Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
25
fþróttir
Knattspyrna:
DiCaiíiofi!
Blackbum Rovers?
Miklar líkur eru taldar á því aö
Blackburn Rovers kaupi ítalska
framlínumanmnn Paolo Di Canio
frá AC Milan fyrir sem svarar 310
milljónum íslenskra króna. Di
Canio mun spiia reynsluleik meö
varaliði Blackburn á fimmtudag-
inn keraur gegn Bolton og eftir
hann veröur ákveðið hvort af
kaupunum verður.
Taylor fók upp
peningaveskið
Graham Taylor, stjóri Wolves,
sem saett hefur gagnrýni aö und-
anfórnu vegna stööu liösins í 1.
deild, tók upp budduna í gær og
keypti Mark Atkins frá Black-
bum. Wolves er í 18. sæti og á
aUt að gera til aö koma liðinu í
gang.
Tottenhamgræddi
veiífyrra
Stjórn Tottenham lagði í gær
fram ársskýrslu félagsins og
kemur í ljós að hagnaður fyrir
skatta á síöasta ári var um 5350
milljónir punda, samanborið við
805 milljónir punda árið 1993.
Bayem verður
endastöðin
Jíirgen Klinsmann sagöi í sjón-
varpsviðtali í gær að hann myndi
leggja skóna á hilluna þegar
þriggja ára samningur hans viö
Bayern Miinchen, sem hann
skrifaði undir í sumar, rynni út
1998. Klinsmann, sem sló ræki-
lega í gegn hjá Tottenham á síð-
asta tímabili, hefur ekki náð aö
sýna sitt rétta andlit þaö sem af
er hjá Bæjurum, aðeins skorað
tvö mörk í sex leikjum.
Mölbylánaður
tilBamsley
Daninn Jan Mölby hjá Liver-
pool hefur veriö lánaöur til 1.
deildarliðsins Barnsley í mánuð.
Mölby hefur ekki náð að komast
í sitt rétta form eftir meiðsl og er
hugmyndin hjá forráðamönnum
Liverpool aö leyfa Mölby að kom-
ast í leikform.
Keflavík varð
Reykjanesmeistari
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Keflvíkingar urðu í gærkvöldi
Reykjanesmeistarar í körfu-
knattleik. Keflavik vann Njarð-
vík, 85-76. Teitur Örlygsson skor-
aði 26 stig fyrir Njarðvík og Guð-
jón Skúlason 20 stig fyrir Kefla-
vik. Haukar sigruðu Grindavík,
79-78, og höfnuðu í öðru sæti í
mótinu.
Lokahófyngri
flokkaFH
Lokahóf yngri flokka knatt-
spymudeildar FH veröur haldiö
sunnudaginn 24. spetember nk.
klukkan 14 í Kaplakrika. Þar fer
fram verðlaunaafhending og þá
verður kafflhlaðborð á vægu
verði auk þess sem ýmiss konar
skemmtiatriði verða í boði.
AðalfundurHK
Aöalfundur HK verður haldinn
föstudaginn 29. september 1 fé-
lagsmiðstöð félagsins í Hákoni
Digra. Fundurinn hefst klukkan
20.
Gaudinoáleið
tilEngiandsáný?
Þjóðveriinn Mauricio Gaudino
kann að vera á leið'til Englands
samkvæmt enskum dagblööum.
Frankfurt leigði Gaudino til Mex-
íkó efiir að hann fór frá Man-
chester City i vor. Þá vildi City
íá hann fyrir 170 milljónir en boð-
inu var hafnaö.
Eigum sterkan
heimavöll
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV
Þoisteinn Gunnaisson, DV, Eyjum:
„Eg er mjög ánægður. Þetta sýnir
að við ■ eigum sterkan og góðan
heimavöll sem er okkur mjög mikil-
vægur. Þaö hjálpaði okkur verulega
að vera spáð 12. og neðsta sæti. Menn
segja ekki svoleiðis nema einu sinni
við Eyjamenn, það era alveg hreinar
línur,“ sagði kampakátur Þorbergur
• Þorbergur var ánægður með sina
menn gegn ÍR i gærkvöldi.
