrigðið. Ungversku
stórmeistararnir Portisch og Ribli
hafa beitt því með frábærum á-
rangri á síðustu árum.)
6. Be3
Umsjón
Helgi
Ólafsson
(Gaman hefði verið að sjá hvað Ri-
bli hafði í pokahorninu gegn 6. Bg5
sem að sjálfsögðu er skarpasti
leikurinn í stöðunni. Það er
augljóst að Hort er undir talsverð-
um áhrifum frá félaga sínum Ro-
bert Húbner sem beitti þessum leik
hvað eftir annað í einvíginu við
Portisch 1980.)
6. .. e6
(Annar möguleiki er 6.-e5.)
7. f4 b5
8. Df3 Bb7
9. Bd3 Rbd7
10. 0-0?!
(Slappur leikur sem gefur svörtum
gott tafl án mikilla átaka. Sjálfsagt
var 10. g4 þ.e. sá leikur sem Hú-
bner valdi gegn Portisch.)
10. .. Hc8
11. Rdl g6
12. Rf2 Bg7
13. Rb3 0-0
(Á einfaldan og áreynslulausan
hátt hefur svartur náð að jafna tafl-
ið. Og þegar svartur jafnar taflið í
sikileyjarvörn er stutt í að hann nái
betri stöðu.)
14. a4 b4
15. a5 Dc7
16. De2e5
17. fxe5 Rxe5
(Svartur hefur í raun náð frum-
kvæðir.u. Hann getur í mestu mak-
indum sótt að e4-peðinu á meðan
mótspil hvíts lætur á sér standa.
Taflmennska Riblis frá og með
þessari stöðu er einkar athyglis-
verð og lærdómsrík.)
18. Bb6 De7
19. Hael Rxd3
20. cxd3 Rd7
21. Bd4 Re5
22. Bb6
sHák
(Ráðleysislegur leikur sem sýnir
vel hvílíkar ógöngur hvítur hefur
ratað í.)
22. .. h5!
(Hindrar möguleg uppskipti með -
Re3 - g4.)
23. Dd2 Dd7
24. He2 Da4!
(Erfiður leikur. Ef 25. Rcl þá 25. -
b3! og hvítur er illa beygður.)
25. Ddl Hfe8
(Eykur þrýstinginn á stöðu hvíts.)
26. Rh3 Rd7
27. Be3 Rc5!
28. Rxc5 Dxdl
29. Hxdl dxc5
(Hvítur á við hartnær óleysanleg
vandamál að glíma.)
30. b3f5!
31. exf5 Hxe3!
8
7
6
5
4
3
2
1
abcdefgh
32. Hxe3 Bd4
33. Hel He8
34. Kf2 gxf5
35. Rf4 h4!
(Þrengir að hagsmunum hvíts sem
óhjákvæmilega lendir í leikþröng.
Það er eftirtektarvert að 35. leikur
hvíts, Rf4 var þvingaður þar sem
t.d. 35. g3 strandaði á 35. - Bd5
o.s.frv.)
36. g3 hxg3+
37. hxg3 Kf7
38. He2 Kf6
39. Hel Kg5
(Hvítur getur enga björg sér veitt.
Hann getur aðeins beðið þess sem
verða vill. Ömurlegt hlutskipti.)
40. He2 Kg4
41. Hel Bf3!
42. Rg6 Bd5!
(Hvítur hefði getað gefist upp með
góðri samvisku en hann kýs að
berjast áfram um stund.)
43. Rf4 Bxb3
44. Rg2 Bd5
45. Ke2 Hh8!
(Alls ekki 45. - Bxe3 46. Rxe3+
Kxg3 47. Kd2! og hvítur er slopp-
inn. Athugið að 47. - Be6 strandar
á 48. Rxf5+! o.s.frv.)
46. Rf4 Bf3+!
47. Hxf3 He8+
48. Kfl Hxel+
49. Kxel Kxf3
- og hvítur gafst upp. Það er ekki
oft sem maður sér Hort svo grátt
leikinn.
Kasparov með vinnings forskot
Harry Kasparov virðist ekki ætla
að valda hinum fjölmörgu aðdá-
endum sínum vonbrigðum í þessari
áskorendakeppni. Eftir að þrjár
skákir hafa verið tefldar í einvígi
hans og landans Alexanders Bcljav-
skí hefur Kasparov vinnings for-
skot, hann vann 2. skákina með stór-
glæsilegri taflmennsku^ fór langt
með að vinna 1. skák en lét sér
nægja tiltölulega friðsamt jafntefli í
3. skák sem hér birtist. Enn er of
snemmt að afskrifa Beljavskí sem
er þekktur fyrir ótrúlega keppnis-
hörku, en óneitanlega virðast sig-
urlíkur undrabarnsins frá Baku
vera miklar. Reglur eru á þann veg
að sá vinnur einvígið sem fleiri
vinninga hefur hlotið í 10 skákum.
