Þjóðviljinn - 23.09.1988, Side 16
Ekki man ég nú lengur ná-
kvæmlega hvenær ég sá fyrst get-
ið um Ríkarð Jónsson myndlist-
armeistara. En ég var þá enn
barn að aldri. Ég var að fletta
tímariti, mig minnir að það hafi
verið Iðunn hans Árna Hall-
grímssonar eða kannski Eimreið-
in, - ekki til þess að lesa, heldur
til að skoða myndir, sem í ritinu
voru. Og viti menn. Þarna voru
þá myndir af nokkrum verkum
Ríkarðs Jónssonar. Það voru
myndir af fóiki, dýrum, bæjum,
amboðum og öðrum búshlutum.
Og allt var þetta svo lifandi og
eðlilegt að mér fannst þar vera
veruleikinn sjálfur en ekki bara
myndir af honum. Ég varlengi að
skoða þessar myndir. Auðvitað
bar ég ekkert skynbragð á þá list,
sem ég hafði þarna fyrir augunum
en ég hreifst af henni. Og sá, sem
hrífur barnshugann, með hvaða
hætti sem það gerist og hvaða
atvik sem til þess liggja er lista-
maður.
Ekki hvarflaði það að mér á
þessari stundu, að ég ætti eftir að
kynnast höfundi þessara verka.
Svo fór þó og þá kom mér það
ósjaldan í hug, að e.t.v. væri lista-
maðurinn sjálfur mesta listaverk-
ið.
Ég eignaðist marga góða félaga
í Héraðsskólanum á Laugarvatni
á sínum tíma. Meðal þeirra voru
nokkrir Reykvíkingar. Þá sjaldan
það bar við að ég kom til Reykja-
víkur næstu árin eftir Laugar-
vatnsdvölina leitaðist ég við að
hafa samband við þá. Einn þess-
ara skólafélaga minna var Björg,
dóttir Ríkarðs Jónssonar. Góð-
viðriskvöld eitt var ég á gangi yfir
Tjarnarbrúna. Mæti ég þá ekki
Björgu. Og er ekki að orðlengja
Kristslíkneski í Bessastaðakirkju, skorið í eik.
lendingsins og arfleiddi Ríkarð
síðar að öllum sínum tréskurðar-
áhöldum. Þetta atvik lýsir Rík-
arði Jónssyni ákaflega vel og
sýnir glöggt það hugarfar sem
hann bar jafnan til þeirra sem
minna máttu sín. Kom það raun-
ar fram í dagfari hans öllu og sam-
skiptum við aðra. Viðhorf hans
til mannfélagsmála mótaðist af
því „að vernda æ hinn lægri
garð“.
Árið 1914 kvæntist Ríkarður
Maríu Ólafsdóttur frá Dallandi í
Húsavík eystra, mikilli myndar-
og mannkostakonu. Þá voru þau í
Kaupmannahöfn en fluttu heim
sama ár. Stóð heimili þeirra í
Reykjavík upp frá því nema árin
1920-1923 er þau dvöldust eystra.
Börn þeirra hjóna voru fjögur,
þrjár dætur. og einn sonur, Már,
sem þau misstu ungan. Var hann
þá orðinn arkitekt, einstakur
ljúflingur og efnismaður á alla
grein. Árið 19.29 keyptu þau hjón
húsið Grundárstíg 15 af Helga
Valtýssyni, og þar var heimili
þeirra upp frá því.
Ríkarður Jónsson var, eins og
áður getur, gæddur ákaflega fjöl-
þættum gáfum. Hann gat haslað
sér völl á ýmsum sviðum og hefði
allsstaðar komist í fremstu röð.
Hann gat orðið félagsmálaleið-
togi. Hann var ágætlega skáld-
mæltur og málhagur mjög. Hann
bjó yfir miklum söng- og tónlist-
arhæfileikum. Hann hafði rödd
úr hvers manns barka og hefði
getað orðið afbragðs leikari.
Hann hafði fágæta frásagnarhæfi-
leika og var hafsjór af hverskonar
sögum og sögnum.