Aöalsteinsson, þjálfari IBV, eftir
óvænt burst sinna manna á ÍR, 25-16.
Ef marka má þennan leik veröa
nýliðarnir frá Eyjum sýnd veiði en
ekki gefrn í vetur. Eftir mjög köflótt-
an fyrri hálfleik var eins og nýtt
Eyjalið væri komiö inn á völlinn í
seinni hálfleik. Ræöa Þorbergs í hálf-
leik ómaöi um gangana og það virk-
aði svo um munaði. ÍBV skoraði
fyrstu sjö mörk síöari hálfleiks og
fyrsta mark ÍR kom eftir 15 mínútur
og þá voru Eyjamenn tveimur færri!
Sigmar Þröstur lokaöi marki ÍBV og
vamarleikurinn, sem Þorbergur hef-
ur lagt ofuráherslu á, var mjög sterk-
ur með Gunnar Berg og nýja Rúss-
ann sem Heimakletta. Hins vegar
þarf aö aga sóknarleikinn til muna.
Rússinn Ewgeni Dudkin er frábær
leikmaöur, öflugur í vöra og alhliöa
sóknarmaður með fjölbreyttan
skotstíl. Sigmar Þröstur er lykilmað-
ur liðsins og hann varði frábærlega.
Daði og Gunnar Berg áttu góða
spretti.
Hjá ÍR var fátt um fina drætti.
Magnús Sigmundsson markvörður
var langbestur og aðeins Jóhann
Ásgeirsson var með lífsmarki af úti-
leikmönnunum. Skytturnar voru
mjög þungar og eftir því sem leið á
leikinn urðu spor ÍR-inga þyngri.
„Það var aðallega sóknin sem
khkkaöi. Það er alltaf erfitt að spila
hér í Eyjum en við vorum einfaldlega
mjög slappir. Við komum aðallega
sjálfum okkur á óvart með andleysi.
Maður er sjálfum sér verstur í þessu
en ekki andstæðingurinn," sagði Jó-
hann Ásgeirsson, fyrirliði ÍR, við DV.
Evrópukeppnin 1 handbolta:
íslenska liðið
utan til Rúmeníu
íslenska landsliðið í handknattieik
hélt utan í morgun til Rúmeníu en
þjóðirnar mætast á miðvikudaginn
kemur í forkeppni Evrópumóts
landsliða í borginni Rimnincu Vilcca
sem er 200 km frá höfuðborginni
Búkarest. Síðari leikur þjóðanna
verður í Kaplakrika sunnudaginn 1.
október og munu Rúmenar verða
samferða íslenska liðinu til íslands.
Upphaflega ætlaði landsliðið ekki
aö fara utan fyrr en eftir helgina en
vegna hárra flugfargjalda var mun
ódýrara að dvelja yfir helgi í Rúmen-
íu. Landsliðið mun dvelja við æfingar
á leikstað fram að leik.
Þetta er fyrsti leikurinn sem fram
fer í riðlinumen öllum leikjum verð-
ur lokið fyrir áramót. Auk íslands
og Rúmeníu leika Pólveriar og Hvít-
Rússar í þessum riðli. Vegna lélegrar
frammistöðu íslendinga í heims-
meistarakeppninni er mjög brýnt
fyrir liðið að ná sem hagstæöustum
úrslitum í riðlakeppninni en tvær
efstu þjóðirnar komast í úrslita-
keppni mótsins sem fram fer á Spáni
næsta vor.
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari
valdi 14 leikmenn til fararinnar en
eina breytingu varö að gera. Bjarki
Sigurðsson úr Aftureldingu átti ekki
heimangengt og því var Siguröur
Sveinsson, FH, vahnn í hans stað.
