Þjóðviljinn - 22.10.1983, Side 15

Þjóðviljinn - 22.10.1983, Side 15
Helgin 22.-23. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 mmI ■ mu 1 ^|| 1« Í 1 Wimm Magnús Torfi Ólafsson: þrátt fyrir árekstra ríkti góður andi f stjórninni. (Ljósm. eik). fundi Samtakanna. En svo leið að kosning- um og það var gert ráð fyrir því að Hannibal Valdimarsson yrði í efsta sæti í Reykjavík. En harður ágreiningur var um skipan næstu sæta. Þá kemur mjög innileg áskorun frá stuðningsmönnum Hannibals á Vestfjörð- um um að hann verði þar efstur á blaði. Hannibal hafði engar vöflur á því, sagði sæti sínu lausu í Reykjavík og heldur vestur. Nú var mjög liðið á framboðsfrest og uppstill- inganefnd kom þá til mín í öngum sínum og bað mig gefa skjót svör um það hvort ég vildi taka efsta sætinu hér í Reykjavík. Og ég afréð að reyna. Þannig gerist það á tveim mánuðum, að ég sem hafði alls ekki ætlað í framboð er orðinn þingmaður og ráðherra- efni. Og menntamálin komu í minn hlut. Ég verð að segja, að ég fylltist ekki neinum valdalosta þegar ég kom í ráðu- neytið hér á Hverfisgötunni. Ég taldi mig vegna fyrri starfa kannast vel við ýmis mál ráðuneytisins, starfsfólkið sumt reyndar líka, svo ég kveið ekki fyrir. En það kom fljótt í ljós, að í þessu stóra ráðuneyti er mjög mikilli ábyrgð saman þjappað á ráð- herrastólinn. Og það tók við mjög mikil vinna við að kynna mér niður í kjölinn mál sem ég hafði kannski nasasjón af, en þurfti að þekkja miklu betur. Ég lagði mesta áherslu á að þoka áleiðis grunnskólafrumvarpinu, sem hafði um margt verið vel undirbúið. Það var mikilþörf áaðkoma fastari skipan áskyldufræðsl- una - hættan var sú, að landsbyggðin dræg- ist aftur úr og mikill aðstöðumunur að því er menntun varðar yrði eftir búsetu. Ég tel að það hafi furðuvel tekist að afstýra þeirri hættu sem þarna var yfirvofandi. Það er gjarna horft á stöðuveitingar þeg- ar menn hugsa um ráðherravald. Eg hafði þann sið að leita sem best umsagna, ekki aðeins hjá þeim sem skylt var að gefa um- sagnir heldur og víðar - til að glöggva mig sem best á umsækjendum um störf. Starfs- lið í menningarstofnunum og skólakerfinu á mjög mikið undir ráðherra sínum - að hann ekki aðeins sigli fram hjá pólitískri hlutdrægni heldur og fram hjá klíkuskap og poti sem getur upp komið í stofnunum. Það er því mikilvægt að hann leggi sig fram um að rétt sé breytt við þá sem leita eftir störf- um. >ta þegar ég kom í ráðuneytið indi fyrir ákveðinn fjölda breskra togara innan 50 mflnanna. - Og þessu var nú ekki tekið með fögnuði. - Síður en svo. Alþýðubandalagið var mjög óánægt og það varð snörp senna um málið á alþingi. Alþýðubandalagsmenn og hluti Sjálfstæðisþingmanna voru svo á móti því að staðfesta samkomulagið. Afdrif herstöðvamálsins - Herstöðvamálið hefur þó orðið ykkur enn strembnara? - Það má segja það. í stjórnarsáttmálan- um var gefið fyrirheit um að stefnt væri að því að segja varnarsamningnum við Banda- ríkin upp og að herinn yrði á brott á kjör- tímabilinu, en ekki var gert ráð fyrir úrsögn úr Nató. Það kom fljótt í ljós að það voru töluvert skiptar skoðanir um það, hvernig þetta tvennt skyldi samræmt. Niðurstaðan varð sú, að þótt herinn yrði látinn fara, þá hefðu íslendingar ákveðnar skyldur gagnvart Nató meðan þeir væru í því. Ann- ars lá hermálið nokkuð í láginni, þótt það væri rætt í grundvallaratriðum, meðan landhelgisdeilan var í algleymingi. Það var ekki fyrr en vel var komið fram á 1973 og stjórnin búin að sitja í tvö ár, að farið var að ræða hermálið í smáatriðum. Og eftir strangar setur fulltrúa stjórnarflokkanna varð samkomulag um ákveðin atriði sem skyldi leggja fyrir Bandaríkjamenn. Það var orðið svo framorðið, að vegna ákvæða um uppsagnarfrest á varnarsamningi ofl. var sýnt að herinn gæti ekki farið á kjörtímabilinu, og var gert ráð fyrir því í þessum drögum að brottför hans drægist fram á það næsta.