Þjóðviljinn - 24.11.1989, Page 9
Leikfélag Akureyrar
Bemarða að kveðja
„Aösókn að Húsi Bernörðu
Alba hefur verið betri en við áætl-
uðum í upphafi,” segir Sigurður
Hróarsson, leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Akureyrar, „en síðustu
sýningar á þessu fræga verki
Garcia Lorca verða núna laugar-
dagskvöld 25. og sunnudags-
kvöld 26. nóvember kl. 20.30.
„Talsvert af hópum hefur kom-
ið úr nágrannabyggðarlögum, en
Leikfélagsfólk verður hins vegar
líka vart við að Akureyringar
hafa sótt leikhúsið vel í vetur.
Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri
og aðrir aðstandendur sýning-
arinnar hafa hlotið mikið lof
gagnrýnenda fyrir verk sitt.”
„Hvað um næsta verkefni?”
„Æfingar eru hafnar á jóla-
verkefninu, sem eer nýtt barna-
og fjölskylduleikrit eftir Iðunni
og Kristínu Steinsdætur og ber
það heitið „Eyrnalangur og ann-
að fólk”. Ragnhildur Gísladóttir
hefur samið tónlist við verkið og
við fáum m.a. Guðrúnu Þ.
Stephensen sem gestaleikara frá
Reykjavík.”
Sigríður Hagalín í hlutverki Bernörðu Alba. í baksýn sjást María
Sigurðardóttir í hlutverki Mörtu og Elva Ósk Ólafsdóttir í hlutverki
Aðelu.
Hringur Jóhannesson við eitt verka sinna á sýningunni í Listasafni Así. Ljósm. Kristinn
Hið óvænta sjónarhom
Listasafn ASÍ við Grensásveg
opnar sýningu á málverkum
Hrings Jóhannessonar á laugar-
dag kl. 14. Þar eru einkum verk
frá þessu ári, raunsæislega mál-
aðar myndir af afmörkuðum
hlutum og flötum úr umhverfi
sem Hringur gjörþekkir frá
heimaslóðum sínum í Aðaldal.
Myndir Hrings eru þess eðlis
að vel mætti spyrja, hvers vegna
málarinn hafi ekki notað
handhægari aðferð og tekið ljós-
mynd af viðfangsefninu. En við
það að mála smáatriðin í þröngu
sjónarhorni á heysátu, þýfi, poll í
götu eða speglun í glugga með
natni natúralistans öðlast við-
fangsefnið eins og nýja og nær-
komnari sjónræna merkingu,
þegar best lætur. Flestar mynd-
irnar eru að sögn Hrings málaðar
á þessu ári, en með hafa flotið
nokkrar frá fyrri árum.
Samfara þessari sýningu kem-
ur út hjá Listasafni ASÍ og Lög-
bergi vegleg bók um listamann-
inn skreytt fjölda litmynda.
Bjöm Th. Björnsson hefur ritað
formála að bókinni.
Listasafn ASÍ tekur nú upp á
þeirri nýbreytni að senda sýningu
Hreins út á landsbyggðina. Verð-
ur hún opnuð á Akureyri 16. des-
ember og á Egilsstöðum 31. des-
ember. Aðgangur að sýningunni
er ókeypis, en sýningin við
Grensásveg er opin virka daga kl.
16-20 og 14-20 um helgar til 10.
desember.
Föstudagur 24. nóvember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SfÐA 9