Þjóðviljinn - 25.11.1988, Side 30
Ásmundarsalurv/Freyjugötu.sýn-
ing Kjuregej Alexöndru til minningar
um Magnús Jónsson kvikmyndaleik-
stjóra stendur til 1. desember, og er
opin virka daga kl. 12-22, og kl. 14-22
umhelgina.
FÍM-salurinn, Garöastræti 6, sýning
Bjargar Atladóttur stendur til 4. des-
ember og er opin daglega kl. 14-19.
Gallerí Borg, Kristján Davíösson
sýnirnýjarolíumyndir. Sýningin
stendurtil 29. nóvemberog eropin
virka daga kl. 10-18, og kl. 14-18 um
helgina.
Gallerí Eva, í dag kl. 15 opnar Eva
Benjamínsdóttir nýtt gallerí að
Miklubraut 50, með sýningu á vatns-
litamyndum og myndum unnum með
blandaðri tækni. Sýningin stendur til
5. desember, galleríið verður opið
daglegakl. 15-21.
Gallerí Gangskör, Amtmannsstíg 1,
Margrét Jónsdóttir sýnir vatnslita- og
olíuverk á pappír til 4. desember.
Sýningin er opin þriðjudaga til föstu-
daga kl. 12-18, og kl. 14-18 um helg-
ar.
Gallerf Grjót, Skólavörðustíg 4 A,
samsýning á verkum listamannanna
sem að galleríinu standa. Opið kl. 12-
18 alla virka daga.
Gallerí Llst, nýjar grafík-, vatnslita-,
silkimyndir auk Rakú keramiks til
sýnísogsölukl. 10-18virkadagaog
kl. 10:30-14 á laugardögum.
Gallerí Svart á hvítu, Laufásvegi 17,
Jón Óskar sýnir málverk unnin á
þessu ári. Sýningin stendur til 27.
nóvember, galleríið er opið kl. 14-18,
alla daga nema mánudaga.
Gangurinn, Rekagranda 8, Gerwald
Rockenchaup sýnir innísetning sinn
(installation) út nóvembermánuð.
Sýningartímar eftir samkomulagi.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnar-
firði, Litli salurinn: Sýning á verkum
Halldórs Árna Sveinssonar er opin
daglega kl. 14-22 og lýkur 27. nóv-
ember. Aðalsalur: Málverk í eigu
stofnunarinnar, hluti af málverkagjöf
hjónanna Sverris Magnússonar og
Ingibjargar Sigurjónsdóttur.
Hótel Borg, sýning á verkum Daöa
Guðbjörnssonar stendur út nóvem-
ber.
Hótel Selfoss, Svava Sigríður
Gestsdóttir sýnir olíumálverk og
vatnslitamyndir í anddyri hótelsins.
Sýningin, sem stendurtil 27. nóvem-
ber, er opin daglega til kl. 22.
íslenska óperan, sýning á málverk-
um Tolla (Þorláks Kristinssonar)
verðuropnuðásunnudaginnkl. 18.
Sýningin stendur til 18. desember, til
4. desember daglega kl. 15-19, frá 5.
desembervirkadagakl. 13-17.
Kjarvalsstaðir, Austursalur, Jón
Baldvinsson opnar málverkasýningu
á morgun kl. 14. Vestursalur, sýning
á nýjum verkum í Listasafni Reykja-
víkurborgar verður opnuð á morgun
kl. 14og stendurtil 18.desember.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl.
14-22.
Listasaf n ASÍ, Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá sýnir myndverk úr ull.
Sýningunni lýkurásunnudagskvöld-
ið, 27. nóvember og er opin kl. 16-20 í
dag og kl. 14-20 um helgina.
Listasafn Einars Jónssonar, er
opið kl. 13:30-16 um helgar. Högg-
myndagarðurinn er opinn daglega kl.
11-17.
Listasafn íslands, salur 2, sýning á
kyrralífsmyndum Kristínar Jónsdóttur
stendur til sunnudags, 27. nóvember.
