Þjóðviljinn - 09.04.1983, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 09.04.1983, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. aprfl 1983 dægurmál (síg i id ?) Stjömu- messan Haldin til að bjarga Alverinu Viðtal við bræðurna Bubba og Tolla Morthens sem eru að Ijúka við gerð tveggja platna ÞeirTolli og Bubbi eiga meira sameiginlegt en þaö eitt aö vera bræðuroggóðirtextahöfundar. Þeir eru nú um þessar mundir að Ijúka við gerðtveggja platna. Tolli viðsínafyrstu en Bubbi við sína þriðju. Eftir að hafa legið í símanum eina kvöldstund tókst okkur að finna stað og stund þar sem við gætum hist. Við mælturh okkur mót heima hjá Bubba og þegar þangað kom var aldeilis líf í tusk- unum og þeir bræður í djúpum samræðum um Stjörnumessuna frægu. Ég hlýddi með andagt á mælskuna í þeim bræðrum en það eru fáir sem ég þekki sem eru jafn hrikalega mælskir og þeir. Eftir smá stund gat ég borið upp fyrstu spurning- una og hafið viðtalið. Blm.: Er það rétt að Megas syngi á báð- um plötum ykkar? Tolli: Hann er með þrjú eða fjögur lög á minni plötu sem hann syngur sjálfur og ég kem hvergi nærri.\Segja má að Megas sé gestur á plötunni. Bubbi: Við Megas syngjum saman í tveim lögum, þetta eru hans lög og textar, ég dúetta aðeins á móti honum. Blm.: Var ekki erfitt að fá Megas til að byrja að syngja á ný inn á plötu? Bubbi: Erfitt, ég talaði fyrst við hann um þetta 1974, þá sem aðdáandi. Þá sagði ég við hann að ef ég ætti einhvern tíma eftir að gefa út plötu, þá tæki ég af honum loforð um að koma fram á þeirri plötu. Hvort hann man nokkuð af þessu hef ég ekki hug- mynd um, en ég hef gengið méð þessa hug- mynd í maganum alveg frá því ég byrjaði í bransanum og því tími til kominn að láta þennan draum rætast. Ég fer ekki ofan af því að Megas er sá íslenskur listamaður sem hefur haft hvað mest áhrif á mig og því er ég ánægður með að hann skuli hafa verið fáanlegur til að syngja þessi lög á plötuna. Ballöður frá baráttuárum Blm.: Hvaða hljóðfæraleikara hefur þú fengið til liðs við þig Tolli? Tolli: Bragi leikur á bassa (Purrkur Pill- nikk), Kommi leikur á trommur (Tauga- deildin og 04U) og Beggi bróðir leikur á gítar (Egó). Finnbogi Pétursson raddar með mér í nokkrum lögum. Blm.: Þú hefur ekki fengið Bubba til að, taka með þér lagið? Tolli: O nei. Blm.: Hvers vegna fórst þú út í plötugerð og hver gefur plötuna út? Tolli: Grammið gefur plötuna út, þessi plötugerð hjá mér er að hluta til sprottin af því að ég sit uppi með dálítið efni sem ég þarf að laxera. Rafmögnuðu lögin á plöt- unni eru ekki nema að litlu leyti eftir mig. Tónlistin varð til á æfingum, þetta eru hálf- gerðir spunar. Við æfðum saman í 10 daga og síðan var haldið ipn í Grettisgat og þetta hljóðritað á einum degi. Ég veit ekki hvort rétt er að kalla þetta sólóplötu, ég stýri svona ferðinni. Blm.: Ætlarðu ekki að halda áfram með plötugerð? Tolli: Nei, nei. Blm.: Þegar ég frétti að þú ætlaðir að hljóðrita plötu, hélt ég alltaf að þetta yrði órafmögnuð plata, verða ekki einhver lög í þeirn stíl? Tolli: Jú. Maður svíkur þá deildina ekki alveg, ég verð með nokkur lét lög við ljúfan undirslátt kassagítarsins. Þar tek ég fyrir nokkrar gamlar ballöður frá baráttuárum mínum áður en ég gerðist roskinn og ráð- settur. Bubbi: Rokklögin á þessari plötu eru með því ferskasta sem hér hefur komið út í háa herrans tíð. Blm.: Bubbi, verður þessi nýja plata þín frábrugðin Plágunni? Bubbi: Já hún er byggð upp á fíling frá árunum 1960-63, blues og Shadows stemmning á köflum og svo pura acoustic þess á milli. Þetta eru hlutir sem mig hefur lengi langað til að gera, það er ekkert rokk á þessari plötu. Blm.: Hljómaði forskriftin að Plágunni ekki eitthvað á þessa leið? Bubbi: Jú, upprunalega átti ísbjarnar- blúsinn að vera svona og síðan Plágan og því tími til kominn að framkvæma þetta. Sami boðskapur og áður Blm.: Svo við snúum okkur að öðru, hef- ur tónlist pólitískt gildi? Sif Jón Vidar Andrea Tolli: Okkar afstaða sést best á því sem við erum að gera og þá einkanlega því sem Bubbi hefur verið að gera. Bubbi: Gömlu dægurlagatextarnir voru tæki til að halda fólkinu niðri. Tolli: Tónlist og textagerð er alltaf endurspeglun á ríkjandi ástandi. Meðan almenningur er óvirkur og hin pólitíska um- ræða er ekki úti á meðal fólks þá eru dægur- lögin ágætur vettvangur til að kvéikja slíka umræðu. Bubbi: Á krepputímum