Hópurinn sem fór til Rúmeníu er
þannig skipaður:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson........Val
Bergsveinn Bergsveinsson...UMFA
Aðrir leikmenn:
Valdimar Grímsson........Selfossi
Sigurður Sveinsson.............FH
Gunnar Beinteinsson............FH
Páll Þórólfsson..............UMFA
Júlíus Jónasson.....Gummersbach
Róbert Sighvatsson...........UMFA
Geir Sveinsson........Montpellier
Einar G. Sigurðsson......Selfossi
Jón Kristjánsson..............Val
Dagur Sigurðsson..............Val
Patrekur Jóhannesson...........KA
Ólafur Stefánsson.............Val
Knattspyrnudeild Þróttar óskar eftir þjálfurum fyrir
yngri flokka félagsins:
5. fl. kv.
7. fl. ka. - 2. fl. ka.
Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu Þróttar
við Holtaveg eigi síðar en föstudaginn 30. septemb-
er 1995 kl. 14.00.
Stjórn Knattspyrnudeildar Þróttar
ÍBV-ÍR
(11-10) 25-16
1-0, 5-1, 8-2, 10-4, 10-10, (11-10),
18-10, 18-12, 20-13, 24-14, 25-16.
Mörk fBV: Ewgeni Dudkin 9/2,
Daði Pálsson 4, Gunnar B. Viktors-
son 4, Arnar Pétursson 4/2, Svavar
Vignisson 3, Helgi Bragason 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Ósk-
arsson 18/4.
Mörk ÍR: Jóhann Ásgeirsson 6/2,
Guðfinnur Kristmannsson 3,
Frosti Guðlaugsson 2, Njörður
Ámason 1, Daði Hafþórsson 1/1,
Einar Einarsson 1, Magnús Þórð-
arson 1, Ólafur Sigurjónsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
15/3.
Brottvísanir: ÍBV 10 mín„ ÍR 14
mín.
Dómarar: Guðjón Sigurðsson og
Hákon Sigurjónsson, góðir og
röggsamir.
Áhorfendur: 350.
Maður leiksins: Ewgeni Dudkin,
ÍBV.
Staðan
KA ..2 2 0 0 66-53 4
FH ..2 2 0 0 59-42 4
Stjaman... ..2 2 0 0 47-38 4
Haukar.... ..2 1 1 0 40-39 3
ÍBV ..2 1 0 1 47—41 2
Víkingur.. ..2 1 0 1 44-41 2
Grótta ..2 1 0 1 42-42 2
ÍR ..2 1 0 1 37-45 2
Valur ..2 0 1 1 40-41 1
Selfoss ..2 0 0 2 38-47 0
Aftureld... ..2 0 0 2 44-57 0
KR ..2 0 0 2 49-67 0
Markahæstir:
Julian Duranona, KA.........22/8
Sigurjón Sigurðsson, FH.....18/2
Knútur Sigurðsson, Víkingi.... 17/8
Patrekur Jóhannnesson, KA... 16/1
Juri Sadovski, Gróttu.......15/8
Sigurður Bjamason, Stjömu... 14/0
Valdimar Grímsson, Selfossi... 14/4
Arnar Pétursson, ÍBV........13/4
Ólafur Stefánsson, Val......13/4
Dmitri Filippov, Stjörnunni.13/5
Dmitri Filippov, Stjörnunni.13/5
• Þorbjörn Jensson.
• Frá vinstri: Þorsteinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, Benedikt Axelsson, formaður
félagsins, Einar Bollason körfuboltafrömuður og Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri KKÍ. DV-mynd GS
Meistarakeppni körfuknattleikssambandsins:
Vonandi að sem flestir
mæti og styrki málstaðinn
- allur ágóði af leiknum rennur til krabbameinssjúkra bama
Á síðasta ársþingi KKÍ var samþykkt
aö fela stjórn KKÍ að standa fyrir meist-
arakeppni í karla- og kvenriaflokki. í
meistarakeppninni mætast íslands- og
bikarmeistarar karla og kvenna frá síö-
astliðnu keppnistímabili. Sigurvegar-
arnir hljóta sæmdarheitið meistarar
meistaranna og fá glæsilega farandbik-
ara sem VISA Island gefur til handa sig-
urvegurunum.
