Þjóðviljinn - 22.04.1989, Page 2
SKAÐI SKRIFAR
Adólf frændi
Ég, Skaöi, hefi þegar sagt ykkur frá mörgum frændum mínum og þó
er sú upptalning hvergi nærri tæmandi. Það er svona að vera af
smáþjóð, maður er skyldur þessu öllu, hommum og kommum og hvað
þeir allir heita þessir smáflokkar.
En ég kvarta ekki, ég er hress eins og sjónvarpsþættirnir, eigi skal
haltur ganga, eins og kerlingin sagði eftir að hún valt niður stigann.
Ég á líka frænda sem heitir Adólf. Hann er nú fæddur mörgum árum
áður en Adólf Hitler komst til valda í sínu landi, en samt fékk hann þetta
nafn í heilagri skírn. Og það var svolítið undarlegt og eiginlega spá-
dómslegt. Því það var eins og við manninn mælt - um leið og Adólf
Hitlertók völd í Þýskalandi var þessi frændi minn orðinn kræfur nasisti
og bæði barði og beit með tann sem slíkur. Þetta hefur lengi verið
hálfgert feimnismál í fjölskyldunni svo ég segi ykkur alveg eins og er.
Enda er það mála sannast, að Adólf hefur aldrei fengist ofan af því að
trúa á nafna sinn Hitler, löngu dauðan og brenndan í bensíni ef Rússar
þá ekki stálu skrokknum á sínum tíma eins og þeirra var von og vísa.
Verstur er hann í apríl á ári hverju, en þá er afmælisdagur Hitlers. Þá
lokar hann sig inni með bjórkassa og brennivín og skoðar gömlu
myndaalbúmin sín og einkennisbúningana og spilar 78 snúninga
plöturnar með Horst Wessel og allt jaað. Og þá lætur hann sig dreyma
um þann glæsilega sess meðal þjóðanna sem fagrir og sterkir og
glæsilegir Islendingar hefðu fengið í Nýrri Evrópu Hitlers þarsem búið
væri að drepa alla homma og komma og júða og það pakk alltsaman.
Ég ber, sem gamall og góður Sjálfstæðismaður, að sönnu bæði
virðingu fyrir þjóðerninu og svo vissri staðfestu í skoðunum, en samt
get ég ekki að því gert, að mér finnst þetta heldur svona ópraktísk
pólitísk þrjóska hjá frænda mínum. Og þegar ég rakst á hann á
Snorrabrautinni á dögunum, þar sem hann var að kaupa brennivín
fyrir aldarafmæli Hitlers, þá sagði ég si sona:
Þú drekkur enn út á Adólf, frændi.
Auðvitað geri ég það, Skaði, sagði frændi minn. Ég er ekkert að
dingla þetta út í loftið með mína sannfæringu. Ég er sá sem ég er.
Geturðu ekki fundið þér einhvern félegri til að trúa á en þennan
glæpon Hitler? spurði ég.
Glæpon segirðu? sagði Adólf.Segðu mér eitt: hver er ekkiglæpa-
maöur þegar allt kemur til alls?
Ekki þú og ég að minnsta kosti, svaraði ég.
Kannski ekki. Og það er þá bara af því við erum svo miklir aumingjar
að við þorum ekki að vera glæpamenn, sagði Adólf.
Svo eru þetta svo úreltarog vitlausar hugmyndir hjá Hitler, sagði ég.
Úreltar? sagði hann. Ónei lagsi. Hitler hafði rétt fyrir sér.
Vertu ekki að þessu þrugli maður, sagði ég, Skaði.
Þrugli? Nei þú skalt aldrei standa mig að þrugli góði. Hugsaðu þig
betur um. Hitler sagði að negrar væru óæðri kynstofn - nú og sjáðu
bara þessa svokölluðu sjálfstæðu Afríku þar sem allt er í sukki og
eymd og ekki hægt að treysta póstþjónustunni fyrir bréfi á milli húsa.
Hitler hafði sfnar meiningar um slóttugheit gyðinganna - og sjáðu bara
hvernig þeir fara með aumingja arabana.