bregst plötu- iðnaðurinn þannig við að hann fer að fram- leiða danstónlist sem gengur í fólkið, leiðir það inn í einhvern tilbúinn heim. Sjáðu bara hvað er að gerast í Bretlandi í dag, þar er það létt tónlist sem gengur inn í liðið, tónlist sem er steingeld á öllum sviðum. En upp úr svona þrenginum hafa einnig sprottið mjög pólitískt meðvitaðir lista- menn. Af öllum þeim hljómsveitum sem komu fram með pönkinu er Clash eina hljómsveitin sem hefur haldið sínu pólitíska striki og meikað það. En það tók þá marg- falt lengri tíma að fara þá leið sem þeir fóru. Þeir hefðu einfaldlega getað kastað allri pó- litík fyrir róða og slegið í gegn í einum hvelli. Tolli: Þetta minnir mig alltaf á veisluna í Gasstöðinni um aldamótin. Þá boðuðu kennimenn heimsenda, halastjarna eða eítthvað annað álíka fyrirbæri átti að splúndra kúlunni. Það trúðu því allir að heimsendir væri í nánd og daginn fyrir heimsendi söfnuðust betri borgarar Reykjavíkur saman í Gasstöðinni og héldu þar mikla veislu til að gleyma öllu saman en dagur reis á ný og fólk þurfti að taka sig saman í andlitinu morguninn eftir. Blm.: Nú hefur þú verið gagnrýndur fyrir það Bubbi, að textar þínir séu ekki eins beinskeyttir og áður og ekki eins pólit- ískir... Bubbi: Allir mínir textar nema fjórir eða fimm eru pólitískir. Vissulega hafa mínir textar breyst og einfaldlega vegna þess að það er ekki hægt að segja sama hlutinn endalaust með sömu orðunum og í sama forminu. Boðskapurinn er sá sami og fyrr í textunum en þeir eru orðnir fágaðri og lyr- iskari. Textar Tolla sem eru pólitískustu textar sem komið hafa út á íslenskum plötum myndu örugglega breytast ef hann hellti sér á kaf í tónlistina. Það væri öruggt að sama textaform kæmi ekki fyrir á tveim plötum. Hljómplatan sterkari en Ijóðabókin Blm.: Það hefur aldrei hvarflað að ykkur að fara að vinna saman? Bubbi: Við höfum alltaf unnið saman, Tolli hefur átt texta á nær öllum plötum sem éghef sungið inn á. Við höfum unnið saman alveg frá byrjun. Fæðing Utangarðsmanna er að miklu leyti Tolla að þakka. Blm.: Þið eruð ekkert að spá í að gefa út Ijóðabók? Tolli: Nei, það er miklu sterkara að gefa út hljómplötu. Bubbi: Ég hef aldrei litið á mig sem ljóð- skáld, ég lít á mig sem rokkskáld. Rokk- textar eru nýr angi af ljóðlist sem kom fram með rokkkynslóðinni. Ljóðabækur eru úr- elt fyrirbæri. Tolli: Nei, nei það er fullt af fólki sem hefur gaman af ljóðabókum, það er bara ekki mín deild. Tónlist sem skiptir máli á ekki erindi á Stjörnumessu Blm.: Þegar ég kom inn hér áðan voruð þið að tala um Stjörnumessuna, ætlar þú Bubbi, að vera með einhverja uppákomu þar ef þú vinnur til verðlauna? Bubbi: Ég held að ástæðan fyrir því að mín er vænst þarna sé sennilega sú að þeir telji sig ekki geta gengið fram hjá mér. Það er gengið fram hjá öllum þeim hljómsvei- tum sem eiga virkilega skilið að fá viður- kenningu, hljómsveitum eins og BARA- flokknum, Tappa Tíkarrassi, Þey og Von- brigðum. En þeir sitja uppi með mig, þeim líkar ekki að koma til mín og spyrja mig hvort ég ætli að vera með einhver læti. Annars held ég að Stjörnumessan sé haldin til að bjarga Álverinu því allir verðlaunagripirnir eru úr áli. Tolli: Tónlist sem skiptir máli á ekkert erindi á Stjörnumessu. Þessi Stjörnumessa er angi af leiftursóknarkúlturnum. Músík sem skiptir máli er samin á sjálfstæðum forsendum listamannsins, samin af þörf og lýtur ekki markaðslögmálunum. Það sem skiptir máli er að vera sjálfum sér samkvæmur og heiðarlegur. Bubbi: Stjörnukomplexinn er að skemma samstarf íslenskra tónlistarmanna, það er eins og allir séu hættir að hugsa um nokkuð annað en peninga. Obbinn af ís- lenskum tónlistarmönnum hefur verið ó- meðvitaðir hálfvitar, sinnulausir gagnvart öllu nema sjálfu sér. Ég hef verið gagnrýndur fyrir það að vera söluvara en menn mega ekki gleyma því að ég selst fyrir það sem ég er að segja, það hefur aldrei áður gerst hér á landi. Annars held ég að Crass sé eina hljóm- sveitin sem starfar eftir sínum eigin lögmál- um, allar aðrar stjórnast meira og minna af markaðnum. Hér urðum við að hætta samtalinu því matartími Bubba var liðinn og hann þurfti að halda upp í Grettisgat til að ljúka við gerð væntanlegrar sólóplötu. Annars má geta þess svona í framhjáhlaupi að plata Tolla er væntanleg í maí og plata Bubba í júní.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.