Salir 1 og 5, verk í eigu Listasafnsins
eftirÁsgrím Jónsson, Jóhannes S.
Kjarval, Jón Stefánsson og Gunn-
laug Scheving. Á efri hæð hússins
eru sýnd ný aðföng, skúlptúrar og
málverk eftir íslenska listamenn. I
veitingastofu eru til sýnis og sölu
nokkrarglermyndirsem Leifur
Breiðfjörð myndlistarmaður gerði í til-
efni 100 ára afmælis Listasafnsins
árið 1984, og stendur sýningin til 15.
desember. A sunnudaginn kl. 15 fer
fram leiðsögn um sýningarnar. Leiö-
sögnin Mynd mánaðarins fer fram á
fimmtudögum kl. 13:30, og er mynd
nóvembermánaðar Uppstilling, eftir
Kristínu Jónsdóttur. Listasafnið er
opið alla daga nema mánudaga, kl.
11-17.
Listasafn Sigurjóns Óiafssonar á
Laugarnesi, yfirlitssýning á 50 verk-
um Sigurjóns, þar á meðal myndir
sem aldrei áður hafa verið sýndar hér
á landi. Safniðog kaffistofan eru opin
laugardagaogsunnudagakl. 14-17,
MlR, Vatnsstíg 10, sýning á svart-
listarmyndum og listmunum frá sov-
étlýðveldinu Kirgizíu eropin þeim
sem skoða vilja um helgina.
Mokka v/ Skólavörðustíg, Ríkey Ing-
imundardóttir sýnir postulínslág-
myndir og málverk um óákveðinn
tíma.
Norræna húsið, Kjallari: Málverka-
sýning Björgvins Björgvinssonar
stendurtil sunnudagskvölds, 27.
nóvemberogeropinídag kl. 16-22,
og kl. 14-22 um helgina.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Bragi Ás-
geirsson sýnir teikningar frá árunum
1950-60, og tíu ný steinþrykk, til 30.
nóvember. Sýningin er opin virka
dagakl. 10-18, og kl. 14-18 um helg-
ina.
Nýlistasafnið, Kristinn Guðbrandur
Harðarson sýnir skúlptúra, útsaum
og lágmyndirtil 4. desember. Sýning-
in er opin virka daga kl. 16-20, og kl.
14-20 um helgar.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, sýning á þjóðsagna-
og ævintýramyndum Asgríms stend-
ur til febrúarloka 89. Safnið er opið
sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga
og laugardagakl. 13:10-16.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14, Breiðholti,
sýning á verkum Jóhannesar Geirs
lýkur í dag. Á sunnudaginn kl. 14-17
verður opnuð sýning á damaskmynd-
vefnaði eftir Sigríði Jóhannsdóttur og
Leif Breiðfjörð. Sýningin stendur til
27. janúar 1989 og verður opin frá
mánudegi til fimmtudags kl. 9:15-16,
ogföstudagakl. 9:15-18.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6, Kristín
Schmidhauser Jónsdóttir opnar sýn-
inguna Flíkur og Form á morgun kl.
15. Sýningin stendurtil 11. desember
og verður opin alla daga nema mánu-
dagakl. 14-18.
Tunglið, Sissú (Sigþrúður Pálsdóttir)
sýnir myndlist frá þessu ári, og eru
sum verkin frumsýnd en önnur áður
séð. Sýningin stendurfram yfir hátíð-
ar.
LEIKLIST
Alliance Francaise, franskur gesta-
leikari, Eric Eychenne flytur Nashyrn-
inginn í Iðnó á mánudagskvöldið kl.
20:30.
Alþýðuleikhúsið, Kjallara Hlaðvarp-
ans, Vesturgötu 3, Koss kóngulóar-
konunnar, í kvöld og annað kvöld kl.
20:30, sunnudag kl. 16.
