Þjóðviljinn - 16.06.1989, Síða 25
QÆGURMAL
ANDREA
JÓNSDÓniR
Prince
... AF LIFENDUM...
Prlnœ var fenginn til að semja tónlist
við nýja kvikmynd um Batman sem
frumsýnd verður í Bandaríkjunum í
sumar... það var einn leikenda í kvik-
myndinni, sjálfur Jack Nicholson,
sem fékk hina konunglegu ótukt til
verksins. Eitt laganna, Batdance,
hefur nú verið gefið út á smáskífu.
... OG DAUÐUM ...
John Clpolllna, gitarleikari og einn
af stofnendum San Francisco hljóm-
sveitarinnar Quicksilver Messenger
Service, Iést30. maí síðastliðinn, 45
áraaðaldri, afvöldum lungnasjúk-
dóms sem við köllum líklega lungna-
þembu. Cipollina hafði undanfarin ár
oft dvalið á sjúkrahúsi af þessum or-
sökum. Gítarstíll hans þótti mjög sér-
stakur, en hann blandaði flamingó-
hefð, rafmögnuðum blús og „sæka-
delíu" hippanna. Auk Quicksilver lék
Cipollina í hljómsveitunum Copper-
head og um tíma í velsku hljóm-
sveitinni Man, sem spilaði hér í
Laugardalshöll rúmlega 1970... lík-
lega '71, en gítarstíll Cipollina þótti
hafa töluverð áhrif á þá sveit, og eins
nýbylgjusveitina Television sem var
og hét á 8. áratugnum. Síðari ár lék
Cipollina með hljómsveit sem skipuð
ergamalreyndum rokkurum úrhippa-
hljómsveitum San Francisco, t.d. úr
Country Joe and the Fish og Big Brot-
herand the Holding Company, hljóm-
sveitinni sem Janis Joplin varð fræg
með... eða öfugt. Þess má loks geta,
að þessi hippasamansafnssveit heitir
Risaeðlumar-The Dinosaurs...
John Cipollina
Rafmagnslaus
Síðan skein sól á landsbyggðina...
Það eru ekki bara Bubbi og
Megas sem í vor - nema við förum
að geta kallað það sumar - hafa
flutt fólki úti á landi söng sinn
með órafmögnuðum undirleik. í
fótspor þeirra ætlar nefnilega heil
hijómsveit að feta næstum eins
hljóðlega og á sokkaleistunum, en
liðsmenn hafa fram að þessu ver-
ið kenndari við rokkstígvélin.
Þetta eru þeir félagar í Síðan
skein sól, og ætla að hefja leik á
Höfn í Hornafirði á mánudags-
kvöld. Þaðan fara þeir á Breið-
dalsvík, Norðfjörð og rekja
áfram Austfirðina og halda síðan
um Norðurland vestur á bóginn.
Vesturlandið verður síðan fetað
suður á bóginn. Þetta og dulítið
fleira sagði okkur Helgi Björns-
son söngvari, þegar við höfðum
samband við hann í Leiklistar-
skólanum þar sem hann var
eitthvað að huga að list þeirrar
stofnunar...
- Ætliði að skilja Vestfirðinga
útundan?
-Nei, nei... Þeir og Sunnlend-
ingar bíða bara betri tíma, því að
þetta verður strangur túr, einir
hljómleikar á kvöldi í þrjár vikur,
og þá þurfum við áð fara í stúdíó
til að undirbúa nýja plötu fyrir
haustið.
- Geturðu sagt eitthvað um
prógrammið, eru þetta alvarlegir
tónleikar eða ball...?
- Þetta verða tónleikar, en
með sveiflu... þannig að fólk á að
geta fundið hjá sér þörf til að
standa upp og dilla að minnsta
kosti mjöðmunum. Við verðum
bæði með lög sem komið hafa út á
plötum með okkur, og eins nýtt
efni sem er nú að koma út á safn-
plötu og líka lög sem við ætlum á
stóru plötuna sem við erum að
fara að vinna. Auk þess spilum
við lög eftir aðra, bæði innlend og
erlend.
Það má segja að við séum að
kanna ný lönd með þessum lands-
byggðatúr og það í öðrum skiln-
ingi en landfræðilegum - bassa-
leikarinn fæst nú við kassagítar-
spil og trommarinn þenur
nikku...
- ... og þar með óskum vér
þeim Síðsólarmönnum góðrar
ferðar - og þeir fýrir austan ættu
ekki að þurfa að fá heyrnarhlíf-
arnar lánaðar í frystihúsinu til að
dilla sér með þeim rafmagns-
lausu.
