Þjóðviljinn - 25.11.1988, Qupperneq 24

Þjóðviljinn - 25.11.1988, Qupperneq 24
HELGARPISTILL ÁRNI BERGMANN Guðlastið og Síðasta freisting Krists Atriði úr myndinni: Hvað þýðir það að vera sannur guð og sannur maður? Menn hafa verið að hneykslast á kvikmynd Scorc- eses „Síðasta freisting Krists", sem nú er nýfarið að sýna í Laugarásbíói, vegna þess að hún sé guðlast. Hún sýni m.a. þann Krist sem er reiðubúinn til að stíga niður af krossinum til að sofa hjá hór- unni Maríu Magdalenu og taka síðan upp vafasama sambúð með tveim systrum Lazarusar. Svo koma aðrir og hneykslast á þeim sem sjá guðlast í svo ágætri mynd. Hefur svo hver nokkuð að iðja. Og kvikmyndahúsin fá tæk- ifæri til að auglýsa að þetta sé „umdeildasta mynd allra tíma“, rétt eins og biblíumynd- ir Hollywood hér á árum áður voru alltaf „mesta saga sem sögð hefur verið“. Ekkert undarlegt Þaðerísjálfusérekkert undar- legt þótt kristnir menn telji þessa mynd, sem er eins og margtekið er fram, gerð eftir skáldsögu þess ágæta gríska sagnamanns, Nikos- ar Kazantsakisar, geyma hið versta guðlast. Vegna þess blátt áfram hvaða sess helgar ritningar hljóta að skipa í hugum trúaðra. Ritningar eru, eðli málsins sam- kvæmt, sterklega bundnar í hefð sem leyfir mönnum ekki að valsa út og suður með túlkun sína t.a.m. á lífi Krists. Sök sér að reyna við Júdas eða þá Barrabas, en ekki Krist. Reyndar er það heldur ekki erfitt að skilja þá trú- aða menn sem telja að öll bók- menntaverk og leikverk sem reyna að sýna ævi Krists stappi guðlasti næst. Eins þótt höfundar fái blessun jafnvel páfans til sinn- ar iðju. Ekki nema von að fyrir því sé drjúg hefð - eins og aðeins var að vikið hér að ofan - að sam- in séu verk um fólk úr nágrenni við Krist, þar sem hann sjálfur er utan sviðs eða svo gott sem. Djöfullinn lætur svona Hinsvegar sýnist þessum áhorfanda hér að kvikmyndin um Síðustu freistingu Krists flytji ekki neinn þann boðskap sem kalla mætti andkristilegan. Feli ekki í sér tilræði við kristileg líf- sviðhorf. Hún er að mínu viti ekki síst sprottin upp úr gömlum og nýjum spurningum um það, hvað það merki í rauninni að Kristur hafi verið sannur maður og sannur guð í senn eins og segir ítrúarjátningum amk. Austurkir- kjunnar. Maðurinn Jesús frá Nasaret hlýtur að kveljast af efa- semdum um hlutverk sem teygir sig óralangt út fyrir ramma menn- skrar skynsemi og tilveru: með þetta þema er einatt vel farið í myndinni. Við getum til að mynda rifjað það upp þegar við skoðun Krist myndarinnar í musterinu, hafandi velt um borð- um víxlaranna, að ritningarnar sjálfar geyma ýmsar þverstæður um það hvaða leið liggur til nýs heims, guðs ríkis. Þar er bæði mælt með því að menn kaupi sverð og að sverð séu slíðruð. Og svo er það lokaatriðið um- deildasta. Ef við skoðum hug okkar: hví skyldi sá, sem fannst hann í sinni mennsku vera einn og yfirgefinn á krossi ekki leiða hugann í sinni kvöl að því, sem hefði getað orðið hefði hann leifað þessu lífi „venjulegs" manns? Og hví skyldi einmitt sú hugsun ekki vera sérlega útsmog- in freisting Stanas, þess spottara, sem lengi hefur haft út allar sínar klær til þess að fá menn til að sættast við það sem er? Fá þá til að hætta að brölta upp á heilaga og þrælhála tinda afrekanna fá þá - ekki síst með mannúðlegu um- burðarhjali - til að svíkja heilaga óánægju sína með eigin óf- ullkomleik og ranglætið enda- lausa? Egill heitir piltur. Hann er kominn í bæinn að nema bók- menntafræði við Háskólann. Kannski heldur hann að slfkt nám flýti fyrir því að hans eigin skálda- draumar verði að veruleika - en hann hefur samið fjórar skáld- sögur og þrettán smásögur og á bara eftir að skrifa þær. Há-, skólinn reynist honum svosem engin eldraun og ekki neitt helvíti fáránleikans heldur, en samt frekar marklítill staður og bók- menntafræðingarnir heldur svona hlálega umkomulitlir í ekki sérlega ástríðumikilli leit sinni