Þjóðviljinn - 17.02.1989, Síða 19
◄
I
I
!
I
hafa kannski rokið upp með ein-
stök og út af fyrir sig ágæt mál og
verið mjög uppteknir af þeim, en
miklu síður litið á allt í samhengi.
Tökum dæmi af tónskáldi sem
vinnur til viðurkenningar á al-
þjóðavettvangi - hann er um leið
hvatning fyrir krakka í tónlistar-
skóla sem iðkendur og hlustend-
ur. Við þurfum að hætta að hugsa
um einn þátt í einu, þetta er allt
samfella...
Ljósvakinn,
íslensk tunga
Eins og á var minnst í upphafi
þessa máls, þá hefur Svavar
Gestsson sett af stað nýja vinnu
við alla veigamestu þœtti í starfi
síns ráðuneytis og verður ekki far-
ið út í ítarlegar upptalningar á því
öllu hér (Menn eru að kvarta yfir
því að ég sé búinn að skipa óskap-
lega margar nefndir, segir ráð-
herrann iðrunarlaust). En áður
en þessu spjalli lyki tók blaða-
maður tvö atriði úr málabunkan-
um: ráðslag um eflingu Ríkisút-
varpsins sem Svavar vék sér að
strax á fyrstu dögum í ráðherras-
tól og átak í þágu íslenskrar tungu
sem verið er að undirbúa.
Já það voru teknar ákvarðanir
um að koma Ríkisútvarpinu úr
verstu fjárhagslegu úlfakrepp-
unni og nú er á döfinni að endur-
skoða útvarpslögin í heild. Vinn-
uhópur mun gera tillögur um fjöl-
miðlafræðslu í grunnskólum og
svo menntun fjölmiðlafólks. Það
eru margar uppákomur afdrifa-
ríkar að dynja yfir okkur í ljó-
svakanum eins og menn vita og
kannski væri einfaldast að bregð-
ast við með því að setja reglugerð
á reglugerð ofan. En meðal ann-
ars vegna þess að tæknin þróast
með þeim hætti að menn geta
gert hvað sem þeim sýnist, þá
held ég að eina svar okkar sem
dugar sé blátt áfram að gera bet-
ur. Búa til efni sem speglar ís-
lenskan veruleika með þeim
hætti að menn sjái sig þar en leiti
síður í Dallas einhverskonar.
Persónulega vil ég halda menn-
ingarsjóði útvarpsins til eflingar
innlendri dagskrárgerð. Ég vil
gjama breyta útvarpsráði, hvem-
ig - það veit ég ekki, en ég tel
sjálfur að tími flokkapólitísks eft-
irlits sé liðinn og að það kerfi hafi
í reynd verið mjög hagstætt íhald-
inu. Við þurfum fyrst og fremst
sem besta faglega umfjöllun um
hvaðeina og í annan stað er hollt
að skipa yfirstjóm menningar-
stofnana til takmarkaðs tíma.
Forsetinn spurði í nýjársávarpi
sínu hvað menn vildu gera í þágu
íslenskrar tungu og vitaskuld
hlustum við á forsetann. Við
emm að undirbúa átak í þágu ís-
lenskunnar og ég sé það fyrir mér
þannig að það sé mjög víðtækt,
nái til skóla og fjölmiðla og vinn-
ustaða, það byggist á margvís-
legri viðurkenningu til einstak-
linga, samtaka og stofnana, á út-
gáfustarfsemi og fleiru. Þetta
átak byrji formlega með viðburð-
um um sumarmál og haldi þessi
lota áfram til fullveldisdagsins
fyrsta desember. .
Það kom til mín á dögunum
hópur frá Æskulýðssambandi ís-
lands sem hefur í huga átak í þágu
íslenskrar tungu í september og
ég fagna því - það skiptir miklu
að tungan verði málstaður yngstu
kynslóðarinnar. Þegar ég hefi
komið í ffamhaldskóla hefi ég
beðið krakkana um aðstoð - við
verðum að gera allt hvað við get-
um til að stilla saman strengina í
þessum málum. Það er glapræði
að annast ekki sem best það
hjarta í þjóðarlíkamanum sem
tungan er, það er líka jafnréttis-
barátta að rækta virðingu fyrir
tungunni allsstaðar, við viljum
ekki að sumir menn tali „gott“
mál en aðrir „vont“ eins og það er
kallað.
Föstudagur 17. febrúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19