Þjóðviljinn - 23.09.1988, Page 25
Margrét Örnólfsdóttir - myndina tók Jim Smart.
Vissuð þið að
ída í Kattholti
er í Sykurmolunum?
Ég held að það hafi farið fram
hjá mörgum að Sykurmolar
fengu sér nýjan fastan liðsmann í
vor... eða snemmsumars (ég veit
aldrei hvar þessi árstíðamörk
eru). Hinn nýi Sykurmoli spilaði
fyrst með hljómsveitinni opin-
berlega uppi á Umferðarmið-
stöðinni á rútudeginum í júní síð-
astliðnum. Síðan þá er Margrét
Örnólfsdóttir búin að spila á
hljómborð með hinum Molunum
á Klambratúni (á Nelson-Mand-
ela-hljómleikunum), í Skand-
inavíu, Mið-Evrópu og Banda-
ríkjunum. Dægurmálasíðan fékk
Margréti í smáspjall þegar hún
var rétt að jafna sig eftir Amer-
íkuferðina, en af því að íslend-
ingar hafa svo gaman af að vita
hverra manna fólk er skal þess
getið, áður en það hefst, að Mar-
grét er dóttir Helgu Jónsdóttur
leikkonu (systur Arnars) og Ör-
nólfs Árnasonar rithöfundar
(bróður Olgu Guðrúnar)...
- Hvernig kom það til að þú
gekkst í Sykurmolana?
- Það gerðist mjög snögg-
lega... þau vantaði hljómborðs-
Ieikara strax. Þau höfðu sam-
band við mig á föstudagseftirmið-
degi. Ég sagði þeim að ég þyrfti
að hugsa mig um, en fékk þó ekki
langan umhugsunarfrest; svarið
urðu þau að fá fyrir klukkan þrjú
daginn eftir, og ég byrjaði að æfa
með þeim strax þarna í júní.
- Hvernig stóð á að þau báðu
einmitt þig að slást í hópinn?
- Þau vantaði hljómborðs-
leikara þegar Einar Melax hætti,
og það var svo sem engin tilviljun
að þau skyldu hafa samband við
mig - ég er búin að þekkja þau í
mörg ár og við Björk vorum oft
búnar að tala um að spila ein-
hvern tímann saman. Þau þekktu
sem sagt bæði mig og mína spila-
mennsku.
D/tGUR-
MÁL
ANDREA
JÓNSDÓITIR
- Þú hefur eitthvað spilað í
öðrum hljómsveitum...?
- Já, ég hef gert dálítið af því
sfðustu fjögur ár 'eða svo... ég var
fyrst í hljómsveit sem aldrei hét
neitt... hún var sett saman vegna
beiðni Dóru í Gramminu fyrir
hljómleika sem voru í Safarí fyrir
4 árum... við spiluðum í anddyr-
inu. Ég var byrjuð að spila aftur
með þessari hljómsveit í nóvem-
ber síðast liðnum... þau kalla sig
nú Risaeðluna.
- Ertu eitthvað lærð í tónlist?
- Ég er búin að vera í píanó-
námi síðan ég var 7 ára (Margrét
er fædd 1967, 21. nóvember ná-
kvæmlega) og lauk 7. stigi í vor.
- Þú hefur aldrei ætlað þér að
fara út í klassíkina, verða ein-
leikari eða undirleikari...?
- Ég var ekki komin svo langt
að velja um það, ég var líka í
menntaskóla (MH) og varð að
skipta tímanum þarna á milli...
En mér hefur alltaf fundist gott
að spila annars konar músík með,
sem mótvægi, það er allt öðru vísi
vinna, en ég mun alltaf hafa
klassíkina fyrir mig og spila hana
alltaf reglulega. En í sambandi
við framtíðarstörf hef ég helst
hugsað um eitthvað í sambandi
við kvikmyndagerð... ég hef ekki
áhuga á að eyða allri ævinni í
popphljómsveit, en ég ætla að
njóta þess á meðan mér finnst
það gaman...
- Er Sykurmola-dæmið orðið
stærra í sniðum en þú hafðir gert
ráð fyrir?
- Ámeríkutúrinn gerði útslag-
ið - þá uppgötvaði maður hvernig
þetta er - og þetta ferðatöskulíf.