Jafnframt var ákveðiö að hagnaði af
leikjunum skyldi ráöstafaö til góðgerð-
armálefnis og fyrir valinu varð Styrktar-
félag krabbameinssjúkra barna.
Leikirnir í meistarakeppninni fara
fram í Keflavík á laugardag. Fyrst mæt-
ast Breiðablik og Keflavík í kvennale-
iknum klukkan 15 og síðan klukkan 17
mætast í karlaleiknum Njarðvík og
Grindavík. Ýmis skemmtiatriði verða
fyrir og milli leikjanna. Þá verður hægt
að hringja inn áheit til Skyrktarfélags
krabbameinssjúkra barna á laugardeg-
inum í síma 588 7555 þar sem tekið verð-
ur á móti framlögum. Þeir sem gefa
meira en 1000 krónur fara í pott þar sem
dreginn verður út einn heppinn gefandi.
Sá heppni fær ferð með Flugleiðum til
London og miöa frá KKÍ á McDonalds
mótiö í körfubolta en þar taka m.a. þátt
NBA meistarar Houston Rockets og Evr-
ópumeistarar Real Madrid.
„Ætlunin er aö umgjörðin í kringum
leikinn verði sem glæsilegust og að þetta
veröi einn af stóru leikjum ársins. Auk
þess leggjum viö góðu málefni lið og ég
vona aö sem flestir mæti og styrki mál-
staöinn," sagöi Pétur Hrafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri KKÍ.
Enska félagaskiptakerf ið
getur verið f yrirmynd
lViöbrögðin viö Bosman-málinu hafa
verið mikil víðs vegar um Evrópu síð-
ustu tvo sólarhringana. Eins og fram
kom í DV í gær bendir allt til þess að
Evrópudómstóllinn úrskurði aö núgild-
andi reglur um félagaskipti í knatt-
spyrnu séu ólöglegar og það myndi hafa
margvíslegar afleiðingar í fór með sér
fyrir atvinnuknattspymuna í álfunni.
Frans Meulemans, lögfræðingur belg-
íska knattspyrnusambandsins, sagði í
blaðaviðtaii í gær aö hann heföi búist
viö þessu áliti frá Carl Otto Lenz, lög-
manni Evrópudómstólsins. „Þessi Lenz
veit ekkert um íþróttir. Hann vill eyöi-
leggja knattspymusamböndin og félögin
og þar með íþróttina sem slíka,“ sagði
Meulemans.
„Litlu félögin munu
hagnast á þessu“
Eric Hall, þekktur breskur umboðsmaö-
ur leikmanna, er hins vegar mjög
ánægöur meö þróun mála. „Kannski
leiðir þetta til þess að eigendur félaganna
komast í samband við umheiminn. Sá
sem leigir sjónvarp er ekki bundinn þeg-
ar leigusamningurinn rennur út. Þannig
var ekki með knattspyrnumenn en
þannig verður það. Félögin munu reyna
að semja við 17-18 ára leikmenn til sjö
til átta ára. Ef leikmennirnir standa sig
verða þeir seldir með miklum hagnaði
og svona munu htlu félögin hagnast,"
segir Hall.
Rick Parry, framkvæmdastjóri ensku
úrvalsdeildarinnar, segir að enska fé-
lagaskiptakerfið geti verið fyrirmynd
fyrir önnur Evrópuríki.
„Ef kerfiö breytist munu menn
kannski líta til okkar, kerfiö okkar mun
lifa þetta af á einn eða annan hátt. Það
er alls ekki slæmt og Bosman-málið hefði
aldrei getað komið upp hér í landi. Hjá
okkur er leikmanni heimilt að skipta um
félag þegar samningur hans rennur út
og ef gamla félagið býður honum ekki
jafngóðan samning og hann hafði áður
fær hann frjálsa sölu. Þegar deilur um
kaupverð koma upp eru þær leystar af
sérstökum dómstóli og þaö hefur aldrei
komiö upp mál hér í landi þar sem leik-
maöur hefur verið hindraður í að skipta
um félag," segir Parry.
