Þjóðviljinn - 22.10.1983, Page 10

Þjóðviljinn - 22.10.1983, Page 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 22.-23. ' <•* . , t f október 1983 surmudagspistill Það Indland sem breytist og það sem breytist ekki Árni Bergmann skrifar Sigurður A. Magnússon: Við elda Indlands. Ferðasaga. Mál og menning. Reykjavík 1983. Ég skal játa það að það var með tor- tryggni nokkurri að ég tók mér í hönd nýja útgáfu á tuttugu ára gamalli ferðasögu Sigurðar A. Magnússonar frá Indlandi. Hlýtur slík bók ekki a vera orðin gjörsam- lega úrelt? Höfundur hefur velt því sama fyrir sér, en hann kemst að þeirri niður- stöðu í formála, að svo sé ékki. Og líklega hefur hann næstum því rétt fyrir sér. Það er oft vikið að hróplegum andstæðum örbirgð- ar og ríkidæmis í þeirri bók, og við vitum að ekki hefur úr þeim dregið á Indlandi. Morg- unkyrrð, kvöldsól og pílagrímar við Gang- esfljót eru sjálfsagt enn á sínum stað. Að maður ekki tali um musterin öll, sem heiðra þrjú hundruð miljónir guða með furðulegri list. Meira að segja sá þessi lesandi hér um daginn myndafrásögn í Stern sem segir ná- kvæmlega sömu sögu af ömurlegu vændis- hverfi í Bombay og Sigurður í þessari bók. Ýmiskonar ferðasögur Ferðasagan er nú fyrirferðarminni á bókamarkaði en var um skeið. Efni hennar er að mestu leyti flutt í sjónvarpið, og kann sú staðreynd að reynast mestur fjötur um fót þessari bók. Ekki þar fyrir - það er alltaf ómaksins vert að skoða hvernig landar manns upplifa hinar ýmsu álfur heimsins, og víst er Indlandsskagi ein þeirra. Menn skrifa ferðasögur af ýmsum ástæð- um. Eiríkur frá Brúnum vegna þess að hann er saklaus maður með hæfileikann til að undrast óskaddaðan. Aðrir vegna þess að þeir voru fyrstir sinna landa á vettvang — eða gátu kynnst miklu fleiri hlutum en aðrir. Til eru ferðasögur sem tilefni sjálfs- könnunar. Eða þær sem reyna að miðla skipulegum fróðleik með aðferð sem er líf- legri en yfirlitsrit um landafræði og sögu. Eitthvað af þessu öllu er í bók Sigurðar - eins þótt hann geti að sjálfsögðu ekki gert sér upp sakleysi Eiríks frá Brúnum, né held- ur sé hann beinlínis í sjálfskönnun. Undur Indlands eru honum mjög hugstæð eins og fram kemur í lýsingum á helgihaldi og must- erum. Afstöðu tekur hann sem er í stórum dráttum fremur viðfelldin: eðlileg hneykslan á nábýli auðs og eymdar, á harð- stjórn og nýlendustjórn fyrri tíma, viðleitni til að forðast evrópska fordóma af ýmsu tagi. Líka þá „jákvæðu fordóma" að falla í stafi yfir vitringum, eins og hent hefur marga lífsþreytta Vesturlandamenn, sem kynlífssvall guðanna utan og innan á musterum. (Áður fvrr sögðu langferða- menn frá þessum styttum, eða þá hofhórum, með þessu undarlega evrópska blandi af sárri hneykslun og drýgindum yfir því að hafa augum litið þvílík býsn). En það hægja líka á bókinni ýmsar endurtekningar, ekki síst tengdar erfiðum járnbrautarferðum. Og það má líka spyrja um það, hvort hlutföll séu hin æskilegustu í þessari bók. Veit ég vel, að það er vondur siður að biðja um öðruvísi bók en þá sem maður hefur í höndum. En hér verður nú samt bryddað upp á slíkri tilætlunarsemi - vegna þess blátt áfram að bók Sigurðar er Ind- landsbókin íslenska og ólíklegt að aðrar séu á döfinni (nema þá sérbækur um hugleiðslu eða þessháttar). Og frá þessu sjónarmiði hafði mátt gefa Eldar Indlands út aftur með breytingum sem stefndu í tvær áttir. Ann- aðhvort að leggja höfuðáherslu á þann gilda þátt bókarinnar sem fjallar um sögu, trú og listræn afrek - og gera textann þá aðgengilegri með auknum myndakosti af því sem lýst er. Á hinn bóginn hefði mátt þjappa saman hinum sögulega og listræna þætti, og taka upp hinn pólitíska þráð. Indverska tilraunin Sá hluti er reyndar mjög fyrirferðarlítill hjá Sigurði. Hann lætur upp afstöðu sína til breskrar heimsveldisfortíðar og fer mjög hörðum orðum um Jinnah, sem klauf Pak- istan frá Indlandi. Hann segir líka nokkuð frá ágætum stofnunum sem Rabindranath Tagore og aðrir göfugir menn komu á fót til ménnta og mannúðar og eru sem vinjar einatt í örbirgðarhafi. En hann gefur sig lítið að þeirri merkilegu tilraun sem Ind- land hefur í raun og veru verið - eins þótt kostir