Þjóðviljinn - 16.06.1989, Page 30
Hvað á að gera um helgina?
Jónas Viðar Sveinsson (málverk) í
Alþýðubankanum Akureyri, opið á
afgreiðslutíma.
Edda Jónsdóttir með sýningu í Lista-
salnum Nýhöfn. Myndir unnar með
vatnslit, olíukrít og blýanti. Virka 10-
18, helgar14-18,21.6.
FÍM-salurinn: Guðrún Guðmunds-
dóttir, þrívíðar veggmyndir úr pappír.
Virka 13-18, helgar 14-18. til 27.6.
Galleri Madeira, Evrópuferðum
Klapparstíg 25. Pétur P. Johnson
sýnir Ijósmyndir. Hefst í dag kl. 17.
8-18 virkadagatil 16.7.
Hafnarborg, Strandg. 34 hf, Á tólf-
æringi, 14-19 alla daga nema þrið. til
7.8.
Listasafn ASÍ: Gunnþórunn
Sveinsdóttir frá Mælifellsá, til 18.6.
Virka 16-20, helgar 14-20.
Norræna húsið anddyri: Jörð úr
ægi, myndun Surtseyjarog hamfar-
irnar í Heimaey. Hefst lau. kl. 16,9-19
nemasu. 12-19 til 24.8. Kjallari:
Sumarsýning á verkum Jóhanns Bri-
em hefstkl. 16lau,daglega14-19til
24.8.
Magnús Tómasson sýnir í útibúi
SPRON Álfabakka 14. Opið á af-
greiðslutímatil 1 sept.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýnir
Ijósmyndiraf Jóhannesi Páli II páfa
eftir Adam Bujak. Opið alla daga 11 -
19.
Myndlistarsalurinn Muggur Aðal-
stræti 9: Elín Karítas Thorarensen
sýnir málverk og vatnslitamyndir, heft
Id. kl. 14. Virka 16-19, helgar 14-19 til
12.6.
Slunkaríki, ísafirði. Rósa Ingólfs-
dóttir opnar sýningu á grafíkmyndum
Id. 10.6. Sýninginstendurtil25.6.,
opiðfimmtud.-sunnud. 16-18.
Listasafn Sigurjóns, opið ld.,sd. 14-
17. Mán, miðv.fim. 20-22. Tónleikar
þrið. 20.30. Fd:lokað. Kaffistofan
opin á sama tíma. Tekið á móti hóp-
um eftirsamkomul.
Saf n Ásgríms Jónssonar, lands-
lagsmyndir, 13:30-16 alla daga nema
mán. Til septemberloka.
Þjóðminjasafn opið alla daga nema
mán. 11-16.
Fundur Ameríku. Sýning í Sjóminj-
asafni íslands, Vesturgötu 8 Hf.
Opin í sumar alla daga nema mán.
14-18.
Listasafn Einars Jónssonar opið
alla daga nema mán. 13.30-16.
Opnum sýningu á listaverkum jarð-
argróðans með vorinu. Aðgangur
ókeypis sé góðri umgengni heitið,
annars er goldið með himinháum
upphæðum vanvirðingar. Folda.
Kjarvalsstaðir: Hin árlegasumar-
sýning á verkum Kjarvals. Uppstil-
lingarog kyrralífsmyndir. Stendurtil
20. ágúst. Opið daglega frá 11 -18.
Ásmundarsalur: Ásgeir Lárusson
sýnir vatnslitamyndir. Til 25.6.
Þrastarlundur v/ Sog, olíumálverk
eftir Mattheu Jónsdóttur. Til 26.6.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Bílaverkstæði
Badda, su í féiagsheimilinu Þing-
hamri, Varmalandi í Borgarfirði, mán.
fél.heim. Klif, Ólafsvíká Snæfells-
nesi.
Klambratún, Hagbarður og Signý,
norskur gestaleikur sunnudag.
TÓNLIST
Kammersveit Seltjarnarness, tónl. í
Seltjarnarneskirkju mánud. 20:30.
Con-Brio, kór frá Norður Noregi, tón-
leikar í Langholtskirkju mánud. þrið.
miðv. 19. og 21. kirkjutónlist, 20.
kammertónl.
ÍÞRÓTTIR
Fótbolti. 1 .d.ka. Þór-FH, ÍA-KAföd.
20.00, Fram-Valursd. 20.00, KR-ÍBK
mád. 20.00, Víkingur-Fylkirþrd.
20.00.2.d.ka. Selfoss-Leiftur,
Völsungur-UBK, Stjarnan-Einherji,
Tindastóll-Víðirföd. 20.00.1 .d.kv.
KA-Þór, Stjarnan-Valur mád. 20.00.
