Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Qupperneq 24
32
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
Smáauglýsingar - Sími 550 5000
Amerísk rúm.
Englander Imperial Ultra plus,
king size, queen size heilsurúm.
Hagstœtt verð.
Þ. Jóhannsson, sími 568 9709.
Rými fvrir nýju. Toppar, bolir 1000.
Vesti, bux., skyrtur 2000. Jakkar,
vesti, bux. 3000. Jakkar 6000. Stóri
listinn, Baldursg. 32, s. 562 2335.
Bamafólk, viljiö þiö gera góö kaup?
Komið þá í Do Re Mí. Amico peysur,
Amico jogginggallar o.m.fl. á
mjög góðu verði. Amico á bamið þitt.
Urvalið hefur aldrei verið meira.
Sjón er sögu ríkari. Erum í alfaraleið,
Laugavegi 20, s. 552 5040, v/Fákafen,
sími 568 3919, og Kirkjuvegi 10, Vest-
mannaeyjum, sími 481 3373.
Náttfatapartí. Nú er að kólna, þess
vegna bjóðum við 20% afslátt af öllum
náttfatnaði, bama og fullorðinna, í
nokkra daga. Verð frá 552 með
afslætti. Sendum í póstkröfu.
Cos, Glæsibæ, s. 588 5575,
Sólbaösstofan Grandavegi, s. 562 5090.
Jgl Kerrur
Jg Bilaleiga
Vmnuvélar
Til sölu Topper vinnulyfta, í góöu lagi.
Bjóðum góð greiðslukjör. Úpplýsingar í
síma 562 5815 eða 567 2312 laugardag
til miðvikudags.
Skemmtanir
Hi^f&urinn viðÚsgbyss
Smiðjuvegi 6 Kóp. sími: 5677005
'ssuna
Tilboö um helgar:
• Hawaiisteik m/öllu, 790 kr.
• Chili con came, 390 kr.
• Sá stóri 380 kr. og 300 m/mat.
Lifandi tónlist frá ld. 23 til 03
fóstudags- og laugardagskvöld.
Réttur dagsins m/öllu, 490 kr.
Lambasteik m/öllu, 590 kr.
Kjúklingur, 590 kr.
Djúpsteiktur fiskur m/öllu, 490 kr.
Buff m/öllu, 490 kr.
Kabyssan, Smiðjuvegi 6, sími 567
7005.
Kerruöxlar á mjög hagstæöu veröi,
með eða án rafhemla, í miklu úrvali,
fyrir flestar gerðir af kermm.
Fjallabílar/Stál og stansar hf.,
Vagnhöfða 7, Rvík, sími 567 1412.
Nýir Toyota-bilar.
Á daggjaldi án kílómetragjalds eða
innifóldum allt að 100 km á dag.
Þitt er valið!
Bílaleiga Gullvíðis, símar 896 6047
og 554 3811.
caapR2a©nc5Q
Pú berð númerin á miðanum þfnum saman
við númerin hér að neðan. Pegar sama
númerið kemur upp á
báðum stöðum hefur
pú hlotið vinning.
947480
878439
198010
856393
658385
DRAUMAFERÐ OG
FARAREYRIR
Með Farmiða ert pú kominn I spennandi
SUMARLEIK Happaþrennunnar og DV
Farmiðinn er tvlskiptur og gefur tvo möguleika
á vinningi. Á vinstri helmingi eru veglegir
peningavinningar, sá hæsti 2,5 MILUÓNIR, og
á þeim hægri eru glæsilegir ferðavinningar og
„My First Sony" hljómtæki.
Fylgstu með IDV alla priðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga.
Uppsöfnuð vlnnlngaskrá birtist / DV
2. október 1995.
Ferða- og hljómtækjavinninga má vitja á
markaðsdeild DV Pverholti 14, sími 550 5000
gegn framvlsun vinningsmiða.
Farmiðarnir bfða þin á næsta útsölustað og
þú freistar gæfunnar fyrir aðeins 150 kr.
FLUGLEIÐIRjSSr
SONY,
Menning__________
Strokkvartett
Fyrstu tónleikar á 39. starfsári Kammermúsík-
klúbbsins voru haldnir í Bústaðákirkju sl. sunnudag.
Strengjakvartett skipaður þeim Sigrúnu og Sigurlaugu
Eðvaldsdætrum, Helgu Þórarinsdóttur og Richard
Talkowsky lék fyrst Strengjakvartett nr. 8 í e-moll, op.
59, nr. 2, eftir Beethoven.
Þessi kvartett er einn þriggja, op. 59, sem Beethoven
tileinkaði Andreasi Rasumowsky, greifa frá Rúss-
landi, en hann var mikill listunnandi og lék m.a. sjálf-
ur ágætlega á fiðlu. Þessir þrír kvartettar þóttu mjög
erfiðir að leika og þungir til hlustunar og leið nokkur
tími þangað til þeir festu sér sess meðal annarra verka
hjá strengjakvartettum álfunnar, enda var hér um
tímamótaverk að ræða sem eru enn í dag meðal þeirra
merkustu sinnar tegundar. Flutningur verksins var
um margt vandaður. Flytjendunum tókst að miðla
þeim krafti og spennu sem verkið sannarlega býr yfir.