Sú hætta er ávallt búin ungum
mönnum með fjölþætta hæfileika
að þeir eigi erfitt með að velja sér
Ríkarður Jónsson - aldarminning
einaði það með sjaldgæfum hætti
að vera bæði þjóðleg og alþjóð-
leg.
Afköst Ríkarðs Jónssonar
voru með ólíkindum, enda mátti
segja að á langri starfsævi félli
honum aldrei verk úr hendi. Og
þó var eins og hann hefði alltaf
tíma til alls. Gestagangur var
jafnan mikill á Grundarstígnum
og húsráðendur kunnu öllum bet-
ur að taka á móti gestum og
skemmta þeim. Þarna komu sam-
an ýmsir andans menn, lista-
menn, furðufuglar og umkomu-
ieysingjar. Og allir voru jafn vel-
komnir. Manngreinarálit þekkt-
ist ekki á þessum bæ.
Ríkarður Jónsson skrifaði
fjölda blaðagreina enda ritfær í
besta lagi. Stundum tók hann sig
til og orti heilar drápur og lausa-
vísur lágu honum létt á tungu.
Eitt sinn á góðri stundu varpaði
hann þessari vísu að vini sínum,
Þórbergi Þórðarsyni:
Furðumaður fágœtur,
friðar aldrei baðst né vœgðar.
Undraþundur ágœtur,
Ihaldinu lítt til þœgðar.
Sigvaldi Kaldalóns tónskáld og
Ríkarður voru aldavinir. Er Sig-
valdi andaðist 28. júlí 1946, mælti
Ríkarður svo eftir hann:
Vinirnir hverfa einn og einn
óðfluga leið til grafar.
Fellur úr bergi steinn og steinn,
styrkur er dauðans mistilteinn,
stend ég að lokum eftir einn
við endastöð hinstu nafar.
Ríkarður tók ekki opinber-
lega mikinn þátt í þjóðmálabar-
áttu samtíðar sinnar en fylgdist
Sjálfsmynd af Ríkarði Jónssyni ung-
um.
horfi gömlu ungmennafélag-
anna, se'm höfðu að kjörorði „Is-
landi allt“. Þessvegna var hann
róttækur í skoðunum og alla
stund ákveðinn andstæðingur er-
lendrar hersetu. Því varð honum
eitt sinn að orði:
Enn er þjökuð íslands byggð
alheimskunnar viðurstyggð.
Mín er von að viskuhyggð
verndi frónska þjóðardyggð.
Listaverk hans og ævistarf allt
var lofsöngur til þessa lands og
þessarar þjóðar.
Húsið Grundarstígur 15 lætur
ekki mikið yfir sér. Engu að síður
á það sér sína merku sögu. Þar
bjó Jón Trausti rithöfundur, síð-
an Helgi Valtýsson rithöfundur
og félagsmálafrömuður og svo
listamaðurinn Ríkarður Jóns-
son flest sín athafnaár. Þar mót-
uðust í huga hans og höndum
flest þau listaverk sem hann lét
eftir sig. Borgarstjórn Reykja-
víkur mun á sínum tíma hafa sam-
þykkt að leita eftir kaupum á húsi
það að innan stundar sat ég
heima í stofu í húsi við Grundar-
stíginn hjá listamanninum, sent
gerði verkin sem myndirnar í
tímaritinu voru af, Ríkarði
Jónssyni. Þannig hófust kynni
okkar Ríkarðs Jónssonar. Þau
átti ég að þakka henni Björgu og
veri hún blessuð fyrir. Og þessi
kynni áttu eftir að verða býsna
mikil og þó umfram allt ákaflega
skemmtileg og góð.
Ríkarður Jónsson Var
Austfirðingur að ætt og uppruna,
fæddur að Tungu í Fáskrúðsfirði
20. sept 1888, og hefði því orðið
100 ára nú um þessar mundir.
Faðir hans var Jón Þórarinsson
bóndi á Núpi á Berufjarðar-
strönd, Ríkharðssonar Long,
enskrar ættar. Móðir Ríkarðs
var Ólöf Finnsdóttir Guðmunds-
sonar bónda í Tungu í Fáskrúðs-
firði.
