Þjóðviljinn - 28.10.1988, Qupperneq 14
nvekjandi
en spennandi
I morgunkaffi
með
aðstoðarmönnum
ráðherra;
Áljhildi
Ólafsdóttur, land-
búnaðarráðuneyti,
Guðrúnu
Agústsdóttur,
menntamála-
ráðuneyti og
Svanfríði
Jónasdóttur,
fjármálaráðuneyti
- Ég vildi að það væri sími
hérna svo ég gæti skotist í‘ann
svona við og við, sagði Guðrún
Ágústsdóttir, og starfssystur
hennar kinkuðu kolli til sam-
þykkis. - Nei annars, það er
ágætt að iosna frá símanum og
þessu ati smástund, bætti hún
við, og við tylltum okkur niður í
mjúka leðurstóla uppi á efstu
hæð í veitingahúsinu Óperu.
Blaðamanni Nýja Helgarblaðsins
hafði tekist það sem margir héidu
ómögulegt; að ná saman í spjall á
háannatíma þremur aðstoðar-
mönnum ráðherra Alþýðu-
bandalagsins, þeim Álfhildi Ól-
afsdóttur, aðstoðarmanni land-
búnaðarráðherra, Guðrúnu Ág-
ústsdóttur, aðstoðarmanni
menntamálaráðherra, og Svan-
fríði Jónasdóttur, aðstoðarmanni
fjármálaráðherra.
Þær viðurkenndu líka fljótt að
þetta væri ágætis tilbreyting og
vel til fundið að hittast yfir kaffi-
sopa og bera saman bækur sínar
eftir annasamar vikur í þremur
ráðuneytum.
Jóla-
hreingerningin
- Ég var að vinna að undirbún-
ingi að Norræna kvennaþinginu í
Osló sl. ár, og þá fannst mér ég
þurfa að gera ómögulega hluti
mögulega, nánast á hverjum
degi. Þetta kemur næstum í beinu
framhaldi af því. Mikill erill, hitta
fullt af fólki. Þetta er eins og tvær
jólahreingerningar hvor á eftir
annarri. Ég hafði hugsað mér að
taka mér hlé og hvíla mig, en fékk
síðan sólarhring til að gera upp
við mig hvort ég gæti tekið þessu
starfi, sagði Guðrún aðspurð um
hvernig það væri að ganga inn í
svo erilsamt og ábyrgðarmikið
starf með nánast engum fyrir-
vara.
- Ef ég lít til baka þá held ég að
allar mínar stærstu ákvarðanir í
lífinu hafi einmitt verið teknar á
svona örskömmum tíma, hvort
sem það var að skipta um vinnu,
fara út í pólitík eða ganga í hjóna-
band.
Svanfríður Jónasdóttir kemur
frá Dalvík, þar sem hún var í for-
svari fyrir Alþýðubandalagið í
bæjarstjórnarmeirihluta, forseti
bæjarstjórnar og kenndi jafn-
framt í grunnskólanum. - Þessi
ákvörðun að koma til starfa í fjár-
málaráðuneytinu hefur óneitan-
lega haft miklar breytingar í för
með sér fyrir mig og mína fjöl-
skyldu.
- Ég hef ekki verið feimin við
það hingað til að taka stórar á-
kvarðanir með stuttum fyrirvara,
en hingað til hefur það ekki haft
jafn miklar breytingar í för með
sér fyrir fjölskylduna og núna. Ég
var búin að vera mikið á ferða-
lögum hér fyrir sunnan, vegna
flokksins m.a., en þetta starf hef-
ur orðið til þess að ég er nú að
koma mér fyrir hér ásamt yngri
drengjunum mínum.
Álfhildur Ólafsdóttir hefur
starfað sem ráðunautur hjá sam-
tökum loðdýraframleiðenda í
Reykjavík en haft búsetu austur í
Vopnafirði þar sem hún rekur fé-
lagsbú ásamt fleirum.
- Ég hef verið meira og minna
með annan fótinn hér í Reykj avík
sfðustu árin, en þetta nýja starf
hefur orðið til þess að nú hef ég í
fyrsta sinn fengið mér fast her-
bergi hér í borginni, en ég verð
ennþá búsett fyrir austan. Þetta
kom mjög snögglega upp og hef-
ur vissulega sett allar áætlanir úr
skorðum; það var allt annað sem
ég ætlaði að gera í vetur.
Spennandi
- Þetta er ógnvekjandi og ofsa-
lega spennandi um leið, segir
Guðrún aðspurð um hvort ekki
þurfi töluverðan kjark til að fara
inn á nýjan starfsvettvang í æðstu
valdastofnunum landsins. - Þeg-
ar ég tek að mér verkefni á vegum
flokksins, þá veit ég að ég er ekki
ein. Við erum í sósíalískum flokki
þar sem við eigum mjög marga
góða vini sem eru alltaf tilbúnir
að koma hvenær sem er til að að-
stoða okkur og þannig held ég að
við sem erum í trúnaðarstöðum
fyrir þennan flokk höfum unnið
mjög mikið. Ekki ein, heldur í
hópi. Ég hef ekki fundið annað,
þann tíma sem ég hef verið við
þessi störf, en að allir séu tilbúnir
að leggja sitt af mörkum.
- Ég var satt að segja ekki að
velta fyrir mér fjárlagagati eða
ekki fjárlagagati þegar ég ákvað
að taka að mér þetta starf, segir
Svanfríður. - Mér fannst þetta
spennandi verkefni, og ég horfði
þá til þess að flokkurinn væri
kominn í ríkisstjórn og ég vildi
gjarnan, fyrst mér var gefinn
kostur á því, vera með eins og þar
stendur. Ég horfi satt að segja til
allt annarra verkefna en þess að
fylla upp í þetta fjárlagagat. Það
er auðvitað verkefni sem ríkis-
stjórnin stendur frammi fyrir
núna, en fyrir mér var þátttaka í
þessari ríkisstjórn háð ýmsu
öðru.