Leikbrúðuland, Fríkirkjuvegi 11,
Mjallhvít, á sunnudaginn kl. 15,
næstsíðasta sýning fyrir jól, miðasala
hefstkl. 13.
Leikfélag Hafnarfjarðar, unglinga-
deild, Þetta er allt vitleysa Snjólfur,
frumsýning á sunnudaginn kl. 20.
Emil í Kattholti, aukasýningar á morg-
un kl. 14ogsunnudagkl. 16.
Leikfélag Keflavíkur, Glóðinni,
Keflavík, Erum við svona?, í kvöld,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
21.
Leikfélag Reykjavíkur, Hamlet í
kvöld kl. 20. Sveitasinfónía,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
20:30.
Leikfélag Selfoss, Leikhúsinu á Sel-
fossi, Mávurinn, allra síðasta sýning í
kvöldkl. 20:30.
Leikhúsið í Djúpinu, Óvinurinn, síð-
ustu sýningar, sunnudags til miðviku-
dagskvöld kl. 21.
Litla leikfélagið, Garðinum, Himna-
ríki Hitlers /Ótti og eymd í þriðja ríkinu:
Gyðingakonan, Spæjarinn og Krítar-
krossinn, í kvöld kl. 21.
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið, Stór og
smár, sunnudagskvöld kl. 20. Ævin-
týri Hoffmanns, í kvöld og annað
kvöld kl. 20.
Litla sviðið, japanskur gestaleikur,
Yoh Izumo sýnir japanska leikdansa í
kvöld og annað kvöld kl. 20:30. Síð-
ustu sýningar.
r iöi Mini ap
Hvenær á að
birta nafn?
Siðareglur Blaðamannafélags
íslands voru til umræðu í viðtali
'sem tekið var við Elías Snæland'
Jónsson, varaformann siða-
nefndar BÍ og fréttastjóra DV, í
útvarpi nú í vikunni. Tilefni við-
talsins var lýst á þá leið að svo
virtist sem íslenskir fjölmiðlar
gengju nú lengra en oft áður í því
að birta nöfn meintra sakamanna
og þá löngu áður en dómur er
felldur.
Það er rétt að tvívegis á undan-
fömum dögum hefur reynt á
áhuga blaðanna á að birta nöfn
meintra sakamanna í æði ólíkum
málum: í Hafskips- og Útvegs-
bankamálum og vegna mannsláts
í húsi við Lynghaga í Reykjavík. í
báðum tilvikum voru birt nöfn
þeirra sem sakfelldir eru, í því
síðarnefnda þó aðeins í einu blaði
svo mér sé kunnugt um: Morgun-
blaðinu. Ég sé því ekki að þetta
sé neitt verra en vaninn er.
Auk þess að vera gerólík hvað
varðar eðli afbrotsins þá greina
þessi mál sig í sundur að öðru
leyti. Hafskips- og Útvegsbank-
amál hafa staðið yfir með litlum
hléum í rúm þrjú ár og þar liggja
fyrir opinberar ákærur á hendur
16 einstaklingum (reyndar er það
í annað skiptið sem ákærur eru
birtar en það skiptir ekki máli í
þessu samhengi). Mannslátið á
Lynghaga varð hins vegar í síð-
ustu viku og þótt þar liggi fyrir
játning á manndrápi hefur engin
ákæra verið lögð fram.
Þetta er veigamikið atriði sem
fjölmiðlar verða að hafa hugfast:
þótt einstaklingur játi tiltekinn
verknað og það sé búið að úr-
skurða hann í gæsluvarðhald og
geðrannsókn er málið enn í rann-
sókn og því getur ógætileg og
gassafengin umfjöllun fjölmiðla
orðið til þess að torvelda
rannsóknina. Mín skoðun er sú
að það eigi ekki að birta nöfn
meintra sakamanna fyrr en í
fyrsta lagi eftir að ákæra hefur
verið lögð fram.