í öðrulagivorufyrrnefnd- ar skyldur við Nató afgreiddar á þann hátt, að íslendingar tækju við ýmsum störfum á Keflavíkurflugvelli og lendingarréttur her- flugvélahéldist innan vissra marka. En svo gerðist það, að um svipað leyti og Einar Ágústsson utanríkisráðherra fór til Washington með þessi drög að kynna þau þar komu alvarlegir brestir í stjórnina. Og því reyndi í raun og veru aldrei á það, hvað Bandaríkjamenn mundu setja fram sem gagntillögur. Og höfum það iíka í huga, að um þetta leyti höfðu VL-menn, ungir menn úr Sjálfstæðisflokknum, staðið fyrir mikilli undirskriftasöfnun gegn því að herinn færi, og hún hafði vissulegaáhrif bæði á almenn- ingsálit og stjórmálamenn. Á fallandi fæti En semsagt - þetta mál rann út í sandinn vegna þess að stjórnin var komin á fallandi fót, og staða hennar á alþingi veik. Vegna þess að snemma varð klofningur í þing- flokki Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Bjarni Guðnason sagði sig úr þing- flokknum vegna óánægju með efna- hagsmálaákvarðanir, hann fordæmdi það, að við hinir í SFV kusum gengislækkun heldur en millifærslukerfi til að rétt hlut sjávarútvegsins. Eftir þetta hafði stjórnin aðeins eins atkvæðis meirihluta í neðri deild alþingis og mátti ekki tæpar standa. Hagþróunin hafði verið íslendingum hagstæð 1971 og 1972 en þegar kemur fram á 1973 og einkum 1974 steðjuðu að ýmis- konar vandræði, ekki síst eftir kjara- samninga sem gerðir voru míg minnir í febrúar. Rétt eina ferðina enn var rætt um efnahagsráðstafanir og þá um að taka aftur hluta þess sem aðilar vinnumarkaðarins höfðu samið um, því annars væri kollvelta framundan. Þá kemur í ljós, að Björn Jóns- son, sem hafði tekið við ráðherradómi í stað Hannibals, var mjög andvígur þeim til- lögum sem Ólafur Jóhannesson lagði fram um efnahagsráðstafanir. Hannibal og Kar- vel Pálmason voru á sama máli, en ég taldi hinsvegar ekki hjá þeim ráðstöfunum kom- ist, sem bornar voru fram í lokatillögum Ólafs. Ólafur Jóhannesson bar þær svo fram sem stjórnarfrumvarp, en Björn Jónsson, sem þá var á sjúkrahúsi í veikindaleyfi, lýsti því yfir að hann stæði ekki að því. Ólafur svaraði með því að biðjast lausnar fyrir hann úr ráðherraembætti. Þetta verður svo til þess að þessir þrír félagar mínir láta af stuðningi við ríkisstjórnina, en ég sit í henni og styð hana áfram. Sameiningarmálið líka En þessi ágreiningur um efnahagsmál var ekki eina ástæðan fyrir því að Samtökin sundrast svona. Þar var líka uppi ágreining- ur um viðleitni til að þoka sameiningarmál- um vinstri manna áleiðis. Það fór ekki á milli mála að þeir Hannibal, Björn og Kar- vel lögðu á það megináherslu að ná sam- stöðu og þá sameiningu við Alþýðuflokk- inn. En ég, Bjarni Guðnason og þorri Samtakafólks, a.m.k. hérí Reykjavík, vild- um leita jöfnum hödnum samstarfs við Al- þýðubandalag og Alþýðuflokk og töldum það eitt í samræmi við stefnumótun Sam- takanna í upphafi. En á þessum vikum, þegar stjórn Ólafs Jóhannesspnar er að missa meirihlutann á þingi, voru uppi í stjórnarandstöðunni ýms- ar bollaleggingar og áþreifingar um stjórnarskipti, um að mynda nýjan þing- meirihluta. En það var ekki mögulegt og því var þing rofið og efnt til kosninga. Ráðherradómur - Finnst þér, eftir á að hyggja, að ráðherravald sé jafn háskalegt og margir vilja vera láta? - Ég hafði ekki sett mig í neinar andlegar stellingar til að gerast alþingismaður og því síður ráðherra. Þetta bar allt mjög snöggt að. Ég hafði lítið starfað í SFV vegna óá- nægju mcð afgreiðslu ýmissa mála á stofn- - Fannst þér að samráðherrar þínir reyndust þeir sömu menn og þú hafði ætlað fyrirfram? - Ég þekkti Magnús Kjartansson auðvit- að best frá fyrri tíð. Og ég kynntist í stjórn- inni alveg nýrri hlið á Magnúsi - hvað hann gekk rösklega fram í að tileinka sér þau vinnubrögð sem þurfti til að stjórna stórum ráðuneytum, maður málflutningsins, sem nýlega hafði setið á ritstjórastóli, gerðist skjótt maður framkvæmdanna. Annars má segja, að þrátt fyrir ýmsa á- rekstra þá ríkti góður andi í stjórninni. Menn stóðu ekki í málþófi eða þrefi á stjórnarfundum, þeir gengu beint til verks að afgreiða hlutina með sem minnstum málalengingum. Þegar upp er staðið - Samtök frjálslyndra og vinstri manna urðu svo fyrir skakkaföllum í kosningunum 1974? - Klofningur SFV og svo það, að ekkert hafði miðað í sameiningarmálum vinstri- sinna verður til þess, að við sem vildum halda áfram með Samtökin áttum undir högg að sækja. Hannibal og Björn gengu beint til liðs við Alþýðuflokkinn. Bjarni Guðnason var um tíma með eigin flokk, Frjálslynda flokkinn. í kosningunum 1974 komum við hvergi að manni nema á Vest- fjörðum. Karvel Pálmasyni tókst að halda í verulegan hluta af fylgi þeirra Hannibals þar - og ég varð svo uppbótarþingmaður af listanum í Reykjavík. - Og 1978 hverfa Samtökin af þingi. - Já ogþegar upperstaðið og Samtökin ekki lengur virkt afl á stjómmálasviðinu má segja, að þessir tveir flokkar, Alþýðuflokk- ur og Alþýðubandalag, sem ætlunin var að sameina með okkur - þeir hafi verið mjög samtaka um að mylja okkur sundur á milli sín. Og draga til sín þá molana, sem þeim þótti mestur slægur í.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.