Þetta er mjög spennandi, en fæst-
ir gera sér grein fyrir þeirri vinnu
og álagi sem fylgir. Stundum er
mjög gaman, en pressan er rosa-
leg... og það er ekkert upplífg-
andi að sjá ekkert nema hótel og
tónleikastaði samfleytt í kannski
3 daga. Þessi ferð var líka próf-
steinn á hljómsveitina - það urðu
engar slæmar uppákomur okkar
á milli og útkoman er enn frekari
samheldni. En ég komst að því að
það er nauðsynlegt að vera út af
fyrir sig, finna sér svona klukku-
tíma á dag og láta sig þá hverfa úr
hópnum.
- Hvernig er að koma inn í
svona hóp - hefur þér aldrei fund-
ist þú utanveltu?
- Nei, eins og ég sagði þá þekki
ég þau vel... það sem ég hafði
mestar áhyggjur af var að ég
kæmist ekki inn í lögin þeirra
nógu fljótt. En ég hef fengið al-
veg frjálsar hendur með spila-
mennskuna. Og ég er líka vön
þeim vinnubrögðum sem tíðkast í
Sykurmolunum, að allir taki þátt
í að semja lög - Björk sér svo um
sína texta, og Einar sína... við
erum þegar með nokkur ný lög á
prógramminu og önnur í bígerð,
en við höfum líka knappan tíma
til að undirbúa næstu plötu.
- Það verður nú samt ekki
fyrsta platan sem þú kemur ná-
lægt... ekki má glcyma ídu...
hvað varstu gömui þá?
- Já, ég söng í hlutverki ídu
systur Emils í Kattholti á tveim
plötum - fyrst þegar ég var 9 ára
og svo tveim árum síðar... ég er
eiginlega búin að gleyma því... ég
hef ekki fundið neina kvöð hjá
mér til að syngja frekar opinber-
lega.
- Varðstu vör við að einhverjir
sérstakir hópar sæktu hljómleika
ykkar í Bandaríkjunum?
- Nei, þetta er alls konar fólk,
en þó í yngra kantinum - reyndar
engin börn... ég var nefnilega
ólögleg á flestum stöðunum þar
sem við komum fram, því að
aldurstakmarkið var21 árs... það
var bara á einstaka stað þar sem
ekkert aldurstakmark var.
- Hvernig iíkaði þér við banda-
ríska áheyrendur?
- Þeir eru þeir bestu sem ég hef
kynnst. Þeir taka mikinn þátt í
því sem hljómsveitin er að gera
og sýna viðbrögð... í Evrópu er
erfiðara að fá fólk til þess, en það
er mikils virði fyrir rnann að fá
viðbrögð við því sem maður
leggur sig allan fram um að koma
til skila.
- Finnst þér hljómsveitin hafa
breyst?
- Við erum örugglega orðin
betra tónleikaband - höfum spil-
að 4 til 5 konserta á viku í tvo
mánuði ... við erum bæði þéttari
og poppþéttari. Ég veit hins veg-
ar ekki hvernig við endum...
meira að segja ekki hvernig næsta
plata verður... nema hvað hún
verður ekki verri en sú fyrri...
... og þar með er búinn viðtals-
tíminn sem yfirrituð mætti í of-
análag of seint í... og yngsti Syk-
urmolinn verður að drífa sig heim
að passa litlu systkinin... Það er
svo næst af Sykurmolum að segja
að líða fer að því að þau haldi til
Bandaríkjanna öðru sinni til að
koma fram í einum þekktasta
sjónvarpsskemmtiþætti þar í
landi, Saturday Night Live... og
ekki er útlit fyrir að Margrét Örn-
ólfsdóttir komist í kvikmynda-
gerð í bráð.
Stund milli stríða Sykurmolanna í Ameríku: Bragi Ólafsson bassa-
leikari og fyrrum með-purrkur Einars, Þór Eldon gítarleikari, Margrét
örnólfsdóttirhljómborðsleikari, Einar Örn söngvari, Björk Guðmunds-
dóttir söngvari og Sigtryggur Baldursson trommuleikari... þrjú hin
síðastnefndu eru fyrrum Kuklarar og Sigtryggur þar á undan Þeysari...
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25