Þjóðviljinn - 24.11.1989, Qupperneq 30
Hvað á að gera um helgina?
Ásmundarsalur v/ Freyjugötu, Birna
Kristjánsdóttir, myndverk. Til 3.12.
14-18 virka daga, 14-19 helgar.
FÍM-salurinn, Bautasteinar, Ingi-
björg Eyþórsdóttir, málverk. Til
28.11.13-18 virkadaga, 14-18helg-
ar.
Gallerí Borg, Pósthússtræti, Temma
Bell, olíumyndir. Til 28.11. Virka daga
10-18,14-18 helgar. Grafík- Gallerí
Borg, Austurstræti 10, Sossa (Mar-
grét Soffía Björnsdóttir), nýjar grafík-
myndir. Til 1.12.9-18virkadaga.
Gallerí 11, Skólavöröustíg 4 A,
Ólafur Lárusson, teikningar og mál-
verk.Til 30.11.14-18daglega.
Gallerí Hulduhólar, Mosfellsbæ,
Steinunn Marteinsdóttir, veggmyndir
ognytjalist, 13-19 lau ogsu.
Gallerí List, Skipholti 50 B, Ella
Magg, málverk. Til 26.11.10:30-18
virka daga, 14-18 helgar.
Gallerí Madelra, Evrópuferðum,
Klapparstíg 25, Björgvin Pálsson,
Ijósmyndastækkanir. Til 24.11. virka
daga 8:30-18.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9, Árni Páll, myndlist. Til 24.11.9-18
virkadaga.
Hafnarborg, Strandg. 34 Hf, Til 3.12:
Litli salurinn, Ómar Svavarsson,
olíumálv. og vatnslitamyndir, 14-19
alla daga nema þri. Kaffistofa: Árni
Elvar, vatnsl.myndir og teikn. 14-19
alladaga.
Hestsháls 2-4, kynning FÍM-salarins
og húsg.versl. Kristjáns Siggeirs-
sonar á verkum Bjargar Örvar. Til
nóvemberloka.
íslenska óperan, Jón M. Baldvins-
son, nýogeldrimálverk. 16-19dag-
lega um óákveðinn tíma.
Kjarvalsstaðir, opið daglega 11-22.
Arvid Pettersen, málverk. Til nóv-
emberloka. Jóhanna Bogadóttir,
málverk og teikn. Til 3.12. Ingibjörg
Styrgerður Haraldsdóttir. Til 2.12.
Listasafn ASÍ, Hringur Jóhannes-
son, málverk, opn. lau kl. 14. Til
10.12.16-20 virka daga, 14-20 helg-
ar.
Listasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
inn alladaga 11-17.
Listasafn Sigurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
þri 20-22.
Mokka, T rúðarnir á ströndinni,
vatnsl.mynd. e/ Kristján Hreinsson.
Til 10.12.
Norræna húsið, kjallari: Svava
Björnsdóttir, pappírsskúlptúrar, opin
lau kl. 14.TÍ110.12.14-19 daglega.
Anddyri: Nordvision 30 ára.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Ágúst Pet-
ersen, málverk.Til6.12.10-18virka
daga, 14-18 helgar.
Riddarinn, Hafnarfirði, Við búðar-
borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á
vegum Byggðasafns Hf.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16 fram í
feb.1990.
MÍR, Vatnsstíg 10, Sovésk bókasýn-
ing, 500nýjarbækurárússn.,ensku
og öðrum tungumál. eftirprent. af ík-
ónum, hljómplöturog bækur um (s-
land og e/ ísl. höfunda, sem gefnar
hafa verið út í Sovétríkj. Til 26.11.
17-19 virkadaga, 14-19helgar.
Slunkaríki, isafirði, Björg Þor-
steinsdóttir, olíukrítarm. opn. lau kl.
16. TÍI9.12.16-18fi-su.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/eftir
samkomulagi.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11 -16. Bogasalur: Ljósmyndin
150 ára- Saga Ijósmyndunar á ís-
landi. Til nóvemberloka, aðgangur
ókeypis.