Hér koma tvær síðustu skákirnar
í þessu einvígi en 1. skákin verður
látin bíða betri tíma. Hún var langt-
ífrá’ viðburðalaus:
2. einvígisskák:
Hvítt: Alexander Beljavskí
Svart: Harry Kasparov
Tarrasch - vörn
1. d4 d5
2. c4 e6
3. Rc3 c5
(Ný byrjun í vopnabúri Kasparovs.
Hann hefur hingað til haldið sig við
Að loknum þrem fyrstu skákunum
Benoni-vörn og Kóngsindverska
vörn).
4. cxd5 exd5
5. Rf3 Rc6
6. g3 Rf6
7. Bg2 Be7
8. 0-0 0-0
9. Bg5
(í seinni tíð er oftast leikið 9.
dxc5.)
9. ... cxd4
10. Rxd4 h6
11. Be3 He8
12. Da4 Bd7
13. Hadl Rb4
14. Db3 a5
(Allt hefur þetta verið teflt áður og
nú hefur hvítur yfirleitt ieikið 15.
a4. Staðan sem kemur upp eftir 15.
- Bc5 er þó talin vel teflanleg á
svart. Án efa hefur Kasparov
undirbúið þetta afbrigði fyrir ein-
vígið).
15. Hd2?!
(Slappur leikur sem gefur svörtum
frumkvæðið).
15. ... a4
16. Ddl a3!
17. Dbl Bf8
18. bxa3 Hxa3
19. Db2 Da8
20. Rb3 Bc6!
21. Bd4 Re4!
(Kasparov teflir byrjunina afar
markvisst. Hann hefur náð öflugu
frumkvæði út úr byrjuninni).
22. Rxe4 dxe4
23. Hal Bd5!
24. Dbl 1)6!
(Eitraður leikur. Svartur hótar 25,-
e3!, sem splundrar kóngsstöðu
hvíts þar sem drottningunni svörtu
hefur opnast sýn eftir löngu skálín-
unni).
25. e3
(Kemur í veg fyrir hótunina en
veikir hastarlega d3 - reitinn).
25. ... Rd3
26. Hdl b5
(Hægt og bítandi eykur svartur
þrýstinginn. Hvítur var kominn í
talsvert tímahrak í þessari stöðu).
27. Bfl
(Beljavískí tók 11 mínútur á þenn-
an leik og átti nú aðeins eftir 4 mín-
útur á 13 leiki).
27. ... b4
28. Bxd3 exd3
29. Dxd3 Hxa2!
(Að sjálfsögðu. Það er ekki eftir
neinu að slægjast með 29. - Bhl
vegna 30. Dfl o.s.frv.)
30. Hxa2 Dxa2
31. Rc5 Bf3!
32. Hal Dd5
33. Db3 Dh5
34. Rd3 Bd6!
35. Rel Bb7
(Hvítur átti nú aðeins örfáar sek-
úndur eftir).
36. Hcl Df5
37. Hdl Bf8!
abcdefgh
- í þessari stöðu sem er svo gott
sem unnin á svart féll Beljavskí á
tíma. Enginn þarf að efast um að
Kasparov hefði ekki innbyrt vinn-
inginn þó svo að tímaskorturinn
kæmi ekki til. Svartur er með
geypilega góð sóknarfæri á kóngs-
væng, öflugan frelsingja á b -lín-
unni og biskupaparið.
Þriðja skák einvígisins var tefld
síðastliðinn fimmtudag. Vegna
plássleysis verður skýringum
sleppt enda skákin tiltölulega við-
burðasnauð.
Hvítt: Harry Kasparov
Svart: Alexander Beljavskí
Drottningarbragð
1. d4 d5 13. exd4 Rxe5
2. c4 e6
3. Rc3 Rf6
4. cxd5 exd5
5. Bg5 Be7
6. e3 h6
7. Bh4 0-0
8. Bd3 b6
9. Rf3 Bb6
10. 0-0 c5
11. Re5 Rbd7
12. Df3 cxd4
14. dxe5 Rd7
15. Bxe7 Dxe7
16. Rxd5 Dxe5
17. Re7+ Kh8!
18. Dxb7 Rc5
19. Df3 Rxd3
20. Rc6 De6
21. b3 Re5
22. Rxe5 Dxe5
23. Hael Dc7
24. Hcl De7
- og hér bauð Kasparov jafntefli
sem Beljavksí þáði.
Næsta skák einvígisins verður
tefld á morgun, sunnudag.