Þjóðviljinn - 08.06.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.06.1990, Blaðsíða 12
Leir og blóm Fjórtán leirlistamenn sýna í Epalhúsinu Framlag Leirlistarfélagsins til Listahátíðar er sýningin Leir og blóm, sem opnaði í Epalhúsinu Faxafeni 7 Reykjavík um síðustu helgi. Leirlistamennirnir fengu versl- unina Blómalist til liðs við sig. Sýningin er þannig kynning á leir- list og notkun leirsins með blóm- um. Þátttakendur á sýningunni eru fjórtán liðsmenn Leirlistarfé- lagsins, þau Áslaug Hösku- ldsdóttir, Brita Berglund, Brynd- ís Jónsdóttir, Daði Harðarson, Elísabet Haraldsdóttir, Ingunn E. Stefánsdóttir, Jóna Guðvarðardóttir, Kogga, Kristín ísleifsdóttir, Margrét Jónsdóttir og Ólöf Erla Bjarnadóttir. Saga leirlistar á íslandi er rakin til stofnunar leirmunaverkstæðis Guðmundar Einarssonar frá Miðdal árið 1929, en það var ekki fyrr en eftir heimsstyrjöldina síðari sem áhugi listamanna vaknaði fyrir alvöru á þessari list- grein. Undir lok sjöunda áratugs- ins var opnuð keramikdeild við Myndlista- og handíðaskólann. Það var svo árið 1979 þegar nokkrir leirlistamenn héldu sýn- inguna Líf í leir að áhugi vaknaði að stofnun Leirlistarfélagsins. Sú stofnun varð að veruleika tveimur árum síðar. Leirlistin á Islandi, eins og annars staðar í heiminum, hefur tekið þá stefnu að bilið miili list- iðnaðar og myndlistar hefur farið minnkandi. Möguleikar leirsins eru nýttir á frjálsari máta en áður tíðkaðist. Hefðbundin form eru samt sem áður enn í heiðri höfð þrátt fyrir ofannefnda þróun og leirlistamenn vinna alls kyns myndverk úr leirnum, bæði þrí- víð og í formi veggmynda. Sýningin er opin á verslunar- tíma á virkum dögum, og kl. 14- 18 um helgar. Þessi sölusýning leirlistamannanna stendur til loka Listahátíðar, 16. júní. BE Frá sýningu Leirlistarfélags- ins í Epalhúsinu Faxafeni 7, Reykjavík. p f ' 1' |W»f jj | f t( ... ^9'" ' *' - 17:17 Um helgina Uppákomur á vegum Listahá- tíðar verða í miðbænum alla helg- ina. í dag hefst dagskrá 17:17 á tónleikum hljómsveitanna Nabblastrengja, Frímanns, Sér- sveitarinnar og Bers að ofan í Austurstræti kl. 16. Inni á Café Hressó verður Cheo Cruz með gjörning alla helgina og hefst hann í dag kl. 13 og stendur til kl. 17. í kvöld á Hressó kl. 22 verða tónleikar með Risaeðlunni, Fant- asía mætir, Christine Quoiraud og Kramhúsamenn sýna tangó. Á morgun heldur Cruz áfram gjörning sínum inni á Hressó og síðar um kvöldið kl. 22 leika Júp- iters. Bærinn mun síðan iða af lífi og fjöri á sunnudaginn. Dagskrá- in hefst kl. 15 úti við en inni á kaffihúsinu kl. 16, auk þess er enn boðið upp á fjölbreytta dag- skrá síðar um kvöldið. Umsjónarmenn 17:17 eru Be- nóný Ægisson og Sigurður G. Sigurðsson. Uppákomur verða í bænum og inni á Café Hressó á meðan Listahátíð stendur til 16. þessa mánaðar. BE Hólaskóli Hólum Hjaltadal Brautarskipt * búnaðarnám Okkar sérgreinar Að skilja og þýða Fjórtánda ráðstefna norrænna mannfræðinga verður haldin nú um helgina í Reykjavík. Tema ráðstefnunnar er „að skilja og þýða“. Mannfræðin er í eðli sínu að glíma við þýðingarvanda þar sem hún freistar þess að varpa ljósi á framandi samfélög. Mann- fræðingar eru þó ekki á einu máli um þýðingarvandann. Sumir halda því fram að þýðing sé nán- ast óhugsanleg en aðrir benda á að það sé sífellt verið að þýða og verði ekki betur séð en fólki verði nokkuð ágengt. Nokkrir heimsfrægir mann- fræðingar munu flytja fyrirlestra á ráðstefnunni m..a. Levon Abrahamian frá Armeníu, Tim Ingold frá Englandi, Rayna Rapp frá Bandaríkjunum, Anna Lena Siikala frá Finnlandi, Dan Sper- ber frá Frakklandi og Unni Wik- an frá Noregi. Ráðstefnan fer fram í Odda í Háskóla íslands og hefst kl. 9 á morgun, laugardag en lýkur mán- udaginn 11. júní. Skógardagur í Hafnarfiröi Skógardagur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður á morgun, iaugardaginn 9. júní. Safnast verður saman í Gróðrarstöðinni við Hvaleyrarvatn kl. 13 og plant- að út aspartrjám. Síðan verður m.a. gengið um nokkrar land- nemaspildur undir leiðsögn land- nema og fræðst af þeim um reynslu þeirra í ræktuninni. Skógræktarfóik er beðið að mæta vel og stundvíslega. Fiskeldi - fiskrækt - hrossarækt reiðmennska - almenn búfjárrækt Viltu veröa bóndi morgundagsins? Hefurðu áhuga á hrossarækt og reiömennsku? Er fiskeldi eða nýting veiði í ám og vötnum eitthvað fyrir þig? Hyggir þú á framhaldsnám í búfræði, hrossarækt, fiskeldi, fiskrækt? Veldu Hóla! Lifandi starfsnám á fögrum, friðsælum stað! Valgreinar m.a.: Skógrækt Heimilisfræði Hestamennska Sportveiði Garðrækt Loðdýrarækt Námstíminn er 2 ár - 4 annir Inntökuskilyrði lágmark: Grunnskólapróf 1 árs starfsreynsla Aldur: 17 ár Aukið nám veitir aukin réttindi: Komir þú inn með 65 einingar eða meir frá öðrum skólum áttu möguleika að Ijúka framhaldsskólaprófi sem veitir rétt til náms á sérhæfðum brautum háskólastigs. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun: Námstími við skólann 1.5-2 ár. Góður undirbúningur fyrir sérhæft háskólanám. Stefnt er að tæknanámi við skólann næsta haust. Fyrst í fiskeldi, fiskrækt, hrossarækt og almennum búrekstri. Kröfuharðir nemendur velja Hóla! Umsóknarfrestur til 10. júní Hólaskóli Hólum í Hjaltadal Takmarkaður nemendafjöldi 551 Sauðárkrókur Sími 95-35962 12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.