Þjóðviljinn - 21.05.1983, Page 5
Helgin 21. - 22. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
á fnnfluttum vörum í smásölu, einkum
varanlegum neysluvörum, verði tak-
markaðir, svo og vörukaupalán, sem
enn kunna að tíðkast á innflutningi til
einkanota.
6.10. Átak verði gert til að hvetja til kaupa
á innlendri framleiðslu og opinberum
innkaupum beitt markvisst í sama skyni.
6.11. Hömlur verði lagðar á fjárfestingu í
banka- og verslunarhúsnæði næstu ár,
en fjármagni þess í stað beint til nýsköp-
unar í atvinnulífi.
6.12. Stofnuð verði Olíuverslun ríkisins er
annist allan innflutning til landsins á
oiíuvörum.
6.13. Næsta árið meðan sérstakt átak er
gert til hjöðnunar verðbólgu verði stór-
auknu aðhaldi beitt í verðlagsmálum.
Atvinnumái
Gerð verði fjárfestingaráætlun vegna
atvinnuveganna til næstu 5-10 ára með
áherslu á arðbæra uppbyggingu atvinnulífs,
hagræðingu og sparnað í rekstri og aukna
framleiðslu fyrir innanlandsmarkað og út-
flutning. Stefnt verði að vaxandi hlutdeild
innlends fjármagns í fjárfestingu, samræm-
ingu á starfsemi fjárfestingarlánasjóða og
útlánum banka og lífeyrissjóða í þágu at-
vinnulífsins.
7.1. Gerðar verði ráðstafanir til að sam-
ræma veiðar og vinnslu og draga þannig
úr tilkostnaði í sjávarútvegi og bæta
meðferð afla og úrvinnslu á öllum stig-
um. Lánsfé til fiskvinnslu verði aukið,
en dregið úr nýfjárfestingu í fiski-
skipum. Átak verði gert varðandi fisk-
eldi og sókn beint vannýtta stofna.
7.2. Starfsskilyrði iðnaðar verði bætt og
gerð áætlun um aukna hlutdeild inn-
lends iðnaðar á heimamarkaði. Tryggt
verði íslenskt forærði í stóriðnaðarfyrir-
tækjum, m.a. með meirihlutaeign ís-
lenska ríkisins. Viðhald og endurnýjun
fiskiskipaflotans fari fram í íslenskum
skipasmíðastöðvum.
7.3. Hefðbundin landbúnaðarframleiðsla
verði í sem bestu samræmi við innan-
landsmarkað. Búrekstri á jörðum verði
hagað í samræmi við landgæði og mark-
aðsaðstöðu. Nýjar búgreinar verði efld-
ar, m.a. með útflutning fyrir augum.
„Innflutningsleyfi á
tilteknum samkynja og
einföldum vöruf lokkum
verði boðin út opinberlega
og innf lutningsleyf i veitt
tímabundið þeim sem
býður innf lutninginn á
lægstu verði.“
„Hömlur verði lagðar á
fjárf estingu í banka- og
verslunarhúsnæði næstu
ár, en fjármagni þess í
stað beint til nýsköpunar í
atvinnulífi.“
„Bætt eiginfjárstaða
Seðlabankans umfram
verðbólgu verði hagnýtt í
þágu atvinnuveganna.“
„Raforkuverð til álversins
hækki í 15-20 mills. Gefinn
verði tveggja mánaða
f restur til samninga. Ef
ekki takast samningar á
þeim tíma verði ákvörðun
tekin um einhliða hækkun
raforkuverðsins.“
„Komið verði í veg fyrir
allarfrekari
hernaðarframkvæmdir og
aukningu vígbúnaðar á
Keflavíkurflugvelli eða
annarsstaðar álandi hér
og skýrt verði kveðið á um
þetta í stjórnarsáttmála.“
7.4. Allir lífeyrissjóðir leggi fram 50% af
ráðstöfunarfé sínu og bankar 10% af
innlánsaukningu til húsnæðismála og til
fjárfestinga í atvinnuvegum í samræmi
við lánsfjáráætlun.