ölkjallarinn, Haukur Halldórsson,
grafík.
TÓNLISTIN
Ljóðatónleikar í Selfosskirkju su kl.
16: Dúfa S. Einarsdóttir messósópr-
an og Guðbjörg Sigurjónsdóttir pí-
anóleikari flytja íslensk einsöngslög
e/SkúlaHalldórsson, EmilThorodd-
sen, Sigvalda Kaldalóns og Atla
Heimi Sveinsson og erl. Ijóðasöngva
e/Schubert, Brahms, Sibelius og
Richard Strauss.
Heiti potturinn, Duus-húsi, djass-
tónl. í tilefni að útkomu Nýs tóns su
21:30. Tómas R. Einarsson, Matthías
Hemstock, Hilmar Jensson, Sigurður
Flosason og Eyþór Gunnarsson.
Sérstakurgestur: Ellen Kristjánsdótt-
ir, sem syngur nýtt lag eftir Tómas R.
við Ijóð Guðbergs Bergssonar, Vor-
regníNjarðvíkum.
Styrktarfélag Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar stendur
fyrir tónleikum í skólanum,
Hraunbergi 2 lau kl. 17. Bryndís Halla
Gylfadóttir sellóleikari og Steinunn
Ragnarsdóttir píanóleikari flytja Són-
ötu í D-dúr e/ Bach, Sónötu fyrir selló
og píanó e/ Beethoven, Vocalise e/
Rachmaninoff og sónötu í a-moll e/
Schubert.
Lúðrasveit Verkalýðsins heldur
hausttónleika í Langholtskirkju lau kl.
17. Fyrstu heiðursfél. heiðraðir.
Sinfóníuhljómsveit islands heldur
tónleika í Borgarleikhúsinu lau kl. 14.
Sinfónía fyrir blásturshljóðfæri e/
Stravinskíj, Draumnökkvi, fiðlukons-
ert e/ Atla Heimi Sveinsson, Spjóta-
lög, hljómsv.verke/HjálmarH. Ragn-
arsson og Sechs Stucke e/ Webern.
Einleikari á fiðlu Jari Valo, Stjórnandi
Petri Sakari.
LEIKLISTIN
Frú Emilía, Skeifunni 3 c, Haust með
Gorkí: Börn Sólarinnar, leiklestur lau
ogsu kl. 14.
Leikfélag Akureyrar, Hús Bernörðu
Alba, lau 20:30. Næstsíðasta sýn-
ingarhelgi.
Lelkfélag Hafnarf jarðar, Leitin að
týnda brandaranum.
Leikfélag Keflavíkur, Félagsbíói,
Grettir.
Dagsbrúnarmenn
- félagsfundur
Félagsfundur veröur haldinn sunudaginn 26.
nóvember kl. 14.00 í lönó.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. önnur mál.
Stjórn Dagsbrúnar
Leikfélag Kópavogs, Félagsheimili
Kóp. Blúndur og blásýra, fi og su kl.
20.
Leikfélag Reykjavíkur, Ljós
heimsins, litla sviðinu í kvöld, lau og
su kl. 20. Höll sumarlandsins, stóra
sviðinu í kvöld og lau kl. 20.
Litla leikhúsið, Gerðubergi, Regn-
bogastrákurinn, lau kl. 17.
HITT OG ÞETTA
Kvikmyndasýning MÍR, Vatnsstíg
10 su kl. 16: fvan grimmi (Ivan grozní)
eftir Eisenstein, síðari hluti. Myndin er
gerð á árunum 1941-44.
Kvikmyndasýning fyrirbörn í Nor-
ræna húsinu su kl. 15, norrænt sjón-
varpsefni fyrir börn og unglinga, að-
gangurókeypis.
Nordvision 30 ára, dagskrá í Nor-
ræna húsinu undir yfirskr. Hvernig er
unnt að efla norrænt sjónvarpssam-
starf enn frekar. Lau kl. 15: Pétur
Guðfinnsson framkv.stj. Sjónvarps
og form. Nordvis. talar um norrænt
sjónvarpssamstarf í framtíðinni.