Glíma. Meistaramót í axlatökum
Kennaraháskóla föd. 19.00. Keppt í
fjórum þyngdarflokkum, keppendur
einnig frá Skotlandi, Bretagne og
Hollandi og sýning á bretónskum
fangbrögðum. Námskeið í
keltneskum fangbrögðum undir
Laugardalsvelli 18.-21.19.00-21.00.
Uppl. hjá GLf s. 680045 eða hjá Jó-
hannesi s. 686904.
Sigurður Þór Salvarsson
dagskrárgerðarmaður á Rás 2
„Ég verð nú mest heima hjá mér um helgina, en fer sennilega með
fjölskylduna í bæinn 17. júní. Svo vinn ég eitthvað í garðinum og
lóðinni, þannig að þetta verður þægileg helgi."
Þjóðleikhúsið sýnir Bílaverkstæði Badda í Borgarfirði og á Snæfelisnesi á sunnudag og mánudag. Haffi og
Raggi, Jóhann Sigurðarson og Sigurður Sigutjónsson.
HITT OG ÞETTA
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, í
kvöld kl. 22, Matthías Johannessen
og Pétur Jónasson flytja dagskrá
byggða á samspili Ijóðs og gítars.
Norræna húsið, Borgþór Kærne-
sted heldur fyrirlestra um íslenskt
samfélag á laugardögum í sumar. Á
sænsku kl. 17, finnsku kl. 18. Til 26.8.
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni: Gönguferð hjá Göngu-
Hrólfi fellur niður á morgun. Opið hús
í Goðheimum, Sigtúni 3, lau frá 20,
dansleikur og skemmtiatriði, su. frjáls
spilamennska kl. 14, dansað kl. 20.
Ferðafélagið: Selvogsgatan lau kl.
10, Eldvörp-Staðarhverfi, su kl. 13.
Helgarferðir 16-18.6: Þórsmörk,
Mýrdalur-Heiðardalur-Dyrhólaey-
Reynishverfi.
Hana nú, vikuleg laugardagsganga
frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Útivist: Su kl. 8, Hítardalur,
Þórsmörk-Goðaland, kl. 13 Fjalla-
hringurinn 3. ferð, a. Stóribolli, b.
Grindaskörð. Helgarferðir16-18:
Þórsmörk, Vestmannaeyjar,
Langavatn-Hítardalur.
Af hlutlausri naflaskoðun
FJÖLMIÐLAR
SONJA B.
JÓNSDÓniR
Ég ætla að byrja á því strax að
viðurkenna að það var ekki laust
við að hjartað í mér færi að slá
örar þegar Þjóðviljamenn fóru
þess á leit við mig að ég skrifaði
fjölmiðlagreinar í blaðið - bar-
asta sísona beint frá eigin brjósti!
Bæði var það nú að þótt ég hafi
oft undrast það í hljóði að ég væri
ekki beðin um slík greinaskrif þá
varð ég auðvitað afskaplega upp
með mér, en á móti vó sú stað-
reynd að ég var nógu lengi í spor-
um fréttamanns með sjálfsvirð-
ingu til þess að fela skoðanir mín-
ar svo rækilega að ég er enn að
leita að þeim.
Hlutleysi er nefnilega talin
vera helsta dyggð fréttamanna og
er einkum og sér í lagi ætlast til
þess að fréttamenn ríkisfjölmiðl-
anna gæti fyllsta hlutleysis í frétt-
aflutningi. Og það er heldur ekk-
ert skrýtið, þeir eiga að veita
öllum. landsmönnum hreinar og
ómengaðar upplýsingar um það
sem er að gerast í okkar samfélagi
og við verðum, vessgú, öll að
borga brúsann, hvar í flokki sem
við stöndum.
Fréttamenn með snefil af
sjálfsvirðingu leggja sig því alla
fram við að fela skoðanir sínar,
oft með þeim afleiðingum að þeir
finna þær ekki aftur þegar þeir
þurfa á þeim að halda. Til þess að
skilja betur hvað ég á við geta
menn til dæmis ímyndað sér ang-
ist fréttamannsins þegar í kjör-
klefann er komið. Og sálarstríðið
þar vekur aftur þá spurningu
hvort hlutleysiskrafan sé ekki
brot á mannréttindum, að
minnsta kosti á meðan ekki er
greitt sérstakiega fyrir þá miklu
vinnu sem fer í það að fela skoð-
anir sínar og jafnvel ganga af
þeim dauðum.