Eg vissi nú ekki að þú hefðir samúð með aröbum, sagði ég.
Nei, þeir eru lúsugt skítapakk, en ég leyfi engum júðum að ráðskast
með þá fyrir því. Þetta verður allt að gera vísindalega. Hitler sá fram á
að það fæddist alltof mikið af óþörfu fólki í heiminum og það þyrfti að
losna við það. En í staðinn fyrir að ganga hreinlega til verks eins og
hann, þá gera menn þetta með dæmigerðri engilsaxneskri hræsni
skal ég segja þér.
Hvernig þá ? spurði ég.
Hvernig þá? Þeir lána fátæklingunum í þessum svokallaða þriðja
heimi meiri peninga en þeir geta borgað og láta þá svo veslast upp af
hungri í vaxtasúpunni. Þetta er að sönnu snjallt en mér finnst það
eitthvað lummó og óheiðarlegt samt.
Jæja, sagði ég.
Ekkert jæja með það Skaði. Og vildi Hitler kannski ekki sameina
Evrópu gegn kommunum? Ekki veit ég betur. Fékk bágt fyrir — en svo
fóru allir að stæla hann. Stofnuðu Nató og Evrópubandalag og allt
þetta sem er náttúrlega komið frá Hitler, þótt það sé dálítið útþynnt í
útfærslu. Nei Skaði, þú kemst ekki frá því, karlinn varspámaður. Hann
sá meira að segja fyrir heilsubótarbyltinguna löngu fyrir tímann, át
gras og hafra og drakk mjólk, og hann lét teikna mikið ráðhús í Berlín
löngu á undan Davíð. Ég segi bara þetta Skaði, hvers vegna kann
mannkynið aldrei að meta sína bestu menn?
SA-
RÐINUM
EFÞETTA VÆRINÚ
SKRIFAÐ MEÐ Y!
Sprengiveisla í tippinu.
íþróttafrétt í DV
EKKIEINU SINNI
TIL BESSASTAÐA
Af ritstjórnarstóli Morgun-
blaðsins liggja engar leiðir upp á
við í íslenskum metorðastiga.
Heimsmynd
ÉGERGULLOG
GERSEMI
Heimurinn verður að vita að
ísland er til og að hér býr yndis-
legtfólk.
Heimsmynd
STALÍN ER EKKI
HÉR-EN
STEINGRÍMURER
Ég veit það þýðir ekki að
benda þeim 249.000 framsóknar-
mönnum sem byggja þetta land á
þá staðreynd, að heppnist verð-
stöðvun orsaki það vöruskort.
DV
ENGINN VERÐUR
ÓBARINN BISKUP
Ég þykist líka vita að mikill
meirihluti þessarar illa upplýstu
og vanþróuðu þjóðar sefur ekki á
nóttunni fyrr en Framsóknar-
flokkurinn er búinn að leiða yfir
okkur nýtt hafta- og ófrelsistíma-
bil, verra en hið fyrra.
DV
ENNERVON....
Karlmenn eru í meirihluta á
fjölmiðlum. Þar með erekki sagt
að þeir styðj i allir Albert.
DV
OG ENNERUAFREK
FRAMIN...
Foreldrar hennar afneituðu
henni þegar hún var þrettán ára
og þá hafði hún sofið hjá flestum
karlmönnum í Hannover.
- Þar búa 600 þúsund manns,
sagði Wagner hugsi. Heldurðu að
þú ýkir ekki svolítið?
Tíminn
ERÞETTAUMFER-
TUGSAFMÆLI
NATÓ?
Ef eg lendi í austanbyl
öllu verð eg feginn
Það er þó skárra af skömminni
til
að skíta vestanmegin.
Tíminn
HINN ÓTTTALEGI
LEYNDARDÓMUR
Hvers vegna lýgur D V?
Fyrirsögn í DV
FISKURINN HEFUR
FOGUR HLJÓÐ
Borgaraflokkurinn var ekki
stofnaður á sínum tíma eins og
aðrirflokkar. Hvorki af hópi
fólks kringum einn mann, né af
einum manni um hóp fólks.
Ásgeir Hannes Eiríks-
son í DV