Þjóðviljinn - 25.11.1988, Qupperneq 2
SKAÐI SKRIFAR
Ég er
afi minn
Éq Skaði, hefi glöggt auga í enm minu og eg hefi jafnan seð i
gegnum holt og hæðir í huldulandslagi vinstriflokkanna og þo ekki sist i
gegnum þá þoku sem þeir blása upp til að trylla land og lyð fra
skynsamlegri, borgaralegri og frjálslyndri stefnu.
Þessir eiginleikar mínir ítrekuðust og staðfestust i gær þegar broður-
sonur minn, Vörður (hann heitir í höfuðið á landsmalafelaginu okkar)
kom í heimsókn, hristi ákaft sinn skilningsvana haus (þetta er nu fætt
1968 á hápunkti alls rugls í heiminum) og sagði:
Jæia Skaði frændi, þá eru þeir orðnir vmir Herodes og Pilatus.
Hvað meinarðu ? spurði ég af kurteisi, því auðvitað vissi eg hvað
hann átti við, það má nú gruna minna grand i sinum graut. _
Peir skiptast á heimsóknum Jón Baldvin og Steingrimur og flaðra
hvor upp um annan eins og feguröardrottningar í Miss World og
löðrunga hver annan með blómavöndum svo að rosastækjuna leggur
langar leiðir. Ég hefi aldrei vitað aðra eins hræsni.
Nú af hveriu hræsni? spurði ég.
Manstu ekki neitt Skaði? spurði Vörður (þetta unga fo k heldur al Itaf
að allir séu kalkaðir sem eru orðnir þrítugir). Manstu ekki þegar Jon
Baldvin ætlaði aö moka Framsóknarfjósiö þar sem forræðismykjan
hafði hlaðist upp í fjórtán ár? Manstu ekki þegar Alþyöuflokkurinn var
miskunnarlaus slátrari bændatéttarinnar, blóðugur upp fyrir axlir og
hoppandi á sinni íhaldshækju, verri en allir Sjalfstæðisflokkar.
Man ég víst frændi, sagði ég.
Og ertu þá ekkert hissa núna? spurði Vörður
Nei, sagði ég
Hvers vegna ekki? .
Veqna þess að ég hefi alltaf séð í gegnum þetta apaspil vinstriflokk-
anna Ég hefi alltaf séð að einn rass var undir þeim öllum þott þeir
væru stundum að argast hver út í annan vegna þess að þeir þorðu ekki
í okkur sjálfstæðismenn.
Einn rass, segirðu. Hvaða rass er það.
Það liqqur nú í augum uppi, sagði ég. Það er Jonas fra Hritiu.
Hver er nú það? spuröi Vörður, blankur í minninu eins og allir sem
eru undir fimmtugu. „ . ,, D „
jónas frá Hriflu, sagði ég, er afi þeirra Steingrims og Jons Baldvins.
Nei er það virkilega, sagði Vörður hissa , ,
Afi þeirra í andlegum skilningi, sagöi ég. Jonas fra Hriflu var afskap-
lega slóttugt fól sem vildi frelsið og framtakið feigt. Hann ver vondnr v'°
skólafélaga sína, hann var Ijótur og át eitur, hann fyllti skolakerfið af
hálfkommum, hann rak mætustu lækna og sýslumenn ef þeir æmtu
eða skræmtu, hann kallaði útgerðarmenn Grimsbylyð og hann var a
móti Reykjavík og Esjunni með.
Þetta hefur verið hinn versti maður, sagöi Vorður
Á minn sann, sagði ég. Og hann var afi þeirra Steingnms og Jons
Baldvins vegna þess að hann stofnaði bæði Alþýöuflokkinn og Fra
sóknarflokkinn. Hann bjó til stefnuskrárnar fyrir þá og eiginlega Sosial-
istaflokkinn líka, þótt kommarnir vilji ekki viðurkenna það vegna þess
að um tíma viltust þeir á Jónasi og Stalín sem var ekkert annað en enn
einn Jónasinn í öðru landi. .. . nri
Af hverju sagðirðu mér þetta ekki fyrr Skaði. Þetta er voðalegt. Og
nú ætla þessir sonarsynir að skríða saman aftur í eina sæng og þjarma
að okkur Sjálfstæðismönnum sem einn maður a einum rassi og þeir
hafa meira að segja kommana með sér.
