Þjóðviljinn - 21.05.1983, Page 27
Helgin 21. - 22. maf 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Ibúa-
samtökin
sigruðu
30 km hámarks
hraði samþykktur
í hluta Vesturbæjar
Ég óska íbúum og íbúasam-
tökum Vesturbæjar til ham-
ingju með þennan sigur mann-
fólksins yfir blikkbeljunni,
sagði Guðrún Ágústsdóttir á
fundi borgarstjórnar sl.
fimmtudag, er lögð var fram
samþykkt umferðarnefndar
um 30 km hámarkshraða í
hluta Vesturbæjar (Hofsval-
lagata og Túngata undan-
skildar).
Guðrún Ágústsdóttir sagði
að hér hefði unnist mikill
sigur. Slíkar tillögur hefðu oft
komið til afgreiðslu áður í um-
ferðarnefnd, en þeim hefði
alltaf verið slátrað. Vonandi
væri hér um hugarfarsbreyt-
ingu að ræða, þarsem sömu
menn og nú samþykktu þessa
tillögu um hámarkshraða
hefðu áður verið andvígir slík-
um hugmyndum. Öryggi
gangandi fólks hefði með
þessu verið metið meira en
einkabíllinn. ' Vakti hún at-
hygli á því, að hingað til hefðu
konur haft forgöngu um þetta
mál og virtust reiðubúnari til
stærri átaka heldur en karlar.
Davíð Oddsson borgarstjóri
Sjálfstæðisflokksins mótmælti
því að væri einhver grundvall-
armunur á afstöðu karla og
kvenna í þessu máli. Hann
sagðist einnig vera almennt
andvígur svona reglum, af því
að það væri ekki hægt að
framfylgja þeim. Hann teldi
ekki líklegt að þessi regla yrði
haldin í Vesturbænum. Lög-
gæslumenn hefðu tjáð sér að
mjög erfitt væri að halda uppi
virku eftirliti með þessu í
íbúðahverfum. Hér væri hins
vegar bara um tilraun að
ræða, sem hann væri hræddur
um að hefði ekki verulega
breytingu í för með sér.
En hvað sem efasemdum
borgarstjóra um málið líður,
var tillagan samþykkt rneð öll-
um atkvæðum borgarfulltrúa.
Því er hámarkshraði vestast í
Vesturbænum nú orðinn 30
km í stað 50 km áður. -
Borgarstjórn_______
Engarsjö
þúsund
krónur
Tillaga Sigurjóns Péturs-
sonar borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins um að veita
Gránufélaginu (leikfélagið)
sjö þúsund króna styrk var
felld með hjásetu allra borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
í borgarstjórn sl. fimmtudag.
- Það verður að halda sig við
prinsippið sagði borgarstjór-
inn, og kvað það ekki venju
að greiða kostnað af bruna-
vörslu einsog hér væri um að
ræða. - óg
Togarinn Haukur GK 25 frá Sandgerði steytir á skerjum fyrir utan hafnargarðinn í Sandgerðishöfn.
Togarinn Haukur GK 25
Strandaði rétt utanvið
höfnina í Sandgerði
Togarinn Haukur GK 25 frá
Sandgerði sem gerður er út af Jóni
Erlingssyni hf. strandaði um ki. 14
í gær.
Togarinn var á leið til veiða út úr
höfninni þegar stýrisútbúnaður bil-
aði meðiþeim afleiðingum að hann
bar af leið, 50 metra út fyrir renn-
una. Munaði minnst að hann sigldi
upp í fjörur, en hann var í stefnu á
fiskmjölsverksmiðju. Skipstjóran-
um tókst að forðast það og
stöðvaðist togarinn um 200 metra
frá hafnargarðinum í Sandgerði.
Haukur GK er einn þriggja togara
sem gerðir eru út frá Sandgerði.
Hann er jafnframt eini togari
eigandans, Jóns Erlingssonar sem
jafnframt rekur fiskverkunarhús.
Flóð var þegar togarinn strand-
aði en ekki tókst að ná honum út og
um kl. 19 í gærkvöldi var fjara í
hámarki. Meiningin var að reyna
að ná togaranum út þegar flæddi að
aftur.
- hól.
Innkeyrsla
á lóð SS í
Laugamesi
samþykkt
Þessi tenging skapar mikla slysa-
hættu og því vara ég við samþykki
tillögu um þessa aðkomuleið, sagði
Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins um nýja
aðkomu að lóð Sláturfélags Suður-
lands í Laugarnesi. Tillaga um nýju
leiðina var til umfjöllunar í borgar-
stjórn Reykjavíkur sl. fimmtudag.
Sigurjón Pétursson sagði að
versti kostur hefði verið valinn við
þessa aðkomuleið, því tengingin
væri á miðri beygju og skapaði
mikla slysahættu í umferðinni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
sagði að koman á lóðina hefði alltaf
verið mikið vandamál, en nú hefði
verið haft samráð við íbúana og
væru þeir mjög ánægðir með þessa
breytingu. Kristján Benediktsson
sagði að illskásta leiðin hefði verið
fundin. Þarna hefði ævinlega verið
stríð útaf innkeyrslu, en þó skapaði
nýja tengingin vissa slysahættu.
Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi
Kvennaframboðs lýsti sig sammála
Kristjáni. Sigurjón Pétursson sagði
að fyrst borgarfulltrúar viður-
kenndu að þetta væri „illskásta“
leiðin og að hún skapaði slysa-
hættu, þá væri greinilegt að hún
væri ekki nógu góð.
Var tillagan um nýju tenginguna
samþýkkt nteð 15 atkvæðum gegn
4 atkvæðum Alþýðubandalagsfull-
trúa. - óg.
Stjórnarmyndunarviðræðurnar:
r
Afram í dag
Svavar Gestsson tekur á móti Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur,
alþingismanni Samtaka um kvennalista, þegar hún kom til
viðræðufundar um ríkisstjórnarmyndun klukkan 9:30 á föstudag í
húsakynnum Alþingis í Þórshamri.
Borgar-
stjórn
felldi
frávísunar-
tillögu
Þrátt fyrir að
borgarstjórn væri
búin að mœla
með friðun hússins
Tillaga Sigurjóns Péturssonar
borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins um frestun á afgreiðslu beiðni
eiganda húseignarinnar Aðalstræt-
is 10 um leyfi til breytinga á hús-
eigninni, var felld með atkvæðum
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á
fundi borgarstjórnar sl. fimmtu-
dag.
Fyrir fundi borgarstjórnar lá
beiðni frá Sigurjóni Valdimarssyni
eiganda húseignarinnar um að
breyta innréttingum hússins, en
einsog kunnugt er er þar fyrirhug-
aður leiktækjasalur. Áður hafði
beiðnin verið til umfjöllunar í
bygginganefnd borgarinnar, þar-
sem meirihlutinn mælti með sam-
þykki þessarar beiðni. Hins vegar
var minnihluti nefndarinnar and-
vígur breytingunum vegna þess að
borgarstjórn hafði áður samþykkt
á næstsíðasta fundi sínum að
Reykjavíkurborg hefði forgöngu
um friðun þessa húss. Benda þau
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og
Magnús Skúlason á í bókun sinni,
að rétt sé að leyfa ekki breytingar á
innréttingum þessa húss meðan
viðræður fara fram um friðun húss-
ins, „auk þess sem umbeðin starf-
semi hæfir lítt þessu húsi". Einsog
kunnugt er var þetta hús byggt á
vegum innréttinga Skúla Magnús-
sonar og er elsta hús í borginni.
Sigurjón Pétursson vísaði til
bókunar minnihluta bygginga-
nefndar í máli sínu á fundinum og
lagði til að afgreiðslu beiðninnar
yrði frestað. Sólrún Gísladóttir
borgarfulltrúi kvennaframboðsins
mælti fastlega með að frestunartil-
lagan yrði samþykkt. En allt kom
fyrir ekki; frestunartillagan var
felld með 12atkvæðum Sjálfstæðis-
flokksins gegn 9 atkvæðum allra
minnihlutaflokkanna. - óg
Kuldinn verstur
Framhald af 28. siöu.
heimilinu og meoai Kunningja
minna.
Guðmundur: Við kunnum svo-
lítið fyrir okkur í spænsku en svo
fór hún að liðkast í ensku og hana
notuðum við framundir jól en þá
fór hún að tala íslensku og síðan
hefur allt gengið eins og í sögu.
Hún hélt m.a.s. fyrirlestur í ís-
lensku um land sitt í vetur.
Sandra: Það var nú fyrir jól og
Beta, dóttir hjónanna, samdi hann
fyrir mig og ég skildi alls ekki allt
sem ég las.
Guðmundur: Það gekk nú samt
vel, þú ruglaðist ekki nema einu
sinni. Það var þegar þú kallaðir
höfuðborgina, Quito, þjóðgarð.
Nú er hlegið við borðið.
- Að lokum, Sandra. Ætlar þú
að læra rafmagnsverkfræði í
heimalandi þínu?
- Já, líklega til að byrja með en
mig langar þó að fara til Bandaríkj-
anna að læra. Háskólinn í Quito er
ágætur en margir stúdentanna eru
mest í pólitík og hugsa lítið um
námið. Það er því svolítið erfitt að
einbeita sér að náminu þar.
Sandra segir okkur að lokum að
Quito sé mjög forn borg og hafi
verið önnur af tveimur aðalborgum
í hinu forna Inkaríki og sjálf hafi
hún blöndu af spænsku blóði og
indiánablóði í sínum æðum.
Áður en við kveðjum er okkur
boðið í snarl með fjölskyldunni og
við tökum eftir að Sandra hámar í
sig hangikjötið. Hún er því greini-
lega orðinn heilmikill íslendingur.
- GFr