íþróttir
Þorvaldur Örlygsson neitar að leika fyrir Stoke:
„Ástandið fer
versnandi“
- flnnur mótlæti eftir aö hafa hafnað þriggja ára samningi
„Vona að þessi staða
leysist sem fyrst“
„Stoke lék að vísu vel gegn Chelsea
á miðvikudagskvöld og | náði 0-0
jafntefli en betur má ef duga skal.
Eins og ég segi þá er staðan hjá
mér lokuð í dag og ég get ekkert
nema vonaö aö hún leysist sem
fyrst,“ sagöi Þorvaldur.
Þorvaldur hefur ekki leikiö síö-
ustu tvo leiki með liðinu og eins
og hann segir sjálfur er ekki líklegt
að hann leiki með hðinu á næst-
unni.
Lárus Orri er hins vegar í liðinu
og lék ágætlega gegn Chelsea í
fyrrakvöld. Stoke hefur aðeins 6
stig eftir 8 leiki í 1. deild og er í
þriðja neðsta sæti deildarinnar.
hann vill fara frá félaginu. « Þorvaldur Örlygsson.
„Eg net neitaö að íeiKa tynr
Stoke og mun ekki leika fyrir iiöiö
á næstunni. Ástandið hjá félaginu
fer versnandi, alla vega hvaö mig
varðar, og ég finn mikið mótlæti í
minn garö eftir aö ég neitaði að
skrifa undir þriggja ára samning
sem félagið bauð mér og var alls
ekki nógu góður.
Það eru mörg vandamál hjá
Stoke; liðiö er í botnsætunum og
það þarf að laga margt ef betur á
að fara. Við eigum mjög erfiða leiki
framundan og leikum gegn West
Bromwich, sem er í einu af efstu
sætunum, á sunnudag," sagði Þor-
valdur Öriygsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu og leikmaður enska
félagsins Stoke City, í samtali við
DV í gær. Þorvaldur hefur ekki
viljað endurnýjaðan samning því
Kiev mótmælir harðlega
Úkraínska knattspyrnufélagið
Dinamo Kiev áfrýjaði í gær þeim
úrskurði Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, að dæma félagið í
þriggja ára bann frá Evrópumótun-
um. Málið verður tekið fyrir á
sunnudaginn.
Eins og fram kom í gær var ákvörð-
unin um bann tekin eftir að dómari
leiks Kiev og Panathinaikos frá
Grikklandi í meistaradeild Evrópu
tilkynnti að forráðamenn Kiev hefðu
reynt að múta sér fyrir leikinn.
UEFA dæmdi varaforseta og fram-
kvæmdastjóra Kiev í ævilangt bann
frá afskiptum af knattspyrnu.
Dinamo Kiev sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær og þar er orðum spænska
dómarans Antonio Lopez Nieto harð-
lega mótmælt. Dómarinn hafi beöið
um loðkápur og húfur fyrir dómara-
tríóið og varadómarann og þegar
vamingurinn hafi veriö afhentur,
ásamt reikningi frá verslun, hafi
dómarinn brugðist ókvæöa við, neit-
að aö borga og sagst ekki þurfa á þess-
um vörum aö halda, né heldur minja-
gripum frá félaginu. Nieto hafi síðan
sýnt reikninginn sem sönnun fyrir
því aö reynt hafi veriö aö múta sér.
„UEFA haföi um tvennt að velja:
Annað hvort að refsa dómaranum
eða gestgjöfunum. Spánverjarnir
voru þeim greinilega hjartfólgnari,"
segir meðal annars í yfirlýsingunni.
UEFA ákvað í gær að danska félag-
ið AaB frá Álaborg tæki sæti Kiev í
meistaradeildinni ef brottrekstur
úkraínska félagsins yrði endanlegur.
Úkraínska þjóðin er í losti yfir bann-
inu enda nýtur Dinamo Kiev gífurlegra
vinsælda. Um 100 þúsund áhorfendur
sáu leikinn gegn Panathinaikos og litið
er á félagið sem eitt stærsta andlit
Úkraínu gagnvart umheiminum.
