Þjóðviljinn - 21.01.1984, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 21.01.1984, Blaðsíða 27
Helgin 21.-22. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27, „The Day After“ frumsýnd í Bíóhöllinni í gœr Vildi horfast í augu við þetta Linda og Einar. - mynd: Atli. Afleiðingamar eru hríkalegar - Mér fínnst þetta allt mjög sennilegt. Myndin skýrir vel fyrir manni hvernig þetta myndi ganga fyrir sig. Þetta er ekki óhugnan- legra en ég bjóst við en þetta er mjög skýrandi, sagði Hannes Ág- ústsson sem var viðstaddur frum- sýningu myndarinnar í gær. - Ég er ekki viss um að þessi mynd muni hafa mikil áhrif hér á landi, frekar þar sem hermennska er við lýði. íslendingar trúa aldrei að neitt geti gerst. Þessi mynd er geysilegur óhugnaður en ekki fjarri þvf sem ég hafði gert mér í hugar- lund. Myndir þú hvetja fólk tii að sjá þessa mynd? - Já, það myndi ég gera. Dóttir mín sagði við mig áður en ég fór af stað að ég ætti alls ekki að fara að sjá þessa mynd, en ég vil horfast í augu við þetta. Hér er um að ræða hluti sem geta gerst, því miður. Við skulum átta okkur á því að það hafa aidrei í sögunni verið smíðuð vopn sem ekki hafa verið notuð síðar meir, sagði Hannes. - Það má segja að þetta hafi ver- ið nokkuð svipað því sem maður átti von á, sögðu þau Einar Reynis- son og Linda Björk Lýðsdóttir að aflokinni frumsýningu myndar- innar. - Það ættu allir að sjá þessa mynd, alveg tvímælalaust. Hvað fannst ykkur mest sláandi við þessa mynd? - Afleiðingarnar eru hrikalegri en maður getur ímyndað sér. Sér- staklega það ástand sem skapast eftir á og það sem þeir verða að þola sem lifa fyrst af sprenginguna. Haldið þið að þetta eigi eftir að gerast? - Það kæmi manni alls ekki á ó- vart, sögðu þau Linda og Einar. A eftir gerast Skelfílegt „Þetta er mjög sennilegt, en þetta er líka alveg skelfi- legt“, voru almenn viðbrögð kvikmyndahúsagesta sem voru viðstaddir frumsýningu myndarinnar „The Day After“, í Bíóhöllinni í gærkvöld. Fáar kvikmyndir hafa hlotið eins mikla umræðu og þessi óhugnanlega mynd um eyðingarmátt og hörmungar kjarn- orkustyrjaldar sem ABC sjónvarpsstöðin bandaríska lét gera á nýliðnu ári. Kjarnorkuandstæðingar og félagar í frið- arhreyfingum um allan heim hafa hvatt almenning til að láta þessa mynd ekki fram hjá sér fara, því myndin lýsi síst um of þeirri ógn sem vitfirrtur vígbúnaður mun að endum kalla yfir jarðarbúa verði ekki snúið af braut kjarnorkukapphlaups risaveldanna. Myndin „The Day After“ greinir frá daglegu lífi íbúa í bænum Lawrence skammt utan við stórborgina Kansas City. Lífið gengur sinn vanagang en sjónvarp og útvarp flytur fréttir um vaxandi ófrið í Þýskalandi. Áður en varir breiðist ófriður út um alla Evrópu milli hernaðarbandalaganna og kjarnorkusprengjum er beitt. í Kansas City og nágrenni grípur um sig skelfing þegar íbúar þar uppgötva að borgin er eitt fyrsta skotmark óvinarins. Kjarnaflaugar eru grafnar í skotbyrgjum allt í kringum borgina. Þegar búið er að skjóta þeim á loft veit almenningur að stundin sem enginn vildi trúa á, nálgast óðum. Fyrst er það ringulreiðin, þá þögnin, þrýsti- bylgjan, hitinn, eyðileggingin, dauðinn og geislarykið. En þá er ekki nema hálf sagan sögð. Hvað tekur við daginn eftir??? Hér á eftir er lýst viðbrögðum nokkurra þeirra sem voru viðstaddir frumsýningu myndarinnar í gær. ~lg- - Mér fannst þctta spennandi en um leið hræðilegt. Ég átti von á þessu eitthvað líku því sem var, sagði Páll Pálsson að lokinni sýn- ingu myndarinnar. - Ég er alveg viss um að þetta eigi eftir að gerast. Alveg tvímæla- laust, sagði Páll Pálsson. - Sennilegt Sprengjan er fallinn og eyðileggingin er nær algjör. Hvað býður þeirra sem lifa fyrsta daginn af?? Dr. Jakob Jónsson frá Hrauni, Þóra Einarsdóttir kona hans og Jórunn Rothenberg dótturdóttir þeirra á sýningu sem opnuð var í gær í Þjóðleikhúsinu í tilefni af áttræðisafmæli dr. Jakobs. Á sýningunni eru ljósmyndir úr ýmsum uppfærslum á leikritum dr. Jakobs og leikritum eftir börn hans, Svövu og Jökul. Þar eru einnig gamlar leikskrár og ýmis handrit að leikritum dr. Jakobs. Verk eftir þau öll þrjú eru nú á fjölum Reykjavikurleikhúsanna. Ljósm.: eik. - Ig- Páll Pálsson. — Mynd: Atli.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.