Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
9
__________________________________ Útlönd
Fyrrum endurskoöandi popparans Stings dreginn fyrir rétt:
Mun hafa stolið
Sting kemur til réttarins í gær. Simamynd Reuter
dv Stuttar fréttir
Frjálslyndirklofnir
Frjálslyndir demókratar á Bret-
landi voru sammála á flokksþingi
um róttæka stefnuskrá en klofnir
í afstöðunni til Verkamanna-
flokksins og þreifinga hans.
Kasparov og Anand hafa nú
gert sjö jafntefli í sjö skákum og
geri aðrir betur.
Vansællffugræniitgi
Flugþjónn sem rændi íranskri
flugvél á dögunum sagðist hafa
verið vansæll heima i Iran.
Prins í framkvæmdunt
Karl Breta-
prins leggur
frillu sinni,
Camillu Parker
Bowles, lið
þessa dagana
við að breyta
hlöðu nærri
heimili hennar
í fimm svefnherbergja glaasihýsi
þar sem m.a. er útisundlaug.
Diana verðlaunuó
Díana prinsessa hefur hlotið
alþjóölega viðurkenningu fyrir
störf sín aö góðgerðarmálum.
Ljóninúrveginum
Peres, utanríkisráðherra ísra-
els, segir að helstu Ijónunum hafi
verið rutt úr vegi samkomulags
um aukna sjálfstjórn Palestinu-
manna.
Cillerreyniraftur
Tyrklandsforseti bað Tansu
Ciller að reyna að mynda nýja
Stjórn. Reuter
„Eg var skyndilega orðinn miðdep-
ill milljarðafyrirtækis og alls þess
pappírsflóðs sem því fylgir. Þetta var
allt mjög flókið og fyrir ofan minn
skilning að eiga nokkuð við allt þetta
fjárstreymi. Ég varð að fá endurskoð-
anda, einhvern sem ég gæti treyst,
sagði popparinn Sting fyrir rétti í
London í gær. Þar vitnaöi hann gegn
Keith Moore, fyrrum endurskoðanda
sínum, sem grunaður er um að hafa
stolið 9,3 milljónum punda frá Sting
eða sem samsvarar um 930 miljónum
íslenskra króna. Endurskoðandinn
segist saklaus af öllum ákærum um
þjófnaði en þeir eiga aðallega að hafa
átt sér stað á tímabilinu 1988-1992.
Sting kom fram í réttinum undir
sínu borgaralega nafni, sem er Gor-
don Sumners. Hann sagðist efast um
að menn sæju þessa peninga nokk-
um tíma aftur. En Sting er ekki á
vonarvöl þar sem aðalviðskipta-
banki hans, drottningarbankinn
Coutss, greiddi honum 750 milljónir
króna fljótlega eftir aö upp komst um
misferli endurskoðandans. Drottn-
ingarbankinn taldi að þar á bæ bæm
menn ákveðna ábyrgð á því hvernig
fór. Háar fjáhæðir hefðu verið milli-
færðar á reikninga endurskoðand-
ans án tílskilinna heimilda.
Sting, sem leiddi á sínum tíma
hljómsveitína Police til heimsfrægð-
ar og nýtur nú gríðarlegra vinsælda
sem sólóhstamaður, sagði að eftir
tveggja ára hark hefði hann skyndi-
lega orðið heimsfrægur og þénað tug-
milljónir króna á ári. Þegar mest var
fóm tekjur hans af ýmsu tagi inn á
um 47 bankareikninga. Það var fyrr-
um félagi í Police sem kynnti Sting
fyrir endurskoðandanum sem hóf
strax að annast hið mikla fjár-
streymi. „Þetta var allflókið kerfi
sem hann kom upp og ég skildi af-
skaplega lítíð í því,“ sagði Sting sem
fyrst fréttí af undanskotum endur-
skoðandans í nafnlausu bréfi sem
honum barst 1992. Reuter
Clinlonætlarað
draga framboðs-
tilkynninguna
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti sagðist i
gær ætla að
draga eins lengi
og liann gæti að
tilkynna lorm-
lega um fram-
boð sitt til for-
setakosninganna á næsta ári en
forsetínn er aö ljúka fjáröflunar-
ferð þar sem hann hafði fimm
mUljónir dollara upp úr krafsinu.
Þá lýsti Clinton yfir þeirri von
sinni að Ameríka mundi ekki
gera kynþátt Colins Powells að
kosningamáli ef hann byði sig
fram. Powell er blökkumaður.
Flóttafanginn
búinn aðfá nóg
affrelsinu
Einn fanganna sem flúðu á
ævintýralegan hátt úr fangelsi í
útjaðri Kaupmannahafnar fyrir
mánuði var búinn að fá nóg af
því að vera frjáls eins og fuglinn
og skilaði sér aftur í fangelsiö.
Það var aðfaranótt fimmtu-
dagsins sem hinn 27 ára gamli
Kim Steven Kyed, sem var að af-
plána þriggja ára dóm fyrir rán,
hringdi bjöllunni við fangelsis-
dyrnar og bað um aö fá að fara
aftur í klefann sinn.
Einn flóttafélagi hans, Jaraie
Lar s Kronberg CorbetL var hand-
tekinn á miðvikudag en fjórir
fanganna leika enn lausum hala.
Reuter, Ritzuu
Ibúi fátækrahverfis i Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu, reynir hvað hann
getur að slökkva eld i híbýlum sínum. Eldurinn, sem kviknaði i kjölfar heim-
iliserja, varð 14 ára pilti að bana og eyðilagði 125 heimili. Simamynd Reuter
AFSLATTUR
AF SKERMUM
TIL 1. 0KT0BER.
MIKIÐ ÚRVAL
ARMULA 24 S: 568 1518
Lítil plastklemma meó segulstáli til sölu
Já pað Jer ekki mikiðjjrir henni. Og hagnýtt gildi hennarjyrir pig erjajnvel ekki stórvœgilegt. Það erjreistandi að segja
nei og nota aurana í annað. En klemman leynir á sér. Hún er svo öflug að hún getur hjálpað hreyfihömluðum að komast leiðar
sinnar í heimi stiga er stía sundur. Með sölu klemmunnar öjlum viðfjár til að auðvelda aðgengifatlaðra í sanjélaginu. Og svo
getur pú hengt í hana reikninga, uppskrijtir að hamingju, myndir af uppáhaldsbaðströndinni eða bara haft hana til skrauts.
Segulmagnað tilboð sem pú getur ekki hafnað...
........£j$i ‘ U jffli.tidll okku1 éiá\ ..
LANDSSAMBAND FATLAÐRA Klemman er til sölu p e s s a helgi!