Þjóðviljinn - 09.04.1983, Blaðsíða 15
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. aprfl 1983
Helgin 9.—10. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
sem
Þórbergur
gerði
frœgt í
Ofvitanum
stendur
enn á
sínum stað
Ofvitinn eftir Þórberg Þórðarson í
leikgerð Kjartans Ragnarssonar var
sýndur í sjónvarpi á páskadag og
munu flestir landsmenn hafa setið
fyrir f raman sjónvarpstækið meðan
á sýningu stóð og skemmt sér.
Sögusviðið var Bergshús í
Reykjavík á árunum 1908-1912. Ekki
mun öllum vera Ijóst að þetta hús
stendur enn á sínum stað í
Reykjavík-á Skólavörðustíg 10, að
vísu breytt að ytra útliti en þó eru
viðir og útlínur söm. Þetta „hús
örlaganna" sem Þórbergur kallar
svo, hýsir nú verslunina
Leikfangahúsið og í Baðstofunni
uppi á lofti er lager verslunarinnar.
Borgaryfirvöld undir stjórn Davíðs
Oddssonar hafa nú látið þau boð út ganga
að þetta hús ásamt röðinni milli
Bergstaðastrætis og Bankastrætis skuli
hverfa af yfirborði jarðar og í staðinn reist
nýmóðins háhýsi. Því ekki að gera Berghús
upp í stíl við Bernhöftstorfuna, hafa þar
lítið notalegt kaffihús með minjasafn um
Þórberg á hinu sögufræga lofti? Og
stjörnuathugunartæki undir einrúðu-
glugganum sem var stjörnuturn Þórbergs í 4
vetur? Vel mætti fella nýju húsin að þessu
lága, „svipþunga og karakterfasta húsi,
ómandi af músík aldanna“.
Elskan hétArndís
í íbúaskrá Reykjavíkur árið 1909 eru
eftirtaldaríbúaríBergshúsi: 1. Bergur
Þorleifsson söðlasmiður, f. 7.9.1841 á
Sléttahól í Hörglandshreppi, 2. Hólmfríður
Árnadóttir konahans,f.5.3.1846 í Rvík, 3.
Guðrún Halldóra dóttir þeirra, f. 12. mars
1887 í Rvík, 4. Þórbergur Þórðarson
námspilturf. 12. mars 1888 að
Breiðabólsstað í Borgarhafnarsókn, 5.
Bjarni Þorgeir Magnússon námspiltur f.
10.8.1891íVestdalíSeyðisfirðiog6.
Oddur Ólafsson námspiltur, f. 20.1.1891
að Lækjarbakka í Hvammssveit. Allt þetta
fólk þekkjum við úr Ofvitanum.
Næsta ár eru þeir Bjarni Þorgeir og
Oddur horfnir úr húsinu en annað námsfólk
komið í staðinn og árið 1911 er komin í
húsið Arndís Jónsdóttirf. 25.6.1890í
Fögrubrekku í Hrútafirði, til heimilis að
Bæ. Þarna er engin önnur komin en elskan
„Það var gamalt hús með rismiklu helluþaki og lágum timburveggjum, svipþungt og karakterfast, ómandi af músík aldanna“, segir
Þórbergur í Ofvitanum. Nú er það breytt. Glugginn á gaflinum er á Baðstofunni. Ljósm.: eik.
Hús örlaganna
og orkuver andans
hans Þórbergs sem ekki er nafngreind í
sögunni.
Arndís þessi var dóttir Jóns Sigurðsson;
og Guðrúnar Guðmundsdóttur í
Fögrubrekku. Hún missti móður sína þegar
hún var þriggja ára og föður sinn 5 ára og
mun þá hafa verið tekin til fósturs að Bæ í
Hrútafirði. Hún tók síðar kennarapróf og
fékkst við kennslu. Maður hennar var
Tómas Kristjánsson oddviti að
Höskuldsstöðum í Hrútafirði en hann
missti hún eftir 11 ára sambúð og voru þau
barnlaus.
Sannleikurinn um
líf kynslóðanna
„Allir íslendingar kunna að lesa bækur.
En hversu margir kunna að lesa hús? Það er
meiri íþrótt að kunna að lesa hús en að geta
lesið bækur. Húsiðer hugsun, sem hefur
hæð, lengd og breidd. Bókin er vöntun á
hugsun, sem aðeins hefur lengd. Húsið er
sannleikurinn um líf kynslóðanna. Bókin er
lygin um líf þeirra."
Svo segir Þórbergur í Ofvitanum.
Bergshús kom honum til að hugsa um
alvöru lífsins. „Hvert herbergi, hvert þil,
h vert húsgagn, hvert skin og h ver skuggi,
sem ljós heimsins mjakaði yfir gólf og
veggi, voru mér eins og gömul bókfell, er
hönd tímans hafði skráð á brot úr lífi
merkilegra kynslóða."