Þrátt fyrir þessa viðleitni
fréttamanna þykjast menn stund-
um sjá að þessi eða hinn sé sko
alls ekkert hlutlaus, einn sé ör-
ugglega stækasta íhald og annar
argasti kommi. Og skyldi engan
furða. Hlutleysið er érfitt viður-
eignar, sumir segja ómögulegt,
vegna þess að hver maður skoðar
heiminn beina leið frá sínum
eigin nafla og sjónaukann sækir
hann í sitt umhverfi, sitt uppeldi
og sína lífsreynslu. Sumir eru líka
þannig gerðir að þeir taka
gagnrýnislaust við ríkjandi gildis-
mati, siðum og venjum og halda
að það sé hlutleysi að fjalla um
hlutina út frá því venjubundna og
oft staðnaða hugsanamynstri. Og
þannig laumast viðhorf frétta-
mannsins, fréttastjórans eða
jafnvel heilu hópanna, iðulega
inn í umfjöllunina.
Þetta gerðist einmitt um dag-
inn þegar fjallað var í fréttum um
grein aðstoðarlandlæknis í
Læknablaðinu, en þar skýrði
hann frá því hvernig röng með-
höndlun á gamalli konu á slysa-
deild Borgarspítalans leiddi til
dauða hennar. Það kom fram í
fréttinni að konan hefði dottið og
verið flutt á slysadeildina, en þar
sem hjúkrunarfólki hefði verið
sagt að hún væri drykkfelld hefði
það lagt hana til hliðar án þess að
taka röntgenmynd. Síðar hefði
bara komið í ljós að konan var
alls ekkert drykkfelld og var það
helst að skilja á fréttaflutningn-
um að fyrst hún var ekki fyllibytta
þá hefði hún sko átt að fá al-
mennilega þjónustu og röntgen-
mynd.
Viðhorfið sem þama læddist
fram fór heldur fyrir brjóstið á
mér því ég hef alltaf haldið að
þeir sem slasast og komast undir
læknishendur væru skoðaðir og
myndaðir í bak og fyrir, fullir eða
ófullir. Ég hef líka alltaf haldið að
DV
’réttír
talinn ölvaður og
ranga
J nýjasta heíli l-'eknahlaöíms.
fVétíahréfe Ja/ktia, refur aöstoöar-
landlæknir. ^ Guðjón Mafrmisarín.
fcvarianir veíó>a heiÖirtgÖisfé^ösju :
húröSarídi. 1
Gaðjón «agisf -sknfa i>e»sa frásögu
fil aö ’valýja kna tii umimgsr«nar
oj; gertr það þó aö Jmkitír, sem Sas
frásógniha. faafi faJíö förántegí aö
hirta hana i Ijnfcnatóaðinu.
16 daga píeJarganga
Siöasia öutmudaí'ínn f>rír jól var
komiii nwö nidraöan sjúfcling á aiysa-
cieiid Bmgarspftalanö. Þ«la var IS.
desembéi'en sextfrn dógnm írfflan eðe
2. januav. anríawt sjukLingurinn. Ðán'
arorvfk samkvannt fcmfnlngu var
broi á efstu báLsiiöutn með nrisgengi,
sem þrýsti á eísta híuui og ueösta
hiuta manTukíiifs. Afun frrýatingur á
m?vimkó!f hafi« vakLið dauöa tg'úk!-
mgshts,
í grela aftetoöariandlœfcnls I LtefcnaWaöJnu nepr tré þvl :
þeir ættu rétt á því, fullir eða
ófullir. Og ég hef ennfremur
alltaf haldið að hlutverk lækna
væri að reyna - að minnsta kosti -
að bjarga mannslífum, án þess að
spyrja fyrst að því hvort sjúkling-
urinn sé nokkuð alkóhólisti!
í fréttum af þessu máli var hins
vegar aldrei tekið á þessari hlið
málsins en ég hefði gjarnan viljað
fá að heyra svarið við því hvort
læknar á slysadeild Borgarspítal-
ans væru vanir að meðhöndla
drukkið fólk með þessum hætti.
í framhaldi af þessu máli gæti
ég líka vel hugsað mér að fá svar
við þeirri spurningu hvort við-
horfið til alkóhólista, eða drykk-
fellds fólks, sem þama kom fram
sé almennt, eða hvort þetta var
bara viðhorf viðkomandi frétta-
manna.
Þetta var sem sagt laumu-
viðhorfið sem ég þóttist greina í
þessum fréttaflutningi en ég hef
heyrt um fleiri. Fólk sem ég
þekki, og farið er að reskjast,
þóttist nefnilega greina þarna
það viðhorf að ekki þyrfti að vera
að splæsa rándýrri þjónustu,
myndatöku og öllu á gamalt fólk
- það ætti hvort sem er ekki svo
Iangt eftir! Þetta viðhorf var þó
ekki eignað fréttamönnum held-
ur læknum.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. Júní 1989