Þjóðviljinn - 05.03.1983, Page 31
Helgin 5. - 6. mars 1983 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 31
Greinilega var stundum kátt á hjalla á aðalfundi Bandalags kvenna, eins og vera ber þegar um 170 konur koma
saman til fundar. (Ljósm. -eik-)
Aöalfundur Bandalags kvenna:__
Styðjum Kvennaathvarfið
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík var haldinn dagana 26.
og 27. febrúar sl. og sóttu hann
milli 160 og 170 konur frá þeim 30
félögum, sem aðild eiga að Banda-
laginu. Bandalag kvenna var stofn-
að árið 1917 og hefur starfað ó-
sleitilega að málefnum kvenna og
barna æ síðan.
Unnur Ágústsdóttir, formaður
Bandalagsins, tjáði okkur, að
fundurinn hefði farið vel fram og
voru teknar fyrir skýrslur fastan-
efnda og þær ræddar og samdar á-
lyktanir. Meðal fastanefnda
Bandalagsins eru mæðraheimilis-
nefnd, barnagæslunefnd, orlofs-
nefnd, umhverfismálanefnd, upp-
eldis- og skólamálanefnd og neyt-
endamálanefnd. Ályktanir aðalf-
undarins verða birtar hér síðar,
þegar gengið hefur verið frá þeim.
Unnur kvað mikið hafa verið
rætt um Kvennaathvarfið nýstofn-
aða á fundinum og komið hefði
fram mikill stuðningsvilji frá kon-
unum. Ákveðið var að gefa
Kvennaathvarfínu 50 þúsund krón-
ur og sömuleiðis var samþykkt að
skora á ríki og Reykjavíkurborg að
styðja athvarfið fjárhagslega. Þá
voru aðildarfélög Bandalags
kvenna hvött tii að styðja Kvenna-
athvarfið.
Aðalfundarstörfum Bandalags
kvenna lauk mánudaginn 28. febr-
úar með kaffiboði í Höfða, sem
borgarstjórn Reykjavíkur efndi til,
en slík kaffiboð eru föst venja í
kringum aðalfundinn.
ast
Sementsverksmiðjan
Batnandi
afkoma
Flest ríkisfyrirtæki
rekin með tapi í
fyrra — Langmestur
hallinn varð
á Járnblendiverk-
smiðjunni
Töluverð umskipti til hins betra
hafa orðið í afkomu Sementsverk-
smiðju ríkisins á undanförnu ári.
Er reiknað með að lítill sem enginn
I halli verði á rekstri verksmiðjunn-
ar árið 1982. Árið 1981 varð hins
vegar halli á rekstrinum upp á lið-
lega 10 miljónir kr. Nú í sumar er
áformað að taka upp kolabrennslu
við Sementsverksmiðjuna í stað
brennslu á olíu. Er áætlað að það
bæti hag verksmiðjunnar stórlega.
Þó ber þess að geta, að þær áætlan-
ir voru gerðar áður en olía tók að
lækka, þannig að dæmið kann að
hafa skekkst eitthvað.
í svari Hjörleifs Guttormssonar,
iðnaðarráðherra, við fyrirspurn
um afkomu ríkisfyrirtækja, kom
fram að afkoma þeirra er mjög mis-
jöfn. Best var útkoman hjá Ála-
fossi og Sementsverksmiðjunni, en
í þeim fyrirtækjum er reiknað með
að niðurstaðan 1982 verði öðru
hvoru megin við núllið.
Lang mest er -rekstrartapið í
Járnblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga, sem ríkissjóður á rétt
rúman helming í. Þar er reiknað
með að tapið árið 1982 hafi orðið
um 170 miljónir, til viðbótar 64
miljóna kr. tapi árið 1981.
Járnblendiverksmiðjan hefur
verið rekin með sívaxandi tapi frá
upphafi, en nú þykjast aðstand-
endur verksmiðjunnar sjá betri tíð
framundan, með hærra verði og
meiri sölu. Er því áformað að setja
annan ofn verksmiðjunnar í gang á
næstunni, en að undanförnu hefur
aðeins verið unnið með hálfum af-
köstum á Grundartanga.
Tap Kísiliðjunnar er áætlað 6
milj. kr. á sl. ári, og svipað árið
áður. Siglósíld var einnig rekin
með verulégum halla á sl. ári.
