Þjóðviljinn - 28.10.1988, Page 2

Þjóðviljinn - 28.10.1988, Page 2
SKAÐI SKRIFAR Eg vil báknið burl I ROSA- GARÐINUM Éq Skaði, veit það vel og þakka sem vert væri að Hannes Hólm- steimí er á sínum stað í Háskólanum og allt það. Manni miðar svosem eitthvað áfram til frelsisins fagra lands en ógn finnst manm ferðin stundum ganga grátlega seint. ...... Gætum við ekki reynt að brjótast það beint? spurði skáldið og somu spurningu lagði ég fyrir vin minn og sjálfstæðisflokksbróður Guðjón, þegar við sátum saman á dögunum og ræddum um stóru málin eins og við eigum vanda til. Brjótast beint hvað? spurði Guðjón. Nú að kjarna málsins maður, sagði ég. Og hver er hann svosem? spurði Guðjón, sem hefur alltaf efast um qáfur mínar og skarpskyggni. . „ .., Hann er Báknið Burt, sagði ég. Ég er alltaf að heyra þetta hjá Þorsteini, Reagan, Möggu Thatcher og öðrum flokksbræðrum okkar að báknið eigi að fara burt. Nema hvað, sagði Guðjón .... Nema hvað það stendur enginn við þetta, sagði ég. Allt þetta lið ber sér á brjóst og þykist ætla að lækka skatta svo að hver maður megi kaupa það brennivín og þau hús sem honum sýnist fyrir sina peninga og skera niður þennan leti- og aumingjalífeyri allan sem kallast vel- ferðarkerfi. En svo gerist ekki neitt. Auðvitað ekki, sagði Guðjón. . Auðvitað ekki hvað, sagði ég. Hvurslags hundingjahattur er þetta eiginlega. Eiga menn ekki að meina það sem þeir segja? jú, sagði Guðjón. En veruleikinn segir að best sé að tala sem minnst um það Hvers vegna? spurði ég. . , . . . Vegna þess að kjósendur í lýðræðisþjóðfélagi hafa aðeins eina= bjargfasta sannfæringu. Hún er sú að það eigi að lækka skattana til þess að þeir geti keypt sér meira nammi og sumarbústaö. Um leið á að auka útgjöld ríkisins til að þeir þurfi ekki að hugsa sjálfir um leiðinlega og kalkaða foreldra sína afgamla eða passa þá frekjuhvolpa sem born eru nú til dags. Niðurstaðan er sú að ekkert er hægt að gera. Kerfið er Um hvað eiga menn þá að deila i pólitík? spurði ég áhyggjufullur. Bara eitthvað annað, sagði Guðjón. Það þýðir ekki að væla ut af þessu. Sjáðu bara þá Bush og Dukakis. Þeir gera það gott með því að rífast um það, hvor þeirra elskar konuna sína meira en hinn. Við sofum í sama rúmi, segir Dukakis. Hann meinar að ÞAÐ geri Bush ekki En þetta er svo lágkúrulegt, sagði ég. Hreint ekki, sagði Guðjón . Þetta er djúpsálarpólitík sem á ser rætur aftur í grárri forneskju. Bdcertje^a með það Skaði. í fornöld þurfti kóngurinn að sýna fram á að landið mundi undir hans farsælu stjórn verða frjósamt og gefa af sér góðan ávöxt, og það gat hann aðeins með því að sýna að hann væri til afreka vís í ástum. Annars var honum stútað. Þetta er alveg eins í forsetakosningunum hjá félaga Bush og þeim. Sá sem ekki lætur við kerlinguna sína eins og hann hafi hitt hana á skólaballi í gær, hann er heimaskítsmát. Þetta er bara svona, þetta er greypt inn í sjálfa formgerð þjóðarsálnanna. Guðjón minn, sagði ég dapur og áhyggjufullur. Losnum við þa aldrei við kerfið og báknið? Verðum við aldrei frjálsir menn undan þvi heiglanna helsi sem dregur okkur niður í andskotans sósíalismann eins og þyngdarlögmálið dregur drykkjurútinn oní ræsið? Ég veit það ekki, sagði Guðjón. Ég bind talsverðar vonir við hann Gorbatsjov. Hann Gorba? hváði ég. Hvað meinarðu? , Hann ekki bara segir báknið burt, hann er byrjaður á þvi að skera það niður við trog um þriðjung eða helming og syngur og trallar við þetta með uppbrettar ermar. Og þegar þessir kerfiskarlar eru að æmta og skræmta eins og þetta pakk gerir alltaf, þá bara danglar hann i þá og segir þeim að fara að bíta gras. .. Já en Guðjón, sagði ég, hann Gorbi er kommi, hann er ekki lyðræöis eða svoleiðis, hann er ekki okkar maður... Já þú meinar það, sagði Guðjón hugsi og klóraði sér i skallanum. Þu meinar það. Andskotans vesen.... sem var. PENINGANA EÐA LÍFIÐl EN ÞAR ÁÐUR RÍKTI FRELSIÐ... En í Queeenslandi eru þeir í fyrsta skipti í tæplega tvö hundr- uð ár að leyfa fólki að hafa að- gang að smokkum. Morgunblaðið JÁ OG LÁTIÐ HAF- SKIPSMENN í FRIÐI! Ef íslenska þjóöarbúið væri fyrirtæki sem rekið væri í réttar- farsríki, þá væri líklegast búið að fangelsa flesta aðalpaurana í efnahagsstjórnkerfinu fyrir óá- byrga og skaðlega stjórnun. Formaður efnahagsnefndar Borgaraflokkslns í Mbl. SÆLIR ERU HÓGVÆRIR.. Það lýsir í rauninni furðulegri einfeldni hjá þeim á Morgunblað- inu, ef þeim dettur yfir höfuð í hug að halda því fram að það sé merki um góðan lestur á blaði þeirra ef fólk telur almennt að skopmyndir og útvarpsdagskrá séu áhugaverðasta efni þess. Tímlnn HIN FERLEGU FJÖRBROT SKÁLDSKAPARINS. Frissa líkar lífið hér svífur vængjum þöndum Þegar hann stúlkur sér með brjóstin ber stendur hann ekki bara á höndum. Fréttlr. AÐ DREKKA EÐA EKKI.. Án gríns er hér allt gott að frétta þetta er heil sólarsamba. Hér er hægt í sig að skvetta og líka hægt að þamba. Fróttlr LÍSA í UNDRALANDI Með einhverri undarlegri lagni hefur okkur tekist að koma þvf svo fyrir að nauðsynjarnar eru orðnar að lúxus og lúxusinn að nauðsynjum. Það verður sjálf- sagt ekki langt þangað til við för- um að leggja okkur tollfrjáls hljómflutningstæki til munns og skreyta hýbýli okkar með mat- vælum. Hafnflrska fréttablaðið SPEKIN SEM BRÁST Betra er að sjást en þjást Umferðarráð. LOFIÐ ÞREYTTUM AÐ SOFA Nú hafa 20 fiskverkunarfyrir- tæki lokað á Suðurnesjum, níu skip hafa verið seld frá Grindavík og til stendur að selja tvo togara af Suðurnesjum og fá i staðinn einn óheppilegan. Því er spurn hvort ekki sé tími fyrir hina ýmsu ráðamenn að fara að rumska. Víkurfréttlr 2 9<PA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. októbw 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.