Þjóðviljinn - 23.09.1988, Síða 8
SMART-SKOT
Vinstri og hægri
A undanförnum misserum hefur hver
étiö þaö eftir öörum í fjölmiölum og á öör-
um vettvangi, aö nú væri svo komið aö
enginn munur fyndist lengur á vinstri og
hægri í pólitíkinni. Margt ýtti undir slík viö-
horf. Það var komin nokkur samstaöa um
lágmarksvelferöarríki á íslandi sem ekki
var mjög deilt um nema þegar æstustu
nýfrjálshyggjumenn slepptu af sér taumi.
Allir lokkar höfðu staðið í málamiðlunum í
sínum pólitíska praxís í þeim mæli aö það
hlaut að draga úr þeim greinarmun sem
menn á þeim gerðu. Fjölmiölabyltingin
negldi stjórnmálaatburði meira upp við
einstaka flokksforingja en flokka, sem enn
dró úr áhuga á því aö menn veltu fyrir sér
pólitískum línum. Ýmsir flokkar tóku mjög
virkan þátt í þeim leik aö lýsa vinstrið og
hægriö ómark - af mismunandi ástæöum
reyndar. Sjálfstæðisflokkurinn hélt þessu
allmikið á lofti vegna þess að hans metn-
aður er sá, að innbyrða öll mál, gera sig að
„vettvangi málamiðlana í íslensku samfé-
lagi“ og haga sér eins og aðrir flokkar,
aðrir straumar, séu ómerkingar. Kvenna-
listinn talaði með svipuðum hætti vegna
þess að þar varð sú kenning ofan á, að
allar andstæður í samfélaginu væru
ómerkilegar nema þær sem tengjast and-
stæðum milli kvenþjóðar og karlpenings.
En nú ber svo við, að nýleg stjórnarslit
setja aftur efst á dagskrá spurningar um
vinstri og hægri. Eða eins og í ævintýrinu
segir: eigi er mærin dauð heldur sefur hún.
Eða svaf. Kvennalistinn lendir í verulegri
tilvistarkreppu, þegar hann reynir í stjórn-
armyndunarviðræðum að halda því til
streitu að munur sé ekki á vinstri og hægri-
flokkum gerandi. Þar af sprettur hugmynd-
in um þjóðstjórn, sem enginn festi minnstu
trú á. Enn athyglisverðara er þó það, sem
er að gerast í Sjálfstæðisflokknum. Eftir að
Sjálfstæðismenn hafa lengi látið digur-
barkalega og sagt sem svo að sósíalism-
inn væri dauður, vinstrimenn ráðlausir og
magnþrota, og allt á bestu leið til hins far-
sæla heims sigursælla markaðslögmála,
er annað hljóð komið í Valhallarstrokkinn.
Formaður Sjálfstæðisflokksins talar eins
og hann sé sleginn nokkrum ótta. Hann
hvetur menn til að brýna branda sína og
ráðast gegn nýrri vinstri stefnu, sem hon-
um finnst að sé að rísa. (Guð láti gott á
vita). Og hann er bæði sár og reiður yfir því
að miðjuflokkarnir sem hann sat með í
stjórn hafa sýnt þá dæmafáu ósvífni, að
vilja „ýta Sjálfstæðisflokknum til hliðar“ í
íslenskum stjórnmálum. Hann þóttist vera
búinn að búa svo um hnútana að annað
eins þyrði enginn maður að láta sér detta í
hug.
Vitanlega er alltof snemmt að spá
nokkru um það hvort einhver vinstrisveifla
sé í aðsigi í íslensku þjóðfélagi. En margt
bendir til þess að það séu að skapast hag-
stæðari skilyrði fyrir slíka þróun en við höf-
um þekkt um skeið. Skipbrot ríkisstjórnar
Þorsteins Pálssonarvar með ýmsum hætti
skipbrot þeirra hægrihugmýnda, að frjálst
spil markaðsaflanna mundi lækna mein-
semdir íslensks efnahagslífs, meðan rík-
inu og afskiptum þess væri haldið í lág-
marki. Hvað sem segja má um þau ják-
væðu áhrif sem agi markaðsafla hefur, þá
hefur það fljótt komið í Ijós, að smæð hins
íslenska markaðar, þarfir hinna dreifðu
byggða og svo framhaldslíf íslenskrar
menningar - allir þessir þættir heimta
miklu meiri og virkari íhlutun fé-
lagshyggjunnar, vinstrimennskunnar, en
hinir hreinræktuðu markaðshyggjumenn
Sjálfstæðisflokksins geta sætt sig við. Það
er einmitt þetta sem nú kemur upp með
auknum krafti og gefur vinstriöflum aukna
möguleika á að láta til sín heyra.
1Mgarblað
Síðumúla 6 • 108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, Óttar Proppó.
Frótta8tjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaöamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pótursson,
HjörieifurSveinbjömsson, KristóferSvavarsson, Magnfríður
Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, LiljaGunnarsdóttir, ÓlafurGíslason,
Páll Hannesson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Sævar Guðbjörnsson, Þor-
finnurómarsson (íþr.).
Handrlta- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Firlrisdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Jim Smart.
Útlttsteiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ.Pétursson
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrlfstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýslngastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Simavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu- og afgrelðslustjórl: Björn Ingi Rafnsson.
Afgrelðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innhelmtumenn: Katrín Bárðardóttir, ólafurÐjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, rltstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprenthf.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