og þverstæður og ósigrar þeirrar til- raunar væru allvel komnir í dagsljósið um það leyti sem efni var til bókarinnar safnað. Indland er eitt af nýfrjálsum ríkjum, þróun- arríkjum og eitt af þeim fáu, sem hvorki þróaðist undir fána kommúnistabyltingar né heldur lenti í öngstræti í vasa spilltra herstjóra. Þrátt fyrir sterkar einræðis- hneigðir frú Indiru Gandhi hefur tekist að halda þar einskonar plúralisma, koma í veg fyrir valdaeinokun. En það hefur heldur ekki tekist að leysa stærstu vandamál Ind- verja - ekki aðeins fólksfjölgunarvandann, heldur er stéttaskipting hindúismans við lýði sem fyrr, spilling gífurleg, og örbirgð og auðlegð á sínum stað sem fyrr segir. Og það er merkur kapítuli út af fyrir sig, að spyrja um arf Gandhis, einn þeirra meistara og landsfeðra, sem allir vitna til sem heilags manns og þjóðardýrlings - um leið og þeir sem enn reyna að taka kenningu hans alvar- legra eru álitnir skrýtnir. Þessar spurningar leita á hugann einmitt nú, þegar fróðleg kvikmynd um Mahatma Gandhi hefur eflt áhuga á Indlandi. Kannski hafa þau undar- legu viðskipti átt sér stað, að Vesturlönd afhentu Indverjum atómbombuna en þáðu í staðinn það „andóf án ofbeldis", tengt nafni Gandhis, sem hefur svo mjög sett svip sinn á friðarhreyfingar og mannréttinda- baráttu í okkar hluta heims. ÁB. Örbirgðin mun enn á sínum stað. Fakírar á þyrnirunnum sömuleiðis. hafa verið að narta í austurlenska visku meira af kappi en forsjá. Ein hlálegasta frásögnin í þessari bók fjallar einmitt um heimsókn til eins þeirra meistara sem munu því miður láta fátt annað af sér leiða en gera ringlaða mehn enn ringlaðari. Möguleikar Það eru margar lýsingar reyndar fjörlega skrifaðar í þessari bók - t.a.m. um hina skuggalegu dýrkun á Kalí, sem er verri part- urinn af konu Síva, um heilagt líf á Ganges- bökkum eða þá vangaveltur um óendanlegt Tröllaleikir með tilbrigðum Lcikbrúðuland: Tröllaleikir. Bryndís Gunnarsdóttir, Hallvcig Thorlacius og Heiga Steffensen sömdu þættina, gerðu brúður og stjórna þeim. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Þetta er líklega metnaðarmesta sýning Leikbrúðulands til þessa, enda er því nú ekki í kot vísað: sýnt er í Iðnó á sunnu- dögum. Á efnisskrá eru fjórir einþáttungar og skilja þeir eftir sig endurminningu um fjölbreytni, því þeir eru hver öðrum ólíkir. Samnefnari fyrir þessa sýningu er það listrænt öryggi og útsjónarsemi sem leikbrúðuskáldkonur hafa náð á sitt vald og ætla ekki að sleppa hendi af. Óg áhorfandi skal ekki draga í efa að Þórhallur leikstjóri eigi góðan hlut í hugvitssemi sýningarinnar og útfærslu hennar. Það er líka ástæða til að hafa góð orð um tónlist Atla Heimis, Jóns Ásgeirssonar og Áskels Mássonar sem fylgja þrem þáttanna. Búkolla er byggð á þjóðsögunni alkunnu. Margt er vel til fundið í þeim þætti, en það truflar hann, hve oft er skipt frá brúðum til skuggamynda, það verður lítið svigrúm til að láta tiltekna myndræna hugmynd njóta sín. Eggið heitir þáttur sem eru hugleiðing um gamalt spakmæli sem er víst bæði róm- verskt og indverskt - allt líf kemur úr eggi. Þar er ýmislegt sem er blátt áfram fallegt, en líklegt að „sagan“ sé full „afstrakt" fyrir þann áhorfendahóp sem Leikbrúðuland á helst von á. Best tekst til með tröllaleiki í fyrsta og síðasta þætti þar sem brugðið er á leik með stór form og smá með lifandi leikara og náttúrugerfinga. Þátturinn af „Risanum draumlynda'* naut sín betur en þegar hann var fluttur í „blöndu“ íslensku hljóm- sveitarinnar í fyrra, það er skemmtilega far- ið með ástardagdrauma risans, sem þurfa vitanlega að rekast á hans hvunndgsleika eins og gengur. Er þá ótalinn sá þáttur sem vafalaust verður þessari sýningu drýgstur til vinsælda, en hann er gerður eftir sögu Guðrúnar Helgadóttur um ástir trölla og Ástarsaga úr fjöllunum: tröllkonan eldar sér graut. álög sem á þeim hvíla og hvorutveggja haft til vinsamlegra tengsla náttúrunnar og þjóðtrúar. „Astarsaga úr tjöllunum“ komst vel til skila um leið og meginhugmynd hennar eignaðist magnað og stórskorið sjónlíf í fjalli ágætu sem var um leið elsku- legasta tröllskessa. ÁB.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.