Sveinn Einarsson og Steen Priwin
ræða um hvernig bæta megi norrænt
samstarf í leiklist, tónlist og
skemmtiefni. Su kl. 15,3jaklst. dag-
skrá ífundarsal: Sigríður Ragna Sig-
urðardóttir kynnir 8 þætti fyrir börn,
sbr. tilkynningu hér að ofan.
Bókin og haf ið, lesið úr nýjum
bókum sem tengjast sjósókn við (s-
land fyrr og nú í Sjóminjasafni fs-
lands, Vesturgötu 8, Hf su kl. 15:
Birgir Sigurðsson: Svartur sjór af síld,
Erlingur Gíslason leikari les úr Ijóða-
bók Birgis Svans Símonarsonar Á
fallaskiptum, Elín Pálmadóttir: Fransí
Bisk'/í, lesið úr samtalsbók Ómars
Valdimarssonar við Guðmund J.
Guðmundsson, Jakinn, Lúðvík Jós-
epsson: Landhelgismálið í 40 ár, Pét-
ur Már Ólafsson: Gullfoss, lífið um
borð, Thor Vilhjálmsson: Náttvíg.
Félag eldrl borgara í Reykjavík og
nágrenni, Göngu Hrólfur hittist á
morgun kl. 11 að Nóatúni 17, opið
hús í Goðheimum, Sigtúni 3 su kl. 14.
frjáls spilamennska, dansað frá kl.
20.
Félag eldri borgara Kópavogi, af-
mælisfagnaður félagsins verður í Fé-
lagsheimili Kópav. (niðri) íkvöld.
Mörg og góð skemmtiatr. Caprý tríóið
leikur fyrir dansi. Húsiðopn.kl.20,
skemmtiatriði hefjast 20:30. Að-
göngumiðar við inngang.
Ferðafélag íslands, Aðventuferð til
Þórsmerkur 24.-26.11. Brottförkl. 20
í kvöld, upplýs. og farmiðasala á
skrst. Öldugötu 3.
Hana nú leggur upp í laugardags-
göngunafráDigranesvegi 12 kl. 10.
Nýlagað molakaffi. Allir velkomnir.
Lesið verður úr nýjum barnabókum í
Gerðubergi lau kl. 15:30: Gunnhildur
Hrólfsdóttir, Herdís Egilsdóttir, Iðunn
Steinsdóttir og Kristín Steinsdóttir
lesa úr bókum sínum, kynnir verður
Olga Guðrún Árnadóttir. Kl. 17 hefst
sýning ábarnaleikritinu Regnbogast-
ráknum. Miðverð 400 kr. fyrir leiksýn.
ókeypis á bókakynningu. Kaffistofa
opin fy rir og eftir dagskrá.
Kvöldvökufélagið Ljóð og saga
heldur kvöldvöku lau kl. 20:30 í Síðu-
múla 17. Fjölmennum og tökum með
okkurgesti.
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Skattlagningu létt af fjölmiðlum
Skjótt skipast veður í lofti, ég
segi nú ekki annað. Loksins sér
fyrir endann á áratuga langri bar-
áttu bókaútgefenda og annarra
bókavina fyrir afnámi söluskatt
af bókum. Þegar fjármálaráð-
herra lagði fram frumvarp að
virðisaukaskatti á Alþingi í fyrra-
dag kom í ljós að þar var að finna
undanþáguákvæði sem snerta út-
gáfu íslenskra bóka. Að vísu
tekur þessi undanþága ekki gildi
fyrr en eftir rétt ár en slagurinn er
unninn fyrir því.
Og það höfðu fleiri ástæðu til
að fagna þegar frumvarpið um
virðisaukaskattinn var lagt fram.
Það hefur orðið niðurstaða
stjómarflokkanna að undan-
skilja allflesta fjölmiðla virðis-
aukaskatti. Eigendur dagblaða,
tímarita, héraðsfréttablaða,
útvarps- og sjónvarpsstöðva
þurfa ekki að leggja virðis-
aukaskatt ofan á söluverð sitt.