Frá þessu geta þó verið undan-
tekningar og að þeim vék Elías
Snæland í viðtalinu. Hann sagðist
líta svo á að ofbeldisglæpir væru
alvarlegri en aðrir og að þar bæri
fjölmiðlum skylda til að hafa ör-
yggi almennings að leiðarljósi.
Þetta er alveg rétt en réttlætir
samt ekki birtingu á nöfnum
manna sem hafa verið handsam-
aðir og eru í öruggri vörslu yfir-
valda. Standi yfirvöld í stykkinu
stafar almenningi ekki mikil
hætta af slíkum mönnum. Öðru
máli gegnir hins vegar ef grunaðir
ofbeldismenn ganga lausir eða
eru jafnvel eftirlýstir af lögreglu.
Þá er sjálfsagt að birta nöfn.
Og að sjálfsögðu var vitnað í þá
meginreglu dómkerfisins að
menn séu saklausir þar til sekt
Hvað á að gera um helgina?
Árni Johnsen, blaðamaður
Það er nú fátítt að helgarnar
hjá mér séu eins skipulagðar og
þessi sem nú fer í hönd; það vill
þannig til að ég er formaður kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á
Suðurlandi, og aðalfundurinn hjá
okkur verður haldinn núna um
helgina.
Fundarstaðurinn er Vík í
Mýrdal, og við verðum að bæði á
laugardag og sunnudag. Þannig
að þú sérð að helgin hjá mér
verður bundin þessu verkefni.
Gamla bíó, Hvar er hamarinn? síð-
asta sýning á sunnudaginn kl. 15.
TÓNLIST
Heiti potturinn Duus-húsi, jasstón-
leikar á sunnudagskvöldið kl. 21:30,
hljómsveit Vilhjálms Guðjónssonar
flyturfrumsamiðjassefni. fsveitinni
eru auk Vilhjálms, Ástvaldur T rausta-
son, Bjarni Sveinbjörnsson og Pétur
Grétarsson.
Gerðuberg, Rannveig Bragadóttir
endurtekur Ijóðatónleika sína frá 21.
nóvember, á sunnudaginn kl. 17. Á
efnisskránni eru lög eftir Haydn, Moz-
art, Hugo Wolf, Mahler og de Falla.
Undirleikari er Jónas Ingimundarson.
íslenskaóperan,Tónlistarfélagið
heldur aðra tónleika vetrarins á
laugardaginn kl. 14:30, og eru tón-
leikarnir að hluta helgaðir franska
tónskáldinu Olivier Messiaen, sem
verður áttræður 10. desember. Haf-
liði Hallgrímsson sellóleikari og David
Mason píanóleikari flytja síðasta þátt-
inn úr Kvartett um endalok tímans, og
Jane Manning sópransöngkona og
David flytja lagaflokkinn Harawi,
söng um ást og dauða eftir Messiaen.
Auk þess frumflytja Jane og Hafliði
nýtt verk eftir Haf liða, Lagaf lokk við
Ijóð eftir rússnesku skáldkonuna
Onnu Akhmatovu. Síðasta verk á
efnisskránni er Sónata fyrir selló og
Íiíanó eftir Claude Debussy.
sraelski sellóleikarinn Menahem
Meir heldur tónleika í sal Mennta-
skólans v/ Hamrahlíð ásunnudaginn
kl. 15. Á efnisskránni eru meðal ann-
ars verk eftir Coberyari og Chopin, og
Sfaradik melodi eftir P.P. Ben Haim.
Undirleikari verður Catharine Wil-
liams.
Norræna húsið, kjallari, Þorvaldur
Örn Árnason og Ragnheiður Jóns-
dóttirsyngjaog leikaágítarnokkur
vísnalög á sýningu Björgvins Björg-
vinssonar á morgun kl. 16. Meölimir
úr söngfélaginu Samstillingu taka
undirsönginn.