Bolton sækir í leikmenn Raith Rovers
Enska úrvalsdeildarliðið Bolton,
sem Guðni Bergsson leikur með, vill
kaupa tvo leikmenn frá skoska liðinu
Raith Rovers, mótherium Skaga-
manna í UEFA-bikarnum. Það eru
hægri bakvörðurinn Steve Mc-
Anespie og vinstri kantmaðurinn
Tony Rougier.
Bolton fylgdist enn fremur með
júgóslavneska landsliðsmanninum
Dejan Cavedinge í leik gegn Grikkj-
um í vikunni og er tilbúið að greiða
60 milljónir króna fyrir hann.
Bolton gerði Raitii tilboð í leik-
mennina tvo fyrr í þessari viku en
Jimmy Nicholl framkvæmdastjóri
sagðist ekki hafa áhuga á að selja þá,
að minnsta kosti ekki á meðan hðið
væri í Evrópukeppninni, auk þess
sem mikilvægir leikir í úrvalsdeild-
inni væru framundan.
McAnespie er firnasterkur varnar-
maður sem Aberdeen gaf frjálsa sölu
fyrir nokkrum árum en hefur síðan
sýnt áhuga á að fá hann aftur. Rougi-
er, sem Raith keypti frá Trínidad í
sumar, er fljótur og sterkur en þykir
skorta knatttækni.
Raith kemur á
mánudagsmorguninn
Lið Raith kemur til íslands á mánu-
dagsmorguninn en seinni leikurinn
gegn ÍA fer fram á Akranesi á þriðju-
daginn og hefst klukkan 16. Sennilegt
er aö aliir lykilmenn liðsins veröi
með.
Búist er viö aö ríflega 200 stuön-
ingsmenn Raith fylgi liðinu hingað
þannig að það má búast við góðri
stemningu á Akranesi á þriöjudag-
inn.
Barist um silf urverðlaun og
þátttökurétt í Intertoto
Það er þrennt í húfi í lokaumferö 1. ilinn og gull-, siifur- og bronsskóna sem
deildar keppninnar í knattspymu á Adidasveitirárhvert.TryggviGuðmunds-
morgun enda þótt úrslitin séu ráöin son úr ÍBV er markahæstur með 14 mörk
varðandi Íslandsmeístaratitilinn og fall- og síðan kemui- Arnai- Gunnlaugsson úr
ið í 2. deild. ÍA með 12. Þeír mætast á morgun og það
KR og ÍBV bítast um silfurverðlaunin veröur fróðleg barátta því eflaust verður
en bæöi liöin hafa tryggt sér Evrópu- þaö kappsmál fyrir samherja Tryggva og
sæti. KR fer í Evrópukeppni bikarhafa Arnars að láta keppinaut síns manns ekki
en ÍBV i UEFA-bikarínn. KR-ingar ná komast upp með mikið.
siifrinu nema þeir tapi heima fyrir Arnarhefuraðeinsspilaðsexleikiþann-
Keflavík og ÍBV vinni ÍA á Akranesi. ig að hann stendur betur að vígi ef þeir
Keflavík og Leiftur berjast um þátt- verðajafnir.
tökuréttinn í Intertoto-keppninni. Kefla- Rastislav Lazorik úr Breiðabliki og Mi-
vík er stigi yfir en markatalan er Leiftri hajlo Bibercic úr KR hafa skorað ll mörk
í hag. Keilavík sækir KR heim enLeiftur hvor og eru líka í baráttunni um skóna,
fær FH i heimsókn. ásamt Ólafí Þórðarsyni úr ÍA sem hefur
Loks er það baráttan um markakóngstit- skorað 10 mörk.
X
—- 3etrounumi
Everton - Newcastle (1. okt.).
Þeir sem þegar hafa hópnúmer,
nota sín númer áfram.
Englands á eftirfarandi leiki
Everton - KR (28. sept.),
Bolton - QPR (30. sept.) og
Þeir sem nota hópnúmerið sitt
um næstu helgi eru með þegar
dregnar verða út 2 ferðir til