Ort um eigin-
fjárstöðuna
hér og þar
Á aðalfundi SÍS fyrir nokkru
sátu fulltrúar gneypir undir
harmatölum Guðjóns B. Ól-
afssonar forstjóra um bágan
hag Sambandsins. Þá hraut
þessi staka hér af munni eins
þeirra, Jóns Thórs Haralds-
sonar:
Það syrtir í álinnm og voðinn er vís
og verðmætasköpunin þver,
eiginfjárstaðan er afleit hjá SÍS
- og ekki er hún betri hjá mér. ■
Stúdents-
afmæli í Moskvu
Menn halda upp á stú-
dentsafmæli sín með ýmsum
hætti - en fáir munu gera það
með jafnmiklum tilþrifum um
þessar mundir og þeir sem nú
eru fjörutiu ára stúdentar frá
menntaskólanum í Reykjavík.
Þeir ætla til Sovétríkjanna.
Mun tvennt ráða öðru meir um
staðarval til skólasystkina-
fundar: annarsvegar forvitni
um Gorba, hinsvegar sú
staðreynd að einn, skóla-
bræðranna, Tómas A Tóm-
asson, er nú sendiherra í
Moskvu.
Meðal þeirra sem útskrifuð-
ust frá MR fyrir fjörutíu árum
eru þau Vigdís forseti, Svava
Jakobsdóttir rithöfundur,
Ragnhildur Helgadóttir fyrr-
um ráðherra og Þór Vil-
hjálmsson fyrrum hæstarétt-
arforseti, svo aðeins fá séu
nefnd. ■
Sturtað niður
í ystu myrkur
Auglýsingastríð Visa og Kre-
ditkorta hefur verið hat-
rammlegt á síðustu vikum og
bæði siðanefnd Sambands
íslenskra auglýsingastofa og
Verðlagsstofnun hafa
blandað sér í málin. í gær
sendi Verðlagsstofnun frá sér
yfirlýsingu þar sem segir að
Eurocard vegi að Visa Island
á ótilhlýðilegan hátt og fer
fram á að fyrirtækið taki
auglýsingamál sín til endur-
skoðunar. Einari S. Ein-
arssyni forstjóra Visa er
mikið niðri fyrir í nýjasta tölu-
blaði Visafrétta þar sem hann
segir m.a. að í auglýsingum
sínum gefi Eurocard til kynna
að korthafar Visa séu yfirleitt
óvelkomnir gestir, „sem megi
búast við því að verða beittir
ofbeldi, varpað á dyr, sturtað
niður í ystu myrkur, þola
dauða í eyðimörkinni eða
muni deyja út eins og risaeðl-
urnar." En sjaldan á einn í hlut
þá tveir deila því Verðlags-
stofnun segir i yfirlýsingu sinni
í gær að Visa ísland hafi einn-
ig auglýst á þann hátt að að-
eins sé stigsmunur á þeim og
auglýsingum keppinautarins.
Nær væri að greiðslukortafyr-
irtækin auglýstu gæði og eðli
þjónustu sinnar frekar en að
beina spjótum sínum hvort að
öðru. Og þar hafiði það. ■
Inga Bjarnasón
í fótspor
Helga og Helgú
Einsog kunnugt er hefur LR
yfirgefið Iðnó og hjónin Helgi
Skulason og Helga Bach-
mann hafa hreiðrað um sig á
sviði þessa gamla leikhúss
með sýningu á Virginíu Woolf.
Verður verkið frumsýnt á
þriðjudagskvöld. Það fór vart
framhjá neinum við frumsýn-
ingu Virginíu á Akureyri í vetur
að allt fór í bál og brand milli
Ingu Bjarnason, sem hafði
tekið að sér að leikstýra verk-
inu fyrir Leikfélag Akureyrar,
og aðalleikaranna þeirra
Helga og Helgu. Endaði það
með því að Inga vildi ekki að
sitt nafn yrði bendlað við sýn-
inguna. Nú herma fregnir
hinsvegar að Inga hafi fengið
Iðnó seinna í sumar þegar
sýningar hætta á Virginíu og
ætli sér að setja þar á svið
klassískt meistarastykki.
Varaflugvöllurinn
staðreynd
Nú er Ijóst að páfaheim-
sóknin leysti varaflugvalla-
málið í eitt skipti fyrir öll. Þegar
hann kyssti flugbrautina á
Keflavíkurflugvelli varð flug-
völlurinn sjálfkrafa varaflug-
völlur. Síðan verður hægt að
setja nýjan aðalflugvöll í Að-
aldal og þyrfti hann ekki að
vera ýkja stór.
Fóstrur athugið
Forstööumaöur óskast á dagvistarstofnun í
Vestmannaeyjum frá og með 1. ágúst n.k.
Fóstrumenntun æskileg. Fjölbreytt starf í
skemmtilegu umhverfi. Nánari upplýsingar
veitir félagsmálastjóri í síma 98-12816.
Þroskaþjálfi
Þroskaþjálfi óskast til starfa hjá Vestmanna-
eyjabæ frá og meö 1. september n.k. Fjölbreytt
starf. Nánari upplýsingar veita sálfræöingur
eöa félagsmálastjóri í síma 98-11088.
Aðalfundur
Aðalfundur Prentsmiöju Þjóðviljans hf. verður
haldinn þriðjudaginn 27. júní, kl. 18.00 að Síðu-
múla6.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2.önnurmál.
Stjórnin