Vörður minn, sagði ég, önd þín skelfist ekki. Þetta er nefmlega re
eins og það á að vera og ekki öðruvísi
Hvað meinarðu Skaði? spurði Vörður
Það er qott að þetta lið sameinast i einhvern AFA-flokk (Alþyðu
flokkur, Framsókn, Alþýðubandalag). Þá sér þjóðin 9e9nrirr' Þenn
blekkinqarvef vinstrimennskunnar sem þykist vera nnargar stefnur u
oq suður en er ekkert annað en sama djöfuls forsjarfolskan og rikis-
helsið. Og það hlægir mig ef hinn nýi afi, hausinn þrihofðaði, Jongrim-
ur Ólafsbaldvin, hleypur nú fram og spáir í spilin.
Ekki er mér hlátur í hug frændi, sagði Vörður
/
/
Þvíekki? spurði ég. Jónasfrá Hriflu spáði því að héryrðu þrírflokkar.
Sjálfstæðisflokkur átti að fá náðarsamlegast að hafa atkvæði útgerð-
armanna og kaupmanna. Svo átti Alþýðuflokkurinn að hirða
kaupstaöina og Framsókn sveitirnar og hann að stjórna öllu saman
eins og Stalín. En þetta fór á annan veg væni minn. Sjálfstæðisflokkur
innbyrti allar stéttir. Alþýðuflokkurinn týndist til kommannna sem i
misgángingi fluttu út fyrir landsteinana andlega og Framsókn flutti a
mölina og fer þar sannarlega á hausinn. Og svo mun enn frændi. Það
er eins og segir í Sturlungu:
Upp skal á kjöl klífa
þótt köld sé framsóknardrífa
kostaðu hugann að herða
hér muntu ei krati verða...
Af hverju skyldu þeir
hafa breytt þessu
ágæta slagorði?
t*-
• IS
rÞú spyrð eins og þú hafir^
ekki tekið eftir því að það
■ komin ný ríkisstjórn.
T
ii
Vo
I ROSA-
GARÐINUM
BLEIUBÖRN í BÆJAR-
STJÓRN
Hver vill skipta á Guðmundi
Árna og Árna Grétari?
Fyrirsögn í Alþýdublaði
Hafnarfjarðar
ÞEGAR DRAUGA
SKORTIR ..
Menn í Borgarfirði horfast í
augu við mýs um nætur
Tíminn
SJÁLFSTÆTT FÓLK
Eða hvað er svosem að því að
kveikja í skólum og hrekja
lögregluna á flótta? Sýnir það
ekki kjark og framtakssemi
þeirra sem landið eiga að erfa?
Tíminn
ÖFUNDSVERÐ STEFNU-
FESTA
Alþýðubandalagið hefur aldrei
brugðist röngum málstað
Morgunblaðið
EN HVAÐ UM INNIHALD
ÞEIRRA?
Franskir smokkar slappir
DV
ÞEIR VITA AÐ ÞAÐ
ER DJÖFULLINN SEM
RÆÐUR
Ég verð víst að fara með ( kvik-
myndina um) Krist niður en
Hrafn ( Gunnlaugsson) upp.
Forstjóri Laugarásbíós
VEGIR BAKKUSAR ERU
ÓRANNSAKANLEGIR
Ferill áfengis er gjarnan sá að
stuttu eftir að glas er keypt á
barnum ætlar viðskiptavinurinn
út á götu með glasið.
Tímlnn
HIN RAMMA SJÁLFUM-
LEIKAKREPPA
Hvað á að kalla okkur (Al-
þýðuflokksmenn) núna: alþýðu-
framsóknarballa? spurði einn
ræðumaður að lokinni heimsókn
Steingríms á þingið.
Morgunblaðið
SVO LEYSIST LIFSINS
GALDUR
Til einföldunar ætla ég að taka
hann Jón Jónsson sem dæmi. Jón
segir: tilgangur minn er að lifa
hamingjusömu lífi. Það er að
segja: Jón er í þeim viðskiptum
að lifa og tilgangur hans með því
er að verða hamingjusamur.
Morgunblaðið
I SKOÐANALEYSI
MANNFÓLKSINS
Það má með sanni segja að
frystikistan í leikriti Nínu Bjarkar
hafi haft sínar járnbentu skoðanir
á tilverunni.
Morgunblaðið
2 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. nóvember 1988