Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
11
Fréttir
Bæjarstjómin 1 Reykjanesbæ rannsakar skatta og lífsstíl:
Þetta er gert að
gefnu tilefni
- segir Jóhann Geirdal bæjarfulltrúi
K I N G A
iMnm
Vinningstölur
miðvikudaqinn: 20.9.1995
Heildarupphæð þessa viku
109.687.071
áísi, 1.437.071
uinningur fór til Danmerkur
IS1-60 15 11
INA 9» 10 00 - TLXTAVAÍH’ 451
*I«T MKO PyRIOVAHA OM fAÍNTVIUUn
„Það er auðvitað að gefnu tilefni
að umræða um misræmi í lífsstíl og
skattgreiðslum hefur farið af stað.
Það getur auðvitaö verið eins og
skattrannsóknastjóri hefur bent á að
menn hafi verið að vinna í happ-
drætti eða lottói, fengið arf eða stofn-
að til stóraukinna skulda. En það er
hæpið að menn vinni í happdrætti
ár eftir ár eftir ár og það á einnig við
um arf. Menn geta stofnað til skulda
ár eftir ár en það þaö kemur að því
að þeir fara á hausinn ef þeir hafa
ekki tekjur. Það er ástæða til að
skoða þessi mál,“ segir Jóhann
Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykja-
nesbæ. Hann var einn flutnings-
manna tillögunnar um að skipaður
yrði vinnuhópur bæjarfulltrúa sem
kanna á álagningarskrár og komi
með ábendingar um þau tilvik þar
sem ósamræmi virðist vera.
Jóhann segir þetta ekki vera gagn-
rýni á störf framtalsnefndar. „Hún
sinnir þeim hlutum sem hefð er fyrir
að hún sinni og hún gerir þaö alveg
jafn vel og framtalsnefndir annars
staðar. Hins vegar finnst mér ekki
réttlætanlegt að setja svona átak á
framtalsnefndina. Mér. finnast þaö
líka ógeðfelld vinnubrögð af pólítík-
usum, svo ég gagnrýni nú okkur
sjálfa, að setja einhveija nefnd
ágætra manna úti í bæ að vinna
svona verk sem við vitum að veröa
óvinsæl og deilt verður um. Við eig-
um að vinna þessi verk sjálfir en
auðvitað í góðri samvinnu við fram-
talsnefndina," segir Jóhann.
Hann segir að farið verði kerfis-
bundið í máhn. „Það verður gert svo
að það verði ekki bara tilviljun hver
lendir í þessu.“
Skýringarnar geta
verið margar
- segir bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar hefur
samþykkt að setja á laggimar vinnu-
hóp fjögurra bæjarfulltrúa sem bera
á saman lífsstíl bæjarbúa og skatt-
greiðslu.
Flutningsmenn tillögunnar voru
úr Aiþýðuflokki og Alþýðubanda-
lagi. Átta bæjarfulltrúar samþykktu
tillöguna en þrír sátu hjá. „Við þijú
sem sátum hjá sögðum að þetta væri
verkefni framtalsnefndar. Við höfum
nefnd sem sér um þessa hluti. Það
er mjög vafasamt að bæjarfulltrúar
geti sett sig inn í svona hluti. Skýr-
ingarnar á mismun á lífsstíl og skatt-
greiðslu geta verið margar,“ segir
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar.
„Ég fagna allri umræðu af þessu
tagi,“ segir Skúli Eggert Þórðarson
skattrannsóknastjóri. „En það geta
verið fullkomnar og eðlilegar skýr-
ingar á því að menn greiði lægri
skatta en ástæða væri til af annarra
mati. Það geta verið skattalegar
skýringar, það getur líka fahst í því
að menn fjármagni neyslu sína meö
lántöku," bendir Skúh á.
TÖLVUR
///////////////////////////////
Aukablað um
TÖLVUR
Miðvikudaginn 4. október mun aukablað um tölvur
fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið
en í því verður fjallað um flest það er viðkemur
tölvum og tölvunotkun.
í blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og
vélbúnað, þróun og markaðsmál. Má þar nefna grein-
ar um Windows 95, nýjungar í margmiðlun, nýtt tölvu-
orðasafn, öryggisafritun og varnir gegn tölvuþjófum.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í
blaðið er bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar
DV, Björns Jóhanns Björnssonar, fyrir 28. september.
Bréfasími ritstjórnar er 550 5999.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukaþlaði vinsamlega hafi samband við
Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 550 5722.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga
er fimmtudagurinn 28. september.
ATH.I Bréfasími auglýsingadeildar er 550 5727.
Á ofsahraða:
Þjófur á flótta
fórtværvelt-
\ ur með þýfið
t
Ungur maður, sem var á flótta und-
an lögreglubíl með bláblikkandi ljós-
um, fór tvær velturá bíl, meiddist
talsvert og stórskemmdi bílinneftir
að hafa brotist inn í skála Golfklúbbs
Grindavíkur og í nærliggjandi sum-
arbústað í Staðahverfi skammt vest-
an Grindavíkur.
Alltaf á frétta-
i/aktinni fyrir þig
• Traustar fréttir
• Lifandi fréttir
• Hnitmiðaðar fréttir
• Ferskar fréttir
• Beinskeyttar fréttir
o
3
DV er alltaf á fréttavaktinni
með fréttir frá fyrstu hendi
fyrir þig.
Frjálst, óháð dagblað fyrir þig
Munið nýtt símanúmer 550-5000