Um tíma leit út fyrir að dagblöðin
ein nytu þessara forréttinda en nú
er búið að kippa hinum miðlun-
um inn í hlýjuna.
Að vísu segir þetta ekki alla
söguna því þessir fjölmiðlar
munu þurfa að greiða virðis-
aukaskatt af sumum hlutum í
framleiðsluferlinu. í núgildandi
kerfi er lagður 25% söluskattur
ofan á auglýsingagerð. Hún verð-
ur áfram skattlögð og framvegis
þurfa blöðin að leggja virðis-
aukaskatt ofan á það verð sem
þau taka fyrir að birta auglýsing-
arnar. Hingað til hafa þau verið
undanþegin því, andstætt því sem
gildir um sjónvarpsstöðvamar.
Þetta þýðir að samkeppnisstaða
sjónvarpsins gagnvart dagblöð-
unum ætti að skána að mun.
Eftir áramót breytist það einn-
ig að blaðamenn sem starfa í
lausamennsku eins og verktakar
og skrifa greinar í blöð þurfa að
innheimta virðisaukaskatt af
greinum sínum. í söluskattskerf-
inu vom greinaskrif og ljós-
myndataka undanþegin skatti en
ýmis önriur vinna sem blaðamenn
sinna, svo sem útlitsteikning, bar
söluskatt í lægra þrepi, þe. 12%.
Nú er öll vinna lausráðinna
blaðamanna, ljósmyndara og út-
litsteiknara flokkuð sem verktak-
aþjónusta og af henni ber að inn-
heimta fullan virðisaukaskatt,
26%, sem að sögn DV er hæsta
skattprósenta í heimi.
Að öðru leyti verða blöðin laus
við virðisaukaskattinn. Þau þurfa
ekki að leggja hann ofan á á-
skriftarverðið og þann skatt sem
prentsmiðjur leggja ofan á sína
vinnu munu blöðin fá endur-
greiddan.
Eins og ég nefndi í síðasta pistli
var það vonum seinna að lausn
fannst á þessu máli. Á síðustu
stigum málsins var ég farinn að
efast um réttmæti þess að krefjast
þess að blöðin yrðu undanþegin
virðisaukaskatti heldur væri rétt-
ara að þau bæm hann en fengju í
staðinn myndarlegan lána- og
styrkjasjóð til varnar málfrelsinu
og lýðræðinu í landinu. Með því
móti væri ríkisvaldið ekkert að
hlaða undir þá fjölmiðla sem
skila hagnaði en gæti styrkt þá
sem standa höllum fæti á mark-
aðnum, h'kt og gert er í Noregi og
Svíþjóð.
Ég hef heyrt að undirbúningur
að stofnun slíks sjóðs sé að hefj-
ast í menntamálaráðuneytinu og
finnst ástæða til að fagna því. Þótt
ofangreind lending hafi orðið út-
koman úr virðisaukaskattsdæm-
inu er full þörf fyrir að stofna sjóð
sem hefur það markmið að
styrkja málfrelsið í blöðunum og
efla menninguna á öldum ljó-
svakans. Og ég tek þá áhættu að
verða líkt við rómverska þing-
manninn sem vildi eyða Karþagó
þegar ég endurtek að það þarf að
aðgreina styrki til blaðaútgáfu og
styrki til starfsemi stjómmála-
flokka. Það em tvö óskyld mál og
engin ástæða til að blanda þeim
saman.
Stóm tíðindin eru hins vegar
niðurfelling skattsins af bókun-
um. Þar hafði verið reiknað með
fullum og óskertum 26% virðis-
aukaskatti en nú verður hann
felldur niður af íslenskum
bókum. Rithöfundar og útgef-
endur hafa að undanförnu haldið
uppi stífum áróðri fyrir þessu
þjóðþrifamáli, íslenskrar menn-
ingar. Það er því við hæfi að óska
íslenskum bókavinum til ham-
ingju með það að fá í framtíðinni
ódýrari bækur.
30 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ j Föstudagur 24. nóvember 1989