7.5. Bætt eiginfjárstaða Seðlabankans um-
fram verðbólgu verði hagnýtt í þágu
atvinnuveganna.
ísal - Alusuisse
Raforkuverð hækki í 15-20 rnills. Gefinn
verði tveggja mánaða frestur til samninga.
Ef ekki takast samningar verði ákvörðun
tekin um einhliða hækkun raforkuverðs.
Utanrikismál - herstöðin
9.1. Komið verði í veg íyrir allar frekari
hernaðarframkvæmdir og aukningu víg-
búnaðar á Keflavíkurflugvelli eða ann-
ars staðar á landi hér og skýrt verði
kveðið á um þetta í stjórnarsáttmála.
9.2. Bygging flugstöðvar verði tengd áætl-
un um nauðsynlegar framkvæmdir í ís-
lenskum flugmálum og í stað hernaðar-
framkvæmda í Helguvík verði leitað
annarra lausna á mengunarhættu frá
olíugeymum annars staðar á hernáms-
svæðinu.
9.3. Undirbúin verði löggjöf um að bannað
verði að flytja kjarnorkuvopn um Is-
land, lofthelgi landsins og fiskveiðilög-
sögu og íslensk stjórnvöld taki fullan
þátt í umræðum norrænna ríkisstjórna
um kjarnorkuvopnalaust svæði Norður-
landa.
9.4. Þróunaraðstoð íslendinga við þjóðir
þriðja heimsins verði aukin í áföngum á
næstu árum.
Skilyrði
10.1. Neitunarvald einstakra flokka í
meiriháttar málum verði tryggt og virt.
Samkontulag urn þetta verði birt í upp-
hafi stjórnartímabilsins nteð málefna-
samningi.
10.2. Þingrofsvaldi verði ekki beitt nema
með samþykki allra stjórnaraðila.
10.3. Engar ákvarðanir verði teknar um
lagasetningu sent hefur áhrif á almenn
laun nema allir stjórnaraðilar samþykki,
enda verði haft fullt samráð við samtök
launafólks.
Breytíngar á stjórnkerfhm
11.1. Sameining og samruni ríkisstofnana,
m.a. ráðuneyta.
11.2. Opinberir embættismenn verði
aðeins ráðnir til 5 ára í senn.
11.3. Stofnað verði efnahagsmálaráðu-
neyti sem taki að nokkru yfir verkefni
Framkvæmdastofnunar, Þjóðhagsstofn-
1 unar og Seðlabanka.
11.4. Ríkisbankarnir verði tveir, og Seðla-
bankinn endurskipulagður.
11.5. Samræming á stjórn ríkisfyrirtækja.
11.6. Stuðla ber að atvinnulýðræði í öllum
fyrirtækjum með sérstakri löggjöf sem
tryggi starfsmönnum aðgang að öllum
helstu upplýsingum um rekstur fyrir-
tækja og rétt til að tilnefna fulltrúa á
stjórnarfundi.
Umhverfismál
12.1. Með löggjöf verði ákveðið að nátt-
úruauðlindir svo sem jarðhiti, vatnsafl
og auðlindir hafsbotns séu þjóðareign.
12.2. Sett verði strax á fót stjórnunarnefnd
umhverfismála, er samræmi meðferð
þeirra í stjórnkerfinu og undirbúi stofn-
un umhverfisráðuneytis, er taki til starfa
á árinu 1985.
12.3. Undirbúið verði landnýtingarskipu-
lag er taki tillit til allra þátta og geti
myndað grunn fyrir ákvarðanir varð-
andi ráðstöfun lands, hvort sem er til
beinnar hagnýtingar, friðunar eða úti-
vistar.
12.4. Löggjöf verði undirbúin um meðferð
hálendis, verndun, urnferð og fram-
kvæmdir.
