Þjóðviljinn - 03.03.1989, Blaðsíða 3
Þetta er nú ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera, en mér skal takast það að lokum.
Það fer ekkert á milli mála að ungviðið nýtur útiverunnar á Tjörninni.
Á skautum
skemmti
ég mér
Hvað ertu að taka mynd a< mér?
Ég er hætt að renna mér.
Um leið og búið var að ryðja
Tjörnina og gera hana klára fyrir
skautafólk drógu ungir sem aldn-
ir höfuðborgarbúar rykfallna
skauta út úr skápum og flýttu sér
niður á Tjörn, enda hefur veðrið
leikið við íbúa Reykjavíkur und-
anfarna daga. Jim Smart Ijós-
myndari brá sér niður á Tjörn í
vikunni og festi stemmninguna á
filmu. Einsog sjá má hafa ekki
allir jafn mikið vald á jafnvægis-
listinni en ekki er að efa að þeir
sem lenda á rassinum í dag
munu bruna áfram á morgun.
Lengi lifir í gömlum glæium
Peir ætla að halda upp á aldarafmæli Hitlers
Hitler blessar börnin á afmælisdegi sínum 1937: „Við ætlum að sýna
að enn eru til þakklátir Þjóðverjar".
Seint fyrnast fornar ástir:
enn eru innan og utan Þýska-
lands til hópar manna, sem
elska og virða sinn leiðtoga
Adolf Hitler og þeir gera sig nú
liklega til að halda upp á
hundrað ára afmæli meistara
síns þann 20sta apríl. Það er
búist við slagsmálum og öðr-
um leiðindum.
Vikublaðið Spiegel kann frá
því að segja að fyrir fjórum árum
hafi hávaðasamur vesturþýskur
nýnasisti, Michael Kuhnen,
stofnað sérstaka undirbúnings-
nefnd til að leggja drög að því, að
minnst verði þeirra sögulegu tíð-
inda að Hitler kom í heiminn.
Nefnd þessari mun hafa verið
komið á fót á Spáni og önnur að-
aldriffjöðrin í undirbúningnum
er Leon Degrelle, helsti foringi
vallónskra fasista, sem á sínum
tíma barðist í SS-sveit belgískra
sjálfboðaliða og þáði fyrir miklar
orður af Hitler. Degrelle hefur
verið í útlegð á Spáni lengi, en
þar getur hann og ýmsir aðrir
öldungar hins evrópska fasisma
reitt sig á stuðning allmargra
ríkra Spánverja sem enn eru að
gráta sinn leiðtoga, Franco.
Nýnasistar búast við að sam-
herjar þeirra komi til Þýskalands
á afmælisdaginn frá Frakklandi,
Spáni, Danmörku, Noregi og
Belgíu. Þeir halda því leyndu
fram á síðustu stundu hvar þeir
ætla að halda aðalminningarhá-
tíðina - m.a. til að rugla lögregl-
una í ríminu. En þeir ætla með
ýmsu móti að láta heyra í sér -
m.a. með dreifibréfum og ýmis-
legum áróðri öðrum. Eða eins og
Kuhnen segir: „ Þeir minnisvarð-
ar sem við höfum reist foringjan-
um í hjörtum okkar munu prýða
þýskar borgir". Menn telja held-
ur ekki vafa leika á því að skugga-
baldrar úr röðum „hægriöfga-
manna“ muni nota tækifærið til
að svívirða minnismerki um fórn-
arlömb fasismans í Þýskalandi.
Þeir hópar sem ætla að halda
upp á aldarafmæli Hitlers með
opinskáum hætti eru ekki fjöl-
mennir, en þeir eru eins og að
líkum lætur reiðubúnir að slást og
láta öllum látum. Þær nýnasískar
hreyfingar sem hafa í alvöru
reynt að höfða til kjósenda hafa
ekki hátt um sín áform eða hug-
arfar á afmæli foringjans. En þeir
sem til þekkja telja sig vita, að
samanlagt ystahægrið í Vestur-
Þýskalandi muni minnast afmæl-
isdags foringjans með einum
hætti eða öðrum - eins þótt hinir
virðulegri hópar kjósi að láta sér
nægja að fella sín pólitísku sakn-
aðartár yfir bjórglösum á lokuð-
Kók fékk
aðvörun
Það var víst ekki að ástæðu-
lausu að eigendur kókverks-
miðjunnar í Arbænum hótuðu
að flytja verksmiðjuna í annað
bæjarfélag, léti Davíð Odds-
son borgarstjóri ekki af fyrir-
ætlan sinni að koma upp
sorpböggunarstöð í næsta
nágrenni verksmiðjunnar.
Eins og aðrar kókverksmiðjur,
starfar sú í Árbænum undir
ströngu gæðaeftirliti frá móð-
urstöðvunum í Ameríku.
Þannig eru sendar reglulega
út fjórar gosflöskur til
rannsókna og tvívegis á
skömmum tíma hefur verk-
smiðjan hér fengið aðvörun
vegna þess að vatnið hefur
verið óhæft, að því er kunnug-
ir segja. Ástæðan er víst sú að
yfirborðsvatn kemst í allt of
miklum mæli í vatnsból borg-
arinnar í leysingum og verður
vatnið í Árbænum þá óþægi-
lega gruggugt. Á þennan
vanda hafi ekki verið
bætandi...B
Hrós frá
kaupmönnum
„Kaupmenn hugsa hlýlega
til Ólafs Ragnars Gríms-
sonar fjármálaráðherra
þessa dagana. Honum tókst
nefnilega það sem fjölmörg-
um ráðherrum í hans embætti
tókst ekki á undan honun, -
að aölaga eindaga söluskatts
að kreditkortauppgjörinu."
Nei, þetta er ekki úr Þjóðvilj-
anum, heldur nýjasta tbl.
Verslunartíðinda, málgagns
Kaupmannasamtakanna,
sem hrósa fjármálráðherra í
hástert. En skýringin á skjót-
um viðbrögum ráðherra liggur
kannski Ijós fyrir eða eins og
segir í greininni í kaupmanna-
blaðinu: „Áreiðanlega hafa
kaupmenn notið skilnings í
þessu efni þar sem hin ágæta
eiginkona ráðherrans er
kaupmaður og hefur án vafa
átt erfitt um vik að greiða sölu-
skattinn eins og aðrir kaup-
menn..“ Guðrún Þorbergs-
dóttir eiginkona Ólafs og
bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi
rekur prjónaverslunina Garn-
Gallerí á Skólavörðustígnum í
Reykjavík við miklar
vinsældir...B
Ófærð
á Vellinum
Lögreglan á Keflavíkurflug-
velli hefur ekki átt sjö dagana
sæla í snjóþyngslunum í vet-
ur. Lögreglustöðin er í Græn-
ási, sem er nú utan girðingar
hervallarins eftir að nýi vegur-
inn var lagður að Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Snjóþyngsli
hafa verið mikil í Grænásnum
sem víðar á svæðinum. Þrátt
fyrir ítrekaðar beiðnir hefur
herliðið neitað að moka snjó
af afleggjaranum að lögregl-
ustöðinni þar sem hún sé ekki
lengur inni á Vellinum. Þá
neita bæjaryfirvöld í Njarðvík
að koma nálægt þessum
mokstri. Völlurinn komi þeim
ekkert við. Ef ekki kæmi til ný
jeppabifreið sem lögreglan
hefur komist yfir, hefði hún
lítið getað sinnt skyldustörfum
sínum vegna ófærðar...B
um fundum.
áb tók saman
Föstudagur 3. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3