Ættmenn Ríkarðs voru hag-
leiksmenn miklir, gæddir listræn-
um hæfileikum og fjölþættum
gáfum. Átti hann því ekki langt
að sækja listhneigð sína, enda
varð hennar snemma vart í fari
hans. Sautján ára gamall fór hann
til Reykjavíkur, með aðstoð
góðra manna austur þar, sem
töldu sig sjá hvað í drengnum
byggi, og hóf tréskurðarnám hjá
sýslunga sínum, Stefáni
Éiríkssyni myndskera. Þremur
árum siðar lauk hann prófi í
myndskurði fyrstur íslendinga. í
sveinsbréfinu er komist svo að
orði um prófsmíðina, „Spegilinn
hans Ríkarðs", að hún sé „að-
dáanlega af hendi leyst“.
Miklum áfanga var náð en
engu lokamarki. Tvítugur að
aldri hvarf Ríkarður til
Kaupmannahafnar til frekara
náms í list sinm. Fararefnin voru
einar 300 kr. Fljótlega komst
hann í kynni við Einar Jónsson
myndhöggvara, sem kenndi hon-
um endurgjaldslaust undirstöðu-
atriði myndhöggvaralistarinnar.
Síðan lá leiðin í Listaháskólann
þar sem hann stundaði nám í hálft
sjötta ár. Nám sitt varð Ríkarð-
ur sjálfur að kosta nema hvað Al-
þingi veitti honum eitt sinn 300
kr. námsstyrk. Hlaut hann því að
vinna hörðum höndum með nám-
inu. Var m.a. verkstjóri á tré-
skurðarstofu, teiknaði skraut á
búninga fyrir Konunglega
leikhúsið, svo að eitthvað sé
nefnt.
Meðal fjölmargra sem Rík-
arður kynntist á námsárum sín-
um í Kaupmannahöfn var mynd-
skurðarmaður, Charles nokkur
Ibsen að nafni. Hann var mál-
haltur og hafði auk þess gallaða
sjón. Þessa fötlun notaði vinnu-
veitandinn sem afsökun fyrir því
að greiða Ibsen lægra kaup en
öðrum. Ríkarður beitti sér fyrir
því að úr þessu ranglæti væri bætt
og fékk því framgengt. Ibsen
gleymdi ekki þessum greiða ís-
ævistarf. Þeir sjá vegi liggja til
allra átta. En Ríkarði tókst ung-
um að velja sér veg. Ef til vill
hefur hin einstæða undraveröld
æskustöðvanna átt sinn þátt í því
vali. Að minnsta kosti er víst að
þangað átti hann eftir að sækja
marga fyrirmyndina að listaverk-
um sínum.
En hvert var svo ævistarf þessa
manns? Hver er sá arfur sem
hann færði þjóð sinni? Hann arf-
leiddi hana að þúsundum fágætra
listaverka og eru mörg þeirra
dreifð víða vegu. Segja má að
hann hafi jöfnum höndum stund-
að myndskurð, höggmyndalist og
teikningar.Hann skar út af mikilli
listfengi ótölulegan grúa allskon-
ar muna, smærri og stærri, sem
ýmist eru í eigu einstaklinga,
stofnana eða ríkisins. Hann mót-
aði brjóstmyndir af miklum fjöl-
da manna, hárra sem lágra. Þær
munu um langan aldur gera
hvorttveggja í senn geyma svip-
mót viðkomandi einstaklings og
það sem það speglar og vitna um
snilli listamannsins. Til hans var
gjarnan leitað um gerð minnis-
varða svo sem af Torfa í Ólafsdal
og konu hans og Stephani G.
Stephanssyni á Arnarstapa á
Vatnsskarði. Teikningar hans
eru fleiri en tölu verði á komið.
Hann kenndi fjölda manna
teikningu og tréskurð. Hann efn-
di til sýninga á verkurn sínum
bæði hér heima og erlendis, m.a.
austur í Rússlandi á vegum MÍR.