Álfhildur segist vera búin að
koma nálægt mörgum þeim mál-
um er snúa að landbúnaðarráðu-
neytinu í gegnum fyrri störf sín,
en það séu samt vissulega nokkur
viðbrigði að koma til starfa í
ráðuneytinu. - Mestu viðbrigðin
fyrir mig einmitt núna voru þau
að ég hef aðallega verið að sinna
einangruðum þætti landbúnaðar-
mála, loðdýraræktinni, en þarna
koma allt í einu öll hin málin upp
á borð hjá manni, mál sem maður
kannast að sjálfsögðu við, en hef-
ur kannski ekki verið beinlínis á
kafi í. Þar ber hæst fullvirðisrétt-
armál bænda og allt sem að þeim
snýr, vegna þess að tilvera flest-
allra bænda byggist á þessum
málum, bæði fyrir heild og ein-
staklinga. Það eru þessi mál sem
eru stærst og erfiðust viðfangs,
sýnist mér.
Ég þekki hins vegar ágætlega
til í ráðneytinu og það hjálpar
mikið til svona í byrjun.
Kvenfyrirlitning
í gagnrýni
Það að allir ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins hafa ráðið konur
sem aðstoðarmenn sína héfur
vakið nokkra athygli og einnig
gagnrýni. Ein forystukvenna
Sjálfstæðisflokksins sagði í grein í
Morgunblaðinum á dögunum að
verið væri að breyta þessum að-
stoðarstörfum í kvennastörf og
aðrir hafa sagt að með þessum
ráðningum hafi verið reynt að
plástra yfir sárindi vegna þess að
engin kona var útnefnd sem ráð-
herra flokksins. Hvað sýnist að-
stoðarmönnunum sjálfum um
þessa gagnrýni?
- Þetta er dálítið sérkennileg
umræða. Ef konur eru ráðnar til
einhverra starfa, eru þau störf þá
orðin sérstök kvennastörf? Er þá
embætti Forseta íslands orðið
kvennastarf af því að kona gegnir
því? spyr Svanfríður. - Mér finnst
þessi plástrakenning og mikið af
umræðunni einkennast af kven-
fyrirlitningu. Jafnréttissinnar
hljóta að fagna þvf þegar konum
eru falin ábyrgðarstörf, engu
síður en að harma það þegar kon-
ur fá ekki þau störf sem við
gjarnan vildum sjá þær í.
- Ég tek undir þetta með Svan-
fríði, sagði Guðrún. - Svona tal
lyktar af kvenfyrirlitningu og ég
vil minna á að það var einmitt
Alþýðubandalagið sem braut
ísinn á sínum tíma þegar Magnús
Kjartansson réð Öddu Báru Sig-
fúsdóttur sem aðstoðarmann
sinn, fyrstu konuna sem tók að
sér slíkt starf hérlendis, og margir
ráðherrar síðustu ríkisstjórna
hafa valið sér konur sem aðstoð-
armenn, og hefur ekki þótt neitt
tiltökumál. Þetta er vellaunað
ábyrgðarstarf. Það að við skulum
vera ráðnar breytir engu um þá
staðreynd að allir ráðherrar Al-
þýðubandalagsins eru karlkyns.
- Mig langar að bæta aðeins við
þetta, sagði Álfhildur. - Það hef-
ur aldrei hvarflað að mér að líta á
mig sem þriðjung að okkur sem
hér sitjum. Allt slíkt tal finnst
mér út í hött. Við erum að vinna
að ólíkum málum, sín á hverjum
staðnum, og þetta er t.d. í fyrsta
sinn sem við hittumst allar þrjár
eftir að við tókum við okkar nýju
störfum.
Kerfið vinni
fyrir fólkið
Hvernig koma þessi störf ykkur
fyrir sjónir? Hvað felst í því að
vera aðstoðarmaður ráðherra og
hver eru ykkar raunverulegu
áhrif og völd?
- Ég held að þetta þróist hjá
hverjum og einum, bæði eftir
persónunni, þekkingu á málum
og áhugasviðum. Við tökum á
móti fólki og erindum og komum
málum á framfæri við ráðherra og
aftur til almennings, segir Svan-
fríður og bætir því við að til ráðu-
neytisins leiti á einn eða annan
hátt ótrúlegur fjöldi fólks, alls
staðar af landinu.
- Undanfarið hefur gerð fjár-
lagafrumvarpsins auðvitað sett
‘ARÍQ
19. nóvember - 7 dagar - 7 nætur
erðaskrifstofan Farandi gefur nú ferðalöngum kost á að upplifa
rómantík Parísar í haustbúningi. Fyrri férð seldist upp.
TT
MÁKe
eimsótt verða meðal annars: Söfn, Versalir, Rauða myllan,
Lídó, Eiffelturninn að ógleymdum fjölda veitingastaða sem bjóða
upp á gómsætar máltíðir með tilheyrandi vínum.
G
ist verður á Hótel Agora St. Germain, sem er gott hótel
í fimmta hverfi, 500 m frá Notre-Dame/St. Michel.
Fararstjóri verður Þröstur Brynjarsson.
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Ferðaskrifstofan
laiandi
Vesturgötu 5, Reykjavík, sími: 622420
Farandaferð er öðruvísi ferð !
14 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. október 1988