Þá var áburðarverksmiðjan rek-
in með miklum halla bæði 1981 og
1982, og munar þar m.a. mikið um
fjármagnskostnað af dollaralánum
til rekstrar.
Gróflega
gengið
árétt
bæjarins
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar nýlega var gerð sam-
hljóða samþykkt, þar sem mót-
mælt er harðlega „sífelldu órétt-
læti ríkisvaldsins hvað varðar
hlutdeild Hafnarfjarðar í fram-
leiðslugjaldi álversins í
Straumsvík“ eins og segir í sam-
þykktinni.
Sérstaklega er vakin athygli á
þeirri aðför að ákveða einhliða
að Hafnarfjörður skyldi taka þátt
í greiðslu kostnaðar vegna athug-
unar á starfsemi ÍSAL án þess að
bærinn kæmi þar á nokkurn hátt
við sögu.
Þá er sú krafa ítrekuð að nú
þegar verði gengið til samninga
við Hafnarfjarðarbæ um endur-
skoðun hlutdeildar bæjarins í
framleiðslugjaldi ÍSAL, en til
slíkra samninga er skylt að ganga
samkvæmt samningi milli iðnað-
arráðuneytisins og bæjarstjórnar
frá maí 1976. „Á þennan rétt
Hafnarfjarðar hefur gróflega ver-
ið gengið með því að. sinna í litlu
sem engu kröfum um viðræður
þar um“, segir í samþykkt bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar.
-*g-
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf.
verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal,
Reykjavík, laugardaginn 12. mars
1983 og hefst kl. 13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður
lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til
fundarins verða afhentir í aðalbankanum,
Bankastræti 7, dagana 9.-11. mars, -
svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf.
xfc RÍKISSPÍTALARNIR
ttM lausar stöður
KÓPAVOGSHÆLI
SJÚKRAÞJÁLFARAR óskast nú þegar eöa eftir sam-
komulagi viö Kópavogshæli. Upplýsingar veitir yfir-
læknir í síma 41500.
UMSJÓNARMAÐUR lóða óskast viö Kópavogshæli.
Menntun í garðyrkju æskileg. Umsóknir er greini ald-
ur, menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítal-
annafyrir 18. mars. Upplýsingarveitirforstöðumaðurí
síma 41500.
STARFSMAÐUR óskast til starfa á deild. Upplýsingar
veitir forstöðumaður í síma 41500.
STARFSMAÐUR óskast til ræstinga við Kópavogs-
hæli. Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 41500.
BLÓÐBANKINN
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til eins árs frá 15. apríl
n.k. eða eftir samkomulagi. Möguleiki á framhalds-
ráðningu um annað ár. Umsóknir er greini nám og fyrri
störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 4. apríl n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir blóðbankans í síma
29000.
LÍFFRÆÐINGUR eða meinatæknir óskast sem fyrst í
fullt starf við blóðónæmisfræðirannsóknir. Þátttaka í
gæsluvöktum áskilin. Upplýsingar veitir yfirlæknir í
síma 29000.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
SJÚKRAÞJÁLFARI óskast frá 1. apríl eða eftir sam-
komulagi. Húsnæði í boði. Einnig óskast SJÚKRA-
ÞJÁLFARI til afleysinga. Upplýsingar veitir yfirsjúkra-
þjálfari í síma 42800.
GEÐDEILDIR RÍKISSPÍTALANNA
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á deild II.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast til næturvakta á
deild XIII, Flókagötu 29.
STARFSMAÐUR óskast til ræstinga á geðdeild
Landspítala og á Kleppsspítala.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor-
stjóri Kleppsspítala í síma 38160.
RÍKISSPÍT ALAR
Reykjavík, 6. mars 1983.
VlffR VELARIEINN
ALDA: þvottavél og þurrkari
0TRÚLEGA GOTT VERÐ
— 3000 VÉLAR í NOTKUNN — TEKUR
HEITT OG KALT VATN — 800 SNÚN-
INGA VINDUHRAÐI — FULLKOMINN
ÞURRKARI — 14 ÞVOTTAKERFI —
INNBYGGÐ HJÓL UNDIR VÉLINNI.