Ummæli gagnrýnenda voru yfir-
leitt á þá leið að „verkið lofaði
meistarann", enda fóru þar sam-
an hugkvæmni og handbragð.
Hann safnaði saman höfðaletri
og greindi og skrifaði um það
merkilega grein í fyrra bindi Iðn-
sögu íslands 1943. Hann skrifaði
dagbók og stundaði í því sam-
bandi orðasöfnun. List hans sam-
Úr vinnustofu Ríkarðs á Grundarstígnum. Að baki einhverjum óþekktum er sr. Árni Þórarinsson.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ.
þó vel með henni og hafði þar
sínar fastmótuðu skoðanir. Þeir
Jónas frá Hriflu og Ríkarður
voru miklir vinir. Sumarið 1916
fékk Jónas Ríkarð í fundaferð
með sér um Norður- og Austur-
land. „En ég er enginn ræðumað-
ur“, sagði Ríkarður við Jónas.
„Það gerir ekkert til,“ svaraði
Jónas, „ég tala, þú syngur og
stjórnar söngnum".
Þjóðmálaskoðanir Ríkarðs
Jónssonar voru mótaðar af við-
Ríkarðs við Grundarstíginn í
því skyni að koma upp safni af
verkum eftir listamanninn. Af
því hefur enn ekki orðið. Vel færi
á að borgaryfirvöld heiðruðu
minningu Ríkarðs Jónssonar
með því, að láta nú athafnir fylgja
orðum. Þá yrðu þarna í nábýli
þrír miklir listamenn: Ásgrímur
Jónsson, Einar frá Galtafelli og
Ríkarður-og Listasafn íslands í
kallfæri.
- mhg
Úr vinnustofu listamannsins: Sigurður Guðmundsson skólameistari, sr. Friðrik Friðriksson, Ben-
edikt S. Þórarinsson, Halldór Vilhjálmsson skólastjóri á Hvanneyri og Jörundur Brynjólfsson
alþingismaður. Að baki eru Torfi Bjarnason í Ólafsdal og kona hans.
JtóTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
UNGBARNADAGAR IMIKLAGARÐI
Litlu manneskjurnar þurfa sitt.
Við bjóðum vandaðar vörur á góðu verði.
ARNAMATUR
Beech Nut lítil 28.-
Beech Nut stór 39.-
Beech Nut barnamjöl 66.-
Milupa barnamjöl 69.-
Heinz lítil 24.-
Þurrmjólk SMA 177.-
Þurrmjólk NAN 500 gr. 189.-
Þurrmjólk MAMEX 500 gr. 176.-
IPW
B S
"W
EIKFONG
FYRIR HUG OG HOND.
Höfum allskyns leikföng við
hæfi 3-30 mánaða barna \
Kiddicraft þroskaleikföng, gott verð
Setubílar 1.995.-
RFINUETISVORUR
Allar vörur frá Johnson’s með 15% afslætti.
Pussycat ungbarnapelar og snuð
með 15% afslætti.
Plastbaðker verð frá 670.-
Plastkoppar verð frá 375.-
Ungbarnahandklæði á góðu verði.
ATNADUR
EITTHVAÐ MJÚKT OG ÞÆGILEGT
á litla kroppa.
Ungbarnaskór, gott verð.
Útigalli
Náttföt
Innigalli
Sokkabuxur
Vöggusett 80x100 cm.
Bleyjubuxur, margir litir
Ungbarnahúfur
Vagnpokar
995.-
595.-
1.195.-
195.-
695.-
95.-
95.-
1.645.-
IEYJUR
OG AFTUR BLEYJUR.
3-5 kg. 30 stk.
5-10 kg. 24 stk.
10-15 kg. 20 stk.
SÖLUSÝNING Á
BARNA VÖGNUM, KERRUM,
BURÐARRÚMUM OG
BÍLSTÓLUM FRÁ
DVERGASTEINI.
MIKLIGARÐUR FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
f’T'Pf.
FOSTUD.
LAUGARD.
9-19:30
9-16:00
/MIKLIG4RÐUR
MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ
GYLMIR/SÍA