að kenningu sem þeir gætu haldið sér í. Til að verða ekki innkulsa í borgarnæðingnum bregður sögu- maður á það ráð að verða ástfanginn af Sigríði, sem er líka í bókmenntafræðunum. Og það er mikil sæla. Þangað til:.. ja þið sjáið það sjálf að ekki getur saga af ungum ástum fengið farsæl málalok, þá yrði engin saga. Af lýsingu sem þessari má vel ráða að ekki er langt seilst til sögusviðs og kannski halda menn því fram að ekki sé spurt stórra spurninga. Ekki víst samt að það sé rétt. Bókin er kennd við ang- ist, að vísu káta (eða kátlega) en angist samt. Vert að gefa því nokkurn gaum. Því Guðmundur Andri fitjar með þessari sögu upp á ansi skopvísri lýsingu á hetju vorra tíma, sem hrærist í and- rúmslofti þess sérstæða ráðleysis sem menn hafa um stund búið Höfundur hefur látið þess get- ið að þetta sé saga í léttum tón og það er mikið rétt. Hann stílar létt og fjörlega og hefur ekkert fyrir því að hlaupa á milli gamansemi og hlýju og þarf því ekki að hrekj- ast ofaní fúlan pytt tilfinninga- seminnar. Það reynir að sönnu ekki mikið á höfundinn, hann er þar staddur þar sem hæg eru heimatökin, hann fer sér ekki að voða í útmálun lífsháskans. En það er sem er: ekki síst má bera á Guðmund Andra lof fyrir það hve fylginn sér hann er, hvort sem hann þarf að hlaupa í takt við sjálfumglatt brokk ástarfáksins eða sýna með áþreifanlegum dæmum spaugilega ótrygga til- veru bókmenntafræðanna.(Einu sinni skýst Guðmundi Andra að vísu í útfærslu - þegar hann segir frá skáldsögu sem hinn tískutrúi prófessor Hari Hari skrifaði um 1950 og endar á því að aðalper- sónan „var kominn í Keflavíkur- göngu“ - þetta passar ekki í tíma, en nóg um það). Guðmundur Andri á líka feiknagóða spretti í samþjöppun - til dæmis í þeirri löngu lotu um borgina sem er full af þessu fólki sem ekur í hringi sífellt til að þurfa ekki að hitta neinn, til að „þurfa ekki að tala, sjá, snerta, heyra“ og það er ótal- margt annað um þetta fólk og rausið í því og borgina sem kemst fyrir áður en punktur er settur og samt er lesandinn ekki kominn með andarteppu áður en lýkur. Árni Bergmann Eða hvað ég ætli yfirleitt að gera við líf mitt? Guðmundur Andri Thorsson. Mín káta angist. Mál og menning 1988 er svo mikið ojbjakk að það tekur engu táli). Og þá tekur tilvistar- vandinn ícannski á sig þessa and- dramatísku mynd hér: „Þar sat ég í kortér og braut heilann um hvort ég ætti að laga kaffi eða elda mat eða setja plötu á fóninn eða spila örlítið á gítar- inn eða hvað ég ætti yfirleitt að gera við líf mitt. Ég tók ákvörð- un. Ég reis á fætur og gekk út að glugganum, settist í glugggakist- una og sat þar í kortér. Eg var að horfa á þökin.“ Og þegar Egill karlinn er inntur eftir því hvað hann í raun- inni meinar um hlutina þá verður færra um svör en skyldi „því til mín streyma svo mörg orð og svo margar setningar, að ég veit sjaldnast hverjar eru skoðanir mínar.“ Við þessar aðstæður er ekki nema von að eina leiðin til að breyta heiminum sé sú að verða ástfanginn, þar er að finna eina stórfengleikann sem eftir er: „Ég sá að allt sem við mundum gera saman og lifa saman mundi hafa merkingu sem væri okkar merk- ing en ekki allra hinna og að sú merking væri sannleikur.“ En því miður: þótt sannleikurinn í ást- inni sé vissulega stór (og Guð- mundur Andri lýsir því einmitt á bæði lýrískan og kankvísan hátt hvernig ástin umturnar smá- heiminum), þá er hann ekki fast- ur fyrir og þegar hann hrynur einn góðan veðurdag þá er ansi auðnarlegt um að litast því að ekki hafði Egill nærst neitt að ráði af öðrum sígildum aflgjöfum ungra manna - réttlætiskröfunni, listinni, afreksdraumnum. Guðmundur Andri Thorsson við. Eftir að einskonar sam- komulag var gert um það að allar husgjónir væru dauðar (nema kannski neysluhugsjónin og hún 24 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. nóvember 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.