Þjóðviljinn - 22.04.1989, Page 3
Dagur í heild
Nýtt helgarblaö hefur hler-
að að von sé á heildarsafni
Dags Sigurðarsonar í haust,
þessa fyrrum „enfant terrible"
í íslenskri Ijóðagerð. Skyldi
hann samþykkja silfraðan
kjöl? Það er Mál og menning
sem gefur út og eru jafnframt
líkur á nýjum Ijóðabókum það-
an eftir Gyrði Elíasson, Ingi-
björgu Haraldsdóttur og
Sigfús Bjartmarsson. Langt
komin í vinnslu er svo ný Ijóð-
abók eftir Stefán Hörð Gríms-
son sem ber heitið Yfir
heiðan morgun...B
Samtök um útgáfu
á Söngvum
Satans
Til að dreifa áhættunni sem
fylgir því að gefa út Söngva
Satans eftir Salman Rushdie
ætla margir útgefendur að
standa saman að þýsku þýð-
ingunni og líka þeirri frönsku,
sem eiga að koma út í haust.
Einnig hefur komið til tals að
PEN, alþjóðleg samtök rithöf-
unda, verði meðútgefendur
að þýðingunum sem koma út
af skáldsögunni í haust - og
þá einnig þeirri íslensku...B
Landbúnaðar-1
ráðherra í vanda
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra lenti í
klemmu á fundi í Miðgarði í
Skagafirði sl. sunnudag þeg-
ar bóndinn í Árgerði í Sæm-
undarhlíð sþurði hann hvort
ríkissjóður myndi bæta skaða
af því að varp hefði dottið nið-
ur í hænsnabúi hans eftir að
búfjártalningamenn mættu í
hænsnahús hans til að telja
fiðurfénaðinn. Ráðherranum
varð svarafátt. í fréttablaðinu
Feyki sem gefið er út á Norð-
urlandi vestra er sagt frá
þessum atburði. Þar segir að
rúmlega helmingur hænsn-
anna, sem eru 600 talsins,
hafi hætt að verpa og að varp-
ið sé enn á niðurleið. Þá óttast
bóndinn að tapa markaðin-
um. Talningarmennirnir eru
að sjálfsögðu leiðir yfir þessu.
Sólveig Arnórsdóttir hrepp-
stjóri í Útvík sem var í fylgd
talningarmannsins segir að
þeim hafi verið vel tekið af
húsfreyjunni í Árgerði en
bóndinn varfjarverandi. „...og
við fórum eins rólega í þetta
eins og okkur var unnt og
síður en svo með atgangi."
Ragnar meðal
"^^^mmNmmm^mNmmmmmmimmmmmmm
rithöfunda
Meðal nýrra félaga sem
inntökunefnd Rithöfunda-
sambandsins hefur mælt með
að aðalfundur félagsins síðar í
mánuðinum samþykki, er
Ragnar Arnalds alþingis-
maður og leikritaskáld. Alls
sóttu 22 um inngöngu að
þessu sinni og hlutu 19 um-
sóknir meðmæli nefndarinn-
ar, þar á meðal frá leikurunum
og rithöfundunum Guðmundi
Ólafssyni, Guðrúnu Ás-
mundsdóttur og Valgeiri
Skagfjörð og ungskáldunum
Guðmundi Andra Thors-
syni og Sigurlaugi Elías-
syni.B
j| BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Velkomin í Kolaport
Kolaport er opið frá 07:30-19.00 mánudaga - föstudaga. Gjaldið er 40
kr. fyrir hverja klukkustund. Mánaðarkort eru seld í varðskýli á 4000
kr. einn mánuð í senn. Skilatrygging mánaðarkorts er 1000 kr. Hægt
er að fá bíla geymda fyrir kr. 1600 pr. viku.
Unnt er að fá peningum skipt í varðskýli.
Símasjálfsali er á staðnum.
GATNAMÁLASTJÓRI
mroM———CTMB——BggaMMBMggBEBtCMBBaMBB——BBmB -
HAPPDRÆTTIDVAIARHEIMIUS
ALDRADRA SJÓMANNA
EFLUM STUDNING VID ALDRADA
MIDIÁ MANN FYRIR HVERN ALDRADAN
SAFNAR
MAKIÞINN
SKULDUM?
Ef svo er, hafðu þá í huga að
fjðlda hjónaskilnaða og sam-
búðarslita má rekja til þess að
annar aðilinn safnaði skuldum
en hinn fylgdist ekki með.
Dæmi um þetta eru fjölmörg.
Á ÞEYTINGI MILLI
LÁNAST0FNANA?
Sumir þræða lánastofnanir,
án þess að maki hafi hugmynd
um. Stundum er þetta vegna
draumóra um skjótan gróða,
stundum vegna rangra fjárfest-
inga sem komnar eru í óefni og
svo kemur jafnvel fyrir að fólk
tekur á sig skuldir vina og
vandamanna.
BERÐ ÞÚ EKKI LÍKA
ÁBYRGÐ?
Þið berið bæði ábyrgð á fjár-
málum heimilisins, og því er al-
veg sjálfsagt að fylgjast vel
með þeim. Of seint er að setja
sig inn í málin eftir á.
Stuðlaðu að því að treysta
sambúðina við maka þinn og
fylgstu því með hvaða skuldum
hann eða hún safnar. Þið berið
sameiginlega ábyrgð á velferð
fjölskyldunnar.
HAFÐU ÞITT Á HREINU
RÁÐGIAFASTOÐ
HUSM/UÐISSTOFNUNAR
Laugardagur 22. apríl 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3