„Hér hafði alltaf eitthvað sögulegt verið
að gerast. Hér gat ég setið og þar gat ég
legið tímum saman og gleymt peningaleysi
heimsins við að stafa mig fram úr þessum
bókfellum aldanna.“
Bókfell aldanna
Og í Oddvitanum er heill kafli um bókfell
aldanna. Þegar Þórbergur kom í Bergshús
hafði það veri reist fyrir 45 árum „og
maðurinn sem hugsaði það og reisti af
grunni var enginn meiri né minni en sjálfur
Alexíus Árnason pólití, merkasti höfðingi,
sem nokkurn tíma hafði gengið um götur
höfuðstaðarins í þjónustu góðs skikks og
sæmilegra siða.“ Uppi á loftinu í
austurherberginu hírðist í gamla daga
annar snillingur. Það var Einar stopp,
„mesti hlaupari, sem nokkurn tíma hafði
verið uppi á íslandi. Hann hljóp fyrir alvöru
lífsins, fyrir fólkið. Hann hljóp fyrir
þjóðina. Hann varflugpóstur þeirra tíma.
Hann sást oft á harðahlaupum um fjöll og
firnindi, klyfjaður bréfum, blöðum og
bögglum fyrir póststjórnina."
Og í vesturherberginu í Bergshúsi,
Baðstofunni, vistarveru Þórbergs, hafði
áður búið sjálfur Eiríkur á Brúnum,
höfundur óborganlegrar ferðasögu,
mormón og fyrirmynd Steinars í
Steinahlíðum í Paradísarheimt Laxness. Og
innan veggja Bergshúss hafði Þorbjörg
Sveinsdóttir ljósmóðir „úthellt sér yfir
duglausa eiginmenn og svefnhettumók
Reykvíkinga. Hér hafði sindrað frá henni
glóandi orðkynngi um rangsleitni hinna
ráðandi manna, skítbuxnaháttinn,
læpuskapinn, heimskunaístjórn bæjarins,
framfarir hins nýja tíma. f þessum
vistarverum hafði hún gert bál úr hverjum
lífsneista fyrir allar
bæj arstj órnarkosningar, prestkosningar,
alþingiskosningar. „Eg vil heldur skítugan
hlandkopp inn í þingið en helvítið hann
Jónassen.“
Og hér höfðu þeir átt þak yfir höfuðið á
skólaárum sínum Björn Jónsson í ísafold,
Þórbergur: Bergshús kallaði hann aldrei
annað með sjálfum sér en örlagahúsið eða
hús örlaganna
„Og þegar maður stóð á pallskörinni, gat
maður teygt höfuðið upp um gluggaopið og
séð i þrjár áttir. Þessi gluggi var stjörnu-
turninn minn í fjóra vetur“. Nú er búið að
negla fyrir gluggann og Baðstofan, þurrk-
loftið og austurherbergið er verslunarlager.
sr. Jens Pálsson og Jóhann Gunnar
Sigurðsson skáld.
Minningabrotum um þetta fólk hafði
Þórbergi tekist að stafa sig fram út í
bókfellum aldanna í Bergshúsi en sjálfur
hefur hann gert húsið ódauðlegt hvort sem
það fær að standa áfram eða ekki.
Hlýja og
listrænt samhengi
Um Baðstofuna segir Þórbergur svo:
„Herbergið, sem við fengum þarna til
íbúðar, var uppi á lofti í vesturenda hússins,
og gestir okkar, er þangað tóku að streyma,
þegar leið á haustið, kölluðu það í gamni
Baðstofuna, af því að það var undir súð og
allur heildarsvipur þess minnti mjög á
sveitabaðstofu.
Þessi vistarvera var um sex álnir á lengd,
sex á breidd og liðugar þr j ár álnir að hæð
upp í mæni. Vegghæðin frá gólfi upp að súð
var nálægt einni alin og kvartéli. Súðin, sem
ekki var skarsúð, var bólstruð grænleitu
veggfóðri, en veggirnir milli gólfs og súðar
voru klæddir blágrænum panelþiljum,
sömuleiðis stafninn og skilveggurinn sitt
hvoru megin dyra. Á gafli herbergisins var
sexrúðu-gluggi, sem sneri mót norðvestri.
Undir glugganum var gamalt
ljósviðarborð, smellt sögulegum
minningum f samskeytunum milli >
borðfjalanna. Á þvístóð blússbrennari með
postulínshj álmi, alltaf ný-fægður.
Vinstra megin borðsins, úti við
stafnþilið, stóð hvítmáluð jámgrind, sem
gerð var utan um þrjámisvíða járnhringi. í
efsta hringnum stóð emaleruð sápuskál og í
þeim neðsta emaleruð vatnskanna. Á þilinu
fyrir ofan þvottaskálina hékk handklæði á
nagla, og litlu hærra, nær glugganum, hékk
lítill spegill með kuðungaumgerð.
Meðfram norðurvegg herbergisins voru
tvö rúm, sem tóku yfir lengd þess. Yfir þau
voru breidd hvít teppi. En úti við
suðurvegginn stóð lítill sóffi, fóðraður
rauðu damaski. Svo voru tveir til þrír
stólar, klæddir damaski samlitu sóffanum.