Hendingar voru skýrt mótaðar og bogar fallegir, eink-
um í adagiokaflanum. Fiðlurnar tvær voru örlítið sár-
ar í háu þríundunum í þriðja kaflanum, en annars var
öll tónmótun góö, þótt hér sé vissulega ekki um hóp
að ræða sem starfað hefur að staðaldri sem slíkur og
þannig t.d. unnið að fágun og samhæfingu síns tóns,
svo nokkuð sé nefnt. Þetta stóra verk Beethovens var
það verkefni, að mati undirritaðs, sem hvað best var
flutt á þessum tónleikum. Framsetning þess var sterk
og ákveðin, en um leið vönduð.
Næst heyrðum við Strengjakvartett nr. 12 í einum
þætti, „Quartettsatz", í c-moll, D. 703, eftir Franz Schu-
bert. Víst þykir að verkið hafi átt aö vera fleirþátta,
en ekki er vitað hvers vegna Schubert skildi við það
svona, í einum þætti. Hvað um það, þetta er hin ágæt-
asta tónlist og er þátturinn í góðu jafnvægi innbyröis.
Verkið var vel leikið og bar vönduðum vinnubrögðum
vitni.
Tónleikunum lauk meö strengjakvartett nr. 1 í c-
moll, op. 51, Nr. 1, eftir Johannes Brahms. Þetta er
fyrsti strengjakvartett sem Brahms leyfði útgáfu á, en
hann hafði vissulega samiö þá nokkra áður. Vandfýsi
Brahms kom þó í veg fyrir að nokkrir þeirra kæmu
fyrir almenningssjónir, en hann var á 40. aldursári
Tónlist
Áskell Másson
þegar þessi, nr. 1 í c-moll, kom út. Þetta er og bæði
mikil og vönduð tónsmíð og raunar sannkallað meist-
araverk, eins og þau tvö fyrri á þessum tónleikum.
Þeir frábæru hljóðfæraleikarar sem hér um ræöir
náðu hér ekki hæðunum, þrátt fyrir að margt væri
gert bæöi vel og fallega. Flutninginn skorti á heildina
vissa fágun og kom hér kannski mest aö sök að hópur-
inn starfar ekki að staöaldri sem slíkur (þótt æskjandi
væri).
Þetta voru þó bæði vandaðir tónleikar og hinir
ánægjulegustu og var kirkjan þétt setin áheyrendum.
Þökk sé Kammermúsíkklúbbnum fyrir þessa góðu
tónleika.
Aðskilnaður líkama
ogsálar
Samhengi hlutanna er svo sem ekki alltaf rökrétt.
Það var til dæmis eftirsókn mín eftir þögn í einveru
sem varð til þess að vekja áhuga minn á sígildri tón-
list. Síðar jókst áhuginn til muna viö þá dæmalausu
umræðu sem varð á alþingi fyrir allmörgum árúm þar
sem spakir menn lögðu til að sparað yrði í ríkisrekstr-
inum með því að fækka fiðluleikurum, blásurum og
öörum hávaðaseggjum í Sinfóníuhljómsveitinni enda
ekki nema verstu menningarsnobbarar sem hlustuðu
á freti þá, ískur og væl sem þetta kostnaöarsama fyrir-
tæki framkallaði. Hins vegar varð þessi umræða einn-
ig til þess að það dróst úr hömlu að ég hefði mig á
tónleika því ég gat engart veginn ímyndað mér mig í
þeim hópi fólks sem ég sá fyrir mér þegar mér varð
hugsað til tónleikahaldsins.
En svo lét ég vaða fyrir nokkrum árum. Og nú telj-
ast tónleikar með góðu stundunum.
Það vakti reyndar furðu mína, þegar ég fór til þess
að hlýða á Sinfóníuna í fyrsta sinn, hvað þar var lítið
af stertimennum og fjaðurskautakerlingum. Háskóla-
bíó var fullt af íslensku fólki af misjöfnu sauðahúsi,
klæddu rétt eins og þvi sjálfu þótti best; fáir í smók-
ing, enginn í síðkjól, sumir í sunnudagafotunum en
margir í gallabuxum og peysum eða bindislausum
skyrtum sem göptu niður á maga. Ég var ekki síður
hissa á því hversu margt ungt fólk var mætt til leiks-
ins og aÚir virtust njóta þess sem boðið var, jafnt hisp-
ursmeyjar sem harðsvíraðir töffarar.
Og nú þegar veturinn er að klessa sér niður á land-
ið með slyddu fyrir norðan hefst Sinfóniuhljómsveit
íslands handa með einn þann krók sem best dugir
gegn skammdegisbragði árstíðarinnar; tónleikahald.
Og ég segi það satt; það er í raun og veru eins og
að fara í ylvolgt og upplýst þrifabað með sálina í sér
þegar maður er búinn að hreiðra um sig í sætinu og
tónarnir taka flugið. Það fellur af manni skítaskán
hefðbundinnar hugsunar og allt verður stærra og
minna og víðara og öðruvisi og eins og best verður á
kosið með samræmi líkama og sálar sem segja skilið
hvort við annað rétt eins og ekkert sé sjálfsagðara og
Atburðir
Úlfar Þormóðsson
þú botnar kannski ekki neitt í neinu en skilur allt sem
þarf; maðurinn upphefst.
Þetta er þannig. Samt hef ég ekki hundsvit á þessu.
Ég var bara þarna eins og hver annar hlustandi og
naut þess með sjón og heyrn, ilman, smekk og tilfinn-
ingu. Og ætla aftur.
Því allir tónleikar vetrarins eru ófluttir enn.
0 bolta
lamui
uatn i
UMFERÐAR
RÁÐ