12.5. Réttur fólks til að njóta náttúru
landsins, til umíerðar og útivistar verði
rýmkaður um leið og skýrt verði kveðið
á um náttúruvernd og aðstaða sköpuð til
eðlilegrar utngengni við landið og nauð-
synlegs eftirlits.
12.6. Leitað verði eftir auknu samstarfi við
grannþjóðir unt umhverfisvernd við
norðanvert Atlantshaf, þar á meðal
varðandi mengun og hættu af kjarn-
orkuvopnun, svo og um nýtingu auð-
linda.
Atta safaríkar
Sovétríkin
15. júlí - 5. ágúst
5.-26. ágúst.
Tvær þriggja vikna ferðir til Moskvu,
Leningrad og Sochi ásamt fimm nátta
dvöl í Kaupmannahöfn. Dvalist er í tíu
daga á hinum frábæru baðströndum
Svartahafsins við Sochi, í óviðjafnanlega
fögru umhverfi þessa stærsta og fræg-
asta sólbaðsstaðar Sovétríkjanna.
Helsinki
16. júlí - 3. ágúst
Helsinki-ferðin er á einstaklega hag-
stæðu verði og nú opnast kórum,
lúðrasveitum, íþróttafélögum og ótal
öðrum félagasamtökum ásamt auðvitaö
einstaklingum langþráð og kærkomið
tækifæri til þess að heimsækja Finnland
með ævintýralega litlum tilkostnaði.
Ný sumarhús
í Hollandi
18. júní-1. júií
Vegna langra biðlista í ferðirnar til
sumarhúsanna í Eemhof í Hollandi efnum
við til sérstakraraukaferðartil Kemper-
vennen sumarhúsanna á landamærum
Hollands og Belgíu. Þessi hús og öll sú
aðstaða sem þeim fylgir voru byggð í
vetur og óhætt er að fullyrða að aðbún-
aðurinn í Kempervenneni eigi eftir að
koma farþegunum hressilega á óvart
með stærð sinni og glæsileika.
Sumarhús
í Danmörku
11.-30. júní 1.-22. júlí
22. júlí - 11. ágúst
Þrjár bráðsmellnar og óvenjulegar ferðir
á ótrúlega glæsilegum kjörum fyrir alla
aðildarfélaga. Ekið er vítt og breytt um
landið og dvalist í glæsilegum sumar-
húsum á þremur stöðum í Danmörku.
Skemmtileg blanda af rútu- og sumar-
húsaferð.
Toronto
Winnipeg
14. júlí - 4. ágúst
3ja vikna dvöl í Toronto, 3ja vikna dvöl
(Winnipeg, bílaleigubíll, Florida, Hawaii,
stórborgir á vesturströndinni eða hvað
annað sem hugurinn girnist. Leiguflugið
til Toronto og þaðan yfir til Winnipeg er
einstaklega ódýr byrjun á góðri ferð til
Vesturheims.
Kína
18. ágúst -11. september.
Ævintýraferðin í ár er til Kína í fylgd
þaulkunnugs íslensks fararstjóra. Ferðin
hefstmeð 1 næturdvöl í London en síðan
er flogið til Peking og ekið þaðan vítt og
breitt um landið, alla leið suður til Hong
Kong. Hér verður hver dagur nýtt og
framandi ævintýri sem aldrei gleymist.
Bændaferð
16. - 28. júní
Stórskemmtileg bændaferð til Skotlands.
Ekið er víða um landið, gist ( frægum
borgum og fallegum bæjum, víðfrægir
ferðamannastaðir heimsóttir og jafnvel
kíkt á Loch Ness skrímslið! Frægir og
athyglisverðir búgarðar sóttir heim og
ótal margt fleira gert sem jafnt heillar
hinn almenna ferðamann og er stórfróð-
legt fyrir allt landbúnaðarfólk.
Rútuferðir
Við minnum í lokin á hinar sívinsælu
rútuferðir um mið-Evrópu, 8-landa sýn
6-landa sýn, Rínarlönd og Jersey/
Frakkland. Nú seljum við síðustu sæti
í hverri rútu!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899