Á austurenda herbegisins voru dyr. Það
voru litlar dyr með ljósri umgerð og
blágrænni hurð. Oginnan á hurðinni var
lítill járnsnerill en lykill í að utanverðu.
Við þilið milli dyranna og eystra rúmsins
var stór kolaofn sí-kyntur, sem varpaði út
um herbergið þungum hvin, er minnti á
djúpan vatnanið að fjallabaki. Og í
glóðarholinu innan við ofnristina dönsuðu
leiftrandi eldlokkar í fjölda tilbrigða, sem
slógu seiðandi æfintýrabjarma á
vetrarkvöld Baðstofunnar.
Þessi litla vistarvera geislaði frá sér hlýju
og listrænu samræmi horfinnar menningar.
Fyrir framan herbergisdyrnar var dálítið
þurrkloft með stögum og stórri grjótrullu,
sem stóð undir norðursúðinni. En hinurn
rnegin þurrkloftsins, í austurenda hússins,
var herbegi á stærð við Baðstofuna. Það var
ýmist haft til geymslu eða handa
vinnukonum.
Niður af þurrkloftinu sunnan megin gekk
brattur stigi með tíu tröppum.
Á þakinu yfir stiganum var einrúðu-
gluggi, sent hægt var að opna og loka eftir
vild. Ogþegar maður stóð á pallskörinni,
gat maður teygt höfuðið upp um
gluggaopið ogséð í þrjár áttir. Þessi gluggi
var stjörnuturn minn í fjóra vetur.“
Orkuver
andlegs lífs
Fljótlega eftir að Þórbergur flutti í
Bergshús tók að fjölga gestakómum í
Baðstofuna og ekki leið á löngu áður en
þarna hafði risið ofurlítið orkuver andlegs
lífs og þungamiðj a þess var ofvitinn.
í leikgerð Kjartans Ragnarssonareru
aðeins nefndir þrír til sögunnar, þeir Oddur
Ólafsson, Þorleifur Gunnarsson og
Rögnvaldur Guðmundsson en í bókinni eru
þeir mun fleiri. Allir eru þeir nefndir
réttum nöfnum.
Oddur Ólafsson gekk í Hjálpræðisherinn
eins og kemur fram í Ofvitanum. Hann
varð seinna forystumaður Hersins á ísafirði
og reisti gistihús það hið mikla sem þar er.
Seinna var honum falið af Alþýðuflokknum
að reisa Alþýðuhúsið í Reykjavík og gerði
það af mikilli atorku og veitti því síðan
forstöðu.
Þorleifur Gunnarsson, sérfræðingurinn í
millilandafrumvarpinu, varð síðar meiri
háttar bókbandsmeistari í Reykjavík.
Hann er faðir Gunnars bókaútgefanda.
Rögnvaldur Guðmundsson dó ungur úr
berklum.
Aðrir gestir í Baðstofunni voru m.a.
þessir: Gunnar Espólín Benediktsson, faðir
Birgis ísleifs. Hann varð síðar
lögfræðingur. Emil Guðmundsson Waage,
dó ungur úr berklum. Sigurður Ó. Lárusson
síðar prófastur í Stykkishólmi. Eiríkur
Helgason, síðar prófastur í Bjarnarnesi.
Hann er faðir Oddbergs skipasmiðs í
Nj arðvík og þeirra systkina. Sigurður
Grímsson, síðar leiklistargagnrýnandi og
lögfræðingur. Ragnar Þórarinsson, síðar
smiður í Reykj avík.
Eftir að Þórbergur og orkuverið hvarf úr
Baðstofunni hafa vafalaust gerst þar rnerk
tíðindi, og húsið er vel þess virði að halda
til haga á sínum stað. Það er í rauninni ekki
vansalaust að Reykvíkingar eigi ekki eitt
einasta skáldahús meðan Akureyringar
eigaþrjú. Þvíekki að geraBergshús að
minjasafni um Þórberg og aðra þá sem þar
hafa gert garðinn frægan?
- GFr.
Stúdentar frá Menntaskólanum árið 1914. Fjórir þeirra voru fastagestir t Baðstofunni á menntaskóla-
árum sínum. Þeir eru Rögnvaldur Guðmundsson (stendur efst til vinstri), Gunnar E. Benediktsson
(stendur 3. frá v.), Sigurður Ó. Lárusson (situr lengst til vinstri) og Eiríkur Helgason (situr 3. frá v.)
Yfir dyrum er skorið nafn hússins í tré. Ljósnt.: eik.
Elskan hans Þórbergs
hét Arndís Jónsdóttir
-„hávaxin stúlka,
dökkhærð,
hrokkinhærð, ívið
kinnbeinahá, rjóð í
andliti, fersk og
sælleg,..“
Bergshús stendur enn
á sínum stað við
Skólavörðustíginn,
tuttugu og tvo faðma
frá höfuð-
tukthúsdýrum
þjóðarinnar. Hér er
bakhlið þess og sést
móta fyrir
þakglugganum í
þakinu. Þar sem áður
uxu kartöfiur, rófur,
heimulunjóli og
gulrófnafræ með
eteriskt yfirbragð eru
nú öskutunnur og
bílar. Ljósm.: eik.