Lúðrasveitin Svanur heldur sína ár-
legu Aðventutónleika í Langholts-
kirkju á sunnudaginn kl. 17. Á efn-
isskránni eru meðal annars verk eftir
Mozart, Prokofieff, Malcolm Arnold,
Meindert Boekel, Benderog Yorke.
Stjórnandi er Robert Darling.
Lúðrasveit verkalýðsins heldur ár-
lega hausttónleika sína í Langholts-
kirkju á morgun kl. 17. Flutt verða
bæði íslensk og erlend lög, allt f rá
hefðbundinni lúðrasveitartónlist upp í
hörku discotónlist. Aðgangur
ókeypis, stjórnandi er Jóhann Ing-
ólfsson.
Strax, Bústöðum í kvöld, Hótel Sel-
fossi laugardagskvöld.
HITT OG ÞETTA
MÍR, Vatnsstíg 10, Anna Pavlova,
mynd um ævi og störf hinnar
heimsfrægu rússnesku dansmeyjar
verður sýnd í bíósalnum á sunnudag-
innkl. 16. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Pólitískar breytingar í Sovétrikjun-
um, IgorN. Kúznetsov, varaforstjóri
Lagastofnunar Sovétríkjanna, heldur
almennan fyrirlestur á mánudags-
kvöldiðkl. 20:30,
Félag áhugamanna um bókmenntir
býður til nóvemberfundar í stofu 101,
Odda, á morgun kl. 14. Fundurinn
verður helgaður bandarísku Beat-
kynslóðinni (Kerouac, Ginsberg,
Burroughsogfleiri).
Félag eldri borgara, opið hús í
T ónabæ á morgun frá kl. 13:30. Fé-
lagarfráSelfossikomakl. 17:30,
veitingartil sölu á staðnum, pantanir
óskast í dag í síma 28812. Ath aö
danskennslan fellur niður.
Eldri bæjarbúar Kópavogi, munið
stofnfund Félags eldri borgara í fé-
lagsheimilinuámorgunkl. 14.
þeirra er sönnuð. Þar fara fjöl-
miðlar oft út á einstigi sem getur
verið vandratað. Oft hafa þeir
beinlínis verið sakaðir um að láta
sér ekki nægja að segja frá sak-
amálum heldur halda uppi ein-
hliða málflutningi og fella dóma
löngu áður en þar til gerð yfirvöld
eru búin að ljúka sér af. Ég hef
engan hitt sem mælir slíku athæfi
bót enda engin ástæða til.
Hins vegar fannst mér örla á
því viðhorfi í spurningum frétta-
mannsins sem spurði Elías Snæ-
land að í sumum málum væri
jafnvel rétt að beita fjölmiðlum
fyrir vagn réttvísinnar. Þar voru
nefndir grófustu ofbeldisglæpir á
borð við kynferðislegt ofbeldi
gegn börnum og konum. Þegar
talið berst að þessum afbrotum er
eins og engin refsing sé nógu hörð
og því sé alveg réttlætanlegt að
birta nöfn kynferðisglæpamanna.
Þetta er skiljanlegt viðhorf, að
vissu marki. Mér finnst það til
dæmis koma til greina þegar slík-
um sakamönnum er sleppt með-
an verið er að fjalla um mál þeirra
í dómskerfinu, þe. eftir að lög-
reglurannsókn lýkur og ákæra
hefur verið birt, sem því miður
hefur of oft gerst. Eins finnst mér
nafnbirting geta átt rétt á sér þeg-
ar um margdæmda síbrotamenn
er að ræða.
Fjölmiðlar verða hins vegar að
gæta sín á því að láta ekki nota sig
sem hluta af refsivendi samfé-
lagsins. Það er í sjálfu sér ekkert
skárra en að birta nöfn meintra
afbrotamanna til þess eins að
selja blaðið. Um refsingar saka-
manna gilda ákveðnar reglur og
það er ekki hlutverk fjölmiðla að
fullnægja dómum. Jafnvel þótt
almenningur sé reiður og heimti
blóð.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