Þjóðviljinn - 24.11.1989, Síða 19
hvað sem tengist höfði fólks, má
treysta því að hann sé að leggja
áherslu á táknræna merkingu
höfuðsins.
1. Höfuðhögg. Jórunn keyrði
sokkana um höfuð Melkorku.
Eftir það flytur Melkorka af bæn-
um. (13. kafli). Hámark ósvífn-
innar við konungborna konu eins
og Melkorku var að óvirða höfuð
hennar.
2. Höfuðhögg. Hallur bróðir
Ingjalds Sauðeyjagoða hafði
ójafnað í frammi og vildi „færa“
höggjárn „í höfuð Þórólfi“ (14.
kafli). Það þótti ruddalegt að
höggva í höfuð manna, og í
þokkabót er hér ófélegt vopn í
hendi. Hallur er með þessu móti
afhjúpaður sem lítt siðaður fugl,
enda „fauk“ brátt hausinn af hon-
um sjálfum.
3. Afhausun. Þórólfur heggur
höfuðið af Halli í Bjarneyjum
(14. kafli). Með þessu höfuðflugi
er undirbúið ríkidæmi Ólafs pá
síðar í sögunni, þótt hann komi
þarna hvergi nærri né ættmenn
hans.
4. Höfuðfat. Ólafur pá, nafnið
pá er hugsanlega tenging við páfa
eða páfugl, hvort tveggja kon-
ungs eða höfðingjatákn, ef til vill
með vísan til höfuðprýði eða
höfuðfats (16. kafli).
5. Höfuðsmátt. Guðrún útbjó
fyrsta manni sínum skyrtu með
svo stórri höfuðsmátt að skilnað-
arsök var. (34. kafli).
6. Horn. Fjögur horn nautsins
Harra, eitt brotið af, forspá um
dauða Kjartans. (31. kafli.)
7. Höfuðsbani. Helgi Harð-
beinsson þerrar blóð Bolla í
blæju Guðrúnar og segir sig
gruna að „undir þessu blæjuhorni
búi minn höfuðsbani“. (55.
kafli).
8. Höfði. Guðrún Ósvífurs-
dóttir og Snorri goði semja um
aðferð til að hefna Bolla á hamri
þeim er Höfði heitir við Hauka-
dalsá í Lækjarskógslandi. (59.
kafli).
9. Höfuðið nefndi ellefu. Þor-
gils Hölluson vóg silfur til að bæta
Helga Harðbeinsson á alþingi en
Auðgísl Þórarinsson hjó af hon-
um höfuðið sem nefndi töluna el-
lefu um leið og það fauk af boln-
um. (67. kafli). Þetta verður til-
efni orðaleiks þegar Snorri goði
heyrir tíðindin og segir við
fregnberann: þú hefur misskilið
þetta. Þorgils hefur vegið (silfr-
ið).
10. Þöngulshöfuð. Halldór Ól-
afsson í Hjarðarholti neitar að
handsala land sitt Þorkatli
Eyjólfssyni og segir að fyrr muni
hann kynnast þönglahausum á
Breiðafjarðarbotni en ná landi af
sér.
HEFUR ÞU
TROMP
ENDI?
HUGM
Þátttaka er öllum heimil.
Tilgangur samkeppninnar er
að fá fram hugmyndir sem geta
orðið grundvöllur að stofnun
nýrra fyrirtækja eða orðið
þáttur í starfsemi núverandi
fyrirtækja á Akureyri.
Skilafrestur hugmynda er til
15. desember 1989.
Dómnefnd er skipuð fulltrúum
Atvinnumálanefndar
Akureyrar,
Iðntæknistofnunar
1. verðlaun kr.
2. verðlaun kr.
3. verðlaun kr.
AMKEPPNI
íslands og Háskólans
á Akureyri.
Dómnefnd metur hugmyndirnar
eftir arðsemi, líklegri veltu,
atvinnutækifærum, þörf, nýjung
og hvernig starfsemin fellur að
atvinnulífinu í bænum.
Skilmálar samkeppninnar
og nánari upplýsingar fást á
skrifstofu Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hf.,
Geislagötu 5,
sími 96-26200.
300.000,-
200.000,-
100.000,-
Atvinnumálanefnd Akureyrar
NU GETUR ÞU BORGAD
- OG -
Hafðu samband við skrifstofur Rafmagnsveitu Reykjavíkur
og Hitaveitu Reykjavíkur.
3
RAFMAGNSVEITA
REYKiAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22
|f| HITAVEITA REYKJAVIKUR
IgP GRENSÁSVEGI 1, SÍMI 600100
ún er skáldsaga.
ún heiti'r Draumur
þinn rætist tvisvar.
ún er eftir Kjartan
Árnason.
Þetta er saga um
glaðværð lífsins og
hina óumflýjanlegu
skugga, saga um dreng
í áhyggjuleysi daganna,
saga um ungling í al-
gleymi fálætisins, saga
um mann sem stendur
andspænis vali milli lífs
og dauða.
Kitlandi og áhrifarík
skáldsaga. Verð kr.
2.531,-
Gluggar hafsins eftir
Jóhann Hjálmars-
son er þrettánda Ijóða-
bók höfundar.
Suðrænt andrúmsloft
og rammíslensk
djúphygli mætast hér í
kyrrlátum, ágengum
Ijóðum.
Einstök bók, full af
mannlegri hlýju.
Verð kr. 1.313,-
Draumur þinn rætist
tvisvar
Gluggar hafsins
Tvær stórar bækur frá
litlu forlagi.
ÖRLAGIÐ
Meðalholti 9
105 Reykjavík.
Sími 62 26 18