Þjóðviljinn - 28.10.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 28.10.1988, Blaðsíða 8
SMART-SKOT _____________LEIÐARI_____________ Reisum íþrottahús fatlaöra Á Ólympíuleikum fatlaöra unnu íslensku íþróttamennirnir það afrek að komast ellefu sinnum á verðlaunapall, og tvisvar hljómaði þjóðsöngurinn á ólympíusvæðinu í Seoul í Kóreu til marks um íslensk gullverðlaun. Þessi vaska sveit kom heim í morgun og verður vel fagnað. Hér fara afreksmenn sem hafa átt það verk fyrst og erfiðast að yfirvinna eigin fötlun, íþróttahetjur sem nú verða hvorttveggja í senn fyrirmyndir ungs fatlaðs fólks um hugarstyrk og áræði, og um leið táknræn vitni þess að fatlaðir eiga fullt erindi við samfélagið sem virkir þátttak- endur á grundvelli jafnréttis. íþróttamennirnir unnu ellefu sinnum til verðlauna í Kóreu, og það má ekki minna vera en að þeir hljóti ein verðlaun á íslandi til að fylla uppí tylftina. Til þess gefst nú tækifæri með nýhafinni söfnun íþróttafé- lags fatlaðra í Reykjavík þarsem markmiðið er að koma aftur af stað byggingu íþrótta- húss fyrir fatlaða við miðstöðina í Hátúni. Það er heldur önugt - sérstaklega í Ijósi afrekanna í Kóreu - að heyra sögu þeirrar byggingar hingaðtil. Fyrsta skóflustungan var tekin árið 1983, og steyptur grunnur þann vetur. Síðan hefur ekkert gerst. Ástæðan er einfaldlega fjárskortur hjá fé- laginu. Fatlaðir eru einn þeirra hópa sem lægstar tekjur hafa í samfélaginu og munar í því miklu á þeim og öðrum íþróttafélögum, og félag þeirra hér í Reykjavík hefur einfald- lega ekki ráðið við að fjármagna sinn hlut í verkinu, auk þess sem byggjendur íþrótta- húsa þurfa að bíða loka hvers verkþáttar til að fá í hendur lögbundinn ríkisstyrk. Einsog lesa má í viðtali í Nýja Helgarblað- inu í dag við Sigurgeir Þorgrímsson, for- mann íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, eru íþróttir geysilega mikilvægar fyrir fatlaða, og geta skipt sköpum bæði líkamlega og andlega. Það er réttlætismál að aðstaða þeirra til íþróttaiðkunar sé eins góð og mögulegt er, og það er líka hagkvæmnis- mál að fatlaðir geti með aðstoð íþróttanna sótt fram til sem fyllstrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins. í dag og næstu daga gefst kostur á að sýna hug sinn til Kóreufaranna og félaga þeirra í verki með því að bregðast myndar- lega við íþróttahússsöfnuninni. Var logið að alþingi? Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips hefur upplýst að áður en Kjartan Lárusson og nokkrir aðrir starfsmenn keyptu Ferða- skrifstofu ríkisins hafi verið gerðir baksamn- ingar um að Eimskip styddi starfsmenn til kaupanna og keypti sjálft þriðjung hluta- bréfa, rúman helming þess sem starfs- mennirnir keyptu. Þegar Matthías Á. Mathiesen fyrrverandi samgönguráðherra kom þessari sölu gegn- um þingið í vor var salan kynnt (Dannig að starfsmenn mundu eignast meirihluta, og kemur sá skilningur skýrt fram í umræðum og umsögnum þingnefndar. Það er í fullkomnu ósamræmi við málatil- búnaðinn í vor að Kjartan Lárusson og fleiri skuli reynast vera leppar fyrir eitt stærsta fyrirtæki landsins sem á fyrir miklar eignir í atvinnugreininni, og það er erfitt að forðast þann grun að alþingi hafi verið blekkt í mál- inu. Samgönguráðuneytið er nú að rannsaka lagahlið málsins, en fyrsti þingmaður Reykjaneskjördæmis skuldar bæði þingi og þjóð skýringu á þessum ráðherraverkum sínum í vor. _m Síðumúla 6-108 Reykjavík Sími 681333 Kvöldsími 681348 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, óttar Proppé. Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, HeimirMár Pétursson, HjörleifurSveinbjörnsson, Kristófer Svavarsson, Magnús H. Gíslason, Lilia Gunnarsdóttir, ólafur Gíslason, Páll Hannesson. Sigurður Á. Friðþjófsson, Sævar Guðbjörnsson, Þorfinnur Ómarsson (íþr.). Handrita- og prófarkalestur:ElíasMar,HildurFinnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Jim Smart. Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ. Pótursson Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrifstof ustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Húsmóðir: Anna Benediktsdóttir Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun:Blaðaprenthf. Verð í lausasölu: 70 kr. Nýttheigarblað: 100kr. Áskriftarverð á mánuði: 800 kr. 8 - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. október 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.